Morgunblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ1979 3 Réðst að konu sinni með flatningshníf og veitti henni áverka UNG kona var stungin með hnífi íhúsi við Blómvallagötu í Reykjavík um þrjúleytið ífyrrinótt. Konan var flutt á slysadeild Borgarspítalans og var gerð á henni mikil aðgerð. Að henni lokinni var konan lögð inn a gjörgæzludeild sama spítala og var hún talin úr lífshættu í gær. Eiginmaður konunnar veitti henni áverkana. Hann var handtekinn á staðnum og úrskurðaður f allt að 15 daga gæzluvarðahald í gær. Samkvæmt framburði eigin- manns konunnar kom upp mis- sætti milli hjónanna, en konan er 22 ára gömul og eiginmaðurinn 24 ára. Viðurkenndi eiginmaðurinn að hafa tekið beittan flatningshníf með 12 sentimetra löngu blaði og veitt konu sinni áverka á kvið, vinstra fæti og vinstri handlegg. Var skurðurinn á kvið dýpstur og blæddi inn í kviðarhol. Maðurinn var undir áhrifum áfengis þegar hann framdi verkn- aðinn. Tveir seldu í Hull TVEIR bátar seldu afla í Hull í Bretlandi í gærmorgun. Öldu- ljón VE seldi 30 tonn fyrir 11 milljónir, meðalverð 368 krón- ur, og Frigg BA seldi 72 tonn fyrir 22 milljónir, meðalverð 308 krónur kílóið. M j ólkurfr æðingar: Sömu undanþágur nema skyr og jógurt — VIÐ viljum taka fram að eftir samningafund sl. föstudag buðum við Mjólkursamsölunni að fá sama magn mjólkur til vinnsiu, en þvf var hafnað, sagði Gunnar Þórðarson mjólkurfræðingur og varafor- maður Mjólkurfræðingafélagsins. — Þetta magn er hið sama og verið hefur sfðustu tvær vikur eða 280 þúsund lftrar á viku, en eina breytingin sem gerð var á undanþágu okkar var sú að leyfa ekki vinnslu á jógurt eða skyri. — Við höfum heldur ekki staðið í vegi fyrir því að ungbörn, gamal- menni eða sjúklingar fengju mjólk og úti á landi eru í gildi sams konar undanþágur og á Reykja- víkursvæðinu og okkur finnst vart hægt að tala um mjólkurskort þótt magnið sé ekki nema tæplega helmingur þess sem verið hefur við venjulegar aðstæður. Gunnar Þórðarson sagði að það sem mjólkurfræðingar færu fyrst og fremst fram á í kröfum sínum nú væri 18% hækkun launa og að hún miðaðist við að ná sömu launum og iðnaðarmenn. — Fyrir síðustu samninga okkur 1977 voru okkar laun 27% undir meðallaun- um iðnaðarmanna og nú eru þau 18% lægri, þ.e. meðallaun, og þennan mismun viljum við leið- rétta. Það má líka benda á að okkar nám er dýrt sérnám sem ekki er hægt að stunda hérlendis, vinnumarkaðurinn er þröngur og þar tíðkast ekki yfirborganir. Guðlaugur Björgvinsson for- stjóri Mjólkursamsölunnar sagði í samtali við Mbl. í gær að ekki hefði farið fram nein vinnsla í gær og myndu stjómir mjólkurbúanna ræða viðhorfin á fundi í gær- kvöldi. Ekki hafði þá verið boðað til sáttafundar með deiluaðilum. Jakob Jakobsson fiskifræðingur Mbl. í gær. Talið er að stofn- stærðin sé nú 170 þúsund tonn en í eðlilegu ástandi er stofn- stærðin frá 2,5 milljón tonn allt upp í 12 milljón tonn. Þetta var stærsti síldarstofn veraldar, þegar við vorum að veiða úr honum hé'r við ísland fyrr á árum og t.d. á árunum 1964—’65 var hann talinn vera 6 milljón tonn, sagði Jakob. Þessi sama vinnunefnd hittist fyrir tveimur árum og þá leit mjög vel út með stofninn, að sögn Jakobs. Klak hafði heppn- ast vel og útlit var fyrir að stofninn næði sér fljótt ef farið — Norska stjórnin tók nýlega ákvörðun um algera friðun síld- arinnar en það er eftir að vita hvernig sú framkvæmd tekst því það eru ekki allir á sama máli um síldveiðibannið og urgur bæði í norskum útgerðarmönn- um og sjómönnum, sagði Jakob. Það sem gerir framkvæmdina