Morgunblaðið - 19.07.1978, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.07.1978, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR 152. tbl. 65. árg. MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1978 Prentsmiðja Morgunhlaðsins. Gjáin óbrúuð milli ísraela og Egypta Sadat hótar viðræðuslitum Maidstone. 18. júlí. AP. Reuter. ÍSRAELSMENN OG Egyptar sátu á riikstólum um Mið-Austur- landadeiluna f fimm og hálfa klukkustund í dag án þess að umtalsverður árangur næðist. Lauk fyrsta fundinum eftir að háðir aðilar höfðu viðurkennt að enn bæri mikið á milli. Þá lýsti Sadat Egyptalandsforseti því yfir í dag að frekari viðræður við ísraelsmenn væru gagnslausar tækju þeir ekki meira tillit til uppástungna hans í friðarumleit- unum eða fundinn væri annar og nýr grundvöllur í viðræðunum. Utanríkisráðherra Israels, Moshe Dayan, og Mohammed Kamel, utanríkisráðherra Egypta- lands, komu saman í dag í Leeds-kastala í Kent. Bandaríski utanríkisráðherrann, Cyrus Vance, sem stærstan þátt átti í að til viðræðnanna var efnt, hélt, í kvöld lokaðan fund með ráðherr- unum. Veltu menn vöngum yfir hvort Vance kynni að reyna að finna leið úr ógöngum þeim, er viðræðurnar höfðu augsýnilega ratað í og virðast stofna áfram- haldandi viðræðum í hættu. Að loknum fyrsta fundinum komst talsmaður Egypta, Hamdi Nada, svo að orði að ekkert hefði komið fram sem gerði honum kleift að segja til um hvort áframhald yrði á þeim eða ekki. Einnig var hann ósammála talsmanni Israels, Naftali Lavie, er hafði fullyrt í morgun að báðir aöilarnir hefðu náð að skilja tillögur hins betur en áður. Bandarískir embættismenn kváðu hin.s vegar ekki ástæðu til að taka þessar staðhæfingar egypska talsmannsins of bókstaf- lega. Sögðu þeir þá Kamel og Ástarfuni að fangelsissök Jóhannesarhorg. 18. júlí. Rcuter. BLÖKKUMAÐUR. er lifir af garðyrkju. var í dag settur í fangelsi í Suður Afríku fyrir að senda ástarbréf til dóttur vinnuveitanda síns. sem er hvítur. Dómarinn, sem dæmdi söku- dólginn, sem er 24 ára og heitir Paul Moschew, komst svo að orði að þvílík framkoma væri smánarleg fyrir viðkomandí. Garðyrkjumaðurinn býr í Randburg-hverfi Jóhannesar- borgar. Yngismærin greindi frá því framhald á bls. 30 Dayan hafa verið sammála um að tillögur beggja væru samrýman- legar í ýmsum atriðum. Ummæli Sadats um, að frekari viðræður væru tilganslausar svo framarlega sem ísraelsmenn slök- uðu ekki til, komu fram í ávarpi forsetans í Khartoum í Sudan þar sem hann sækir nú ráðstefnu Einingarsamtaka Afríkuríkja. Var vitnað í ummæli Sadats þess efnis að utanríkisráðherra hans hefði fengið skýr fyrirmæli um að ræða til hlítar tillögur þær er Egy'ptar lögðu fram fyrr í þessum mánuði. I tillögum þessum, sem Israels- menn hafa hafnað, er þess krafist að Israelsmenn dragi sig til baka frá vesturbakka Jórdanár og af Gazasvæðinu á fimm árum. Utanríkisráðherrar takast í hendur. Utanríkisráðherra Egypta. Mohammed Kamel. tekur í hönd ísraelsks starísbróður síns, Moshe Dayans, við Leeds-kastala í Kent áður en viðræður þeirra hófust. Úrslit fundarins benda ekki til að mjög bróðurlega hafi farið á með þeim. Carter ætlar ad efna fyrirheitin Misjöfn viðbrögð við Bonnfundi Fréttariturum sagt að draga orð sín til baka Moskvu. 18. júlí. Keutcr. AP. DÓMSTÓLL í Moskvu dæmdi í dag tvo handaríska fréttaritara seka um óhróður og skipaði þeim að draga til baka frásagnir sínar um að sjónvarpsmynd, er sýndi sovéskan andófsmann gera auð- mjúka játningu sína. væri fölsuð. í öðrum réttarhöldum. er fram fóru á sama tíma, tapaði andófs- maðurinn Yuri Orlov máli sínu, er hann hafði áfrýjað, og er því að vænta að 12 ára útlegðar- og Öngþveiti á öldum írska ljósvakans Dyflinni. 