Morgunblaðið - 01.04.1979, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 01.04.1979, Blaðsíða 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. APRÍL 1979 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. APRÍL 1979 17 JWnrgM Útgefandi ttÞfafrife hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson Ritstjórn og afgreiósla Aðalstrœti 6, sími 10100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22480. Askríftargjald 3000.00 kr. á mánuði innanlands. 1 lausasölu 150 kr. eintakió. Benedikt Davíðsson er nú orðið einn helzti forystumaður Alþýðu- bandalagsins í verkalýðs- hreyfingunni. Hann hafði eftirfarandi að segja í samtali við Þjóðviljann í gær um „samkomulag“ það, sem nú er orðið í ríkisstjórninni um efna- hagsmál: „Verkalýðshreyf- ingin gaf þessari ríkis- stjórn betri starfsfrið en áður eru dæmi um og hefur stutt hana til skyn- samlegra verka til lausnar á efnahagsvandanum. Með samkomulaginu 1. septem- ber og 1. desember féllum við frá ítrustu kröfum sem við áttum samkvæmt gild- andi kjarasamningum. Verkalýðshreyfingin fór þar að tilmælum forsætis- ráðherra og taldi sig vera að tryggja það að samn- ingar giltu að öðru leyti óbreyttir fram til 1. des- ember 1979. Ég tel, að nú hafi samningar verið rofn- ir umfram það, sem verka- lýðshreyfingin bauðst til að semja um t.d. vegna aðsteðjandi vanda vegna verðhækkana á olíu. Af- leiðingin af þessu hlýtur að verða sú, að verkalýðs- hreyfingin búi sig nú í stakk til þess að ná nýjum samningum þar sem boð hennar um óbreytta samn- inga á þessu ári hefur ekki verið þegið." Snorri Jónsson, varafor- seti Alþýðusambands ís- lands, einnig einn af helztu leiðtogum Alþýðu- bandalagsins í verkalýðs- hreyfingunni, hafði eftir- farandi að segja um „sam- komulag" stjórnarflokk- anna: „Það hefur verið grund- vallarstefnumál verka- lýðshreyfingarinnar að samningarnir tækju gildi. Við höfum boðizt til að taka tillit til aðsteðjandi vanda eins og til dæmis vegna verðhækkana á olíu en við getum ekki mælt með svona krukki, sem óhjákvæmilega skekkir alla kjarasamninga. Það er út af fyrir sig til bóta að komið hafi verið í veg fyrir skerðingu lægstu launa í bili, en hér er ekki farið að í samræmi við tillögur verkalýðshreyfingarinnar." Þessi ummæli Benedikts Davíðssonar og Snorra Jónssonar benda til þess að ekki sé allt sem sýnist í sambandi við „samkomu- lag“ stjórnarflokkanna. Bersýnilegt er að tengsl ríkisstjórnarinnar við hluta verkalýðshreyfing- arinnar eru að rofna. Ekki fer á milli mála, að hinir pólitísku leiðtogar Alþýðubandalagsins leggja mikla áherzlu á, að flokkur þeirra eigi aðild að ríkisstjórn úr því að þeir eru tilbúnir til þess að taka þá áhættu, sem felst í slíku ósamkomulagi við helztu verkalýðsforingja flokks síns. Raunar virðist fátt, sem ráðherrar Al- þýðubandalagsins eru ekki tilbúnir að gera til þess að halda stólum sínum. Það fer að verða leit að þeim mönnum, sem setzt hafa í ráðherrastóla á íslandi, sem halda í þá slíku dauðahaldi, sem ráðherrar Alþýðúbandalagsins nú. Það hefði t.d. einhvern- tíma þótt saga til næsta bæjar, að Alþýðubanda- lagið væri tilbúið til að afnema kauphækkanir með lögum. En hluti þess samkomulags, sem gert hefur verið milli stjórnar- flokkanna byggist einmitt á því, að með lögum