Morgunblaðið - 19.04.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.04.1979, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR 88. tbl. 66. árg. FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Trúarleiðtogar treysta friðinn Teheran, 18. aprfl, A.P — Reuter. AYATOLLAH Mahmoud Taleghani, annar kunnasti trúarleiðtogi í íran, kom frá úr fylgsnum sínum í dag og hóf viðræður við Ayatollah Ruhollah Khomeini í hinni helgu borg Qom, að því er útvarpið í íran tilkynnti í kvöld. Leiðtogarnir tveir, svo og byltingarráð landsins, sendu frá sér yfirlýsingar í dag þar sem ráðist var að „and-byltingaröflum“ sem m.a. voru sökuð um að hafa rænt tveimur sonum og tengda- dóttur Taleghanis í síðustu viku. Kunnugir segja yfirlýsingarnar vott um að trúarleiðtogarnir séu að reyna að jafna ágreinirig sinn og lækka óánægjuöldur í röðum stuðningshópa sinna. Teleghani hvatti m.a. sína stuðningsmenn til að sýna still- ingu og hætta mótmælaaðgerðum gegn trúarnefndum Khomeinis. Þrátt fyrir yfirlýsingar beggja urðu mikil mótmæli víðsvegar í landinu. Einnig fóru hermenn í Teheran og víðar í miklum fylkingum um götur og veifuðu myndum af Khomeini. Aftökur héldu áfram í íran og voru sjö manns teknir af lífi í morgunsárið í dag. Þar með hafa 143 verið teknir af lífi af byltingars/eitum eftir réttarhöld byltingardómstóla. Meðal þeirra sem teknir hafa verið af lífi eru 27 herforingjar. Nýtt tungumál: „1131 3310 1590 1654651 22501411237” Nýju Delhi, 18. aprfl. AP. FYRRVERANDI indverksur kaupsýslumaður. K.R. Gopal- krishna, hefur fundið upp tungumál sem byggist á tölum og hann vonar að muni sameina heiminn. Hann kallar þetta tungumál „Abasama", orði sem hefur enga merkingu, og hefur hann sjálfur tekið sér það nafn. Fornöfn hafa sömu rót-tölu, 1.000. Núllin breytast í aðrar tölur til að tákna kyn, fall, eintölu eða fleirtölu og svo framvegis. Abasama hefur unnið að því að búa til þetta tungumál í 15 ár og enn sem komið er kann hann það einn. En rúmlega 1.000 áskrifendur eru að mánaðarriti sem hann gefur út um tungumálið og hann segir að nokkrir fræðimenn hafi hrósað því. „Þú ert með verk í hálsinum," útleggst þannig á Abasama: „1131 3310 1590 1654651 2250 1411237“ og það er borið þannig fram: „Katsja tsjíkom kúpom kúntindúk ganton kiniþ.“ Öll orðin er að finna í ensk-abasamískri orðabók sem hefur að geyma 2.500 orð. Höf- undurinn ætlar að semja fimm sinnum stærri orðabók. Borgarstjórar af vinstri væng Madríd, 18. apríl, Reuter. FASTLEGA má gera ráð fyrir að vinstrisinnaðir menn taki við em- bætti borgarstjóra í stærstu borg- um Spánar eftir kosningar borgar- og sveitarstjórnarmanna á Spáni ú morgun, fimmtudag, vegna samkomulags sósíalista og kommúnista um sameiginlegt framboð til þessara embætta. Þannig þykir öruggt að Enrique Tierno Galyan, leiðtogi PSOE, verði borgarstjóri Madrídar. Vinstri- sinnar hafa ekki farið með æðstu völd í borgum Spánar frá því fyrir borgarstyrjöldina 1936—39. Samkomulag vinstriflokkanna gerir það að verkum að þeir munu ráða um 1800 borgar- og sveitar- stjórnum á Spáni, en til þeirra teljast um 70 af hundraði íbúa landsins. Miðdemókratar, sem fara með völd í landinu, sigruðu í nýaf- stöðnum sveitarstjórnarkosningum, þegar á heildina er litið, en flest sæti fengu þeir í dreifbýli og minni borgum. Ljósm.: Rax Kristnir menn lýsa yfir siálfstædi