Tíminn - 22.06.1965, Blaðsíða 1

Tíminn - 22.06.1965, Blaðsíða 1
HANDBÓK VERZLUNAR MATslNA A’SKRIFTARSÍWII 16688 «6688 16688 136. tbl. — Þriðjudagur 22. júní 1965 — 49. árg. HANDBOK VERZLUNAR MANN A ÁSKRIFTARSb/-'. 16688 16688 166B3 Hömlur Stofnlánadeildar land- búnaðar í lánamálum óþolandi EJ-Reykjavík, mánudag. Aðalfundi Stéttarsambands bænda lauk kl. 4 s.l. nótt á Eiðum, en þetta var í fyrsta sinn, sem aðalfundurinn var haldinn á Austfjörðum. Fundurinn átaldl harðlega þá stefnu, sem stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins hefur tekið upp í lánamálum, sem fundurinn telur að virki sem hem'ill á alla uppbyggingu og tækniþróun atvinnuvegarins. Bendir fundur- inn á ýmsar takmarkanir á lánveitingum, sem hann telur al- gerlega óþolandi, og skoraði hann á stjórn sambandsins að beita sér fyrír því, að þessum nýju hömlum verði aflétt. Séð yfir fundarsalinn í Eiðaskóla. Hér birtast álytanir fundarins um lánamál, en nokkrar aðrar ályktanir fundarins birtast annars staðar í blaðinu. Eftirfarandi tillögur voru sam- þykktar samhljóða: „Aðalfuridur Stéttarsambands bænda 1965 átelur harðlega þá stefnu, sem .stjórn Stofnlánadeild' ar landbúnaðarins hefur tekið upp í lánamálum, og verkar sem hemill á aíla uppbyggingu og tækniþróun atvinnuvegarins. Nú er bændum neitað um lán á sama ári, nema til þess, sem stofnlánadeildin kallar eins fram- kvæmd, þ.e. til dæmis annað- hvort fjóss eða hlöðu, þótt sam- (Ljósm.: Sigurjón Jónsson). stæðar byggingar séu, og áskilji VERÐLAGSGRUNDVELL- INUM VERÐI SAGT UPP EJ-Reykjavík, mánudag. Aðalfundur Stéttarsambands bænda, sem lauk í nótt á Eiðum, taldi það óviðunandi ástand, að bændastéttin skuli ár eftir ár vera langlægst launaða stétt þjóðfélags- ins, eins og opinberar hagskýrslur sýna. Taldi fundurinn rétt að segja upp gildandi verðlagsgrundvelli landbúnaðarafurða og fól stjórn sambandsins að taka endanlega ákvörðun um það í samráði við fulltrúa bænda í sexmannanefnd. Ennfremur benti fundurinn á ýms ar lagfæringar, sem hann taldi að gera þyrftu á verðlagsgrundvellin- um. Hér á eftir koma samþykktir fundarins um verðlagsmál, og einnig ályktanir um bjargráð vegna kalskemmda, um stóriðju- málið og fleiri mál. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda, haldinn að Eiðum 20. júní 1965, telur það ástand óviðunandi, að bændastéttin skuli ár eftir ár vera langlægst launaða stétt þjóð- félagsins, eins og opinberar hag- skýrslur sýna. Því telur fundurinn rétt að segja upp gildandi verð- lagsgrundvelli landbúnaðarafurða, en felur stjórn Stéttarsambandsins að taka endanlega ákvörðun um það í samráði við fulltrúa bænda í sexmannanefnd. Við uppbyggingu næsta verðlags grundvallar verði unnið að eftir- farandi lagfæringum: 1. Fjárfestingarmannvirki land- búnaðarins verði afskrifuð sam- kvæmt fullu kostnaðarverði, svip- að og heimilt er í útgerð og iðnaði. 2. Vextir og allur vinnukostnað- ur verði tekinn inn í verðlags- grundvöll. 3. Landbúnaðarvörur verði vaxtafærðar til framleiðenda strax og þær eru afhentar til sölumeð- ferðar. 4. Hækkaður verði vaxta- og geymslukostnaður á kjöti, sem reiknaður hefur verið mánaðar- lega. 5. Leitað verði eftir þvi að fá lækkanir á verði aðkeyptra rekstr- ar- og fjárfestingarvara í því skyni að lækka framleiðslukostnað. 6. Hlutur sauðfjárræktarinnar verði bættur með sérstöku tilliti til aukins útflutnings. 