verði afnumdar umsamdar áfangahækkanir nokkurra starfshópa. Þetta fyrir- hugaða lagaákvæði tekur t.d. af bankamönnum áfangahækkanir launa, sem þeir eiga rétt á samn- ingum samkvæmt, samtals um 6,1%. Svavar Gestsson bankamálaráðherra á hér mestan hlut að máli. Hann sendi bankamönnum bréf og bað þá um að fresta þessari kauphækkun. Þeir höfnuðu því. Þá grípur ráðherrann til þess ráðs að taka þessa kauphækkun af með lögum. Var einhver að tala um „samningana í gildi“? „Samningar rofnir” Árni Óla: Skipulag Grjótaþorps Vegna þess, að skipulag Grjótaþorps í Reykjavík er nú á uppsiglingu, en á hinn bóginn verið nokkuð um það rætt, að vernda beri byggðina, sem þar er nú, langar mig til þess að minna bæjarstjórn Reykjavíkur á, að á þessu svæði er einmitt sagnhelgasti bletturinn á ís- landi, og honum verður umfram allt að þyrma. Þetta er svæðið milli Grjóta- götu og Túngötu annars vegar, en Aðalstrætis og Garðastrætis hins vegar. Á þessum stað reisti Ingólfur Arnarson fyrsta norræna land- námsbæinn á Islandi. Fyrir þessu eru óyggjandi heimildir. Þegar Skúli Magnússon land- fógeti, sem kallaður hefir verið „faðir Reykjavíkur", var að koma á fót hinu mesta þjóð- þrifafyrirtæki, er hann gat hugsað sér, ullarverksmiðjun- um, sem jafnframt voru fyrsta iðnfyrirtæki á landinu, þá valdi hann þeim stað á „helgum höfuðtóftum" Ingólfs. Það var ekki gert að óhugsuðu ráði. Þessi staður hæfði hinu mesta framfara fyrirtæki landsins, og var þá um leið friðaður fyrir umbyltingum tímans. Fyrirtækið blessaðist að vísu ekki eins og Skúli hafði hugsað sér, en það varð þó til þess að vernda þennan mesta helgistað þjóðarinnar. Og nú kemur til kasta bæjar- stjórnar Reykjavíkur að taka að sér verndun staðarins. Við það verður allt skipulag Grjótaþorpsins að miðast. Hér er ekki um neitt smámál að ræða. Á því veltur virðing Reykjavíkur og allrar þjóðar- innar. Enginn staður á landinu jafn- ast á við þennan stað, þegar um verndun sögulegra minja _ og íslenzkrar þjóðmenningar er að ræða. Þessi staður á að halda áfram að vera helgasti staður Reykja- víkur, og hér á ráðhús borgar- innar að rísa. Sem betur fer virðist nú sívaxandi áhugi á landvernd og gæzlu fornra menningarerfða. Hér er það fyrst og fremst staðurinn, sem þarf að friða, og fyrir því verða öll önnur sjón- armið að víkja. Harald G. Haralds- son hlýtur styrk úr Leiklistarsjóði Brynjólfs Jóhannessonar HARALD G. Haraldsson hefur hlotið styrk til árs framhalds- náms í leiklist erlendis. Styrkur þessi er veittur úr Leiklistarsjóði Brynjólfs Jóhannessonar. Á aðalfundi Félags íslenskra leikara var tilkynnt um úthlutun styrksins sem í ár nemur 500.000 krónum. Leiklistarsjóður Brynjólfs Jóhannessonar var stofnaður 7. desember 1970 með peningagjöf er hann afhenti félag- inu til sjóðsmyndunar. Sjóðurinn hefur því hlutverki að gegna, að styrkja unga íslenska leikara til framhaldsleiklistarnáms erlendis og er þetta í 6. skipti sem slíkur styrkur er veittur úr sjóðnum. Harald G. Haraldsson leikari j Reykjavíkurbréf 'Laugardagur 31. marz Reynslan er ólygnust Nokkrar umræður hafa orðið síðustu daga um atburðina á Austurvelli 30. marz 1949 í tilefni af því, að 30 ár voru liðin í gær, föstudag, frá þeim. Þessar umræður eru gagnlegar. Þær rifja upp og minna á einstæðan