Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 13.07.1978, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 1978 33 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL 10 — 11 FRA MANUDEGI sem berst gegn öryggi landsins, hlýtur að mega kalla landráðafólk. Það er betra fyrir þjóðina að vera í Nato og hafa herinn því þá er öryggi og sjálfstæði okkar borgið því enginn hugsandi íslendingur vill að þjóðin verði önnur Síbería. Haraldur Hermannsson." • Saga af hundahaldi — Mig langar að greina frá litlu atviki, sagði kona nokkur sem sagðist vera á móti hundahaldi í borg, — og hún er á þá leið að stúlka nokkur fimm ára var að koma til vinkonu sinnar í heim- sókn er krakkar í næsta húsi öttu hundi sínum á hana. Hann stökk á stúlkuna sem varð yfir sig hrædd, en hlaut ekki meiðsli. Móðir vinkonunnar sá þetta og tók stúlkuna náföla frá hundinum og var hún lengi að jafna sig á þessum atburði. Ég man þetta vel því ég kom þarna að líka, en þetta gerðist fyrir alllöngu. Þessa sögu vil ég aðeins segja til að minna á að hundar geta verið til hinna mestu óþurfta þótt þeir séu beztu skepnur og mér líkar líka vel við þá. En í meðferð barna er hægt að etja þeim út í ýmislegt misjafnt jafnvel þótt hundarnir séu að öllu leyti hættulausir. Ég man líka þegar farið var með hund héðan úr nágrenninu út á kvöldin og hann látinn gera þarfir sínar, stundum á leiksvæði barnanna hér í blokk- inni og varla telst það mjög þrifalegt. Misbrest á hreinlæti í meðferð hunda tel ég nóga ástæðu til að banna hundahald og líka þau dæmi, fá að vísu, sem hundar hafa bitið fólk eða ráðizt að því. • Loka læknum? Hvernig er siðgæði Islendinga komið? spurði kona nokkur og átti þá við atburði við Læragjá eða lækinn í Nauthólsvík. Hvernig stendur á því að menn geta leyft sér þá hegðan, sem lýst er að eigi sér stað á stundum í þessum læk? Án efa vita útlendingar t.d. af þessu og varla líður langur tími þar til við verðum gerð að einhverju viðundri í heimspress- unni. Mér finnst að lögreglan ætti hreinlega að loka læknum og þessu svæði öllu og benda fólki á að til eru sundlaugar, sem eru mun hreinlegri og betra að nota, jafnvel þótt eitthvað kosti að fara ofan í þær. f V / á. 21. Rxefi! - fxefi. 22. Hd7 - IIÍ7. 2.3. Rffi+! - KÍ8. 21. Dxefi - Re7 (Eða 24 ... Dg6, 25. f5! - Rd4, 26. fxe6 — Rxe6, 27. Hxf7 — mát) 25. IIxe7! — Rxe5 (Ef 25 ... Hxe7 þá 26. Dg8 mát) 2fi. He8+ og svartur gafst upp. HÖGNI HREKKVÍSI Þessir hringdu . . . Á heimsmeistaramóti unglinga í Innsbrtick í Austurríki í fyrra kom þessi staða upp í skák þeirra Groszpeters. Ungverjalandi, sem hafði hvítt og átti leik, og búlgarans Georgievs. • Gangstétta- hreinsun Borgari nokkur kvaðst vilja koma á framfæri þeirri ábendingu til eigenda og umráðamanna söluturna í borginni að þeir gerðu sér far um að hafa snyrtilegt utan dyra við söluturna sína ekki síður en innan. Sagði hann að helzt ætti að skylda menn til að sópa gangstéttina fyrir utan að kvöld- inu, rétt um lokunartímann, því jafnan bæri fólk mikið af alls kyns bréfarusli með sér sem það fleygði frá sér rétt utan við dyrnar. Bærist þetta rusl síðan inn í nálæga garða og lóðir og yrði af því hinn mesti óþrifnaður. • Herferð um tillitssemi Óli H. Þórðarson fram- kvæmdastjóri Umferðarráðs kom að máli við Velvakanda og vildi fá að nefna svar við umræðum um tillitsemi í umferðinni hjá Velvak- anda í gær, að nú væri einmitt hafin á vegum Umferðarráðs SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson herferð, er hefði það að markmiði að auka með fólki kurteisi og tillitssemi í umferðinni. Nefndi hann herferðina svokallaðar já- kvæðar athuganir um ökulag náungans, að menn ættu að taka niður skrásetningarnúmer þess bíls, sem ökumaðurinn sýndi af sér kurteisi, t.d. hleypti öðrum bílum út í umferðina, eða eitthvað í þá átt. Eru menn beðnir að koma þessum ábendingum á framfæri til Umferðarráðs og í haust verður síðar veitt einhver viðurkenning þeim sem skarað hefur fram úr á þessu sviði. Unimetric 1000 fiskileitar og dýptarmælir, • Hvít lína. t Pappírsritun, hæg • Lóörétt ritun. og hröð. t Mælidýpt: 1000 fet. t Vatnspéttur. t Sex mismunandi t Meó öllu til ísetn- prep. ingar. Unimetric 960 fiskileitar og dýptarmælir. t Hvít lína. t Neista-mæliborð. t Pappírsritun, hæg og hröð. t Tvö þrep. t Mælidýpt: 960 fet. t Vatnspéttur. t Með öllu til ísetn- ingar. Frábær reynsla og bandarísk gæðaframleiðsla tryggir góð kaup. Sérlega hagstætt verð. Heildsala — Smásala. TÝSGÖTU 1 SÍMI-10450 PÓSTHÓLF-1071 REYKJAVÍK - ICELA Hvaö býr o í djúpinu ■ Unimetric frá LsifsiYctte dýptarmælarnir geta sagt þér þaö

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.