Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JULÍ 1978 11 Myndllst eftir VALTÝ PÉTURSSON ekki sagt Ásgrími til hnjóös. Þvert á móti, þetta er hól um aðeins þá, sem eru í fremstu röð, og enginn mundi til dæmis mótmæla því, að Picasso var mistækur í list sinni og er þá ekki viö dverg jafnað. Sverrir Haraldsson sýnir 11 teikningar og 5 olíumálverk. Handbragð Sverris í teikningum er sérstakt og hefur sterkan persónulegan hljóm. Þar er á stundum svo nosturslega unnið, á þessari sýningu. Það eru mestmegnis gamlar teikningar, sem Bragi segist hafa hresst upp á með að setja í lit. Aðeins tvö verk eru algerlega ný af nálinni, og mætti ef til vill kalla þau „Samsett verk.“ Þar tifa klukkur, og myndir eru af gömlum listaverkum við hlið þeirra, fiðrildi undir gleri, og allt er þetta á hvítum grunni. Þarna eru einnig skips-barómet- er og klukka. Ekki er ég alveg með á nótunum, hvað þessi verk snertir, og verð að biðja forláts á fávisku minni, það er nú ekki í fyrsta sinn, og veit ég, að Bragi fyrirgefur fávisku mína. En það fer mikið fyrir Braga á þessari sýningu, því að hann sýnir hvorki meira né minna en 45 .............................. No. 27. cftir Braga Asgeirsson að maður skyldi halda, að tíminn stæði kyrr. Það er eins og að hraði nútímans hafi farið fyrir ofan garð og neðan hjá Sverri, svo tímafrek virðast vinnubrögð hans við bæði teikn- ingu og málun. Ég hafði meiri ánægju af teikningum Sverris en málverkum að þessu sinni. Hann er dálítið einhæfur bæði í litameðferð og formi í mál- verkunum, en hann leyfir sér miklu meira í teikningunum, og bendi ég þar á myndir eins og Nr. 71, 73, 74, og myndina af Pétri heitnum Benediktssyni, No. 70. Af málverkunum þótti mér No. 81 fallegast. En annars má um málverkin segja, að þau leyna ekki upprunanum og gætu ekki verið eftir nokkurn annan mann en Sverri. Bragi Ásgeirsson á flest verk verk. Sumar af teikningum Braga eru lítið meira en skóla- vinna, en aðrar eru svo vel við hresstar, að þær eru sannarlega augnayndi. Nefni ég No. 24, 27, 53, 55, 56 og 67. Fleiri mætti nefna, en ég læt þetta nægja hér. Þar sem þessar teikningar eru ekki nýjar, en samt unnið í þær að undanförnu, hefði Bragi gjarnan mátt setja tvö ártöl á myndirnar, og hefði það verið fullkominn sannleikur. Af þessum línum má sjá, að nú er ýmislegt að sjá í Norræna húsinu. Þótt sýning þessi sé að sjálfsögðu fyrst og fremst ætluð fyrir aðkomufólk, þá er hún fyllilega þess virði að hún sé heimsótt. Það mætti segja mér að gestkvæmt ætti eftir að verða í kjallaranum í Norræna húsinu á þessu sumri. íbúð — Blöndubakki: Til sölu er þriggja herbergja íbúö viö Blöndubakka. íbúöin er á efstu og þriöju hæö, gott útsýni er yfir borgina, þvottavélalögn á baöi, búr á hæöinni, herbergi og geymsla í kjallara, sameign og lóö fullfrágengin, stofa og herbergi teppalögð, baö flísalagt. í einu oröi sagt glæsileg íbúö. Laus í desember n.k. Upplýsingar í síma 73202. Verzlunarrekstur Af sérstökum ástæöum höfum viö til sölu góöa verzlun í barna- og unglingafatnaöi á besta staö í bænum. Reksturinn er í fullum gangi. Mjög góöur lager. Verö ca. 4 millj. Einstakt tækifæri. Fasteignasalan Þingholt, Bankastræti Símar 29680 — 29455 LANDSMÓT HESTAMANNA — 1978 — Landsmót hestamanna er haldið að Skógarhól- um dagana 12.—16. júlí. Dagskrá: Miðvikudagur 12. júlí Kl. 10.00 Stóöhestar dæmdir. Dómarar starfa allan daginn. Fimmtudagur 13. júlí Kl. 10.00 Kynbótahryssur dæmdar. Kl. 13.00 Spjaldadómar gæöinga í B-flokki Kl. 15.00 Kynning söluhrossa Föstudagur 14. júlí Kl. 13.00 Öllum einstaklings kynbótahrossum og gæöingum riöiö inn á völl. Kl. 13.30 Mótiö sett af formanni Landssambands hestamanna- félaga, Albert Jóhannssyni. Kl. 14.00 Spjaldadómar gæöinga í A-flokki Kl. 14.00 Kynbótahryssur kynntar. Kl. 15.00 Unglinga keppni 10—12 ára. Kl. 16.00 Stóöhestar kynntir. Kl. 17.30 Undanrásir kappreiöa — stökk 250 m, 350 m og 1500 m brokk — fyrri sprettir. Kl. 20.00 Gæöingaskeiö á Suöurbraut Kl. 21.00 Kvöldvaka (sérstök dagskrá). Laugardagur 15. júlí Kl. 10.00 Kynning á söluhrossum. Kl. 13.00 Stóöhestar — dómum lýst. Kl. 14.00 Töltkeppni — keppt til úrslita Kl. 15.30 Kynbótahryssur — dómum lýst. Kl. 16.00 Unglingakeppni 13—15 ára. Kl. 17.00 Brokkkeppni — seinni sprettur. Kl. 17.15 Skeiö — fyrri sprettur. Kl. 17.30 Milliriölar í 350 m og 800 m stökki. Kl. 18.00 Söluuppboö á hestum. Kl. 21.00 Kvöldvaka (sérstök (dagskrá). Sunnudagur 16. júlí Kl. 11.00 Helgistund f Hvannagjá, Hr. Sigurbjörn Einarsson biskup prédikar. Kl. 12.30 Hornaflokkur Kópavogs leikur undir stjórn Björns Guöjónssonar. Kl. 13.00 Hópreiö hestamanna inn á mótssvæöi. Kl. 13.10 Ávörp flytja landbúnaöarráöherra og formaöur stjórnar B.í. Kl. 14.00 Kynbótahryssur í dómhring — verölaun afhent Ki. 14.30 Stóöhestar í dómhring — verölaun afhent. Kl. 15.30 10 bestu gæöingar í A-flokki — verölaunaafhending. Kl. 16.00 10 bestu gæöingar í B-flokki — verölaunaafhending. Kl. 16.30 Verölaunaafhending, unglingar, tölt og gæöingaskeiö. Kl. 17.00 Seinni sprettur skeiö — verölaunaafhending. Kl. 17.30 Úrslit kappreiöa, stökk: 250 m, 350 m, 800 m, — verölaunaafhending. Kl. 19.00 Dregiö í happdrætti landsmóts hestamanna. Formaöur framkvæmdanefndar, Bergur Magnússon slftur mótinu. Framkvæmdanefnd landsmóts, áskilur sér rétt til breytinga á dagskrá. Ath.: Dansleikir veröa haldnir föstudags- og laugardagskvöld aö Aratungu og Borg. Haukar leika fyrir dansi í Aratungu og Kaktus aö Borg. Kappreiðar — Gæðingadómar — Kynbótahross — Kvöldvökur o.fl. Hittumst á Skógarhólum — hátíð hestamanna. Framkvæmdanefnd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.