atburð í sögu lýðveldis okkar, þegar reynt var með ofbeldi að hindra Alþingi í störfum þess. Þær eru lærdóms- ríkar fyrir uppvaxandi kynslóð, sem ekki liðfi óeirðirnar á Austur- velli þennan dag en minna hana á hvað hér getur gerzt. Stundum er orð á því haft, að við Islendingar höfum ekki jafn ríkan skilning og t.d. Norðmenn á nauð- syn þess að halda uppi öflugum vörnum. Á það er bent, að hernám Þjóðverja í Noregi á árum heims- styrjaldarinnar síðari hafi orðið Norðmönnum, sú lífsreynsla, sem þeir aldrei geti gleymt. Þess vegna er mjög almennur stuðningur í Noregi við aðild landsins að Atlantshafsbandalaginu og öflugar hervarnir. Norðmenn halda uppi öflugum her og eru mjög vakandi fyrir þeirri hættu, sem að þeim steðjar. Það er lífs- reynsla út af fyrir sig að kynnast sjónarmiðum Norðmanna í öryggismálum og sjá hve ríka áherzlu þeir leggja á varnir lands síns. Landamæri Noregs og Sovét- ríkjanna liggja saman í Norður-Noregi eins og kunnugt er og einmitt í námunda við þau landamæri er einhver mesta her- stöð í heimi, herstöð Sovétmanna á Kola-skaga. Norðmenn láta sér ekki til hugar koma, að þeir geti lifað áhyggjulausir um sjálfstæði og velferð þjóðar sinnar í námunda við Sovétríkin. Nú er það út af fyrir sig ósann- gjarnt að halda því fram, að við Islendingar höfum ekki skilning á nauðsyn þess að halda uppi öflug- um vörnum. Frá árinu 1949 hefur yfirgnæfandi meirihluti þjóðar- innar ítrekað stuðning sinn við aðild að Atlantshafsbandalaginu með stuðningi við lýðræðisflokk- ana þrjá, sem jafnan hafa haft þá aðild á stefnuskrá sinni í kosningum. Þessi mikli stuðningur þjóðarinnar við aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu hefur einnig komið fram í því, að and- stæðingum þeirrar aðildar hefur nákvæmlega ekkert orðið ágengt, þrátt fyrir harðvítugar tilraunir til þess að grafa undan stuðningi við aðild okkar að bandalaginu. Á það má líka líta, að við íslendingar höfum að því leyti til fært meiri fórnir en Norðmenn í þágu sameiginlegra varna lýðræðisríkja Vestur-Evrópu og N-Ameríku, að við höfum fallizt á að hafa erlent varnarlið í landi okkar í 28 ár. Hatrammar tilraunir til þess að ná fram breytingum í þeim efnum hafa líka verið árangurslausar og stuðningur þjóðarinnar við varnarsamninginn við Bandaríkin kom skýrt fram í undirskriftasöfn- un Varins lands veturinn 1974 og kosningasigri Sjálfstæðisflokksins þá um vorið en þær kosningar snerust að verulegu leyti um varnarmálin. Það verður hins vegar að segjast eins og er, að Framsóknarflokkur og Alþýðu- flokkur hafa ekki verið jafn stað- fastir í stuðningi sínum við varnarsamninginn eins og glögg- lega kom fram í afstöðu þessara tveggja flokka í vinstri stjórninni 1956—1958 og í afstöðu Fram- sóknarflokksins í vinstri stjórn- inni 1971—1974, og innan beggja þessara flokka hafa jafnan starfað hópar, sem eru andvígir þessari stefnu. Við íslendingar urðum að þola vinsamlegt hernám á stríðs- árunum síðustu á sama tíma og Norðmenn og Danir urðu að sæta því að fjandsamlegir herir settust að í þeirra löndum. Þetta hefur sett sitt mark á þessar þjóðir, þó sérstaklega Norðmenn og mótað afstöðu þeirra til utanríkismála jafnan síðan. Þótt við Islendingar yrðum ekki að sæta slíku hernámi sem Norð- menn á stríðsárunum, eigum