Morgunblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ1979 KR marði Hauka KR-INGAR mörðu Hauka 1^0 á Hvaleyrarholtsvellinum í gær- kvöldi í leik liðanna í 1. deild. Ekki hefði verið ósanngjarnt að Haukar hefðu hlotið annað stigið og jafnvel bæði. Liðið barðist mun betur í leiknum og uppskar tvö mörk en bæði voru þau dæmd aí vegna rangstöðu. Voru það hæpnir dómar og umdeilanlegir. En dómarinn hefur úrskurðar- valdið og við hann þýðir ekki að deila. „Eg er illa svikinn ef þessir menn verða ekki gerðir að heið- Segulstál m t Vigtar 1 kíló. Lyttir 60 kílóum. Stærð 8x9x3 sentimetrar. Gott til að „fiska" upp járnhluti úr sjó, ám, vötnum, gjám, svelg, tönkum. Líka tll að halda verkfærum og smíðahlutum. Sendum í póstkröfu. SöyirÐaiyigjioir Vesturgötu 16, sími 13280 Emrrí Rjómaís ís-álfar (fyrir einn)-. I litil kringlótt kexk<ika 1 stór iskula 1 kraniarhús ávastahlaup. I.eggió iskúluna á kexió. Setjió av axtahlaup i sprautuppka meó mjóum stúl og sprautió augu. nef og munn <i ískúiuna, Setjió kramárhúsió á sem húfu og þér getió verió viss um að yngstu börnin munu hafa gaman af. Makkarónu-ís. Skerió 2 liira af vanilluis i sneiðar, leggió í lögum á iat rneó grófmuldum makkarónum sem hafa legid í bleyti í 2 glös- rrn a! sherry I 2 kíst.' Skreylió meó þeyttum í'Emm essi ursfélögum í KR“, — sagði Egg- ert þjálfari Hauka eftir leikinn og átti við dómaratríóið. Eina mark leiksins kom á 38. mínútu fyrri hálfleiksins. KR fékk hornspyrnu, sem Sverrir Her- bertsson tók, og eftir mikla þvögu inni í markteig Hauka hrökk boltinn í hönd eins varnarleik- mannsins og dómarinn dæmdi vítaspyrnu. Sverrir framkvæmdi vítaspyrnuna yfirvegað og skoraði af öryggi án þess að Gunnlaugur markvörður Hauka gerði tilraun til þess að verja boltann. Fyrri hálfleikur var frekar leið- inlegur á að horfa. Mikið var um langspyrnur og hlaup og breidd vailarins var ekki notuð. Hauk- arnir áttu öllu meira í hálfleikn- um, börðust af krafti og sóttu meira. KR-ingar voru hins vegar í daufara lagi. Á 40. mínútu leiksins var Erni Guðmundssyni KR vikið af leikvelli fyrir að sparka í Ólaf Haukar — KR 0—1 Jóhannesson, og léku KR-ingar því einum færri það sem eftir var leiksins. Eitt besta marktækifæri hálfleiksins kom á 42. mínútu er Sigurður Aðalsteinsson var í dauðafæri á markteig en náði ekki góðri fyrirgjöf. Síðari hálfleikur var mjög líf- legur, og allur annar á að horfa en sá fyrri. Haukarnir hófu leik- inn af miklum krafti og strax á 2. mínútu skora Haukar mark, var þar Lárus að verki en dómarinn dæmdi rangstöðu. Margir vildu samt meina að annar bakvörður KR hefði verið staðsettur við marksúluna. Rétt mínútu síðar á Lárus góðan skalla en rétt yfir þverslána. En KR-ingum var ekki alls varnað og þrátt fyrir að þeir væru einum færri sóttu þeir ótrauðir á brattann og sýndu nú góðan baráttuvilja og fóru að sækja mun meir en áður. Sköpuðu þeir sér nokkur góð tækifæri við mark Hauka en ávallt vantaði samt meiri brodd í sóknina til að reka á hana enda- hnútinn. Wilhem átti gott skot á 73. mínútu sem var vel varið, og á 77. mínútu voru bæði Stefán og Jón í góðu marktækifæri við markteig, en allt