Morgunblaðið - 19.10.1977, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19, OKT0BER 1977
Réttarhöldin í Prag:
Ornest játar sekt sína
Prag 17. október
Reuter.
Félagasamtök og áfengismál:
STAÐREYNDIR
OG TÖLFRÆÐI
Margt hefur breyst frá þvi bindindishreyfingin kom til sögunnar.
Nú vita menn margt betur um áfengi og áfengismál. Aukin þekking
hefur yfirleitt orðið til þess að rökstyðja betur hugsjón og markmið
bindindishreyfingarinnar.
Nú vita menn að neysla hvers konar áfengis getur orðið vanabind-
andi. Hvort sem menn drekka öl eða létt vín eða sterk getur það allt
gert þá áfengissjúklinga svo að þeir missi vald yfir fíkn sinni sem
orðin er þá að sjúklegri ástríðu. Menn vita líka að enginn getur sagt
um það fyrirfram hverjir úr hópnum verði áfengissjúklingar. Hinu
vita menn að verður að gera ráð fyrir í öllum Evrópulöndum, að af
hundrað unglingum sem byrja áfengisneyslu verði 20 ofdrykkjumenn
og 10 þeirra blátt áfram beinir áfengissjúklingar.
Hitt veita menn líka að hingað til hefur það alls staðar gengið illa
að fá menn til að átta sig og kannast við ástand sitt eins og það er á
leið ofdrykkjunnar fyrr en komið er i hörmulegt óefni.
Ennfremur vita menn að þrátt fyrir allar stofnanir, visindi og
fræðslu hefur þriðjungur áfengissjúklinganna lent þeim megin sem
' engri hjálp verður við komið séu þeir á annað borð frjálsir ferða iþvi
umhverfi sem hefur áfengi á boðstólum.
Þetta eru viðurkenndar tölfrœðilegar staðreyndir, sem blasa við
hverjum þeim sem vill vita hvað hér er um að rœða. Á þetta ber að
horfa opnum augum þegar meta skal þá áhœttu, sem fylgir þvi að
venja sig við áfengi.
Menn vita Hka að fyrir áfengissjúklinginn er allt vonlaust annað
en bindindið. Það skiptir hann þvi mik/u hvernig umhverfið er. Hvað
eru bindindisheimilin mörg? Hvar eru félög sem ekki hafa áfengi á
sinum vegum?
Bindindismennirnir skapa og móta áfengislaust umhverfi, sem er
mikils virði öllum þeim sem komnir eru á hættusvæði áfengisneysl-
unnar' HALLDÓR KRISTJÁNSSON.
Kvistur kynnir starfsemi
alþjóðlegra málfreyjudeilda
TÉKKÓSLÓVAKlSKI leikhús-
stjórinn Ota Ornest mun hafa lýst
sig sekan um undirróðursstarf-
semi við réttarhöldin yfir honum
og þremur öðrum bandamönnum
hans I hreyfingunni „Mannrétt-
indi 77“ að því er heimildir í Prag
hermdu t kvöld. Hér er um að
ræða umfangsmestu réttarhöld
yfir andófsmönnum í Tékkóslóva-
kfu í 5 ár, en auk Ornest er Jiri
Lederer, blaðamaður, sakaður um
undirróðursstarfsemi en
Frantisek Pavlicek leikhússtjóri
og leikritaskáldið Vaclav Havel
sæta vægari ákærum. Hinir þrfr
síðastnefndu voru þeir fyrstu af
800, sem undirrituðu í janúar sl.
yfirlýsinguna „Mannréttindi ‘77“
Heimildir frá Prag hermdu í
kvöld, að Ornest hefði lýst því
yfir við dómarann, að hann harm-
aði aðgerðir sínar og viðurkenndi
að hafa verið i sambandi við út-
sendara erlendra ríkja. Hann er
64 ára að aldri. Hann er ákærður
um að hafa smyglað ritverkum,
sem gagnrýndu stjórnvöld, til
Vesturlanda með aðstoð vest-
rænna diplómata, til útgáfu þar.
Ef hann verður sekur fundinn á
hann yfir höfði sér 10 ára fang-
elsi.
Er réttarhöldin byrjuóu voru
um 20 aðrir andófsmenn í Prag
sóttir af Iögreglu til að svara
spurningum, meðal þeirra voru
Jiri Hajek, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra, dægurlagasöngkonan
Marta Kubisova og leikritaskáldið
Pavel Kohout.
Jiri Lederer, sem einnig kom
fyrir réttinn í dag, viðurkenndi að
hafa sent bönnuð ritverk úr landi
með aðstoð diplómata, en neitaði
að það hefði verið gegn hags-
munum ríkisins. Er hann ætlaði
að hefja varnarræðu sina greip
dómarinn fram í fyrir honum og
sagði að rétturinn hefði aðeins
áhuga á staðreyndum. Lederer,
Pavlicek og Havel hafa lýst því
yfir að þeir muni aldrei játa sig
seka, og neituðu öllum sakargift-
um i dag.
