Morgunblaðið - 01.04.1979, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 01.04.1979, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. APRÍL 1979 21 Á sjúkrabeðinu. Giginmaðurinn viðstaddur. Erfiðast að umbera óhamingju annarra — af veikindasögu fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna EINS OG mörgum er eflaust kunnugt gekkst Betty Ford þáverandi forsetafrú Banda- rikjanna undir skurðaðgerð vegna krabba í brjósti í septem- ber 1974. Þá var annað brjóst forsetafrúarinnar fjarlægt, en fylgst var með veikindum henn- ar af miklum áhuga í Banda- ríkjunum og víðar. Betty Ford hefur nú sent frá sér bók, The Times Of My Life, og segir þar m.a. allitarlega frá því er vart varð við æxli í brjósti og þar til að hún haíði náð sér næstum fullkomiega nokkrum árum síðar. Fer hér í stuttri þýðingu og samandregnu máli brot af þjáningasögu Betty Ford vegna brjóstkrabbans: Aðdragandinn var nokkuð óvenjulegur. Vinkona mín átti að fara í reglubundna rannsókn og hún sagði það ekki óvitlaust að ég kæmi með henni og léti athuga mig, þar eð ég ætti hvort eð er að fara í skoðun hjá kvensjúkdómalækni innan skamms. Eg hafði þó engar áhyggjur og velti því ekki fyrir mér hvað þessi heimsókn kynni að hafa í för með sér, þegar ég gekk inn á rannsóknarstofu sjúkrahússins. Læknir athugaði brjóst mín og sagði: „Augnablik", og svo brá hann sér í burtu og kom að vörmu sjpori og í fylgd hans var Dr. William Fouty yfirlæknir skurðlækningadeildar. Hann rannsakaði mig einnig. Mig óraði ennþá ekki fyrir neinu, því ég var orðin alvön læknisrannsóknum. En þegar ég kom aftur til Hvíta hússins biðu mín skilaboð um að Lukash iæknir vildi hitta mig í skrif- stofu sinni klukkan sjö það kvöld. Þar skýrði hann okkur Jerry frá því að læknarnir á sjúkrahúsinu hefðu fundið þykkildi í hægra brjósti mínu og að þeir vildu gera skurðaðgerð á mér stráx. „Þeir geta ekki skorið mig alveg strax“, sagði ég, „því ég hef mörgum skyldustörfum að sinna á morgun.“ Læknirinn sagði að égyrði að leggjast inn á sjúkrahús annað kvöld. Það varð að samkomulagi að ég sinnti skyldustörfunum eins og ekkert hefði í skorist og að engin tilkynning um veikindi mín yrði gefin út fyrr en að þeim loknum. Tilkynnt var opin- berlega í fréttum klukkan sex síðdegis næsta dag að ég yrði að leggjast inn á sjúkrahús til aðgerðar vegna krabbameins. Fimm mínútum áður var ég lögð inn á Bethesda sjúkrahúsið. Ég var lögð inn á forsetastof- una. Jerry sagði mér eftir á að hann hefði aldrei á ævinni verið eins einmana og þegar hann fór heim frá sjúkrahúsinu það kvöld. Þessi veikindi fengu meir á hann en mig. Betty Ford. Sennilega leit ég málið raun- særri augum en Jerry. Ég hafði orðið fyrir ýmsum heilsufars- legum skakkaföllum áður, en alltaf sloppið vel. Mér hafði verið gert ljoæst hvað uppskurðurinn kynni að hafa í för með sér. Það átti að fjarlægja þykkildið úr brjóstinu. Ef í ljós kæmi að það væri ekkert óvenjulegt yrði skurðin- um lokað eins og ekkert hefði í skorist, en ef í ljós kæmi að þykkildið reyndist illkynja þá yrði brjóstið fjarlægt með öllu þá þegar. Brjóstið var