við þó annað dæmi úr síðari tíma sögu okkar, sem ætti að verða okkur um alla framtíð áminning um það, sem getur gerzt en flestir vilja sjálfsagt trúa, að aldrei geti gerzt hér þótt það kunni að gerast annars staðar. Þetta dæmi eru atburðirnir við Austurvöll 30. marz 1949. Þá gerðu kommúnistar tilraun til þess að koma í veg fyrir, að Alþingi tæki ákvörðun, sem það hafði stjórnskipulegan rétt til að taka. Nú 30 árum síðar er það rætt, hvernig þessa atburði hafi borið að höndum og hvort harðar aðgerðir lögreglu og varaliðs hafi orðið til þess að auka á átökin í stgð þess að draga úr þeim. í þessum umræðum gleymist eitt lykilatriði. Ofbeldisárásina á Al- þingishúsið 1949 verður að setja í samhengi við það, sem hafði verið að gerast í Evrópu árin á undan. Einungis með því getum við nú, 30 árum síðar, skilið til fulls það, sem þarna var að gerast. Alþingi kom saman til þess að taka ákvörðun um aðild að Atlantshafsbandalaginu einmitt vegna þess, að lamandi ótti hafði gripið um sig meðal fólks í V-Evrópu um, að í kjölfar harð- stjórnar Hitlers mundi koma harðstjórn Stalíns. Frá lokum heimsstyrjaldarinnar síðari hafði hver þjóðin á fætur annarri í fi -Evrópu fallið undir veldi Stalíns. Þetta gerðist ýmist á þann hátt, að Rauði herinn yfirgaf einfaldlega ekki þau lönd, sem hann hafði flæmt þýzkar hersveit- ir úr á síðustu misserum stríðsins eða á þann veg að lítill en harð- snúinn hópur kommúnista ruddist til valda í skjóli Rauða hersins. Slík valdataka í Tékkóslóvakíu 1948 réð úrslitum um það, að Atlantshafsbandalagið var stofnað. Ef við setjum okkur í spor þeirra manna, sem stóðu fyrir aðildinni að Atlantshafsbanda- laginu 1949 og gerum okkur grein fyrir þessum evrópska bakgrunni átakanna á Austurvelli 30. marz 1949, verður okkur ljóst, að því fór fjarri, að slík ofbeldisárás kommúnista væri einangrað fyrir- bæri hér á íslandi. Hún var í fullkomnu samræmi við það, sem kommúnistar höfðu gert annars staðar. Þess vegna hlutu þeir, sem ábyrgð báru á landsstjórninni á þessum árum að líta svo á að einnig hér væri verið að gera tilraun til þess að kollvarpa lýð- ræði og þingræði enda hafði fram- kvæmdavaldið ekki yfir miklum tækjum að ráða til þess að hindra slíkt ofbeldi. Atburðina á Austurvelli verður einnig að skoða í því ljósi, að á þeim árum voru tengsl Sósíalista- flokksins við Sovétríkin augljós. ■ M ■ r ......Wzý Það fór ekkert á milli mála, að stefna Sósíalistaflokksins var mörkuð í Moskvu. Þar voru ákvarðanir teknar um afstöðu flokksiiis til hinna mikilvægustu mála. Menn þurfa ekki annað en að kynna sér afstöðu sósíalista til hernaðarátaka Sovétmanna og Finna nokkrum árum áður til þess að komast að raun um það, en Moskvusinnuð afstaða kommún- ista á þeim tíma varð til þess, að Héðinn Valdimarsson yfirgaf Sósíalistaflokkinn u.þ.b. ári eftir að hann stofnaði hann með komm- únistum — Kalinn á hjarta. Allt þetta verðum við að hafa í huga, þegar við metum atburðina á Austurvelli 1949 og þá verður okkur væntanlega ljóst, að þótt við höfum ekki fjandsamlegt hernám á stríðsárunum til þess að draga lærdóma af, höfum við þó þetta dæmi um ofbldisárás kommún- ista á Alþingi, sem að öllum líkindum hefur verið framkvæmd samkvæmt fyrirskipun frá Moskvu. Þegar þessi atburður er settur í samhengi við ofbeldisverk kommúnista í Evrópu eftir stríð getur engum dulizt að það, sem hefur gerzt annars staðar, getur einnig gerzt hér. Reynslan er ólygnust í þeim efnum og við höfum sem þjóð yfir slíkri reynslu að búa frá fyrstu árum lýðveldis okkar. Við skulum festa okkur þá reynslu í minni. 