Yfirvöld í Prag hafa lagt mikla
áherzlu á að réttarhöldin snerti á
engan hátt Mannréttindi 77 og
sögðu að ekki hefði verið minnst
einu orði á samtökin í dag. Gert er
ráð fyrir að réttarhöldunum ljúki
á morgun, miðvikudag. Engir er-
lendir fréttamenn fengu að koma
í réttarsalinn og aðeins fjórir af
ættingjum sakborninga.
Meany býður
Sakharov til
Bandaríkjanna
Washington 17. oklðber Keuter.
BANDARlSKI verkalýðsleiðtog-
inn George Meany hefur boðið
sovézka vfsindamanninum og
Nóbelsverðlaunahafanum Andrei
Sakharov og 5 öðrum Rússum að
sækja ársþing AFL-
ClO-verkalýðssamtakanna I Los
Angeles í desember n.k. Hinir
Rússarnir 5 eru Nadezhda Man-
delstam, ekkja sovézks ijóða-
skálds, sálfræðingurinn, Alex-
ander Podrabinek, Anatoli
Marchenko, rithöfundur, rafvirk-
inn Vladimir Borisov og mann-
réttindabaráttumaðurinn Valen-
tin Ivanov.
Meany sagði að hann vildi að
þetta fólk fengi að kynna sér
starfsemi bandarísku verkalýðs-
hreyfingarinnar og láta á það
reyna hvort Sovétstjórnin myndi
standa við Helsinkisáttmálann
um að veita einstaklingum meira
ferðafrelsi. Sakharov sagði frétta:
mönnum að sér væri heiður að
boðinu, en að hann gæti ekki
þekkzt það, því óraunsætt væri að
ætla að hann fengi að fara til Los
Angeles.
Concorde til
New York á
morgun
Washington 17. október. Reuter.
FYRSTA Concordeþotan lendir i
New York á morgun, miðvikudag,
og áætlunarflug þangað hefst 22.
nóvember. Þetta var tilkynnt í
dag er hæstiréttur Bandaríkjanna
hafði kveðið upp þann úrskuró,
að ekki væri hægt að neita Con-
corde um lendingarleyfi. And-
stæðingar Concorde lýstu því yfir
í New York í dag, að þeir myndu
efna til stórfelldustu mótmælaað-
gerða, sem nokkurn tíma hefðu
sézt í New York. Þotan, sem lend-
ir á morgun, verður með einkenn-
isstöfum Air France og British
Airways, sem hafa í 2 ár barizt
fyrir því að fá lendingarleyfi í
New York. Concorde hefur flogið
reglubundið flug milli Washing-
ton, London og Parísar sl. 16 mán-
uði, en málaferli hafa tafið flugið
til New York.
MALFREYJUDEILDIN Kvistur í
Reykjavík er deild innan Alþjóð-
legra Málfreyjudeilda, eða Inter-
national Toastmistress Clubs.
Vegna fjölda fyrirspurna um
markmið málfreyjudeildanna
rhun Kvistur, sem er önnur deild-
in sem stofnuð hefur verið á ís-
landi, efna til kynningarfundar á
Hótel Esju, fimmtudaginn 20.
Athugasemd
I MORGUNBLADINU síðastlið-
inn föstudag var stutt viðtal við
Agnar Kofoed Hansen um ástand-
ið : íslenzka flugstjórnarsvæðinu
f verkfalli B8RB. Agnar Kofoed
hefur nú beðið fyrir eftirfarandi
athugasemd:
„Um svæði íslenzku flugstjórn-
arinnar fara ekki nema 25—30%
þeirrar umferðar, sem telja má
hámarksafkastagetu á svæðinu.
Er sú umferð 50—60% af þeirri
umferð sem við bjuggumst við að
yrði í verkfallinu. Þá er útilokað
að þotur eins og t.d. Flugleiðir
nota, geti flogið sjónflug út úr
íslenzka flugstjórnarsvæðinu.
Það kallar á slik firn af eldsneyti,
að annað er útilokað fyrir vélarn-
ar, en aó fara í hærri loftlög ef
nokkur fjárhagsgrundvöllur á að
vera fyrir flugi, auk þess sem
flugþol styttist til mikilla muna".
Sendiráð greiða
útgjöld fyrir pen-
ingalausa íslend-
inga erlendis
MORGUNBLAÐIÐ hafði sam-
band við Pétur Eggerz, sendi-
herra, í gær og bað hann um upp-
lýsingar um hverja aðstoð sendí-
ráð íslands erlendis hafa veitt ís-
lendingum sem eru í vanda á við-
komandi stöðum vegna verkfalls-
ins. Hann sagði að sendiráðunum
hefði verið veitt heimild til að
greiða allra nauðsynlegustu út-
gjöldin sem þessir ferðamenn
þurfa að borga, eins og mat og
uppihald. Hann sagði jafnframt
að þeim greiðslum væri haldið í
lágmarki og að endurgreiðslu
væri krafizt þegar við heimkom-
una.
október kl. 20.30, og eru allir vel-
komnir á fundinn.
