Morgunblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1979
23
Kynningar-
fundur um
skjalavörzlu
SAMBAND ísl. sveitarfélajfa efnir
f dag til umræðu- ok kynningar-
fundar um skjalavörzlu sveitarfél-
aga og fer hann fram 6 Hótel Gsju.
Verður lavcður fram og kynntur
bréfalykill fyrir sveitarfélöK sem
sniðinn er eftir norrænum fyrir-
myndum og lagaður að þörfum
sveitarfélajía hér á landi.
Þá verður rætt um meðferð og
vörzlu skjala á vettvangi sveitarfél-
aga og stofnana þeirra og kröfur
Þjóðskjalasafns í slands varðandi
geymslu gagna miðað við nútíma
geymslutækni. Efnt verður til sýn-
ingar á ýmsum búnaði sem notaður
er við vörzlu skjala og röðun gagna
á skrifstofum sveitarféiaga, en til-
gangur fundarins er að kynna til-
lögu að samræmdum lykli til notk-
unar við vörzlu bréfa og annarra
skjala sveitarfélaga.
Leiðréttingar
í GREIN minni um Norræna
þýðingarsjóðinn í Morgunblaðinu
f gær hafa fallið niður hlutar úr
tveimur málsgreinum f III kafla,
sem hér með leiðréttast.
Fyrsta málsgrein á að vera þann-
ig:
„Þegar maður les lista þýðing-
armiðstöðvarinnar fer ekki milli
mála að hér hefur pólitík verið
mikils ráðandi, a.m.k. hjá fulltrúum
íslands og Færeyja og ef til vill
fleirum, þrátt fyrir neitun Sveins
Skorra, en hann segir f grein sinni
hér í blaðinu: Mér er eiður sær ...“,
o.s.frv."
Næst síðasta málsgrein í sama
kafla á að vera þannig:
„Geta má í þessu sambandi að öll
viðurkennd útgáfufyrirtæki í
Danmörku mynda samtök með sér
og fara eftir sérstökum reglum, sem
aldrei er brugðið út af. Handrit sem
berast eru lesin af tvcimur konsúl-
entum og álit þeirra er lagt til
grundvallar um hvort handrit
verður tekið til útgáfu."
Auk þess var í sama kafla
leiðinleg prentvilla í heiti leikrits
Nordahls Grieg, en það er rétt „Vár
ære og vár makt“.
9. 5.1979
Jón Björnsson.
Valbjörn opn-
ar mini-golf
MINI-GOLF salurinn við Skóla-
vörðustfginn er nú tekinn til
starfa eftir vetrarfrí, að sögn
Vaibjarnar Þorlákssonar fþrótta-
hetju er rekið hefur salinn f
nokkur ár.
Valbjörn sagði að í mini-golf
salnum, sem væri gegnt Leifsstyttu,
væru 15 brautir og væru þær
misjafnlega erfiðar. Kvað Valbjörn
það ágætt trimm að stunda
mini-golf, þótt innandyra væri,
einkum væri það góð jafnvægisæf-
ing.
Leiðrétting
í FRÉTT blaðsins s.l. sunnudag um
lát Elsu Sigfúss söngkonu var sagt
að hún hefði látizt í Reykjavík. Það
er ekki rétt. Hún lézt í Kaupmanna-
höfn, en hún hefur átt heima í
Danmörku síðan hún fór þangað til
náms 1927.
Ýmsir höfðu efast um að húsið kæmist á leiðarenda með þessum hætti,
en hér er bfllinn að leggja f Krossá. Ljósm. Grétar Eirfksson.
Ferðafélag íslands:
En hann komst heilu og höldnu yfir ána og var þegar hafist handa við
að koma húsinu fyrir á grunni sfnum.
Reísa sæluhús fyrir 20-25 m. kr. á árinu
FERÐAFÉLAG íslands lét um
sfðustu helgi flytja nýtt hús f
Þórsmörk. Er þar um að ræða
geymslu- og verzlunarhús og var
það sett niður rétt við skálann.
Var húsið, sem er 8,4°4,4 m að
stærð, flutt inneftir á vörubflspalli
og gengu flutningarnir snurðu-
laust fyrir sig að sögn Grétars
Eirfkssonar.
Flutningamenn lögðu úr bænum
um kl. 2 aðfararnótt laugardags og
voru komnir yfir Krossá og á
leiðarenda kl. 11 að morgni, en þá
höfðu þeir áð í 2 tíma við Drauga-
ból. Þá verða í sumar flutt 2 hús inn
á afrétt og sett niður á leiðinni milli
Landmannalauga og Þórsmerkur.
Er það annars vegar lítið hús fyrir
göngumenn, sem ganga vilja þarna
á milli og hins vegar stærra hús
fyrir þá sem ferðast um á bílum, en
líklegt er talið að þeir verði öllu
fleiri. Verða húsin sett niður á
Syðri-Fjallabaksleið. Gert er ráð
fyrir að framkvæmdir við þessi
þrjú hús kosti milli 20 og 25
milljónir króna. Auk þessara fram-
kvæmda styrkir Ferðafélagið sælu-
húsabyggingar hinna ýmsu ferða-
félagsdeilda víðs vegar um landið.
Grétar Eiríksson sagði að þegar
fyrrgreind sæluhús yrðu komin á
Syðri-Fjallabaksleið og brú á
Emstru yrði greiðfært milli Þórs-
merkur og Landmannalauga og
leiðin þatfær öllum sem vildu og
væri auðvelt að ganga hana á t.d. 3
dögum. Þeir sem vilja fara þarna á
milli og tryggja sér gistingu í
göngumannahúsinu verða að hafa
samband við skrifstofu F.í. og fá
lykil að húsinu, en það verður
jafnan haft læst. Er það gert til að
tryggja göngumönnum að þeir fái
inni og hafi pantað rými. Grétar
kvaðst búast við að húsin á Syðri-
Fjallabaksleið yrðu flutt inneftir í
lok júní eða strax og fært yrði. Um
aðrar sæluhúsaframkvæmdir á
næstunni sagði Grétar, að endur-
skoða þyrfti Kjalarsvæðið og áhugi
væri á að koma upp húsi á Snæ-
fellsnesi.
OMIC reiknivélin kom á markaðinn fyrir
einu ári, ný vél sérhönnuð samkvæmt
óskum viðskiptavina Skrifstofuvéla h/f.
Móttökurnar voru frábærar. Á örfáum
vikum varð OMIC metsöluvél.
I framhaldi af þessum afburða góða
árangri bjóða Skrifstofuvélar h/f tvær
nýjar gerðir af OMIC reiknivélum: OMIC
210 PD OMIC 210 P
____OMIC reiknivélin
hefur slegið sölumet
angus
312 PD 210PD 210P
OMIC vélar í einfaldari útfærslu en
OMIC 312 PD.
Komið og kynnist kostum OMIC:
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
A- Hverfisgötu 33
^ Simi 20560
Við byggjum upp framtíð fyrirtækis þíns.
HVERFISGATA
33
Ritsafn
Gunnars Gunnarssonar
J v j \
Saga Borgarættarinnar Vargur í véum
Svartfulg Sælir eru einfaldir
Fjallkirkjan I Jón Arason
Fjallkirkjan II Sálumessa
Fjallkrikjan III Fimm fræknisögur
Vikivaki Dimmufjöll
Heiðaharmur Fjandvinir
S r S r
Gunnar Gunnarsson
hefur um tangt skeið
verið einn virtasti hofund
ur á Norðurlöndum
Almenna BókafélagiO,
Austurstrati 18, Sksmmuvsgur 38,
sími 19707 simi 73055.