Morgunblaðið - 22.12.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.12.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1979 Heilbrigðiseftirlit ríkisins: Engar kvartanir vegna rækjunnar ENGAR kvartanir haía borizt tii Heilbrigðiseftirlits rikisins eða heilbrigðisnefnda vegna niðursoð- innar rækju frá K. Jónsson og co á Akurcyri, samkvæmt upplýsing- um Hrafns Friðrikssonar for- stöðumanns Heilbrigðiseftiriits- ins í gær. Eins og frá hefur verið greint í Morgunblaðinu hafa verið Opið til kl. 23 Á mánudag, aðfangadag verða verzlanir opnar til klukkan 12 á hádegi. Þann dag verða ýmsar þjónustustofnanir einnig opnar til hádegis, t.d. allir bankar og sparisjóðir. Útsölur ÁTVR voru opnar til klukkan 22 í gærkvöidi en þær verða lokaðar í dag og á aðfangadag. Laugavegur í Reykjavík verður lokaður fyrir umferð bifreiða annarra en strætis- vagna klukkan 13—19 í dag. Lögregian hefur beðið Mbl. að vekja athygli bifreiðaeigenda á því að læsa bifreiðum sínum þar sem talsverð brögð hafa verið að því undanfarna daga að stolið hafi verið varningi úr bifreiðum. gerðar athugasemdir við þessa framleiðslu í Þýzkalandi, en var- an einnig verið sett á innan- landsmarkað. Sagði Hrafn að þessi framleiðsla væri með annarri sósutegund en algengast væri og hefði það verið gert samkvæmt óskum kaupenda í V-Þýzkalandi. Hins vegar væri nú meðal annars deilt um hvort þessi sósutegund hefði verið rétt eða ekki, en lykt rækjunnar þykir ekki rétt og einnig mun hafa verið kvartað yfir bragði. Hrafn sagði að þessi vara hefði verið rannsökuð á sínum tíma og staðist öll próf, en þau snerust einkum um hvort varan væri var- hugaverð eða hættuleg heilsu manna. Verið er að taka sýni af þessari framleiðslu á ný og verða þau könnuð af Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins í Framleiðslueftir- liti sjávarafurða. Ef ekkert athuga- vert kæmi úr þeim rannsóknum væri engin ástæða til að gera neitt í málinu, og við rannsóknir fram til þessa hefði ekkert komið fram, sem benti til að varan væri skemmd eða hættuleg. Það væri síðan hvers og eins að meta þessa framleiðslu eftir eigin smekk. Þyrlan sem hrapaði á Mosfellsheiði. Ljósmynd Mbl. Kristján Sérfræðingar komnir til að rannsaka þyrluslysið Mjög góð færð um aUt landið FÆRÐ á vegum er víðast hvar með ágætum á landinu sam- kvæmt þeim upplýsingum sem Morgunbiaðið fékk hjá Sigurði Haukssyni hjá vegaeftirlitinu í gærdag. Góð færð er um allt Suður- og Vesturland, allt vestur í Gufudalssveit. Á Vestfjörðum var færð þokka- leg þrátt fyrir skafrenning á nokkrum stöðum. Fært var frá Patreksfirði til Tálknafjarðar, milli Þingeyrar og Flateyrar. Breiðadals- og Botnsheiði eru ekki færar nema fyrir stóra bíla og jeppa, síðan er góð færð frá ísafirði til Bolungarvíkur og inn í Djúp. Ailir vegir eru færir á Norður- landi, þar með talið norður Strandir allt í Bjarnarfjörð. Síðan er fært um Vaðlaheiði frá Akur- eyri og allar götur með ströndum til Vopnafjarðar. Stórir bílar og jeppar komast um Mývatns- og Möðrudalsöræfi og síðan er fært um alla Austfirði og með suðurströndinni allt til Reykjavíkur. Þess má þó geta að víða á Suð-Vesturlandi er éljagangur þannig að búast má við hálku á vegum víða. Ennfremur má geta þess að aðstoðað verður á norður- leiðinni ef þörf krefur í dag. „SÉRFRÆÐINGAR bandaríska flughersins eru komnir til lands- ins til að aðstoða yfirvöld varn- arliðsins í rannsókn þyrluslyss- ins. Þyrlan verður ekki flutt af slysstað fyrr en rannsókn hefur leitt í ljós orsakir slyssins. Yfir- menn varnarliösinS munu ekki gefa út neinar yfirlýsingar um hugsanlegar orsakir slyssins fyrr en að rannsókn lokinni,“ segir í frétt frá varnarliðinu á