Morgunblaðið - 25.04.1979, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR
92. tbl. 66. árg.
Bazargan
sýnt tilræði?
Teheran, 24. aprfl. Reuter, AP.
DR. IBRAHIM Yazdi, sem til
skamms tíma var einn helzti
aðstoðarmaður Khomeinis trúar-
leiðtoga og er mjög umdeildur,
var í dag skipaður utanríkisráð-
herra írans. Hann var áður að-
stoðarforsætisráðherra, en tekur
nú við embætti því, sem Karim
Sanjabi lét af í mótmælaskyni við
yfirgang byltingarráðanna.
Bazargan forsætisráðherra skor-
aði í dag á landsmenn að vinna
bug á hefnigirni sinni og snúa sér
að enduruppbyggingu landsins.
Óstaðfest frétt var á kreiki í dag
þess efnis, að lögreglan hefði
handtekið mann nokkurn gruoað-
an um að hafa ráðgert að ráða
Bazargan af dögum.
„Uganda
frelsað”
Naíróbí, 24. aprfl. AP. Reuter.
ÞÚSUNDIR flóttamanna frá
Úganda fögnuðu f dag innilega
hinum nýja utanrfkisráðherra
landsins, þegar hann kom í heim-
sókn til Kenya og tilkynnti lönd-
um sfnum. að land þeirra „hefði
verið frelsað“ og að aldrei framar
þyrfti nokkur maður að flýja frá
Úganda.
Her hinnar nýju stjórnar sækir
hægt áfram á þeim slóðum þar
sem hermenn Amíns fyrrum for-
seta ráða enn lögum og lofum, en
mótstaða er sögð lítil. Ekkert
hefur spurzt til Amíns sjálfs frá
því að fréttir hermdu að hann
hefði komið í skyndiheimsókn til
Iraks.
Muzorewa
hlaut 65%
atkvæða
Salishury, 24. apríl. AP, Reuter.
ABEL Muzorewa biskup sagði í
dag að fyrsta verkefni sitt sem
forsætisráðherra fyrstu meiri-
hlutastjórnar biökkumanna í
Rhódesíu yrði að binda enda á
stríðið við skæruliða í landinu
en það hefur nú staðið í sex ár
og kostað 16 þúsund manns
lífið.
Flokkur Muzorewas hlaut 51
af 100 þingsætum í hinu nýja
þingi Rhódesíu, en mikinn
meirihluta atkvæða eða 65%.
Hvítir menn hafa 28 þingmenn,
en aðrir flokkar blökkumanna
21. Flokkur sr. Sitholes, sem er
einn blokkumannaleiðtoganna í
núverandi bráðabirgðastjórn,
MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 1979
Prentsmiðja lYIorgunblaðsins.
F armannaverkf all
hófst um miðnætti
Sambandsstjóm VSÍ tekur afstöðu til verkbanns árdegis
VERKFALL yfirmanna á farskipum skall á um miðnætti, er samninganefnd yfirmannanna hafnaði hugmyndum
vinnuveitenda um lausn deilunnar, sem þó voru settar fram án talna um launagreiðslur. „Þetta var ósköp lítið að
okkar mati,“ sagði Ingólfur Ingólfsson, forseti Farmanna- og fiskimannasambands íslands. í samtali við
Morgunblaðið í nótt, _og að okkar mati gefur það hvorki tilefni til frestunar né vonar um að þetta deilumál
leysist mjög fljótt.“ Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands íslands, sagði f nótt, að
sambandsstjórn VSÍ hefði verið boðuð saman til fundar f dag klukkan 11 og þar yrði tekin afstaða til þess, hvort
stjórnin ákvæði boðun verkbanns með 7 daga fyrirvara eða heimilaði framkvæmdastjórn VSÍ að boða það.
Vinnuveitendur afhentu samn-
inganefnd farmanna útfærðan stýri-
mannasamning í gærkveldi klukkan
22 eins og þeir hugsa sér hann.
Þorsteinn Pálsson kvað samninginn
verða l.igðan fram sem hugmynd, en
ekki sem beint tilboð, enda hefði ekki
reynzt nægur tími til þess að full-
reikna hann tölulega. Sáttasemjari
hefði óskað eftir frestun og í ljós
hefði komið, að full rök hefðu verið
fyrir þeirri beiðni. Framkvæmda-
stjóri VSÍ kvað vinnuveitendur
halda áfram að vinna „pakkann”,
sem fjallaði um ákveðna kerfisbreyt-
ingu, en hefði ekki í för með sér
kostnaðarauka fyrir útgerðirnar.
Ingólfur Ingólfsson, forseti FFSÍ,
kvað það vera ásetning farmanna að
halda áfram að vinna að samninga-
gerð, svo að deilan mætti leysast sem
fyrst. jjann stefnt að því að
halda nýjan sáttafund á morgun,
fimmtudag, þar eð vinnuveitendur
teldu sig þurfa þann tíma til þess að
ljúka þeim verkefnum, sem átt hefðu
að liggja fyrir fundinum í gær. Hann
kvað farmennina og mundu nota
tímann til þess að gera efnislegar
athugasemdir við hugmyndir vinnu-
veitenda og móta gagntillögur.
Harðar aðgerðir
ísraela í Líbanon
hlaut aðeins 12 þingsæti og
hefur Sithole krafizt rannsókn-
ar á framkvæmd kosninganna
og sakað stjórnendur þeirra um
að hafa beitt brögðum. Þriðji
blökkumannaleiðtoginn í bráða-
birgðastjórninni, Chirau ættar-
höfðingi, náði ekki kjöri á þing.
Jerússlem, Beirut, Kaíró,
24. aprfl AP. Reuter.
ÍSRAELSKAR herflugvélar, stór-
skotalið og fallbyssubátar gerðu í
dag harðar árásir á stöðvar
Palestínuskæruliða í S-Líbanon í
dag í hefndarskyni fyrir árás
hryðjuverkahóps skæruliða inn í
ísrael sl. sunnudag. Yfirvöld í
Libanon sögðu í dag, að þessar
árásir ísraela hefðu alls kostað 15
manns lífið.
Egypzka stjórnin fordæmdi
árásirnar á S-Líbanon harðlega í
dag og sagði þær geta haft neit-
kvæð áhrif á ^riðarsamning
Begin vill
daudadóma
yfir hryðju-
verkamönnum
ísraels og Egyptalands. 1
Jerúsalem var hins vegar tilkynnt
að skipzt yrði á staðfestingarskjöl-
um vegna friðarsamnings ríkjanna
á miðvikudag eins og ráðgert hefði
verið.
Hundrað fjölskyldna flýðu í dag
frá suðurhluta Líbanons og leituðu
skjóls norðar í landinu vegna
loftárása og stórskotaliðsárása
ísraela, að því er líbanskir
embættismenn sögðu.
Begin forsætisráðherrra Israels
sagði í dag að hann myndi beita
sér fyrir því að hryðjuverkamenn
sem sekir yrðu fundnir um
„óvenjulega grimmilega" glæpi
yrði framvegis dæmdir til dauða,
en dauðarefsingu er nú ekki beitt í
Israel. Þessi yfirlýsing forsætis-
ráðherrans er talin byggð á
hryðjuverkaárásinni sl. sunnudag,
en þá voru tvö lítil börn meðal
fórnarlambanna fjögurra.