Morgunblaðið - 20.05.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.05.1979, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR 113. tbl. 66. árg. SUNNUDAGUR 20. MAÍ1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Fær tíu milljónir dollara Oklahoma. 19. maí. AP. Rcuter. RÍKISDÓMSTÓLL í Okla- homa dæmdi í iíst kjarnorku- fyrirtækið Kerr-McGee til að greiða 10,5 milljónir dollara, um 3.500 miiljónir íslcnzkra króna. í skaðabætur til fjöl- skyldu starfsmanns er varð fyrir plútóníum-geislun í verk- smiðju þar sem endurunnin voru úrgangsefni úr kjarnorku- verum. Niðurstaða dómstólsins var sú að gcislunin, sem starfs- maðurinn varð fyrir hefði kom- ið til vegna kæruleysis í rekstri versins. sem er við Crescent í Oklahoma. Dómurinn markar tímamót ok er talið að niður- staða réttarhaldanna eixi eftir að leiða tii þúsunda samsvar- andi málaferla á hcndur banda- ríska kjarnorkuiðnaðinum. Starfsmaðurinn, Karen Silk- wood, og fjölskylda hennar hófu málsókn á hendur Kerr-McGee þegar vart varð við geislun í íbúð, sem hún bjó í og á líkama hennar. Viku seinna fórst Karen í bílslysi og hefur því m.a. verið haldið fram, að „slysið" hafi verið morð og að Kerr-McGee Karen Silkwood. S(m»mynd - AP. hafi ekki hreinan skjöld í því máli. Er Karen lézt var hún á leið til fundar við blaðamann New York Times og fulltrúa starfsfólks í kjarnorkuverum. Ætlaði hún að afhenda blaðamanninum ýmis skjöl og sönnunargögn um öryggismál í verinu þar sem hún starfaði. Vitni voru að því, er hún setti poka með gögnunum í bifreið sína við húsakynni stétt- arfélags síns, en pokinn var ekki í bílfiakinu á slysstað er lögregla kom þar að skömmu eftir siysið og hefur því verið haldið fram, að fulltrúar Kerr-McGee hafi stolið pokanum úr flakinu eftir að hafa þröngvað bifreið Karen- ar fram af veginum. Dhaulagiri klifinn: Hímdu í snjóholu í viku vegna storma Katmandu. Ncpal. 19. mai. AP. FJÓRIR Spánverjar ásamt nepölskum fylgdarmanni klifu tindinn Dhaulagiri. 8172 m háan, í Nepal í gær eftir að hafa lcnt í miklum mannraunum á Iciðinni. Dhaulagiri cr tíunda hæsta fjall heims og þykir mjög crfitt upp- göngu. enda hafa aðeins örfáir fjallgöngumenn staðið á tindi þess. För Spánverjanna á fjallið tók alls um sex vikur. I byrjun gekk allt að óskum og þeir komust tiltölulega fljótt upp í miðjar hlíðar þess, en þá tók veður að versna og brattinn að aukast. „Ég hló nú bara þegar mér var sagt fyrir leiðangurinn að vind- hraði gæti komist upp í 300 kíló- metra á klukkustund," sagði Gregorio Ariz leiðangursstjóri, „en ég hló ekki þegar við máttum híma fimm saman í smá snjóholu efst í fjallinu í nær heila viku vegna þess að ekki var unnt að fóta sig í æðisgengnum stormi sem geisaði á þessum slóðum,“ sagði Ariz enn- fremur. „Það tók okkur svo sex daga að klífa síðustu 700 metrana, þegar hægja tók á veðrinu, en kuldinn var aftur á móti mjög mikill, sennilega milli 30—40 stiga frost,“ sagði Ariz að síðustu. Rúm þrjátíu þúsund flýja til Thailands Ban Bung Chanang. Thailandi. 19. maf. AP. RÚMLEGA 30.000 Kambódíumenn, óbreyttir borgarar og hermenn fyrrverandi ríkisstjórnar Pol Pots forsætis- ráðherra, flýðu inn í Thailand við landamæraborgina Ban Bung Chanang í morgun eftir harða sókn herliðs undir forystu Víetnama. Yfirvöld í Thailandi hafa látið í ljós ugg um að þessi átök geti breiðzt út til landsins. Landstjór- inn í fylkinu Chantaburi sagði í símviðtali, að Kambódíumennirn- ir hefðu streymt inn í Thailand við Ban Bung Chanang, sem er um fjóra kílómetra frá landamærun- um og að flóttinn héldi áfram. Heimildir í Chantaburi herma að Kambódíumennirnir hafi kom- ið „mjög hratt" yfir landamærin og yfirvöld telji að herliðið undir stjórn Víetnama fylgi fast á hæla þeim. Yfirvöld segja einnig, að þau hafi hert á öryggisráðstöfunum á landamærasvæðinu þar sem Kambódíumennirnir komu inn í Thailand af ótta við að átökin breiðist út yfir landamærin. Bardagar halda áfram milli herliðsins sem Víetnamar stjórna og leifa hers ríkisstjórnar Pol Pots og stöðugt fleiri Kambódíu- menn leita hælis meðfram thai- lenzku landamærunum. Fyrsta kassabílarallúð hér i landi fer fram um næstu helgi. Það eru skátar, sem standa fyrir þessu uppátæki og er tigangurinn að safna fé til Kópavogshæiisins. Rallíið hefst n.k. laugardag í Hveragerði og því lýkur við Kópavogshælið á sunnudaginn. 12 fararskjótar taka þátt í rallíinu og munu þrfr skátar ýta bílunum og einn stýra en auðvitað verða áhafnaskipti með vissu miilibili. Fyrsti rallbfllinn er kominn á götuna og var hann myndaður við Glæsibæ á föstudaginn ásamt áhöfn. Þótt ekki sé búist við þvf að bílarnir aki á neinum ofsahraða þótti samt vissara að hafa íþeim bílbelti eins Og sjá má. Ljóam. Kristinn. Á ströndinni öðrum piltinum á myndinni fannst vissara að hafa riffilinn með sér á ströndina við ísraelsku hyggðina Yamit á Sinai-skaga. Hún er á svæðinu við borgina E1 Arish og er fjölmennasta ísraelska nýlendan þar. Egyptar fá aftur yfirráð yfir E1 Arish eftir nokkra daga en ekki Yamit. Schlesinger er ekki settur af WashinKton. 19. maí. Rcutcr. JAMES Schlesinger orkumála- ráðherra Bandarfkjanna sagði í sjúnvarpsviðtali í gær. að hann hefði tilkynnt Carter íorseta að hann væri tilbúinn að segja af sér. en forsetinn hefði hafnað því. Schlesinger sagðist i viðtalinu ekki kvíða svo mjög að halda áfram í þessu umdeilda embætti og hann myndi gegna því áfram þar til Carter hefði fundið nýjan mann til að taka við. Schlesinger bætti því svo við, að líklega reyndist það forsetanum erfitt að finna sjálfboðaliða í starfið. Schlesinger sagði ennfremur, að miklar óvinsældir hans meðal I þingmanna væru ekki til komnar vegna hans eigin persónuleika I heldur eðli starfsins. Tarzan í barndóm Lom Angeles. 19. maí. Reuter. JOHNNY Weissmuller, sund- kappinn sem frægur varð fyrir leik sinn í Tarzan-myndum, er truflaður á geði. Lýsir það sér í því, að hann gengur um ganga elliheimilisins, þar sem hann dvelst og rekur öðru hvoru upp hið hræðilegasta stríðsöskur. Weismuller er nú 73 ára gam- all.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.