Morgunblaðið - 29.10.1977, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 29.10.1977, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÖBER 1977 Útgefandi Framkvæmdastjóri " Ritstjórar Ritstjómarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjóm og afgreiBsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavfk. Haraldur Sveinsson. Matthlas Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjöm GuSmundsson. Bjöm Jóhannsson. Ámi GarSar Kristinsson. ASalstræti 6. sfmi 10100. ASalstræti 6, sfmi 22480. Frjálsræðis-, athafna og eignaréttarstefna Af vötnunarstöd SÁÁ opnuð í næsta mánuði SAMTÖK áhugamanna um áfengisvandamáliS, SÁÁ, efndu í gær til fundar meS fréttamönnum þar sem greint var frá því helzta er unniS hefur veriS aS þá 20 daga sem liSnir eru frá stofnun þeirra og um leiS afhentu eigendur veitingahússins ÓSals samtökunum kr. 200 þúsund aS gjöf. Hilmar Helgason, formaSur SÁÁ, sagSi aS einkum hefSi veriS unniS aS tveim málum aS undanförnu, stofnun afvötnunarstöSvar og leitar- og leiSbeiningarstöSvar, svo og yrSi unniS aS útgáfu blaSs er fram liSu stundir. Unnið er að undirbúningi sem þyrfti í nútímanum — að útgáfu blaðs SÁÁ sem „þetta er að mati eigenda kemur fyrst út um miðjan nóvember, að því er Hilmar sagði, og verða um leið send- ir til félagsmanna gíróseðlar fyrir stofnframlögum og geta félagar ráðið hversu mikið þeir leggja af mörkum Hilm- ar Helgason sagði að öll þessi starfsemi yrði fjármögnuð með frjálsum framlögum og kvaðst vona að undirtektir yrðu góðar Um verkefni sem lægi fyrir að vinna nefndi Hilmar m.a fræðslustarf- semi, svo sem útgáfu bækl- inga, fræðsluþátta og auglýs- inga t.d. í sjónvarpi o.fl. í þeim dúr Að lokum sagði Hilmar að það hefði verið mjög gott að leita til hinna ýmsu aðila um aðstoð, allir hefðu tekið mjög vel erindum samtakanna og væri það stórkostlegt að rek- ast þannig hvergi á lokaðar dyr. Jón Hjaltason einn af eig- endum Óðals hafði orð fyrir þeim og sagði að þeir vildu með þessari gjöf sinni sýna að þeir treystu þessum sam- tökum til að vinna að áfeng- isvandamálinu á þann hátt Óðals fyrsti félagsskapurinn, sem gerir tilraun til að vinna að áfengisvandamálinu i takt við þann tíma sem við lifum á," sagði Jón og afhenti Hilmari Helgasyni 200.000 króna framlag til starfsemi samtakanna. Hilmar Helgason þakkaði Óðalssmönnum fyrir góða gjöf og sagðist raunar vita að þetta væri ekki neitt skrum hjá þeim, eins og hann orð- aði það, þeir hefðu áður sýnt áhuga sinn í að leggja þessu máli lið, t d er þeir lánuðu ungum manni ,,sem grét fram á barborðið og sagði að allt væri búið fyrir sér, 1 50 þúsund krónur, sem nægði honum fyrir ferð á Freeport- sjúkrahúsið og sögðu að hann mætti endurgreiða það eftir lélegu minni", sagði Hilmar og einnig nefndi hann að þeir hefðu oft vísað fólki til samtakanna til að fá að- stoð við að leysa vandamál sín. Samningar hafa tekizt milli SÁÁ og styrktarfélags lamaðra og fatlaðra um leigu á þúsnæði SLF i Reykjadal í Mosfellssveit og er verið að leggja síðustu hönd á greinargerð um rekstur stöðvarinnar, sem síðan verður send heilbrigðisráðu- neytinu til umsagnar nú strax eftir helgina. Gert er ráð fyrir að hafa dagskrá allan daginn á þessari afvötnunarstöð þar sem boðið er uppá fyrirlestra um læknisfræðileg efni, einkaviðtöl, kvikmyndasýn- ingar, fundi og læknismeð- ferð. Vonir standa til að rekstur stöðvarinnar geti haf- izt fljótlega eftir mánaðamót- in. Þá greindi Hilmar Helga- son frá því að leitar- og leið- beiningarstöð væri ráðgert að opna um svipað leyti og væri unnið að útvegun hús- næðis. Þar mun starfa sér- hæft starfsfólk sem ræðir við drykkjusjúklinga og aðstand- endur þeirra og boðið uppá alhliða ráðgjafarþjónustu Hilmar taldi ekki síður