Morgunblaðið - 13.05.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.05.1979, Blaðsíða 1
68 SÍÐUR 107. tbl. 66. árg. SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. L)Ó8mynd Mbl. Slgurictr (Eyjum. „Svani bárur bera — bára eí værir þú — á blárri báru nú — svanur vildi ég verau, segir Páll ólafsson í einni af ástarvísum sínum, en þetta álftapar hefur undanfarnar vikur umgengist hvort annað með bugti og beygingum á Tjörninni í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum. Hvað verður úr tilþrifunum verður framtíðin að leiða íljós en þær virðast halda hiklaust ígráðið. Barbara Hutton látin Loh AngeleH, 12. maí. AP. BARBARA Hutton lézt af hjartaslagi á föstudags- kvöld, 66 ára að aldri. Hún var erfingi Woolworth-auðæfanna og giftist sex sinnum. Meðal eiginmanna hennar voru leikarinn Cary Grant og Porfirio Rubirosa, sem helzt gat sér orð fyrir þróttmikla þátttöku í skemmtanalífi. Barbara Hutton skildi við sjötta eiginmann sinn fyrir þrettán árum. Stærsta blað Irans með mótmælaútgáfu Ufar rísa milli Khomeinis og blaðanna Teheran. 12. maí. AP. STÆRSTA morgunblað írans, Ayendegan, «af í morgun laugar- dag út sérstaklega útbúna „mót- mælaútgáfu* vegna gagnrýni á blaðið af hendi Khomeinis klerks. Blaðið í morgun var f jórar síður, þar af tvær auðar. Þegar upphóf- ust vandræði að dreifa blaðinu, því að vcnjulegir blaðasölumenn neituðu yfirleitt að taka það og á sölustöðum var þvf sömuleiðis hafnað. Háskólastúdentar nokkr- ir buðust til að taka að sér sölu, en margir þeirra urðu fyrir óþægindum við dreifinguna og aðsúgur var gerður að sumum. í yfirlýsingu sem Ayendegan birtir á fyrstu síðu er þess krafizt að ríkisstjórnin geri lýðum ljósa afstöðu sína til frjálsrar blaða- mennsku. „Óhugsandi er að vinna við þær aðstæður sem nú eru og þau skilyrði sem blöðunum eru sett. Þetta blað mun ekki koma út að nýju fyrr en það er á hreinu hvort ritfrelsi er í landinu. Til þess var byltingin gerð og það væri átakanlegt ef hún snerist upp í annað ocr verra.“ Fyrir utan ritstjórnarskrif- stofur blaðsins safnaðist hópur í morgun og kallaði ókvæðisorð um „síonistana á Ayendegan“ og lét ófriðlega. Khomeini réðst á Ayendegan á fimmtudag vegna greinar í því þar sem sagt er frá viðtali við hann í franska blaðinu Le Monde. Ayendegan lagði sér- staka áherzlu á fullyrðingu Khomeinis um að vinstrisinnar hefðu ekkert komið við sögu varð- andi aftökurnar upp á síðkastið og voru þeir fríaðir allri skuld og þótti blaðinu það ekki trúlegt. í dag var í ríkisútvarpi Irans fjallað um aftöku íransks Gyðings, vel metins kaupsýslumanns, og sagt að síonistar reyndu með rógi að nota dauða hans til að fá almenningsálitið í heiminum upp á móti byltingarstjórninni. Maður- inn var líflátinn fyrir þær sakir að hafa tengsl við ísrael og síonisma. Nýju Delhi, 12. maf. AP. FELLIBYLUR gekk yfir austur- strönd Indlands á laugardag og fyrstu fregnir hermdu að mikið tjón hefði orðið á landi og eignum. Af þessum svæðum höfðu tug- þúsundir manna verið fluttar á braut síðustu daga tftir að ljóst var Khomeinl að fellibylur var í nánd. Felli- bylurinn er nú yfir Nellore, 160 km fyrir norðan Madras. Mikill viðbúnaður er víða á þessum slóð- um til að bjarga fólki og fénaði þar sem fellibylurinn fer um og úr krafti hans mun að minnsta kosti ekki draga næstu daga. Fellibylur á aust- urströnd Indlands San Salvador; Vinstri menn taka sendiráð San Salvadur. 12. mal. Reuter. IIERSKÁIR vinstrisinnar með fangið fullt af blómum hafa náð á sitt vald sendiráði Venuzúcla í San Salvador og hafa þar í haldi átta gísla. Þetta er þriðja sendi- ráðið, sem vinstrisinnarnir ná á sitt vald. en gíslunum neita þeir að sleppa ncma leiðtogar þeirra verði látnir lausir úr fangelsi. Til átaka kom á nokkrum stöðum í gær og segja yfirvöld í borginni að þar hafi fimm öfgasinnar látið lífið. Dómkirkjan í miðborginni er enn á valdi þeirra, en þar kom til stórfelldra átaka fyrir rúmri viku og létu að minnsta kosti 19 lífið auk þess sem 40 særðust. Fimm vinstri leiðtogar hafa setið í fang- elsi, en tveir þeirra hafa verið látnir lausir til að koma til móts við kröfur félaga þeirra. Taka venezúelska sendiráðsins hefur veikt mjög vonir um að erjum þessum ljúki á næstunni, en yfir- völd í San Salvador hafa velt því alvarlega fyrir sér að sleppa þeim þremur föngum, sem eftir eru i fangelsi, ef það mætti verða til að koma á sáttum. Harðsnúm húsmóðir Bochum, 12. maí. Reuter. 36 ÁRA húsmóðir í Watten- scheid í Ruhr var staðin að verki þar sem hún var að líma áróðursspjald með nasískum slagorðum og hatursfullum yf- irlýsingum í garð Gyðinga á glugga i járnbrautarstöð. Við rannsóln kom í ljós að konan hafði prentað um 3 þúsund veggspjöld og dreift þeim víðs vegar. Hún hefur viðurkennt brot sitt og á yfir höfði sér eins árs fangelsisdóm. 70 dóu úr hitu Nýju Delhi, 12. maí. AP. UM 70 manns hafa látið lífið í hitabylgju, sem gengið hefur yfir norðanvert Indland síð- ustu tvær vikur. Þar hefur hitinn komizt upp í 42 stig á Celsíus. Júgóslavi rekinn Ottawa, 12. maí. Reuter. KANADASTJÓRN vísaði í dag júgóslavneskum diplómat úr landi fyrir að hafa angrað kanadíska borgara af júgóslav- neskum ættum. Hér er um að ræða Mijat Tomic, vararæðis- mann í Toronto, og telja kana- dísk stjórnvöld sannað að hann hafi beitt óviðurkvæmilegum þrýstingi í því skyni að afla sér upplýsinga og hafa áhrif á líf fólks af júgóslavneskum upp- runa. --

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.