kom fyrir ekki. í lok leiksins ná Haukar nokkr- um góðum sóknarlotum og upp úr einni þeirra skorar Ólafur Jóhannsson með góðu skoti utan úr vítateig. Góð fyrirgjöf kom fyrir markið og þaðan var boltinn sendur út til Ólafs sem gaf sér góðan tíma og skoraði fallega. Ekki sá Hreiðar dómari neitt athugavert við markið og Haukur fögnuðu ákaft sem og í fyrra skiptið, en þá kom í ljós að línuvörðurinn hafði flaggað og eftir að hafa ráðlagt sig við hann dæmdi Hreiða'r rangstöðu. Vel má vera að einhver hafi verið rang- stæður er fyrirgjöfin kom inn í teiginn, en undirri'tuðum þykir vafasamt að dæma rangstöðu eftir að boltinn hafði gengið út í teiginn aftur og dæma markið af. Dómar- inn hlýtur að þurfa að fylgjast betur með línuvörðum en svo að allt þetta geti skeð án þess að flautað sé. Haukar gerðu nú allt sem í þeirra valdi stóð til að jafna leikinn og Björn Svavarsson átti góðan skalla sem Hreiðar varði vel. Guðmundur Sigmarsson kom einn inn fyrir en flýtti sér um of og skot hans fór fram hjá. í lok leiksins átti Stefán Örn hjá KR þrumuskot en rétt yfir. I stuttu máli. íslandsmótið 1. deild. Hvaleyrarholtsvöllur Hafnarfirði. Haukar — KR 0—1. (0—0) Mark KR. Sverrir Herbertsson úr vítaspyrnu á 38. mín. Áminning: Sigurður Pétursson KR og Ólafur Jóhannsson Haukum. Rautt spjald örn Guðmundsson KR. Áhorfendur: 578. |>r Stefán íVal HINN snjalli handknatt- leiksmaður úr HK Stefán Halldórsson sem verið hefur í mikilli framför í vetur hefur nú ákveðið félaga- skiptin og á aðeins eftir að ganga frá ýmsum formsatr- iðum. Verður það Val styrk- ur að fá Stefán í sfnar raðir, þar sem hann er markaskor- ari mikill. Þá hefur Gunnar Lúðvfksson úr Gróttu geng- ið í raðir Valsmanna en hann lék áður með Gróttu. Gunnar er lipur hornaleik- maður og skoraði mikið af mörkum úr hornum fyrir Gróttu. _ þr. Bækur 50% afsláttur Okkar árlegi bókamarkaöur á gömlum og nýlegum bókum íslenzkum og erlendum, hefst í dag aö Skólavöröustíg 21, (áöur Bókhlaöan hf.) Þúsundir góöra bóka á slíku veröi, aö elztu menn muna ekki annaö eins: íslenzkar og erl. skáldsögur, fræöibækur, sagnfræöi, læknisfræöi, Ijóö, leikrit, hagnýt fræði á íslenzku, ensku og dönsku. Hér er nýja krónan í gömlu verðgildi. Bókavaröan, — Gamlar bækur, og nýjar — Skólavöröustíg 20 og 21 Reykjavík. Sími 29720. w jun uauHson i\it reynir skoi ao marKl tlauKa en dómarlnn haíöi þá ílautað og dœmt vítaspyrnu. Wilhem og Sigurður fylgjast med framvindu mála. Ljósmynd. Emilía. Sveinbjörn tryggði ÍA bæði stigin AKURNESINGAR máttu hafa fyrir stigunum þegar þeir mættu KA á malarvellinum á Akranesi ( gærkvöldi. Akurnesingar unnu leikinn 3:2 eftir að KA hafði tvívegis náð forystunni. Akureyr- ingarnir börðust hetjuiegri bar- áttu en urðu að lokum aö iúta f Iægra haldi fyrir betra liðinu. Leikurinn var allfjörugur og bæði liðin sýndu ágæta spretti en það setti auðvitað svip á leikinn að hann fór fram á möl en ekki grasi. Fyrsta mark leiksins kom á 27. mínútu. Þá misstu Skagamenn boltann á eigin vallarhelmingi. Gunnar Blöndal náði boitanum og sendi inn í teiginn til óskars Ingimundarsonar sem lék inn að markinu og skoraði laglega. Tíu