Tíminn - 05.06.1965, Blaðsíða 1

Tíminn - 05.06.1965, Blaðsíða 1
HANDBÓK VERZLUNAR MANNA Askriftarsími 16688 16688 16688 24 SÍÐUR HÁNDBÓK VERZLUNARMAMNA A'SKRIFTARSÍMI 16888 16688 16688 sgwÆmsmmæm wmmmm Éllíililil Frá aSalfundi LoftleiSa í gær. (Tímamynd GE) Frá aSalfundi Flugfélagsins í gær. Einhugur á aðalfundi Flugfélags íslands: Stiórnarformaður Loftleiða um Flugfélagið: Hrindum hverri HVE LENGI GETA OSKA- árás á félagið BÚRN VERID PELABÖRN? IGÞ-Reykjavík, föstudag. Aðalfundur Flugfélags fslands var haldinn að Hótel Sögu í dag. Forstjóri félagsins, Öm Ó. Johnson, skýrði frá rekstri félagsins ár- ið 1964, en hagnaðurinn nam rúmlega einni milljón. Varð nær fjögurra millj- óna króna tap á innanlandsfluginu, en fimm milljóna ágóði af millilandaflugi. Samþykkt var á fundinum að gefa út jöfnunarhlutabréf, þannig að núgildandi verð hlutabréfa fimmfaldaðist. f frétta tilkynningu um fundinn segir, að fram hafi komið mikill einhugur um að standa trúan vörð um félagið, og hrinda hverri árás, sem það kynni að verða fyrir, svo það mætti í framtíðinni, sem hingað til, veita landsmönnum þá þjón ustu, sem það frá upphafi hefur lagt sig fram um að rækja sem bezt. Guðmundur Vilhjálmsson, formaður stjórnar Flugfélagsins, setti fundinn, en fundarstjóri var kjörinn Magnús Brynjólfsson og fundarritari Jakob Frí- mannsson. I skýrslu forstjóra um flugið kom fram, að flogið var til sömu staða og áður en ferðum fjölgað. Mikil aukning varð í farþegaflutningum, bæði innan lands og milli landa. Þar varð far- þegaaukningin 27,7% en innanlands nam aukningin 12,5%. Alls flugu 112. 315 manns með flugvélum félagsins ár- ið 1964. Aukning vöruflutnings nam 36,3%. Samanlagt flugu „Faxarnir“ nokkuð á fjórðu milljón kílómetra. Forstjórinn sagði, að þrátt fyrir aukna flutninga og auknar tekjur, hefði vax- andi dýrtíð hér og í sumum nágranna- löndunum valdið því að hagnaður af rekstri félagsins hef ði orðið minni en vonir stóðu til. Heildarveltan nam 180,3 milljónum króna. Hagnaður af milli- landaflugi varð 5 millj. en tapið á inn anlandsfluginu 3,9 millj. Reksturshagn aður varð 1,1 millj. og höfðu þá eignir vérið afskrifaðar um 11,5 millj, kr. Um s. 1. áramót unnu 312 starfsmenn hjá félaginu og hefir sú tala tvöfaldast á s. 1. 10 árum. Á sama tíma hefur umsetn- ing félagsins fjórfaldast. Forstjórinn kvað kaupin á Fokker Friendship skrúfuþotunni merkasta á- fangann í sögu félagsins á liðnu ári. Þá skýrði Örn forstjóri frá því, að nú væri í athugun að kaupa fullkomna þotu til millilandaflugs, og sagðist hann vænta þess, að þær athuganir leiddu til niðurstöðu seint á þessu ári. Hér væri um mestu fjárfestingu í sögu félagsins að ræða, því þotur af þeirri gerð, sem henta mundi Flugfélaginu myndu kosta frá 150—250 millj. kr. ásamt varahlut- um og þjálfun starfsmanna. Þá ræddi Örn samninga, sem staðið hefðu yfir milli Flugfélagsins og Bjöms Pálssonar um stofnun sameiginlegs flug félags, en þeim samningum væri ekki lokið. í stjórn félagsins voru kjörnir Guð- mundur Vilhjálmsson, Bergur G. Gísla- son, Birgir Kjaran, (fyrir Richard Thors, sem baðst undan endurkosn- ingu eftir tuttugu ára setu í stjprn), Jakob Frímannsson og Björn Ólafs- son f varastjórn voru kjörnir Sigtrygg ur Klemenzson og Eyjólfur Konráð Jónsson. Margir tóku til máls á fundinum, sem var fjölsóttur og kom þar fram einhugur um. að hrinda hverri árás, sem félagið kynni að verða fyrir, og mun þar höfð að til hlutabréfasölu sem annars. & IGÞ-Reykjavík, föstudag. Aðalfundur Loftleiða var haldinn í Tjarnarbúð í dag. Aðalframkvæmdastjóri félagsins A1 freð Elíasson, skýrði frá rekstri félags- ins árið 1964, en Sigurður Helgason, varaformaður