18. júlí. AP RÍKISSTJÓRN Jacks Lynch og írska ríkisútvarpið eru nú í erfiðri klípu. Ólöglegar útvarpsstöðvar áhugamanna spretta nú upp eins og arfi um lýðveldiö vítt og breitt og hafa að sögn stjórnvalda vaidið „öngþveiti á öldum ljósvakans". Margar þessara stöðva láta sér nægja að senda út afþreyingartón- list og auglýsingar. Það, sem einkum hefur þó skotið stjórnvöld- um skelk í bringu, er að sumar eru farnar að taka upp miður kristi- legt efni og skeggræða þjóðfélags- vandamál. Herma fréttir að enda þótt tekizt hafi að loka einni dafni nú að minnsta kosti 12 aðrar, þar af sex í Dyflinni. nauðungarvinnudómur yfir hon- um komi til framkvæmda. Fréttaritararnir tveir, sem að- setur höfðu í Moskvu, Craig Whitney frá „New York Times“ og Harold Piper frá „Baltimore Sun“, höfðu báðir neitað að taka þátt í framhald á bls. 30 Washington — Bonn — Tokýó. 18. júlí. Reuter. AP. CARTER Bandaríkjaforseti sneri aftur til Washington í gærkveldi eftir sjöveldafundinn í Bonn með ný fyrirheit um að stuðla að alþjóðlegum efnahagsbata með því að gera bandarísku þjóðina óháða innfluttri olíu. Sagðist Carter hafa gert loforð á fundin- um. sem hann ætlaði sér að efna. Talið er að skerfur Bandaríkj- anna, Vestur-Þýzkalands og Jap- ans á fundinum hafi farið fram úr vonum bjartsýnustu manna. Hitt virðast menn einnig sammála um að aðeins næstu sex mánuðir geti skorið úr um hvort helztu iðnríki veraldar finni orðum sínum stað í raunveruleikanum. Stilla sérfræð- ingar vonum sínum í hóf í ljósi þess að á efnahagsfundinum í London í maí í fyrra voru samin óraunsæ hagvaxtaráform og sam- þykktir, sem legiö hafa í glatkist- unni siðan. Við komu sína til Hvíta hússins í gærkvöldi ávarpaði Carter blaða- menn og sagðist geta fullyrt með góðri samvizku að bandamenn bandarísku þjóðarinnar væru reiðubúnir til að færa efnahags- legar fórnir öllum til góðs, sem m.a. auðvelduðu Bandaríkjamönn- um útflutning og treystu atvinnu- öryggi í landinu. Sagði Carter að þótt ágreinings hefði gætt á fundinum, hefðu menn auðsýnt hver öðrum tiltraust. Mondale varaforseti lýsti för forsetans til Bonn sem sérstaklega árangurs- ríkri. Það kom fram hjá Carter að hann hefði lofað aðgerðum, sem miðuðu að því að spara Banda- ríkjamönnum um 2.5 milljarða dollara á dag í sambandi við olíuinnflutning þegar kæmi fram á Baráttan hafin. Askorandinn í heimsmeistaraeinvíginu í skák, Viktor Korchnoi, hugsar sig um yfir fyrstu einvígisskák hans og Karpovs heimsmeistara. Karpov stendur til hægri og horfir á. Skákin varð bragðlaust jafntefli. Sjá grein bls. 10. árið 1985. Yrði þetta gert með því að koma upp olíuvaraforða, sem næmi ekki minna en milljarði tunna; auka kolaframleiðslu landsins um tvo þriðju og með því að viðhalda hlutfalli þjóðarfram- leiðslu og orkueftirspurnar við 0.8 hundraðshlutamarkið. I viðtali við NBC-sjónvarpsstöðina lét Carter einnig í Ijós fullvissu sína um að fundurinn ætti eftir að brevta lífi almennings í Bandaríkjunum til batnaðar. Framkvæmdanefnd Efnahags- bandalagsins fór í dag lofsamleg- um orðum um fund þjóðarleiðtog- anna. Sagði talsmaður nefndar- innar að árangur hefði náðst varðandi fimm mikilvæga mála- flokka. Nefndi hann hagvöxt, orkumál, peningastefnu, barátt- una gegn viðskiptahöftum og hjálp til þróunarlandanna. Talsmenn vestur-þýzkra jafnaðarmanna kváðu fundinn persónulegan sigur fyrir Helmut framhald á bls. 30 Lifnar lítið yfir dollar London. 18. júlí. Reuter AP. Efnahagsmálafundur sjöveld- anna í Bonn virðist ekki hafa haft þau áhrif á stöðu Bandaríkjadoll- ars á gjaldeyrismörkuðum, sem margir höfðu vonast til. Ilallaði jafnvel frekar undan fæti fyrir dollarnum víða í dag. Fyrstu viðbrögð við árangri fundarins lýstu sér í vonbrigðum og féll dollar í verði gagnvart öðrum gjaldmiðlum er gjaldeyris- verzlun hófst í morgun. Tilkynning í Tókýó um gríðarlegan viöskipta- hagnað Japana olli því að dollar- inn var skráður lægra gagnvart framhald á bls. 30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.