Morgunblaðið - 29.10.1977, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 29.10.1977, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 1977 39 Fjögur valin til keppni á EM í Alpagrehm í vetur ÁKVEÐIÐ hefur veriö ao senda fjora íslenzka keppendur á Evrópu- meistaramótið í Alpagreinum skíðamanna, sem haldiö verður f Austurrfki f febrúar á næsta ári. Þau sem Skfðasambandið hefur valið eru Steinunn Sæmundsdóttir, Sigurður Jónsson, Haukur Jóhannsson og Tómas Leifsson. Steinunn Sæmundsdóttir dvelur um þessar mundir við æf- ingar á ítalíu með norska lands- liðinu. Hefur henni verið boðin þátttaka i tveimur FlS-mótum f Noregi og hafa Norðmenn látið þau orð falla að Steinunn sé sízt lakari en norsku landsliðs- stúlkurnar. Sigurður Jónsson meiddist í baki í lok siðasta keppnistímabils skíðmanna og í sumar varð hann fyrir því óhappi að detta af vinnu- palli og tóku bakmeiðslin sig þá upp. Hefur Sigurður enn ekki get- að hafið æfingar eins og hann hafði ráðgert, hann er því enn hér á landi, en ekki við skíðaæfingar f Mið-Evrópu. Um helgina heldur skíðaforyst- an haustþing sitt og fer það fram á Akureyri. Þess má einnig geta að nýlega var haldið hér á landi þing norrænu skíðasambandanna. Áfall fyrir gönguíþróttina - Magnús og Haukur fótbrotnir TVEIR af fremstu skíða- göngumönnum íslendinga fótbrotnuðu fyrir nokkru síðan og geta þeir því ekki byrjað æfingar eins fljótt og nauðsynlegt hefði verið fyrir þá. Þeir Magnús Eiríksson, Siglufirði og Haukur Sigurðsson, Ólafs- firði, voru í sérflokki göngumanna í fyrravetur ásamt Halldóri Matthías- syni, en þar sem tveir hinir fyrrnefndu urðu fyrir þessu áfalli hefur Halldór nokkurt forskot á þá. Að því er fregnir herma brotn- uðu þeir báðir við knatt- spyrnuiðkanir. Þeir Halldór og Magnús höfðu verið valdir til þátt- töku í Evrópumeistaramóti í göngu, sem fram á að fara í Lahti í Finnlandi i vetur. Bendir allt til þess að Magnús verði af þeirri ferð vegna óhappsins. Magnús sigraði i 30 km göngu og í tvíkeppni á síðasta lands- móti, en Haukur varð þriðji bæði í 15 og 30 km göngu og er mjög vaxandi göngumaður. NOKKRIR islenzku landsliðsmannanna I handknattleik fvlgjast með leik Dana <>« Svia I gærkvöldi o« virðist hrifning þeirra ekki vcra sérlega mikil. Efst sitja þeir Kristján Sigmundsson og Þorbergur Aðalsteinsson, i miðjunni Bjarni Guðmundsson og Jón fyrirliði Karlsson, í fremstu röð Olafur Benediktsson, Jón Pétur Jónsson, Geir Hallsteinsson og Bjarni Jónsson — fyrrverandi landsliðsmað- ur. Islendingar mæta Dönum I dag og hafa tvær breytingar verið gerðar á liðinu frá leiknum við Noreg, Ólafur Benediktsson kcmur inn fyrir Gunnar Einarsson og Arni Indriðason fyrir Þorbjörn Jensson. (Ijósm. RAX). Jafntframan af, en síð- an öruggur danskur sigur JSÍ með haustmót FYRSTA júdómót vetrarins, haustmót Judósambands Islands, fer fram i Iþróttahúsi Kennarahá- skóla Islands á morgun, sunnu- daginn 30. október og hefst það kl. 14.00. Mót þetta er punktamót og er öllum heimil þátttaka í þvi. Keppt verður i sjö þyngdarflokkum og er búizt við þátttöku allra beztu júdómanna landsinS i mótinu. Dregið í Englandi DREGIÐ hefur verið um það hvaða liö leika saman í sextánliða úrslitum ensku deildarbikar- keppninnar. Fór drátturinn þann- ig: Arsenal — Hull Bolton — Leeds Bury/Millwall — West Bromwich Ipswich Town — Manchester City/Luton Liverpool — Coventry Notthingham Forest — Aston Villa Sheffield Wed. — Middles- brough/ Everton Wrexham — Swindon/ Portsmouth. VIÐUREIGN Svfa og Færeyinga í Norðurlandamótinu I handknattleik gat ekki farið nema á einn veg. Svfar hlutu að sigra, þar sem öðrum megin á vellinum var lið, sem alltaf hefur verið meðal beztu handknattleiksþjóða heims, hinum megin byrjendur f íþróttinni. Úrslitin urðu þau að Svfar skoruðu 34 mörk, Færeyingar 15. t leikhléi var staðan 19:7. Byrjuðu