Morgunblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ1979 29 ; VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100KL 10—11 FRÁ MANUDEGI einnig væri vert að taka til greina þá staðreynd að í allmörgum tilvikum er einfaldlega ekki mögu- legt að hafa dýr, ketti eða önnur, margra hluta vegna, og undir slíkum kringumstæðum er það ábyrgðarhlutur að taka inn dýr til þess eins að verða að losa sig við þau fyrr en síðar, og þá á slíkan máta og að ofan er greint. Því miður hefur reynslan sýnt að oft er djúpt á mildi manna í daglegri umgengni þeirra við dýr- in. Og sá slæmi siður býsna margra að fá kettlinga sem leik- föng handa börnum sínum þyrfti að hverfa úr sögunni. Höfum þao hugfast að þetta eru lifandi dýr, ekki leikföng, tilfinningalaus, eða tuskubangsar. Þau þurfa mikla umhirðu, mikinn félagsskap — og gefa þá mikla ánægju sínum félögum. Offjölgunarvandamál kemur að sjálfsögðu ávallt upp þegar læð- urnar eiga kettlinga, og skal á það bent að nauðsynlegt er að lóga þá strax þeim kettlingum sem ofauk- ið er. En ekki má undir nokkrum kringumstæðum taka alla kettl- ingana samtímis frá móðurinni. Slíkt væri að fara út fyrir þau takmörk sem hugtakið mannúð setur. Að lokum má geta þess að til er einfalt ráð til þess að koma í veg fyrir offjölgun heimiliskatta, sem sé það að sprauta læðurnar svo þær breimi ekki. Slíkt framkvæma dýrlæknar ef þess er óskað. Einnig má vana högnana í fleiri tilvikum en nú er gert. Að síðustu, tökum saman hönd- um um að stunda mannkærleika í viðskiptum okkar við dýrin og sýnum þeim, og okkur sjálfum um leið, alla þá virðingu sem allt líf á skilið. F.h. Stjórn Kattavina- félags Islands. Svanlaug Löve, formaður. • Enn um nýju símaskrána Sigrún Gísladóttir, Sólvalla- götu 33, hrósar mjög útgáfu síma- skrárinnar. Það er þakkarvert öllum sem vilja spara en sparnað- ur þarf að koma á réttum stað og á réttan veg. Ég tel símaskrána stórgallaða vegna þess, að of smátt letur er á henni. Það er erfitt fyrir sjóndapra að notfæra sér hana. Að öðru leyti kann hún að vera vel frá gengin. Ég hélt að landiö ætti engan sem hefði svona dapran hugsunarhátt, svo ég taki SKAK Umsjón: Margeir Pétursson Hvítur leikur og mátar í fjórum leikjum: Staðan kom upp í skák Volov- ichs sem hafði hvítt og átti leik, og Rundquists á skákmóti í Sovét- ríkjunum í fyrra. Lausnin er þannig: 25. H\g7+!! — Kxg7, 26. Dxh6+! og svartur gafst upp, því að eftir tvo leiki til viðbótar er hann mát. vægt til orða, því ég efast ekki um að það er fjöldi af fullorðnu fólki sem á erfitt með að lesa skrána. Með virðingu fyrir öllu sem vel er gert, Ottó Þorvaldsson, Laugarnesvegi 38. • „Vor í Vín“ „Hvað vitið þið fegra en Vínarljóð hvað vermir svo hjarta og örvar blóð jafnt ríkum og snauðum það fögnuð fær við fljúgum á vængjum þess himni nær.“ Þannig hljóðar upphafið að texta við fallegt og þekkt óper- ettulag eftir Franz Schubert og segir það meira en mörg orð um þann unað, sem hin gamla, hríf- andi og hugljúfa valsahljómlist og önnur þekkt óperettulög hafa mörgum veitt. Það voru því mikil vonbrigði, þegar sjónvarpið lét af því í ár að senda út hina árlegu nýárstón- leika frá Vínarborg undir stjórn Willi Boskowski. — Óvænt uppbót urðu því þeir ágætu hljómleikar Sinfóníuhljómsveitar Vínarborg- ar, sem sjónvarpið sýndi í síðustu viku í þættinum „Vor í Vín“, og til að auka á ánægjuna var frábær söngur. Vonandi sér sjónvarpið sér fært að sýna oftar slíka þætti, en þeir eru algengir við sjónvarps- stöðvar víða erlendis og njóta þar mikilla vinsælda. Á.G. Steypudælubíll til sölu Uppl. hjá Jóni Þórðarsyni, Isafiröi. Sími: 94-3472 og 3372.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.