Morgunblaðið - 01.04.1979, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.04.1979, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. APRIL 1979 De Dannan brugðu á leik fyrir blaðamenn og sýndu, að það er ósvikin vara, sem þeir hafa fram að færa — lifandi ekta írsk þjóðlagatónlist. Kærkomnir boöberar írskrar Þjóölagatónlistar: Hljómsveitin De Danann # heim- sókn hérlendis ÞESSA dagana gistir skerið okkar fimm manna írsk þjóðlagahljóm- sveit De Danann að nafni, sem þekkt er og viðurkennd í heima- landi sínu og víðar fyrir skemmti- legan flutning á gömlum írskum þjóðlögum. Tilefni komu þeirra er nokkura daga Irlandskyijning sem fram hefur farið í Þórskaffi síðustu daga. Það er ekki á hverjum segi sem svona gesti ber að garði hér og raunar furðulegt að samskipti hafi ekki verið öflugri á þessu sviði eins og írsk þjóðlagatónlist hefur notið mikilla vinsælda hér á landi gegn- um árin. Er skemmst að minnast þeirra undirtekta sem Dubliners hlutu á listahátíð s.l. vor og svo má ekki gleyma því að þau eru ófá írsku lögin, sem gerðir hafa verið íslenskir textar við og þau orðið að almenningssöngvum — hver kann- ast t.d. ekki „Ef þú giftist, ef þú bara giftist, ef þú giftist mér“. Þjóðlagatónlistin á sér langa sögu og sterka hefð í írsku þjóðlífi og hafa krárnar ekki síst átt sinn þátt í að viðhalda þeirri hefð. A kránum eða „pöbbunum" (sem skipta þúsundum á Irlandi) kemur fólk saman og þar hafa söngvar, vísur og spil varðveist mann fram af manni og er flutningurinn ekki Plötudómur: „BREAKFAST INAMERICA“ SUPERTRAMP (A&M/ Steinar hf) ★ ★ ★ ★ Jack Bailey harmonikka o.fl. Ætt hans hefur fengist við þjóðlaga- tónlist um langan aldur. bundin þar við einhverjar ósnertanlegar hetjur heldur getur nær hver sem er troðið upp og tekið lagið — jafnt leikmenn sem atvinnulistamenn. Þannig hefur viðhaldist náið samband al- mennings og þjóðlaganna og gerir enn. Þjóðlagatónlistin komst fyrir nokkum árum „í tísku" ef svo má FLYTJENDUR: SUPERTRAMP Rick Davies: Söngur og hljómborð/ Roger Hodges: Söngur, hljómborð og gítar/ John A. Helliswell: blásturs- hljóðfæri/ Dougie Thompson: bassagítar/ Bob C. Benberg: Trommur/ auk Slide Hyde: Túba og básúna: STJÓRN UPPTÖKU: SUPER- TRAMP OG PETER HENDER- SON. „Breakfast In America" er sjötta plata Supertramp, en þeir hafa verið í gangi í tíu ár á komandi hausti. Fyrstu tvær plöturnar hafa lítið heyrst enda segja í poppheiminum og fór sú írska síst varhluta af því, enda viss gæðastimpill yfir henni. Raf- magnsnotkun jókst og til varð það er nefnt hefur verið „folk-rock“. Það hefur nú að mestu gengið yfir en eftir stendur hin upprunalega tónlist óhögguð iðkuð af fullum krafti sem fyrr á Irlandi. De Danaann eru frá vestur- strönd írlands, þar sem enn er töluð keltneska og þar sem írsk þjóðlagatónlist á sér hvað sterkastar rætur. Þeir hafa safnað gömlum þjóðlögum og víða leitað fanga, m.a. í Bandaríkjun um, en afkomendur Ira eru þar margir eins og kunnugt er. Þeir hafa starfað saman fimm ár og gefið út tvær plötur. Auk þess hafa tveir þeirra gefið út plötur sem ein- staklingar. Þetta eru hessir kallar sem leika við hvern sinn fingur þegar tónlistin er annars vegar og ekki skaðar útlitið — eins og maður ímyndar sér dæmigerða Ira, fúlskeggjaða og úfna. Hingað komu De Danann frá Noregi og leika í síðasta sinn hér á landi í Þórskaffi í kvöld. Þeir halda síðan eftir helgina til heimahaga sinna — á krárnar heima. Þar er þeirra líf. T.H.A. náðu þær aldrei þeim vinsæld- um að þær gætu lifað, en þetta voru plöturnar „Supertramp" og „Indelibly Stamped" sem komu út 1970 og 1971. Einungis Davies og Hodgson komu við sögu á þessum fyrstu plötum af þeim sem nú skipa Supertramp. Sup- ertramp eins og hún er skipuð á þessari plötu kom fyrst fram