Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.05.1979, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 4 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 119. tbl. 66. árg. ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. DC-10 þotan sem fórst í Chicago. Einn hreyfillinn losnaði. Sjá „Fjárinn, hrópaði flugstjórinn ----Síðan rofnaði allt samband“ bls. 46. Boltinn scm lfklega olli því að hreyfill datt af DC-10-flugvélinni í Chicago með þeim afleiðingum að 273 fórust. Arabísk gagnsókn í Úganda bráðlega hafi ákveðið að leggja Amin lið. Segir hann þá streyma til landsins í hópum daglega og megi búast við gagnárás á næstu tíu dögum. Kampala. Nairobi, London. 28. mai. AP. LIÐSVEITIR Tanzaníu og Úganda búa sig nú undir úrslitaárás á borgina_ Arua í norðvesturhluta Úganda að sögn ráðamanns í Úgandaher. Borgin er talin síðasta virki stuðningsmanna Amins. Þá er orðrómur á kreiki um að arabískir „málaliðar“ haíi í ráðum stórfellda gagnsókn í Norðvestur-Úganda gegn herjum hinnar nýju stjórnar og Tanzaníu. Talsmaður Úgandahers sagði að herir sex vikna gamallar stjórnar Lules forseta hefðu ekki mætt umtalsverðri mótstöðu siðan blás- ið var til atlögu frá borginni Pakwach. Hann sagði að þeir hefðu enn ekki tekið Arua, höf- uðstöðina í heimasveit Amins, traustataki en árás yrði gerð innan skamms. Tækist að leggja Arua að velli þýddi það nánast endalok stríðsins, er kviknaði með innrás Amins forseta í Tanzaníu i október síðastliðnum. Bandarískur málaliðsforingi, er áhrifamikill ísraelskur stjórnmálamaður gerði nýlega út af örkinni til að hafa upp á Amin, fullyrðir að hundruð, ef ekki þúsundir, arabískra hermanna, Herforinginn, Daniel Pierre Waltner, byggir skoðun sína á upplýsingum sinnar eigin leyni- þjónustu, er starfar í Úganda. Stór hluti þessara hermanna kem- ur frá Líbýu og írak að sögn Waltners. Brezka blaðið „Sunday Express“ sagði frá því á sunnudag að Amin hefði fengið skjól í írak og hefði hann nú hreiðrað um sig ásamt fjölskyldu sinni í Baghdad. Upp- lýsingar þessar hafa ekki verið staðfestar opinberlega. Gullið upp London, 28. ma(. AP. GULL hækkaði um meira en fimm dollara únsan og seldist á nýju metverði í Evrópu í dag, en Bandarikjadollar hélt stöðu sinni gagnvart helztu gjald- miðlum heims. Gull seldist við opnun í Zúrich á 272,125 dollara únsan, sem var met, og hækkaði um daginn í 275,875 dollara. Gullið hefur hækkað um næstum því 30 doll- ara únsan undanfarinn mánuð og um rúmlega 80 dollara síðan 1. desember. Því er spáð að gullverð fari í 300 dollara únsan fyrir árslok. fyrir Albrecht Bonn. 28. maí. AP. Reuter. Framkvæmdanefnd Kristilega demókrataflokksins (CDU) lagði til í dag, að forsætisráðherrann í Neðra Saxlandi, Ernst Albrecht, yrði kanslaraefni flokksins í þingkosningunum á næsta ári. Frá því var skýrt í tilkynn- Varúlfar fyrir rétt BdékleburK. Ve«tur-býzkalandi. 28. maí. Reuter. SEX nýnazistar voru leiddir fyrir rétt í dag. ákærðir fyrir að stofna samtök til að bjarga fyrrum staðgengli Ilitlers. Rud- olf Hess. úr Spandau-fangelsinu í Vestur-Berlín. Hópurinn ráðgerði einnig að taka sovézka hermenn í Austur- Þýzkalandi til fanga og að standa fyrir sprengjuárásum. Sexmenningarnir eru ákærðir fyrir að stofna neðanjarðar- samtök í líkingu við „Varúlfa" nazista, hóp ofstækismanna sem strengdu þess heit að halda baráttunni gegn Bandamönnum áfram eftir uppgjöf Þýzkalands Hitlers 1945. ingu, að formaður flokksins, dr. Helmut Kohl, væri reiðubúinn að víkja fyrir Albrecht, sem er fyrrverandi starfsmaður stjórnar Efnahagsbandalagsins, 48 ára gamall og hefur gegnt núverandi embætti sínu í aðeins 11 mánuði. Nú verða kristilegir demókratar að velja