mikil- vægt að aðstandendur drykkjusjúklinga gætu átt kost á slíkri ráðgjöf. í þessu húsnæði verður einnig skrif- stofa SÁÁ. Eigendur Oðals, talið frá vinstri Hafsteinn Sigurðsson, Ólafur Laufdal og Jón Hjaltason afhenda Hilmari Helgasyni formanni SÁÁ gjöf frá veitingahúsinu Óðali. Ljósm RAX Fremur dræm veiði á Suðurlandssíld: Saltað hef ur verid í 55 þúsund tunnur af síld Eyjólfur Konráð Jónsson alþinf’ismaður flutli athyglis- verða ræðu um stóðu einkafram- taks í þjóðarhúskapnum á fundi landsmálafélagsins Varðar fyrir skemmstu. Hann færir fram slerk rök fyrir því, að þrátt fyrir höft, hömlur og jafnvel mismunun í samkeppnisaðstöðu við önnur rekstrarform okkar hlandaða hag- kerfis, hafi einkaframtakið hald- ið velli — og sannað gildi sitt í verðmætasköpun, viðskiptum og þjónustu þjóðfélagsins. Eyjólfur rekur dæmi úr öllum greinum atvinnulffsins, máli sfnu til sönnunar. Hér verður aðeins staldrað við tvö þeirra, sem sótt eru til sjávarúlvegs og landhún- aðar, þó öll eigi þau erindi til umhugsunar og umræðu meðal þjóðfélagsþegnanna. „Staða einkaframtaks f sjávar- útvegi er að mínu mati sterk“, segir þingmaðurinn. Þetta einka- framtak er vaxið úr frumkvæði einstaklinga, oft úr sjómanna- stétt, er hyggt hafa upp útveg sinn einir — eða f félagi við aðra. Einnig úr samtökum einstaklinga í einstökum byggðarlögum um al- vinnuuppbyggingu. stundum með tilstvrk úrvinnsluf.vrirtækja, sem á staðnum eru, eða Viðkomandi sveitarfélags. Dæmi um slfk öflug útgerðarfélög í hlutafélagsformi, með aðild sveitarfélags, séu t.d. í Siglufirði og á Akure.vri. Heildarútflutningur sjávar- afurða árið 1975 nam .'{7,5 milljörðum króna. Að magni til var hlutur frystihúsa SÍS 23,7% í þeim útflutningi en fiskvinnslu- stöðva á vegunt Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna 73,6%. Þó þessar tölur sýni ekki aifarið mörkin milli einkarekstrar og samvinnurekstrar í fiskiðnaði, gefi þa>r þó athyglisverða mynd, sent ekki verði l'rain hjá litið, er staða einkaframtaks f útgerð og fiskiðnaði er metin. Minna má og á þann árangur einkaframtaks og sölusamtaka út- flutningsframleiðslunnar, seni kemur fram í sterkri söluaðstöðu íslenzka frystiafurða á Kanda- ríkjamarkaði, sem er arðgæfastur markaða okkar, og þar af leiðandi traustust undirstaða lífskjara okkar eins og horfir. „Vart verður öðru frani hald- ið,“ segir Eyjólfur Konráð í ræðu sinni, „en að fslenzkur land- húnaður sé stundaður svo til al- farið á vegum einkaframtaks" hændanna sjálfra. „Er það gömul hefð allt frá Ingólfi Arnarsyni til Bjarts í Sumarhúsum og Björns á Löngumýri.“ Eu þrátt f.vrir sterka einstaklingshyggju bænda,. fvrr og sfðar, „hefur legið við borð að einkaframtak yrði al- dauða á sviði viðskipta og þjón- ustu við bændastéttina, til ómælds tjóns bæði fyrir bændur og neytendur." Eftir að hafa rakið stöðu einka- framtaks í einstökum atvinnu- greinum fslenzks atvinnulffs vfk- ur Eyjólfur Konráð að áhrifum Sjálfstæðisflokksins sem frjáls- hvggjuflokks, á þróun mála, bæði í genginni tíð og f náinni framtfð. Vmsum þyki hægt hafa miðað — f átt að frjálsara hagkerfi. En þeg- ar altt kemur til alls, hefur þó mikið áunnizt. Ilann minnti á þróun mála frá lyktum sfðari heimsstyrjaldar; frá tfmum fjár- hagsráðs, skömmtunar og svarts markaðar. Ennfremur á þær að- gerðir á frjálshyggjubraut, sem gripið var til á tímum viðreisnar- stjórnar, upp úr 1960, sem verið hafi mikill framtaks- og fram- farahvati í efnahags- og atvinnu- lífi þjóðarinnar. Þessi þróun hefði ekki orðið án stjórnaraðild- ar og forystu Sjálfstæðisflokks- ins. Hún hefði hins vegar orðið enn framsæknari, ef Sjálfstæðis- flokkurinn hefði einn ráðið ferð. Tekið skal undir þessi orð þing- mannsins. Samsteypust jórnir fara jafnan