Kefla- víkurflugvelli. Þyrlur úr deild 14 í 67. björgun- arflugdeildinni hafa verið í Keflavík frá því í nóvémber 1971. Þar til á þriðjudagskvöldið höfðu þyrlur deildarinnar flogið 7125 flugstundir í björgunaraðgerðum. í átta ára sögu deildarinnar hér á landi hafa þyrlur hennar flogið á milli 800 og 900 flugstundir á ári. Deildin fékk í september viður- kenningu fyrir 5000 stunda flug án þess að flugslys hefði átt sér stað. Og í nóvember 1978 fékk deildin viðurkenningu fyrir flug í 7 ár án þess að flugslys hefði átt sér stað. Deildin hefur bjargað 156 mannslífum á og í kringum ísland frá því hún var staðsett í Keflavík. Fyrir utan íslendinga hafa þyrlur björgunardeildar 14 bjargað fólki af öðru þjóðerni. Svæðið sem deildin hefur um- sjón með er liðlega 2,5 milljón ferkílómetrar. N-Atlantshaf allt norður að norðurpólnum. I björg- unarleiðöngrum njóta „Jolly Green Giants" þyrlurnar eins og þær eru nefndar aðstoðar HC-130 flugvéla, sem hafa aðsetur í Wood- bridge á Englandi. Fyrir utan að sjá þyrlunum fyrir eldsneyti sjá HC-130 flugvélarnar einnig um flugleiðsögn á lengri leiðum auk fjarskipta til aðstoðar í björgun- arflugi við mjög erfiðar aðstæður. Þetta er fyrsta þyrluslys hjá varnarliðinu í rúm tíu ár. Tvívegis áður hafa þyrlur varnarliðsins hrapað. Það var 1965 og 1969. Þá voru það Sikorsky H-34, Choctw- gerð. Þyrlan sem hrapaði á Mos- fellsheiði var af Sikorskygerð, HH-3E, Jolly Green Giant. Óskað er eftir íslenzku skurð- stofufólki til starfa í Kambódíu EGGERT Ásgeirsson fram- kvæmdastjóri Rauða kross ís- lands sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að borist hefði skeyti frá Alþjóða Rauða kross- inum þar sem segir að líkur séu á því að dragi til tíðinda á landamærum Thailands og Kam- bódíu og íslendingar séu spurðir að því hvort til greina geti komið að þeir sendi þangað skurðstofu- lið. „Það sem um er að ræða eru tveir skurðlæknar, tvær skurð- stofuhjúkrunarkonur, einn svæf- Lokast flugvellir lands- ins vegna fjárskorts? Allir peningar búnir segir flugmálastjóri Nægir peningar til segir fjármálaráðherra ALLT ÚTLIT er fyrir að fjölmörgum flugvöllum víðs vegar um land verði lokað á næstunni og hefur flugvellinum á ísafirði reyndar þegar verið iokað vegna fjárhagsvandræða. — „Allir okkar rekstrarpen- ingar eru löngu búnir og það er því ekki um annað að ræða en loka, við eigum ekki einu sinni fyrir eldsneyti á tækin á völlunum,“ sagði Agnar Kofoed-Hansen flugmálastjóri í samtali við Morgunblaðið í gær. sagði að við hefðum hreinlega ekki lánstraust lengur. Það fóru hins vegar fram ein- hverjar umræður á Alþingi í dag þar sem fjármálaráðherra lýsti því yfir að við ættum næga peninga. Ég verð að segja að ég hef ekki fengið betri jólagjöf lengi, ég vona bara að þessir peningar finnist fljótlega. Við sendum hins vegar okkar fjármálastjóra niður í ráðuneyti í dag og það sem honum tókst að knýja út á báðum hnján- um voru 15 milljónir króna af þeim 200 milljónum króna sem við þurfum. „I samtölum sem ég hef átt við okkar menn á Austurlandi, Norð- urlandi og Vesturlandi hefur kom- ið fram að staðan þar er mjög slæm, skuldir hafa hrannast upp og við getum ekki orðið við tilmælum lánardrottna okkar að greiða þessar skuldir fyrir jól eða jafnvel áramót. Eins og málið horfir við í dag er nokkuð ljóst að ekki mun verða af lokun á Austurlandi; þar hefur tekist að semja við viðkomandi aðila. Það er enn allt óljóst með hvort okkur tekst að halda opnu á Akureyri. Á ísafirði er þegar búið að loka og okkar flugvallarstjóri Þá vil ég sérstaklega taka fram að samstarf okkar við flugvallar- stjórann á ísafirði, sem ennfrem- ur er okkar umdæmisstjóri, hefur verið