Svíar leikinn f gær- þeir að slaka á og náðu ekki eins mjög skemmtilega og voru Færey- kvöldi af miklum krafti, komust í miklu forskoti og upphafið benti ingarnir á stundum alls ekki með 3:0, síðan 10:1 og 13:2, en þá fóru til. Léku Svíarnir oft á tíðum í leiknum. Má segja að liðin hafi 19 marka sigur Svía — og gatverið stærri NORÐMENN komu á óvart i fyrri hálfleiknum á móti Dönum f Norðurlandamótinu i handknattleik í gærkvöldi. Var leikurinn þá mjög jafn og staðan 11:10 fyrir Dani í leikhléi, en f seinni hálfleiknum sigu Danir fram úr og sigruðu örugglega 20:15. Var leikurinn á köflum mjög skemmtilegur á að horfa fyrir sárafáa áhorfendur, en á milli villur, ótfmabær skot og óþarfa harka. Eftir þessum leik að dæma eiga íslendingar möguleika á að sigra Danina i dag, en hæpið er að sigurinn verði nægilega stór til að tsland komist i úrslitaleikinn á morgun til að svo fari — þarf að verða mikil breyting 'á íslenzka liðinu. Jafnt var á flestum tölum i fyrri' hálfleiknum upp i 9—9, en þá gerðu Danir tvö mörk á móti einu norsku og i leikhléi var staðan 11:10. I seinni hálfleiknum hljóp mikil harka i leikinn og leystist hann upp á köflum. Verður að segjast eins og er að islenzku dómararnir þeir Hannes Þ. Sig- urðsson og Karl Jóhannsson, voru ólikir sjálfum sér að þessu sinni, ósamkvæmir sjálfum sér og seinir að taka ákvaróanir. Norðmönnum tókst ekki að skora mark i seinni hálfleiknum fyrr en 14 minútur voru af leik- tímanum, en Danir höfðu þá skor- að tvivegis. Kom síðan sá leikkafli Dananna, sem gerðu út um leik- inn, þeir breyttu stöðunni úr 13:11 í 17:11 og var þá gert út um leikinn, þó 10 mínútur væru eftir. Munurinn á liðunum varð síðan fimm mörk, 20:15 eins og áður sagði. Virtist það ekki koma að sök þó dönskum leikmönnum væri visað af velli i seinni hálf- leiknum i 4x2 mínútur, en Norð- mönnum aðeins í tvær minútur. Var athyglisvert að sjá hve hreyf- anlegir Danirnir voru þegar þeir voru færri og hve vörnin fylgdi vel boltanum. Beztu leikmenn liðanna i þessum leik voru markverðirnir, Mogens Jeppesen hjá Danmörku, Morgan Juul og Björn Steive í norska markinu. Allir sýndu þeir markvörzlu eins og hún bezt ger- ist, en höfðu einnig fyrir framan sig góðar varnir lengst af leikn- um. Af útileikmönnum liðanna voru Michael Berg og Erik Pedersen beztir, ásamt Thor Munkager í fyrri hálfleiknum. Af norsku leik- mönnunum voru Gundem og Gjerde einna beztir. leikið sitt hvora íþróttina. Er lið Svíanna trúlega bezta lið- ið í Norðurlandamótinu, en þó skal ekkert um það fullyrt, þar sem andstæðingurinn var það slakur að sænska liðið verður ekki dæmt af þessum leik. Varla fá Svíarnir heldur mikla mót- spyrnu í leiknum gegn Finnum á Akranesi i dag, þar sem þessi tvö lið eru f allt öðrum gæðaflokki en Svíarnir. Það verður ekki fyrr en í úrslitaleiknum að Svfarnir þurfa að taka á, en þá mæta þeir annað hvort Dönum eða Islendingum. Beztir í liði Svia í gærkvöldi voru Claes Ribendahl og Sven Ake Frick, en liðið virtist jafnt i leiknum við Færeyingana og fengu byrjendur í sænska lands- liðinu að spreyta sig i gær. Léku hvorki þeir Bobba né Björn And- erson með liðinu i gærkvöidi. Af Færeyingunum er Eyðfinn- ur Egholm skástur, en Jogvan Moerk barðist einnig vel. IVIörk Svíþjóðar: Bengt Hakan- son 6, Ingemar Anderson 5, Claes Ribendahl 6, Bengt H:nson 5, Dan Erikson 3, Sven-Ake Frick 3, Lars Göran Jönson 3, Thomas Augustsson 1, Basti Rasmussen 1, Göran Gustafsson 1. Mörk Færeyinga: Eyðfinnur Egholm 4, Sverri Jacobsen 3, Jogvan Moerk 3, Hanus Joensen 3, Jonny Joensen 1. —áij. amót karla í mmm ] |T§ rj 1 | |T||| mmméMmm Kl. 14:00 Finnland — Svíþjóð á Akranesi Kl. 16:00 ísland — Danmörk í Laugardalshöll KOMIÐ OG SJÁIÐ SPENNANDI LEIKI NU VINNUM VIÐ DANINA Handknattleikssamband íslands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.