síðsumars 1973 og fyrsta plata þeirra saman var „Crime Of The Century" sem gerði gæfumun- inn fyrir hljómsveitina með lögum eins og „Dreamer". Á eftir henni kom „Crisis? What Crisis?" og síðan „Even In The Quietest Moments" sem innhélt „Give A Little Bit“, en sú plata Á eftir Lónlí Blú Bojs, og Lummunum... koma Skrýplarnir FYRIR síðustu helgi kom út fjögurra laga plata frá Gunnari Þórðarsyni og félögum undir nafninu Skrýplarnir. Er hér um að ræða fyrstu 12 tommu 45 snúninga (á mínútu) plötuna sem gefin er út hérlendis en slík sóun á plasti er orðin mjög algeng erlendis þrátt fyrir hækkandi olíuverð. Lögin á plötunni eru öll þekkt úr sjónvarpinu, þrjú þeirra úr „Stundinni okkar“: „Míó Maó“, „Kvak Kvak„ og „Sandkassa söngur“, öll eftir Piero Barbetti. Fjórða lagið er þekkt úr íslenska framhaldsmyndaflokkn- um „Undir sama þaki“: „Litlu andarungarnir“. Þess má geta að væntanlegt er meira efni frá Skrýplunum, þ.a.m. breiðskífa. HIA Fréttir úr bresku popppressunni Nokkur tími er síðan erlendar poppfréttir birtust hér síðast og skulum við þess vegna stikla á stóru nöfnunum að þessu sinni en bæta annað upp síðar! WHO eru sagðir búnir að ráða hljómborðsleikara. Mun það vera Rikki nokkur Sylvan (réttu nafni Nick Condron), sem hefur verið fyrirliði hljómsveitarinnar Rikki & The Last Days Of Earth. En þess má líka geta að ekkert hefur verið staðfest. Kvikmynd Who, „The Kids Are Alright", er á lokastigi í klippingu. Tvöföld plata með lögum úr mynd- inni er væntanieg í apríl. Þess má geta að tekin hefur verið upp kvikmyndatónlistin fyrir „Quadrophenia" sem er tvöföld og hún ásamt nýrri einfaldri breið- skífu frá Who eru væntanlegar í haust. Þess má líka geta að ný lítil plata er að koma út „Long Live Rock“. DIRE STRAITS gefa út aðra plðtu sína „Communiquó" í maí. Jerry Wesl- er stjórnaðí upptökunum. WOODSTOCK II í bígerð er að halda Wood- stock-hljómleika í annað sinn, nákvæmlega 10 árum eftir að fyrri Woodstock-hljómleikarnir voru haldnir, eða 21. ágúst 1979. Þeir sem komu fram sem vitað er um eru m.a. Crosby Stills Nash & Young, Greedence Clearwater Revial og Mountain, hljómsveitir sem allar koma sérstaklega saman fyrir þessa hljómleika. Einnig hefur verið rætt um Blood, Sweet & Tears, Joe Cocker, Jefferson Starship, Grateful Dead, Johnny Winter, Paul Butterfield og Joan Baez, sem þátttakendur á þessum hljómleikum, en þau léku öll á fyrri hljómleikunum 1969. Auk þess mun verða mikið af nýrri 1 íistamönnum sem hafa komið fram á sjónarsviðið síðan. FAIRPORT CONVENTION Ein langlífasta folk-rock hljóm- sveitin í Bretlandi og réttnefndir fánaberar þeirrar tónlistar mun hætta innan skamms vegna heyrnaskemmda Dave Swarbrick fiðluleikara, mandólínleikara og söngvara þeirra. Fairport Convention hafa frá upphafi gefið út 16 breiðskífur í Bretlandi, en sú fyrsta kom út 1968. IGGY POP er búin að safna í kringum sig 4 nýjum hljóðfæraleikurum sín- um úr hverri áttinni. Fyrst skai nefna frægastan, Glen Matlock, fyrrum bassista Sex Pistols og sfðar Rich Kids er nú bassagítar- ieikari hjá Iggy, Klaus Kruger hcitir nýi trymbillinn, en hann lék síðast með þýsku hljómsveit- inni Tangerine Dream. James Williamson, gítarleikari og Scott Thurston, hljómborðs- og gítar- leikari, léku báðir með Iggy Pop fyrr á aærum. Iggy Pop er lfka að gefa- út nýja plötu um þessar mundir með þessum liðsafla sem heitir „New Values". BILL BRUFORD sem hætti í UK eftir áramótin hefur stofnað nýja hljómsveit, Bruford. Ásamt Bruford eru í hljómsveitinni Allan Holdsworth gítarleikari, sem var líka í UK, Dave Stewart hljómborðsleikari sem síðast lék með National Health, en Bruford lék með þeim um tíma líka, og að lokum Jeff Berlin bassagítarleikari. Holds-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.