málamiðlunarleið mismunandi ólfkra flokkssjónar- miða eða þjóðmálaviðhorfa, þó þær séu öngvu að sfður óhjá- kvæmilegar, að óbreyttu kjós- endafylgi og þingmannastyrk ís- lenzkra stjórnniálaflokka. Eyjólfur Konráð höfðar mjög til þeirrar nauðsynjar, sem sé á almannaþátttöku f atvinnurekstri með eignaraðild sem flestra að atvinnufyrirtækjum, t.d. í formi almenningshlutafélaga. Afrakst- ur atvinnufyrirtækja „þarf ekki og á ekki að falla fáum í skaut", segir hann í ræðu sinni. „Dreifa ber völdum og þjóðarauð", segir hann. Einkaeign íbúðarhúsnæðis er gleðilegt íslenzkt dæmi um heilbrigða þróun almennrar eignastefnu. Þessi þróun getur einnig haslað séi’ völl f atvinnu- greinuni þjóðfélagsins — og, ef rétt er á haldið, opnað leið til jákvæðrar ávöxtunar sparifjár, og meiri skilnings milli atvinnu- greina og almennings. Þessi al- menna þátttaka á vfsi f hlutafjár- framlagi almennings í ýmsum sjávarplássum landsins, sem gefa mætti nieiri gauni að. En að sjálf- sögðu þarf þá að tryggja atvinnu- rekstri þá afkomu, að arðsemi hans liöfði til slfkrar ávöxtunar á sparifé almennings. Orðrétt sagði Evjólfur Konráð í tiivilnaðri ræðu: „Þrátl fyrir allt hefur ýntislegt áuniiist og þokast til betri vegar. Annmarkarnir eru fyrst og fremst fólgnir í ofstjórn og út- þenslu opinbers valds og valda- stofnana. Engu að sfður hefur einkaframtak haldið velli, og þvf er að þakka það, sem áunnist hef- ur. En enginn getur sagt að það sé Iftið. Framundan er ný barátta, sem beinist að þvf að berja niður verðbólgu og opinbera útþenslu- stefnu, en efla þess í stað eigna- stefnuna. Kjörorðið hefur verið „eign handa öllum" og er það enn. Við viljum haga þannig mál- um, að sem allra flestir geti verið fjárhagslega sjálfstæðir og notið þess öryggis, sem þvf er samfara. Við viljum dreifa þjóðarauðnum og völdunum í þjóðfélaginu, ekki til að sundra þvf, heldur til að tengja það saman órofa böndum. Við viljum forðasl, að pólitfsk völd og fjárhagsleg séu á sömu hiindum, því að þá f.vrst er frelsi og lýðiæði hætt. Við viijum efla stefnu athafna sérhvers einstakl- ings og frjálsræði hans, við berj- umst fyrir eignaréttarstefnu, at- hafnastefnu, frjálsræðisstefnu, sjálfstæðisslefnu." IIEILDARSÖLTUN Suður- landssíldar er ntS orðin um 55 þúsund tunnur, en á sama tíma í fyrra hafði verið saltað í um 70 þús- und tunnur. Söltun er þeg- ar hafin á 28 söltunarstöð- um á landinu á svæðinu frá Eskifirði tii Stvkkishðlms. AIIs hafa 86 hringnótaskip fengið leyfi til að veiða síld, en helmingur skip- anna mun ekki liafa hafið veiðar enn sem komið er, þótt aðeins séu eftir um þrjár vikur af veiðitíman- um. Þessar upplýsingar koma fram í upplýsingabréfi til síldarsaltenda frá Síldarútvegsnefnd, sem Morg- unblaðinu barst í gær. Þar segir að síldveiðar í reknet hafi verið leyfðar 20. ágúst og veiðar hring- nótaskipa 20. september. Frá ver- tíðarbyrjun og fram yfir mánaða- mótin ágúst — september varð vart vió töluverða sfld út af Snæ- fellsnesi og fékkst þar allgóður afli í reknet í nokkra daga. Síldin á þessu svæði var óvenju stór, en mögur, enda var þá skammur tími frá hrygningu. Síðan hafa rek- netabátarnir nær eingöngu veitt á svæðinu frá sunnanverðum Aust- fjörðum til Ingólfshöfða. Veiði hefur verið fremur dræm, þegar á heildina er litið, en þó hafa komið einstaka góðir veiðidagar á tíma- bilinu. Sjávarútvegsráðuneytið veitti alls 86 hringnótabátum leyfi til síldveiða, en þær hafa gengið illa, þar til í byrjun þessarar viku, en síðan hefur afli verið sæmilegur á veiðisvæðinu út af Ingólfshöfða, þegar veður hefur leyft. Síldin við suðaustanvert landið hefur verið óvenjulega mögur allt veiði- tímabilið og fremur misjöfn að stærð síðustu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.