Morgunblaðið - 06.02.1980, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.02.1980, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 1980 + Sonur okkar GUÐNI RÚNAR HALLDÓRSSON lést af slysförum 5. febrúar. Fyrir hönd aöstandenda Sjöfn Jónasdóttir, Halldór Gunnarsson. Eiginmaöur minn GUNNLAUGURJÓNSSON húsasmíóameistari Háfúni 28 Keflavík er andaöist 29. janúar s.l. veröur jarösunginn frá Akraneskirkju laugardaginn 9. febrúar kl. 11,15 f.h. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim, sem vildu minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélag íslands. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna Guórún Halldórsdóttir. + Eiginmaöur minn, KRISTINN OTTASON, skipasmiöur, Granaskjóli 14, lést á Borgarspítalanum þann 4. febrúar. Fyrir hönd barna og tengdabarna, Guölaug Eiríksdóttir. + Bróðir minn, JÓHANN S. EINARSSON, frá Keflavík, S er látinn. Jarðarförin fer fram í Fossvógskirkju fimmtudaginn 7. febrúar kl. 2.30. Sigríöur Einarsdóttir. + Eiginmaður minn og faöir okkar, TÓMAS TÓMASSON, Langholtsvegí 165, lést á heimili sínu mánudaginn 4. febrúar. Elísabet Elíasdóttir og börn. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug við andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, MARGRÉTAR GUNNARSDÓTTUR, Bjarmastíg 15, Akureyri. Gísli Bjarnason, Lóa Bjarnadóttír, Geir Jóelsson, Sigurbjörn Bjarnason, Axelína Stefánsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir Gould, Ernest C. Gould. og barnabörn. + Þökkum auðsýnda samúö viö fráfall og jarðarför GUDBJARGAR EINARSDÓTTUR, frá Akurprýði. Guörún J. Geirdal, Óöinn S. Geirdal, Einar Ó. Jónsson, Sigríöur Jónsdóttir, Guölaug Vestmann, Grétar Jónsson, Guöjón Á. Jónsson, Ágústa Markúsdóttir, börn og barnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúö viö andlát og útför SALVARAR ÁGÚSTU ÓFEIGSDÓTTUR, frá Borgarkoti, Skeiöum. Dóra Halldórsdóttir, Hallberg Halldórsson, Victor Halldórsson. + Þökkum innilega samúð og vinarhug viö andlát og jaröarför JÓNÍNU HELGU TÍMÓTHEUSDÓTTUR. Dósóþeus Tímótheusson, Jón Tímótheusson, Aðalheiöur Síguröardóttir, Ólafur Tímótheusson, Magnea Ásmundsdóttir, og aörir vandamenn. Jón Jónsson vél- stjóri — Minning Þeim fækkar frumherjum íslenskrar tæknimenntunar sem fæddir voru á síðasta áratug aldarinnar sem leið og nutu verk- og bóklegrar fræðslu á fyrsta fjórðungi þessarar aldar. Þeir hafa horfið einn af öðrum yfir móðuna miklu. Yngri menn með lengra nám og nýja tækni hafa tekið við og byggt ofaná þann grundvöll íslenskrar tæknikunn- áttu og menningar sem lagður var af þeim sem voru ungir á árunum fyrir 1930. Einn þessara frumherja er í dag kvaddur hinstu kveðju: Jón Jóns- son vélstjóri, Ránargötu la í Reykjavík. Jón vélstjóri var af vestfirskum stofni, fæddur að Gemlufalli í Dýrafirði 23. apríl 1895. Foreldrar hans voru Jón Magnússon og Guðrún Jónsdóttir er síðar bjuggu að Miðhlíð í Dýrafirði. Svo sem tíðkaðist á uppvaxtarárum Jóns fór hann sem aðrir ungir menn til sjóróðra fljótlega eftir fermingu en útræði var víða og stutt á fiskimið. A þessum árum var verið að vélvæða vestfirsku áraskipin. Síðar voru stærri bátar byggðir til aukinnar og lengri sóknar á ennþá fengsælli fiskislóðir. Sem ungur sjómaður fylgdist Jón með þessari öru þróun og aflaði hann sér vélgæsluréttinda á mótornám- skeiði á ísafirði árið 1918. Stund- aði síðan vélstjórn á ýmsum bát- um fram yfir 1920. Þá fór hann í járnsmíðanám í Hafnarfirði og síðar í Vélskóla íslands en þaðan lauk hann vélstjóraprófi árið 1926. Næsta áratuginn starfaði Jón sem vélstjóri á togurum. Okkar ástkæri + KARL ÓLAFUR ÓSKARSSON, flugvélstjóri, Austurbrún 39, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 8. febrúar kl. 1.30. Helga Lorenz, Magnús Karlsson, Jóhanna Ósk Karlsdóttir, Finnbogi Óskarsson, Jóhanna Jóhannesdóttir. + Hjartanlega þökkum við auðsýnda samúð og vináttu viö fráfall og útför ERLU MAGNÚSDÓTTUR, Sunnuvegi 33, Reykjavík. Guðlaugur Jónsson, Magnús Guðlaugsson, Jón Benedikt Guölaugsson, Járnbrá Fríöriksdóttir, Hilma Magnúsdóttir, Björn Karlsson, Ragna Berget, Oddvar Berget, Ásta Elstner Wolfgang Elstner, Sverrir Magnússon, Margrét Einarsdóttir. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúö og vináttu við fráfall mannsins míns, föður okkar og tengdaföður, SIGUROAR J. HALLDÓRSSONAR Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki á deild 4-D, Landspítalanum. Sigríður Jónasdóttir, Lilja Sígurðardóttir, Steinþór Ingvarsson, Jónas Sigurösson, Helga Hallbergsdóttir, Þórhildur Sæmundsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, JÓHÖNNU INGIBJARGAR SIGURDARDÓTTUR, Reynimel 68. Björn Ásgeírsson, Jón Snorri Ásgeirsson, Sigurður Ásgeirsson og fjölskyldur. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 88., 92. og 96. tölublaði Lögbirtingablaösins 1979, á Asbraut 13 — hluta —, þinglýstri eign Bjarna Zophanías- sonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudag- inn 13. febrúar 1980 kl. 11:00. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 88., 92. og 96. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1979, á Alfhólsvegi 55, þinglýstri eign Guömundar Einarssonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 13. febrúar 1980 kl. 10:30. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nokkru eftir að Laxfoss eldri var byggður í Danmörku réðst Jón sem yfirvélstjóri á skipið sem hélt uppi áætlunarferðum frá Reykja- vík til Borgarness og Akraness. Fékk hann þjálfun til hins nýja starfs í Odense og Kalundborg í Danmörku veturinn 1936. Starfaði Jón síðan sem yfirvélstjóri á Laxfossi um tveggja áratuga skeið. Eftir að Laxfoss strandaði við Kjalarnes starfaði Jón í landi, fyrst sem verkstjóri í Vélsmiðju Sigurðar Sveinbjörnssonar en frá árinu 1957, meðan starfsorkan entist, við véla- og verkfærasölu hjá Fjalari hf. í Reykjavík en að stofnun þess fyrirtækis átti hann aðild ásamt öðrum. A árunum eftir heimsstyrjöld- ina síðari komu fram á sjónarsvið- ið ýmsar tæknilegar nýjungar. Fylgdist Jón eftir föngum með þeim nýjungum sem hægt var að afla og snertu starfssvið hans. Má í því sambandi nefna fyrstu loft- kældu dieselvélina sem flutt var hingað til lands, en leyfi fyrir nokkrum slíkum vélum fékkst eftir nokkra fyrirhöfn hjá nýbygg- ingarráði er starfaði um miðjan fimmtá áratuginn. Ræsti Jón vél- stjóri fyrstu þessara véla er voru af Armstrong Siddeley gerð og knúði sú vél síðar, um margra ára skeið heimilisrafstöð á sögufrægu sunnlensku prestsetri. Sumarið 1948 kynnti Jón sér í Bretlandi nýja málmhuðunartæki sem þá var að ryð\. sér til rúms þar í landi og fi.,tti hingað heim. Þá átti hann þátt í að kynna ýmsar fleiri tæknilegar nýjungar, enda hugurinn jafnan opinn fyrir öllu því sem til gagns og hagræðis mætti verða. Jón var hamingjumaður í heim- ilislífi. Eftirlifandi kona hans er Fanney Guðmundsdóttir, Jónsson- ar, járnsmiðs í Hafnarfirði. Áttu þau gullbrúðkaup á sl. vori. Synir þeirra eru fimm. Hafa þrír þeirra fetað í fótspor föður síns, numið vélfræði og lokið prófi frá Vél- skóla íslands. Þannig taka synir við af feðrum og ein kynslóð af annarri. Á árunum sem Jón var að alast upp vestur í Dýrafirði, fluttust þangað í sveit, að Núpi, bræðurn- ir, síra Sigtryggur og Kristinn bóndi Guðlaugsson, Nýir straum- ar bárust með þeim bræðrum, sem efldu unga menn til starfs og dáða. Á þessum sömu árum flutt- ist stjórnin inn í landið. Styrktust menn í þeirri vissu að nýir tímar og betri færu í hönd. Sú varð og raunin. Jón vélstjóri var sá gæfu- maður að fá tækifæri til að taka þátt í þeirri mestu breytingu sem orðið hefir frá upphafi Islands byggðar á lífskjörum hér á landi, frá áraskipum til skuttogara, frá moldarkofum til góðra híbýla, og allt sem þar er á milli er í stuttu máli árangurinn af starfi þeirrar kynslóðar sem Jón tilheyrði. Sannarlega lá hann ekki á liði sínu að skila jafnan góðu og farsælu dagsverki á löngum starfsdegi sem byrjaði þegar á unga aldri og entist allt fram að áttræðu. Þökk sé Jóni að leiðarlokum. Megi sá sem öllu ræður og stjórn- ar, styðja hann og styrkja er hann nú hefir haldið á fund þeirra sem á undan eru horfnir yfir móðuna miklu, svo og veita huggun í harmi, eftirlifandi eiginkonu, son- um og ástvinum öllum. Þ.B.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.