30 árum seinna En nú eru 30 ár liðin og þá er spurt: hefur virkilega ekkert breytzt á þessum 30 árum? Þótt þörf hafi verið fyrir Atlantshafs- bandalagið 1949 og varnarsamn- inginn 1951, er hún enn til staðar? Vissulega hefur margt breytzt á þessum árum. Mikilvægasta breyt- ingin frá sjónarmiði Atlantshafs- bandalagsríkja er auðvitað sú, að frá og með stofnun þess var framsókn kommúnista stöðvuð í Evrópu. Atlantshafsbandalagið hefur því náð þeim árangri, sem að var stefnt. En úr því að svo er, spyrja menn, er þá ekki orðið tímabært að leysa bandalagið upp og leggja það niður? Áður en þeirri spurningu er svarað, verðum við að íhuga hvaða breytingar hafa orðið á utanríkis- stefnu Sovétríkjanna á síðustu 30 árum. Engum getur dulizt, að þau lögðu áherzlu á landvinninga eftir stríð með umtalsverðum árangri í A-Evrópu. En hvað hefur síðan gerzt? Síðan hefur það gerzt, að Sovétríkin eru orðin margfalt öflugra stórveldi en þau voru 1949,. þegar Atlantshafsbandalagið var stofnað. Þá voru Bandarikin ótvírætt öflugasta ríki veraldar en þrátt fyrir það lögðu Sovétmenn undir sig hálfa Evrópu. Nú eru Sovétríkin a.m.k. jafn öflug Bandaríkjunum hernaðarlega og hinir færustu sérfræðingar hafa upplýst, að í nokkur ár á næsta áratug muni Sovétríkin verða til muna öflugri hernaðarlega en Bandaríkin vegna vitlausra og skammsýnna ákvarðana, sem bandarísk stjórnvöld tóku fyrir allmörgum árum. Þetta vita Bandaríkjamenn og þetta vita Sovétmenn og í merkum viðtölum, sem brezka blaðið Economist birti fyrir nokkrum vikum við Henry Kissinger kom fram, að þessi vitneskja mundi hafa áhrif á utanríkisstefnu stórveldanna beggja, Bandaríkjanna á þann veg að draga úr þeim mátt, Sovét- ríkjanna með þeim hætti að auka á sjálfstraust þeirra. Sumir halda því fram, að þrátt fyrir þennan mikla hernaðarstyrk Sovétmánna sé hann fyrst og fremst hugsaður til varna og eigi sér sögulegar rætur í atburðum síðustu heimsstyrjaldar, þegar þýzkir herir voru komnir inn í úthverfi Moskvuborgar. Vafalaust hafði sú innrás djúpstæð sálræn áhrif á þjóðir Sovétríkjanna en það breytir ekki því, að á þessum áratug sérstaklega hefur þessum hernaðarmætti verið beitt til þess að gera hvert ríkið á fætur öðru í Afríku og Asíu, og þó sérstaklega Afríku háð Sovétmönnum. Sovétríkin reka nú mjög víðtæk- an hernað í Afríku. Það gera þeir með kúbönskum hersveitum og liði sovézkra, a-þýzkra, ungverskra og tékkóslóvakískra „sérfræðinga". Það eru blindir menn, sem ekki sjá hvað er að gerast í kringum okkur. Sovétríkin eru orðin öflugasta herveldið í Afríku og hafa aukið áhrif sín þar gífurlega. Þau starfa í nánum tengslum við eitt öflug- asta herveldið í Asíu, sem er Víetnam, sem hikar ekki við að beita hernaðarmætti sínum til þess að leggja undir sig nágranna- ríki á borð við Kambódíu og Laos, en bæði þessi ríki eru nú leppríki Víetnam. Þetta er breytingin, semorðin er á 30 árum. Veldi Sovétmanna hefur margfaldazt, áhrif þeirra stóraukizt. Hernaðarmáttur þeirra