með ágætum í gegnum tíðina, þannig að lokun ísafjarðar- flugvallar er alls ekki tilkomin vegna einhvers missættis okkar við hann, eins og einhverjir hafa verið að ýja að,“ sagði Agnar Kofoed-Hansen flugmálastjóri að síðustu. Morgunblaðið innti Höskuld Jónsson ráðuneytisstjóra í fjár- málaráðuneytinu eftir því hver staða flugmálastjórnar væri í ráðuneytinu í framhaldi fullyrð- ingar fjármálaráðherra á Alþingi í gær þess efnis að nægir peningar væru eftir. — „Flugmálastjórn á enn þó nokkra peninga inni hér í fjármálaráðuneytinu. Þeir fá stór- an hluta rekstrarfjár síns í er- lendum gjaldeyri og þeir eiga m.a. eftir að fá upphæð sem nemur gengissiginu á árinu,“ sagði Hösk- uldur. ingarlækni, og tvær gjörgæzlu- hjúkrunarkonur. Við gerum okkur grein fyrir því að erfitt mun reynast að fá fólk til þessara starfa með skömmum fyrirvara, en okkur þykir sjálf- sagt að kynna þetta fyrir íslenzku hjúkrunarfólki og ef það telur sér fært að taka þátt í þessu getur það snúið sér til okkar. Og því má ennfremur bæta við að ríkis- stjórnin hefur lofað að ljá þessu máli lið ef til þess kemur. Það er auðvitað ekki hægt á þessari stundu að segja fyrir um það hvort af verður, en það er nauðsynlegt að hefja undirbúning þegar í stað. Þeir sem hafa áhuga geta snúið sér til skrifstofu Rauða krossins á skrifstofutíma og utan hans til Auðar Einarsdóttur í síma 35723 eða mín í síma 22894,“ sagði Eggert að síðustu. Jólahlé á þingstörfum: Þingi frestað til 8. janúar nk. ALÞINGI íslendinga, 102. löggjafarþingi, var frestað á sjötta tímanum í gær. Þing- hlé verður til 8 janúar nk., nema aðstæður krefjist þess að það komi fyrr saman, eins og Jón Helgason, forseti sam- einaðs þings, komst að orði. í gær voru samþykkt fimm lög: 1) Lög um 10% álag á ferðagjaldeyri, framlenging út árið 1980. Nafnakall var viðhaft við aðra umræðu í neðri deild og var frumvarps- greinin þá samþykkt með 20 atkvæðum gegn 12 (11 þing- menn Sjálfstæðisflokks og Guðmundur G. Þórarinsson (F), 1 sat hjá en 7 voru fjarverandi. 2) Lög um bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði og heimildir til lán- töku 1980, unz fjárlög ársins hafa verið samþykkt. 3) Lög um breytingu á útflutnings- gjaldi sjávarafurða (frádrátt- ur frá f.o.b.-verðmæti síldar- afurða). 4) Lög um 19% verð- jöfnunargjald á raforku, framlenging til ársloka 1980, til stuðnings RARIK og Orku- búi Vestfjarða (frá þessu máli verður nánar sagt á þingsíðu Mbl. eftir hátíðir). 5) Lög um eftirlaun aldraðra. Þá var samþykkt þingsályktun um heimild til handa ríkisstjórn- inni til að fullgilda samning milli EFTA-landa og Spánar, sem m.a. felur í sér lækkun á spánsku innflutningsgjaldi á saltfiski, méli og fleiri sjávar- afurðum. Þingforsetar þökkuðu þing- mönnum og starfsliði þings samstarf og árnuðu þeim gleðilegrar hátíðar og þing- menn guldu forsetum á sama hátt. Alþýðubandalagið í Reykjavík: Nafn samstarfsflokks- ins skiptir ekki máli Á fjölmcnnum fundi í Alþýðubandalagsfélagi Reykjavíkur í fyrra- kvöld hélt Olafur Ragnar Grímsson ræðu fyrir Svavar Gestsson, sem hann gat ekki flutt, vegna þess, að hann sat stjórnarmyndunarvið- ræðufund vinstri flokkanna. I ræðunni var gerð grein fyrir stöðu stjórnarmyndunarviðræðnanna. Eftir framsöguræðuna hófust umræður um afstöðu Alþýðu- bandalagsins til áframhaldandi stjórnarmyndunarviðræðna, þegar vinstri viðræðunum sleppti. Yfir- gnæfandi meirihluti þeirra, sem til máls tóku, lýstu þeirri skoðun sinni, að ekki skipti máli, hvert nafn þess stjórnmálaflokks væri, sem samstarf væri haft við. Aðal- málið væri, hvaða málefnastöðu Alþýðubandalagið næði í samstarf- inu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.