félagsstjórnar las reikn- inga þess. Hagnaðurinn 1964 nam rúm um þrjátíu og fjórum milljónum. Veltu- aukningin nam rúmlega 23%. Skatt- greiðslur í ár munu nema rúmum fimmtán milljónum. Fyrstur tók til máls Kristján Guð- laugsson, formaður félagsstjórnar. Ræddi hann einkum skipti Loftleiða og Flugfélagsins allt frá árinu 1950 og gerði grein fyrir því tilboði Loftleiða að kaupa hlutabréf Flugfélags íslands, sem nú eru i eigu Eimskipafélagsins á fimmtánföldu verði. Taldi hann i ræðu sinni að hvergi hefði hallað á Flugfé- Iagið i skiptum þess og Loftleiða. Sagði hann í lok máls síns um Flugfélagið, að forstjóri þess virtist telja félag sitt eitt af óskabörnum þjóðarinnar, „en þaó rísa ekki allir undir því nafni og hve lengi geta óskabörn verið pelaböm?" Það kom fram í skýrslum félagsins, að afskriftir urðu rúmar 84 milljónir árið 1964. Félagið á nú fimm flugvélar af Cloudmastergerð og fjórar af gerðinni Rolls Royce 400. Þrjár þeirra eru nú í förum. Aukningin í farþegaflutningi varð 27.5% á árinu og vöruflutningar jukust um 23,3%. Um síðustu áramót voru fastir starfs menn félagsins 615 að tölu. Þar af unnu 424 þeirra hér á landi. Kaupupp- bót þeirra nam rúmum tveimur milljón um króna. Félagið skilaði bönkum gjald eyri sem svarar til 132.302 millj. kr. og 120 millj. fóru í afborganir af flug- vélum. Skuldir og skuldbindingar félagsins gagnvart Canadair og bönkum þess fé- lags nema nú rétt um 822 millj. kr., auk vaxta. Hins vegar er hrein eign fé- lagsins nú samkvæmt skattaframtali ekki nema 53 milljónir og hlutfallið milli hreinnar eignar og skuldbinga því einn á móti fimmtán. Þá stendur félagið í hótelbyggingu á Reykjavíkurflugvelli, sem talið er að muni kosta hundrað milljónir uppkomið. Samþykkt var að greiða 15% arð til hluthafa og greiða starfsmönnum fé- lagsins kaupuppbót. Einnig samþykkti fundurinn að leggja 200 þús. kr. til orlofsheimilis starfsmanna Loftleiða. Eins og fyrr segir fjallaði ræða stjórnarformanns að töluverðu leyti um Flugfélagið. Sagði hann að vegna skipt- ingar flugleiða innanlands upp úr 1950 sem öll hafi verið Flugfélaginu i vil, hafi Loftleiðum verið bolað út úr inn- anlandsfluginu. Sagði hann að það hefði valdið deilum á sínum tíma, og Loft- Ieiðir hefðu sannarlega ekki hætt innan- landsflugi af fúsum vilja.' Þá skýrði hann frá því, að IATA hefði að tilmæl- um Flugfélagsins hækkað fargjöld á N-Atlantshafsleiðinni 1956, og hefði >að brotið í bága við vilja og stefnu Loft- leiða í fargjaldamálum á þeirri leið. Um hugsanlega samvinnu flugfélaganna sagði Kristján, að þar virtist þrákelkni og metnaður standa í vegi. Engum dytti hins vegar í hug að sameina fé- lögin. Sjónarmið um samvinnu hefði ráðið því, að tilboð var gert í hluta- bréf Eimskipafélagsins. Stjórn Loftleiða var endurkjörin. Hana skipa Kristján Guðlaugsson, Al- freð Elíasson, Sigurður Helgason, Krist inn Olsen og Einar Árnason. f vara- stjórn eru Dagfinnur Stefánsson og Sveinn Benediktsson. SIGRÚN VIGNIS VARÐ FEGURÐARDROTTNING IGÞ-Reykjavík, föstudag. Sigrún Vignisdóttir hefur verið kjörin Ungfrú ísland 1965. Úrslit voru kunngjörð í fegurðarsamkcppninni upp úr miðnætti í Súlnasalnum á Sögu og jafnframt fór fram krýn- ingarathöfn. Bára Magnúsdóttir varð númer tvö í keppninni, númer þrjú varð Herta Árnadóttir, Sigrún er dóttir Vignis Guð- mundssonar, blaðamanns tið Morgunblaðið og Önnu Pálu Sveinsdóttur Bjarman. Hún er fædd á Akureyri og ólst þar upp hjá foreldrum sínum. Nú á hún heima hér í Reykjavík og vinnur i Seðlabankanum. Sigrún er mjög myndarleg stúlka eins og hún á kyn til. Hún er dótturdóttir Sveins heitins Bjarmans.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.