erfiða er að hegðun síldarinnar hefur breytzt og nú heldur hún sig við ströndina og því er mikil hætta á því að hún slæðist með að einhverju marki þegar aðrar veiðar eru stundaðar. Síldar- stofninn heldur sig á svæðinu frá Sunnmæri norður fyrir Lo- Jakob Jakobsson fískifræðingur: Alvarlegt ástand norsk- íslenzka sildarstofnsins ÁSTAND norsk-fslenzka sfldar- stofnsins er nú mjög alvarlegt og verður algerlega að hætta sfldveiðum við Noreg ef stofn- inn á að eiga sér viðreisnar von. Þetta er niðurstaða vinnufund- ar á vegum Alþjóða hafrann- sóknaráðsins, sem haldinn var f Bergen 21.—23. mái s.l. og Jakob Jakobsson fiskifræðing- ur sótti af íslands háifu. — Stofninn er ekki í bráðri hættu en útlitið er ákaflega ljótt, sagði Jakob í samtali við yrði að ráðum fiskifræðinga um friðun. Nú hefur allt annað komið í ljós. Aldursdreifing hef- ur verið óbreytt s.l. þrjú ár, þ.e.a.s. ekkert nýtt hefur bætzt í stofninn og talsvert farið úr honum þannig að í stað þess að aukast um 200% hefur stofninn minnkað um 20—30% að því talið er. Jakob sagði að á fundin- um hefðu engar skýringar feng- ist á því hvers vegna klakið skilaði sér ekki betur, en hugsanlegt væri að það ætti enn eftir að skila sér. foten. Talið er að síldin hafi vetrarsetu í fjörðunum við Lo- foten, í stað þess að vera á Rauða torginu svokallaða en gangi svo á hrygningarstöðvarn- ar á vorin. Hún er svo á grunnmiðum í ætisleit á sumrin en gengur inn í firðina á haustin. Þess hefur ekki orðið vart á undanförnum árum að norsk- íslenzki síldarstofninn leitaði í vesturátt til íslandsmiða eins og hér fyrr á árum þegar stofninn var sterkur, sagði Jakob að lokum. Bankamenn: Fá þijú prósent hækkun STJÓRN Sambands íslenzkra bankamanna og samn- inganefnd bankanna undirrituðu í fyrradag samning um að grunniaun bankastarfsmanna skyldu hækka um 3% írá og með 1. apríl síðastliðnum. Böðvar Magnússon, fyrsti varaforseti SÍB, sagði í gær við Morgunblaðið, að samningurinn hefði í raun verið formsatriði, aðilar hefðu verið sammála um að þar sem BSRB og BHM hefðu fengið umsamda grunnkaupshækkun væri rétt að bankamenn fengju hana einnig. Samkvæmt kjarasamningi SÍB og bankanna áttu bankamenn tvær grunnkaupshækkanir á þessu ári, 3% hinn 1. apríl og 3% hinn 1. júlí, en kjarasamningur aðilanna gildir til 1. október. 1 samkomulaginu, sem undirritað var í fyrradag, var aðeins kveðið á um 3% grunnkaupshækkunina hinn 1. apríl. Umræðum um hina síðari var frestað fram í júnímánuð. Eins og kunnugt er tóku lög um stjórn efnahagsmála, sem samþykkt voru á Alþingi hinn 10. apríl, allar umsamdar áfanga- hækkanir af, sem taka áttu gildi eftir 1. apríl. í lögunum var undanþáguákvæði, sem bannaði ekki grunnkaupshækkanir hjá félögum í Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja og í Bandalagi háskólamanna. Samkomulagið, sem bankamenn gerðu í fyrradag, breytti engu um gildistíma kjara- samnings bankamanna. Banka- menn höfðu fengið 3% fyrir apríl- mánuð og eiga því grunnkaups- hækkunina inni fyrir maí. Hvað kemurþér helst íhug þegar ísumar. Eöa fara um Luxemborg þú sérö oröiö París? List, tíska, þaöan er flogiö til Parísar þrisvar garöar, götulíf eöa góöur matur á dag. Frá París og Luxemborg og vandaöar verslanir? Eiffelturninn, Sigurboginn, Signubakkar? Lengimá telja. Hvernig væri aö láta drauminn rætast, fljúga beint til Parísar getur leiðin legiö lengra suöurá bóginn, t. d. niöurá frönsku Riveriuna - þann óviöjafnanlega sólbaös- og sumardvalarstaö. Til Frakklands í fríinu FLUGLEIÐIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.