Morgunblaðið - 01.04.1979, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 01.04.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. APRÍL 1979 31 Friðfinna Hrólfs- dóttir sjötug á morgun Skólaárin verða mörgum eitt bjartasta skeið ævinnar, þegar horft er um öxl og litið yfir liðna tíð. Vissulega skiptust þá einnig á skin og skúrir, eins og gengur, en birta æskuvorsins hafði þá alltaf yfirhöndina, þegar upp var staðið. Skólaminningunum tengdir eru þeir einstaklingar, sem lögðu sitt af mörkum til þess að greiða götu og varpa birtu á braut þess, sem hlut átti að máli, hverju sinni. Fáir rísa hærra í mínum huga frá þessum björtu dögum en frænka mín, Friðfinna Hrólfsdótt- ir, sem á morgun stendur á sjónar- hóli sjötíu ára. Hún bjó þá með fjölskyldu sinni að Oddeyrargötu 16 á Akureyri. Allar þær stundir, sem ég átti á heimili hennar, og þær voru marg- ar, eru í minningunni bjartari en orð fái lýst. Þar fór saman höfð- ingleg rausn og fágæt hjartahlýja. Friðfinna Hrólfsdóttir er Skag- firðingur að ætt og uppruna. Hún er fædd að Ábæ í Áusturdal í Skagafirði, dóttir hjónanna Hrólfs Þorsteinssonar og Valgerðar Kristjánsdóttur. Hún er elst af 7 systkinum. Eru systurnar 5 og bræðurnir 2, og auk þess er ein fóstursystir, sem foreldrar hennar ólu upp. Friðfinna fór ung úr foreldra- húsum að vinna fyrir sér. Var hún m.a. á Syðri-Brekkum í Blönduhlíð í Skagafirði, annáluðu myndar- og rausnarheimili, og minnist hún dvalarinnar þar oft með mikilli gleði og þakklæti. Um tvítugt fluttist Friðfinna til Akureyrar. Þar kynntist hún Viktori Kristjánssyni rafvirkjameistara, eyfirðingi að ætt, frábærum dugn- aðar og drengskaparmanni. Þau gengu í hjónaband 29. nóv., árið 1929 og settust að á Akureyri. Lengst bjuggu þau að Oddeyrar- götu 16, en allmörg síðustu árin, sem þau áttu heima nyrðra, áttu þau heima að Bjarmastíg 7. Þau eignuðust 4 börn. Næstelsta barnið, dóttur, er Viktoría Bryndís hét, misstu þau tveggja ára að aldri. Hin þrjú eru á lífi og búsett hjá móður sinni í Reykjavík. Elst þeirra er Sigrún Pálína, verslunar- dama, þá er Viktoría Bryndís yngri, fótaterapeut og yngstur er Haukur Arnar arkitekt. Heimili þeirra Friðfinnu og Viktors á Akureyri átti sér án efa fáar hliðstæður. Gestrisni var svo mikil og einlæg, að það gleymist áreiðanlega engum þeim mörgu, sem hennar urðu aðnjótandi. Á þeim vettvngi áttu þau svo sannar- lega samleið, bæði hjónin. Alveg sérstakt athvarf áttu margir unglingar, sem stunduðu nám á Akureyri, hjá þeim. Og þar tengdust vináttubönd, sem hafa lífstíðar varanleik í sér fólginn. Og eins og áður var sagt, er undirrit- aður einn þeirra, sem urðu þeirrar gæfu aðnjótandi. Það var oft glatt á hjalla og dásamlega gaman að koma bæði á Oddeyrargötuna og síðar á Bjarmastíginn og njóta þeirrar elskulegu og hjartahlýju gestrisni, sem var aðalsmerki, ekki einungis hjónanna, heldur allrar fjölskyld- unnar. í fornsögum okkar er sagt frá manni svo gestrisnum, að hann „reisti skála um þjóðbraut þvera“, til þess að allir vegfarendur mættu njóta gistivináttu hans. Þau orð mættu svo sannarlega heimfæra til þeirra Friðfinnu og Viktors, svo einstæð voru þau á þeim vettvangi. Það yrði alltof langt mál að fara að rifja upp einstakar minningar frá þeim góðu og ógleymanlegu stundum, sem ég naut í samfélagi Friðfinnu frænku minnar og fjöl- skyldu hennar, þó að af mörgu sé að taka. Sjálf verður hún mér alltaf jafn hugstæð, hvort sem ég horfi á hana í eldhúsinu heima hjá sér í drifhvíta sloppnum sínum, sem ekki virtist geta fallið blettur á, svo hreinleg og snyrtileg var hún — eða uppáklædd í íslenska þjóðbúninginn, tíguleg eins og drottning, alltaf brosandi og við- mótshlý. Það var eins og gæðin, umhyggjan og góðvildin geisluðu út frá henni. Haustið 1970 fluttist fjölskyldan alfarin til Reykjavíkur. Þar andað- ist Viktor 5. des. árið 1973. Þó að Friðfinna hafi oft átt við vanheilsu að stríða þá er hún ennþá létt í spori og létt í lund. Og fagnandi tekur hún á móti vinum sínum engu síður nú en áður fyrr. Það verður áreiðanlega gest- kvæmt á heimili hennar að Rauða- læk 58 á morgun, því að margir munu vilja hylla hana og þakka henni á þessum merku tímamótum í lífi hennar. Og það þarf varla að taka fram, að auðvitað hefir hún opið hús allan daginn. Eg flyt svo minni elskulegu og kæru frænku hugheilar afmælis- kveðjur og árnaðaróskir mínar og fjölskyldu minnar. Veri hún alla daga heill og heiðri krýnd. Björn Jónsson. Akranesi. Skrýplarnir Skrýplarnir flytja 4 góðkunn barnalög undir stjórn Gunnars Þórðarsonar á þessari plötu. Kvak kvak, Míó Maó og Sandkassasönginn þekkja börn á öllum aldri úr sjónvarpinu. Og litlu andarungarnir eru góökunningjar okkar allra. Skrýplaplatan er vönduð og skemmtileg plata fyrir alla krakka, stóra og smáa. Útgefandi: Ýmir h.f. Dreifing: steínorhf Laugavegi66 Sími28155. Til sölu Glæsileg 5 herbergja endaíbúð á 5. hæö í Kríuhólum. Losnar í sept./okt. Uppl. sími 72321 — 41577. Verslunin Dalbær Nýkomnar mussur í sumarlitum, stutterma blúss- ur með blúndukraga, pils og vesti. Dalbær, Hverfisgötu 32.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.