7. Tekið verði til athugunar hvort ekki sé rétt að stofnsetja sérstök verðlags- og viðmiðunarbú undir opinberu eftirliti til þess að Framhald á 15. sfðu A NDSP YRNUHRE YFING GEGN HERRÁBIALSÍR NTB-Algeirsborg, 21. júní. Lögreglu- og hersveitir tóku í dag algerlcga á sitt vald miðborg Algelrsborgar eftir að miklar mót mælaaðgerðir höfðu farið þar fram svo klukkustundum skipti, vegna Þess að Ben Bella var steypt af stóli. Hcrmenn með stálhjálma og vélbyssur um kringdu háskólahverfið og flest- um búðum í miðborginni var lokað. Bendir margt tii þess, að verið sé að skipuleggja andspyrnuhreyf ingu gegn hinni nýju stjórn og til styrktar Ben Bella. Mikið fólksstreymi var til mið- borgarinnar snemma í dag og heyrðust þá nokkur skot, en tal íð er, að aðeins hafi verið um að ræða aðvörunarskot, og ekkert bendir til að um vopnaða viður- eign skjólstæðinga Ben Bella og hersveita Boumdienne hafi verið að ræða. Fréttamenn segja, að mikið sé 1 .. ./ nú um símahringingar og önnur skilaboð, þar sem menn séu hvattír til að mæta á ákveðna staði og taka þátt i mótmælaaðgerðum gegn stjórninni. Telja menn, að þetta bendi til þess, að hafinn sé víðtækur und irbúningur að stofnun andspyrnu hreyfingar gegn herráðinu, sem nú hefur tekið við völdum. Enn líggja ekki fyrir neinar upp lýsingar um afdrif Ben Bella sem Framhald á 15. síðu. sér rétt til að lána síðan aðeins % af því, sem áður hefur verið venja. Aðalfundurinn telur þessar takmarkanir á lánveitingum alger- lega óþolandi og skorar á stjórn Stofnlánadeildarinnar og landbún- aðarráðherra að þessum nýju hömlum verði aflétt. Þá telur fundurinn að þær tafir, sem orðið hafa á því að lánsbeiðnum bænda hafi verið svarað, séu algerlega óviðunandi." „Fundurinn vísar til ályktana þeirra, sem samþykktar voru á aðalfundi Stéttarsambandsins 1964 um lánamál, og felur stjórn sambandsins að vinna áfram að framgangi þeirra. Fundurinn legg- ur ríka áherzlu á hina brýnu nauðsyn, að Veðdeild Búnaðar- bankans verði efld svo að henni sé gert mögulegt að veita lán til jarðakaupa sem nemi að minnsta kosti helmingi af eðlilegu kaup- verði jarða. Lánstími verði 40—50 ár með 4% vöxtum." „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1965 skorar á stjóm sam- 'bandsins að vinna að því við lánastofnanir að þeim bændum, sem erfiðast eiga með að standa í skilum með vexti og afborganir af af áhvílandi lánum, sé veittur frestur með þessar greiðslur með- an þeir skapa sér betri búskapar- aðstöðu. Ennfremur felur fundurinn stjórn sambandsins að vinna að því við lánastofnanir landbúnað- arins, að menn, sem eru að hefja búskap, hafa oflítil bú eða skortir fé til annarra nauðsynja búsins, eigi kost á lánum, sem séu afborg- unarlaus fyrstu árin." Eins og áður segir, var þetta fyrsti aðalfundur Stéttarsambands ins, sem haldinn var á Austur- landi. Mættir voru tveir fulltrúar úr öllum sýslum, og einn úr Vest- mannaeyjum, einnig framkvæmda stjóri Stéttarsambandsins og er- indreki þess, framleiðsluráðsmenn og framkvæmdastj óri framleiðslu- ráðs, landbúnaðarmálaráðherra, formaður Búnaðarfélags fslands, landnámsstjóri og fleiri gestir, þar á meðal allmargir bændur úr nágrenninu. Fundurinn hófst kl. 10 árdegis á laugardag, eins og frá segir f TÍMANUM á sunnudaginn. Fund- arstjóri var kjörinn Bjarni Hall- dórsson, Uppsölum, en til vara Vilhjálmur Hjálmarsson, Brekku, Framh á bls. 2.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.