Fyrirhugað er að stofna fleiri
deildir málfreyja, en þessi félgs-
skapur nýtur mikilla vinsælda úti
um allan heim.
Malfreyjur telja þjálfunina sem
déildirnar veita ekki aðeins vera
mikilvæga fyrir einstaklinginn
heldur einnig vera gagnlega sam-
félaginu í heild. Markmið þeirra
er: að bæta hæfileika ein-
staklingsins með námi og æfing-
um í samtölum, ræðum, hópfor-
ystu og skilgreinandi áheyrn; að
þróa betri skilning á gildi flutn-
ings máls opinberlega, og að örva
félagsleg samskipti.
(Fréttatilkynning)
Enn einn reið-
hjólastuldurinn
ÖRANSGULU gírareiðhóli, af
tegundinni Jet Star, var s.l.
sunnudag stolið frá íþróttahúsi
Alftamýrarskóla. Þeir sem hafa
orðið varir við hjólið eru vinsam-
least beðnir að láta vita með því
að hringja í síma 85388.
Fermingar á
árinu 1978
LANGHOLTSPRESTAKALL
Fermingarbörn í Langholtskirkju
— vor og haust 1978 — eru beðin
að mæta í safnaðarheimilinu, sem
hér segir: I dag, miðvikudag 19.
okt., innritar séra Sigurður Hauk-
ur Guðjónsson. Á morgun,
fimmtudag 20. okt., klukkan 6
síðd., innritar séra Árelíus Níels-
son. Vinsamlegast hafið með ykk-
ur ritföng. Prestarnir.
DIGRANESPRESTAKALL
Þau börn í Digranesprestakalli,
sem fermast eiga á næsta ári, og
ekki komu til innritunar í gær,
eru beðin að mæta í dag, míðviku-
dag, i safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 1—3 síd. Þor-
bergur Kristjánsson sóknarprest-
ur.
KÁRSNESPRESTAKALL
Fermingarbörn séra Árna Páls-
sonar mæti i Kópavogskirkju n.k.
föstudag kl. 4 siðd. Árni Pálsson
sóknarprestur.
Nýstandsett
skrifstofuhúsnæði
til leigu í miðborginni um er að ræða 5 herb.
sem leigjast hvert fyrir sig eða öll saman.
Tilboð sendist Mbl. fyrir sunnudaginn 23. þ.m.
merkt: „skrifstofuhúsnæði — 441 6."
'26600'
'l|{i;i||iii||i||l|i,,!|!í!ii|!|i||iiiiiiiilii|i|||||||i|l!|]|l||[1
'
Höfum til sölu eftirtaldar íbúðir er seljast tilbúnar
undir tréverk og málningu, sameign húsanna afhend-
ist fullgerð m.a. með teppum á göngum, hurðir fyrir
íbúðunum o.fl. í 3ja hæða flokkum i Hólahverfinu í
Breiðholti III.
Byggingaraðilar: Miðafl h/f og Birgir R Gunnarsson s/f.
SPÓAHÓLAR6
Tvær 4ra herb. íbúðir 96,5 fm ibúðir á 2 og 3. hæð
Bílskúr fylgir hvorri íbúð. Verð: 11.1 millj.
ORRAHÓLAR 5
Ein 3ja herb. 89.9 fm íbúð á 2. hæð. Verð: 8.9 millj
Tvær 5 herb. 106 5 fm á 2. og 3ju hæð Bílskúr fylgír |
hvorri ibúð. Verð: 11.4 millj
ORRAHÓLAR3
Tvær 4ra herb. 95.4 fm ibúðir á 2. og 3ju hæð Verð:
9 6 millj.
Tvær 4ra herb. 99.91 fm íbúðir á 2. og 3ju hæð. Verð:
9.8 millj.
Hægt er að fá keypta bilskúra með íbúðunum. Verð:
1.100— 1.400 þúsund.
Seljendur bíða eftir 2.5 millj. af húsnæðismálastj. láni er
við aðstoðum fólk við að sækja um.
Söluverð má greiða á allt að 1 8 mánuðum.
Traustir byggingaraðílar.
Allar nánari upplýsingar og teikningar á skrifstofunni.
Fasteignaþjónustan
Austurstræti 17 (Silli& Valdij
simi 26600
Ragnar Tómasson.
Glæsilegt einbýlishús — Garðabæ
Höfum til sölu stórt einbýlishús við Markaflöt. í húsinu eru 4 svefnherb,
húsbóndaherb., stór stofa, eldhús, bað, gestasnyrting, sauna, geymslur
og þvottahús ásamt mjög stórri bílgeymslu. Innréttingar allar í sér
flokki. Mjög skemmtileg lóð.
Sigurður Helgasort hrl., Þinghólsbr. 53, Kópav. sími 42390,
kvölds. 26692.