fjarlægt, svo og nokkrir vöðvar sem tengjast því, og blóðvantshnúðar undir hand- leggjunum, en þar fannst vottur að krabbameini. Ég var sett á lyfjakúr svo að hefta mætti útbreiðslu sjúkdómsins. Lyfin komu mér í óstuð, því að í hvert sinn sem ég barði pilluglösin augum minntu þau mig á sjúk- dóm minn. Það var mikill sorgarsvipur á aðstandendum mínum þegar þeir heimsóttu mig í hvíldarher- bergið eftir uppskurðinn. Þeim fannst ég fölleit og uppdópuð. Ég reyndi að hressa þau upp en þeim stökk ekki bros á vör. Ég sagði þeim að hypja sig ef þeim væri um megn að brosa örlítið því ég gæti ekki umborið þau svona óhamingjusöm. Við Jerry litum málið þeim augum að ég væri enn heil þótt eitt brjóst vantaði. Við vorum sammála um að mannslífið væri mikilsverðara en eitt brjóst. Vandinn er að það skuli ekki vera hægt að segja fyrir um hversu lengi maður eigi eftir lifað. Hver einasta skoðun er nýr tálmi. En það er um að gera að líta á þann tálma með já- kvæðu hugarfari. Þetta er að miklu leyti spurning um andlegt atgervi, en það hefur svo mikil áhrif á líkamlegt atgervi. Nú er ég svo að segja komin yfir erfiðleikana sem aðgerðinni voru samfara. Ég herti mig upp og stóð lyfjakúrinn alveg. Þarf ég aðeins að fara í beinalýsingu á sex mánaða fresti. En þetta tókst ekki án erfiðis. Ég varð að temja mér mikirin sjálfsaga og stunda erfiðar æf- ingar til að fá mátt í hægri handlegg. Það var stór stund að geta lyft tebolla aðeins rúmum sólarhring eftir aðgerðina. Margar ráðleggingar bárust frá konum á öllum aldri sem höfðu orðið fyrir sömu lífsreynslu. Þar á meðal var að finna mörg sérkennileg ráð, svo sem að lækna mætti krabba með því að neyta spergils, og ein kona sagði að það væri húsráð að dreypa á gulróta- og eplasafa til skiptis og nudda iljarnar samtímis. En þrátt fyrir alla meðaukun- ina, allar kveðjurnar, árnaðar- óskirnar og blómasendingarnar, þá fann ég aldrei til neinna andlegra sárinda vegna sjúk- leikans né fylltist ég vonleysi. Þrátt fyrir allt þá höfðum við Jerry verið gift í rúman aldar- fjórðung og gagnkvæm ást sannað sig margsinnis. Sumarbústaður — sumarbústaðaland Vil kaupa vel staösettan sumarbústaö eöa fallegt rúmgott land undir sumarbústaö viö Þingvallavatn eöa annars staöar á suðvesturhorni landsins. Áhugasamir sendi nafn og símanúmer til augld. Mbl. merkt: „Víösýni — 5687“. Til sölu Volvo FB 86 ’73 Hiab 550 krani, Robbsondrif Land- vélasturtur, drifhásing meö nágírum. Góöur bíll. Verö 12,5 millj. Jóhannes Benediktsson, sími 95-2193 og 95-2134. Hávamál Indíalands Bhagavad-gíta er grundvallarrit Yogafræöinnar og er ein af frægustu bókum heims- ins. Þýtt hefur Siguröur Kristófer Pétursson. Útgáfu annaðist Sigfús Daöason, og skrifar eftir- mála um Sigurö Kristófer Pétursson, líf hans og verk. STAFAFELL Klassik1 Nýkomiö geysilegt úrval af klassiskum hljómplötum og kassettum. Sendum í póstkröfu. heimilistæki sf Husqvarna OLÍUOFNAR Fyrir hvers konar húsnæði Frá 25 ferm — 80 ferm Með spirölum til hitunar á vatni í miðstöðvarofna eða vatnsdunk. ^unnai Sýózeibmn h.f.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.