mínútum síðar höfðu Skagamenn jafnað metin. Matt- hías Hallgrímsson lék þá laglega inn í vítateig KA en var brugðið og réttilega dæmt vítaspyrna. Matthías tók spyrnuna en skaut í ía—ka 3:2 stöng. Markvörður KA hafði hreyft sig og var spyrnan því endurtekin og nú var það Árni Sveinsson sem reyndi sig og skor- aði örugglega. Staðan í hálfleik var því 1:1 og fyrsta stundarfjórðunginn í seinni hálfleik sýndu Skagamenn sínar beztu hliðar og hefðu átt að gera út um leikinn en markstengurnar komu í veg fyrir það. Sveinbjörn Hákonarson skaut þrumuskoti í þverslá af vítateig eftir mikinn einleik og rétt á eftir skaut Kristján Olgeirsson þrumu skoti í stöng. Á 65. mínútu tók KA óvænt forystuna. Elmar Geirsson tók aukaspyrnu frá vinstri og gaf boltann vel fyrir markið þar sem Einar Þórhallsson var einn og óvaldaður og skoraði örugglega. En nú kom að þætti Sveinbjörns Hákonarsonar. Á 70. mínútu skor- aði hann stórglæsilegt mark og jafnaði metin 2:2. Hann fékk boltann á vítateigslínuna, drap hann niður, sneri sér við og skoraði með þrumuskoti, falleg- asta mark leiksins. Tíu mínútum síðar skoraði Sveinbjörn svo sig- urmark ÍA. Guðjón Þórðarson tók langt innkast, boltinn barst til Sveinbjarnar sem skoraði með góðu skoti rétt innan vítateigsl- ínu. Sveinbjörn var bezti maður Akraness og jafnframt bezti mað- ur vallarins. Eins áttu þeir góðan leik Kristján Olgeirsson og Guð- jón Þórðarson. Hjá KA voru þeir beztir Elmar Geirsson, Gunnar Blöndal og Einar Þórhallsson. gg/SS. gr. I STUTTU MÁLI: Akranesvöllur 29. maí, íslands- mótið 1. deild, ÍA—KA 3:2 (1:1). MÖRK ÍA: Árni Sveinsson á 37. mínútu, Sveinbjörn Hákonarson á 70. og 80. mín. MÖRK KA: Óskar Ingimundarson á 27. mínútu og Einar Þórhallsson á 65. mínútu. GUL SPJÖLD: Engin. ÁHORFENDUR: 880. „„ Giles kvaddi glæsilega fRLAND o* Arifentina léku vlnáttulanda- leik f knattapyrnu f Duhlln f irœrkvðldl uu vnrð jafntefll OrO. Helmaneiatnrarnlr (rá Arttentfnu aýndu enica aérataka antlll f xterkvdldl og úralltln voru réttlát. Nokkra af beztu mttnnum Argentfnu vantaði en beztl maAur IIAalna var hlnn kornunitl Dleijo Maradona. Hjá írum var Liam Brady beztur en elnnlg átti Johnny Gilea mjöii uAAan lelk. Þetta var kveAjuleikur þeaaa lltrfka knattapyrnu- manna og framkvæmdaatjóra (ranna. Hann hefur leikiA aamfleytt f 20 ár, alla 59 landalelki. aem er frakt met. Ajax bikarmeistari AJAX algraAI Twente Enchede 3d) f úralita- leik hollenaku bikarkeppninnar f gærkvtlldl. LelkiA var á velli Feyenoord (Rotterdam. Mdrk Ajax akoruAu Ray Clarke, Slmon Tahamata og Dtek Shoenaker en beztu menn IIAaina voru Aneaen og Lerby. Ajax getur tryggt aér algur f hollenaku deildarkeppninnl e( ÍIAIA nær 2 atigum úr þremur afAuatu lelkjum afnum og verAur IIAInu vnrla akotaakuld úr þvf. Fram og Valur mætast í kvöld í KVÖLD kl. 20.00 mætast á Laugardalsveliinum Valur og Fram (1. deildinni (knattspyrnu. Má búast við fjörugum og skemmtilegum leik milli þessara liða. Framliðið vann sannfærandi sigur á Vfkingum á dögunum og nú er að sjá hvort þeim tekst ekki að velgja ísiandsmeisturunum undir uggum. i ’M

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.