a.m.k. jafnmikill og Banda- ríkjanna ef ekki meiri. Þá kann einhver að segja: Þetta eru atburð- ir, sem gerast víðs fjarri Islands ströndum, í okkar heimshluta ríkir friður og það er rétt. En heimurinn hefur minnkað. Flota- veldi og flugher Spvétmanna er í meiri nálægð við Island en hann var fyrir 30 árum. Þótt Norð- ur-Atlantshafið liggi á milli okkar og Sovétríkjanna en landamærin ein skilji á milli Sovétríkjanna og Noregs eru Sovétmenn í jafn mikilum námunda við ísland og Noreg frá hernaðarlegu sjónar- miði. Sovézkar flugvélar og kaf- bátar eru á stöðugu sveimi í námunda við Island. Á Kola-skaga eru hersveitir, sem eru sérstaklega þjálfaðar til landgöngu af sjó. Þessum hersveitum getur ekki verið ætlað annað hlutverk en það að ráðast á Noreg og Island frá sjó. Sú breyting, sem orðið hefur á 30 árum er því öðru fremur sú, að í dag er jafnvel enn meiri þörf á öflugu varnarbandalagi og öflug- um vörnum en var fyrir 30 árum. Það er ekki tímabært að leggja Atlantshafsbandalagið niður held- ur er nauðsynlegt að stórefla varnarmátt þess. Við skulum hafa þrek til þess að horfast í augu við þessa óþægilegu staðreynd. Vidurkenning á borði Þau sjónarmið, sem hér hefur verið lýst, hafa í raun verið viður- kennd sem réttmæt af lýðræðis- flokkunum þremur, þótt tveir þeirra hafi á stundum reynzt býsna veiklundaðir á örlagatím- um. En látum það vera. Athyglis- verðara er, að þótt Alþýðubanda- lag og ýmis samtök á þess vegum hafi barizt hart gegn þátttöku okkar í varnarsamstarfi vest- rænna lýðræðisþjóða í orði er Alþýðubandalagið komið býsna nálægt því að viðurkenna þessi sjónarmið á borði. Alþýðubandalagið hefur tekið þátt í þremur ríkisstjórnum frá því að við gengum í Atlantshafs- bandalagið og gerðum varnar- samninginn við Bandaríkin. I fyrri vinstri stjórnunum tveimur lagði það ríka áherzlu á brottför varnar- liðsins. í þeirri ríkisstjórn sem nú situr er það ekki nefnt á nafn. Með þátttöku sinni í núverandi ríkis- stjórn hefur Alþýðubandalagið viðurkennt í verki réttmæti þeirr- ar utanríkisstefnu, sem byggist á aðild að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningnum við Banda- ríkin. Flokkurinn hefur enga til- raun gert til þess að taka þessi mál upp við „endurskoðun stjórnar- sáttmálans", sem átti að fara fram eftir áramót. Enda er alveg ljóst, að pólitískur áhugi Alþýðubanda- lagins á þessum málum hefur dofnað mjög. Áhugi ráðherra Al- þýðubandalagsins á því að sitja áfram í núverandi ríkisstjórn er slíkur, að þeir láta hvorki kjara- skerðingu né erlent varnarlið flæma sig úr þeim stólum. En þrátt fyrir það, að nú er meiri samstaða um utanríkis- og öryggisstefnu okkar en oft áður verðum við þó að vera á varðbergi gagnvart þeim hættum, sem að okkur steðja innan frá og utan. Innan Alþýðubandalagsins eru enn sterk öfl, sem setja baráttu gegn varnarliðinu og Atlantshafs- bandalaginu öllu ofar. Og Sovét- menn halda áfram þrýstingi sín- um á okkur Islendinga með marg- víslegum hætti, hvort sem um er að ræða óskir um „vísindalegar" rannsóknir eða vinsamleg tilboð um að hjálpa okkur við að byggja olíuhöfn. Hér á landi sem annars staðar eru til græningjar sem gína við slíkum tilboðum og fagur- yrðum þessa austræna stórveldis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.