í Libanon Tel Aviv, Tyrus, Osló, Beirút, Damaskus, 18. aprfl, AP-Reuter. SAAD Haddad majór, leiðtogi kristinna manna í Suð- ur-Lfbanon, lýsti í dag yfir sjálf- stæði héraðsins er héðan í frá yrði kaliað Frjálst Líbanon. Tilkynningin var birt skömmu eftir að libanskar hersveitir tóku sér stöðu meðal gæzlusveita Sameinuðu þjóðanna á svæðinu. Óljóst þótti hvort verið væri að lýsa yfir stofnun sjálfstæðs ríkis. Kristnir hermcnn gerðu harða hríð að Líbanonsher í nánd við bæinn Tyrus þcgar þeir síðar- nefndu komu inn á svæðið, en engar fregnir fóru af mannfalli. Hins vegar fórst norskur hermað- ur úr gæzluliði Sb og annar særðist hættulega er þeir urðu fyrir sprengjum scm skotið var í nótt inn á svæði það þar sem gæzlusveitirnar halda til. Kjósa 2/3 íbúa Rhódesíu? Salisbury, Rhódcnfu, 18. apríl, AP — Reuter. EMBÆTTISMENN í Rhódesíu spáðu því í dag, að kjörsókn í kosningunum sem nú standa yfir í landinu yrði að minnsta kosti 60 af hundraði. Verði kjörsókn það mikil þykir það benda til þess, að bæði svartir íbúar og hvítir líti á kosningarnar sem einu leiðina til að binda enda á erjur síðustu ára milli svartra skæruliða og stjórn- arhersins. Þessu hafa bæði hvítir og svart- ir stjórnmálamenn í landinu hald- ið fram og hafa þeir einnig sagt að þorri íbúanna treysti á að mikil kjörsókn verði til þess að erlend ríki viðurkenni næstu stjórr^ Rhódesíu. Aðeins nokkrum klukkustund- um eftir að kjörstaðir opnuðu í morgun á öðrum degi kosninganna var kjörsókn orðin 38 af hundraði, en þá hafði tæplega 1,1 milljón manna greitt atkvæði. Kjörsókn hefur verið einna dræmust í suðurhéruðunum, en þar hafa skæruliðar verið einna afkasta- mestir í aðgerðum sínum. Skæru- liðar hafa haft miklu hægar um sig en búist hafði verið við í sambandi við kosningarnar sem lýkur á laugardag. Yfirmenn herafla ísraels skýrðu frá því að um það leyti sem líbönsku hermennirnir tóku sér stöðu í Suður-Líbanon hefði rússneskum eldflaugum af Katyusha-gerð verið skotið inn á ísraelskt land. Einn maður særðist og skemmdir urðu á mannvirkjum. Útvarpið í Beirút skýrði einnig frá því í dag, að ísraelskir landa- mærahermenn hefðu skotið sprengjum að stöðvum palestínu- skæruliða í útjaðri Tyrusar skömmu fyrir dögun. Þessum og öðrum álíka ásökunum var vísað á bug í Israel í dag. Tilkynnt var í stöðvum SÞ í Jerúsalem í dag að kristnir her- menn í Líbanon hefðu tekið til fanga bandaríska liðsforingjann James Neale þegar hann ók til Líbanons í dag i þeim erindagjörð- um að koma vopnahléi í kring. Síðar hefði Neale verið látinn laus fyrir tilstilli ísraelskra herfor- ingja. Ennfremur tilkynntu stöðvar SÞ að þrír einkennisklæddir menn hefðu reynt að koma sprengiefni fyrir við þyrlu sveita SÞ í Suður-Líbanon. Hermenn i gæzlu- sveitunum hefðu skotið á þremenningana og fellt einn þeirra. Holkeri gafst upp Helsinki, 18. apríl, Reuter. HARRI Holkcri leíðtogi (innskra íhaldsmanna gafst upp í dag við að reyna að mynda meirihlutastjórn cr tæki við samsteypustjórn mið- og vinstri- flokkanna. Ein lausn þeirra stöðu sem nú er komin upp ér að fyrrverandi stjórnarbandalag taki upp þráð- inn að nýju, en líklegra er þó talið að mynduð verði minnihluta- stjórn til bráðabirgða þar sem ýmsar blikur eru á lofti í finnsk- um stjórnmálum í kjölfar nýaf- staðinna kosninga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.