á milli Albrechts og Franz Josef Strauss, sem var tilnefndur af stuðningsmönnum í Bæjaralandi á föstudaginn. Dr. Kohl var leiðtogi flokksins í kosningunum 1976 þegar meiri- hluti stjórnarflokkanna minnkaði úr 46 þingsætum í 10. En vinsæld- ir Helmut Schmidts kanslara hafa aukizt síðan og trú kristilegra demókrata á því að Kohl geti sigrað hann hefur dvínað. Strauss nýtur stuðnings íhalds- samra stjórnarandstæðinga, en meirihluti kristilegra demókrata utan Bæjaralands er talinn vilja hófsama og sáttfúsa stefnu. Kohl sagði þegar hann mælti með vali Albrechts í dag að hann væri fulltrúi miðjustefnu. Dr. Kohl sagði, að hann yrði áfram formaður flokksins og leið- togi þingflokksins þótt hann yrði ekki kanzlaraefni. Israelsmenn sleppa föngum Tel Aviv, 28. ma(. Reuter. ÍSRAELSMENN slepptu 16 arabískum föngum úr haldi í dag til að auðvclda tilraunirnar til að koma á friði milli þeirra og Egypta. Tilkynnt var að ákvörðunin væri árangur fundar Menachem Begins forsætisráðherra og Anwar Sadats forseta í eyðimerkurbænum El-Arish á Sinai í gær, tveimur dögum eftir að Israelsmenn afhentu Egyptum svæðið. Samkvæmt opinberum heimildum hafa fsraelsmenn enn um 2.600 fanga í haldi. Sadat sagði í dag, að opnun Iandamæra ríkjanna mundi hleypa nýjum krafti í friðartilraunirnar. Hann sagði að utanríkisráðherrar Israelsmanna og Egypta mundu ræða opnun landamæranna á fundi í Kaíró í næstu viku. Forsetinn sagðist engin skilyrði setja fyrir opnun landamæranna. Hann sagði að enn væri bil milli afstöðu Israelsmanna og Eygpta til ísraelskra byggða á herteknum svæðum en spáði því að hægt yrði að jafna þennan ágreining því það hefði tekizt áður. DC-10-vélum skipað að lenda í Bandaríkiunum U7-..L1_t._OO_/ 1D Wanhinictun. 28. ma(. Reuter. AP. BANDARÍSKA ílugmálastjórnin (FAA) fyrirskipaði í dag, að öllum DC-10 flugvélum skráðum í Bandaríkjun- um yrði lent frá og með kl. 7 f.h. (ísl. tími) á morgun, þriðjudag. Flugvélarnar fá að fljúga aftur þegar rannsakaður hefur verið bolti í hreyfli sem er talinn hafa átt þátt í flugslysinu á O'Hare-flugvelli við Chicago þegar 273 fórust. FAA ráðleggur erlendum stjórnvöldum að taka þetta til eftirbreytni og hingað til hefur verið farið mjög nákvæmlega eftir öllum ráðleggingum í sambandi við bandarískar flugvélar. Mörg fljgfélög hafa þegar skip- KLM. Um er að ræða 134 flugvélar að lendingu DC-10 flugvéla og ^[ásettar í Bandaríkjunum. skoðun á þeim, þeirra á meðal 1 flugsly9lnU 1 ChlcaK°- hlnu Swissair, Lufthansa, SAS og mesta í sögu bandarískra flug- mála, rifnaði vinstri hreyfill vél- arinnar frá vængnum og flugvélin hrapaði á hjólhýsastæði. FAA telur að boltinn hafi valdið því að hreyfillinn skildist frá vængnum, en hefur ekki gengið úr skugga um hvort það hafi verið eina ástæða slyssins að hreyfillinn losnaði. Skoðun á hreyflunum þarf ekki að taka lengri tíma en tvo til fjóra klukkutíma, og ef ekkert finnst athugavert fá flugvélarnar að fljúga. Skipt verður um bolta í vélunum og er búizt við verulegum truflunum á þjónustu flugfélaga. British Caledonian flugfélagið sagði, að það hefði rannsakað boltana í þremur DC-10 flugvélum sínum. Enginn galli fannst í tveimur vélanna og þær eru farn- ar, önnur til Houston og hin til Lagos, en boltaskoðun fer fram á þriðju flugvélinni á morgun. American Airlines sem átti vél- ina sem fórst, hóf rannsókn á boltunum í öðrum flugvélum sín- um á laugardag án þess að finna nokkuð. Flugfélagið vonaði að rannsókninni lyki í kvöld. Talsmaður FAA sagði, að skoð- un annarra flugfélaga lyki líklega fyrir kl. 7 í fyrramálið þannig að röskun verður minni en búizt var •’ið. Dr. Kohl víkur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.