Morgunblaðið - 07.02.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 07.02.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. FEBRUAR 1980 5 Arnarflug: Farþegar yfir 140 þúsund á síðasta ári LAUNAGREIÐSLUR Arnarflugs til starfsmanna námu á síðasta ári rúmum 383 milljónum króna. en i árslok voru þeir alls 53. Komust 73 starfsmenn á launaskrá á árinu. Farþegar i millilandaflugi voru alls 139.862 og flognar mílur 1.6 milljón og flugstundir um 4 þús- und. Millilandaflugi Arnarflugs er skipt í tvo þætti, langtímaleigu- samningum og skyndileigum, sem oftast eru einstakar ferðir fyrir flugfélög, er verða fyrir yfirbókun- um, bilunum eða óhöppum. Flugu Boeing vélar félagsins á leiðum eftirtalinna flugfélaga árið 1979: Flugleiðir, Britannia Airways, Ken- ya Airways, Aviateca Guatemala, Braathens SAFE, Yemen Airways, Somali Airways, Air Bahama og Tunis Air. Innanlandsflug Arnarflugs hófst 14. september sl. og voru til þess notaðar leiguflugvélar allt til 21. desember er félagið tók í notkun eigin flugvélar. Tvær af gerðinni Twin Otter—200 og eina Piper Navajo. Farþegafjöldi í innanlands- fluginu frá 14. september til ársloka var 2.510 en flogið er reglulega til 9 áætlunarstaða vestanlands og norð- an. / A árinu hófst útgáfa fréttabréfs er einkum á að þjóna sem upplýs- ingamiðill fyrir farþega félagsins utan af landi og hefur m.a. að geyma fréttir af því sem helst er að gerast í borgarlífinu auk frétta af starfi Arnarflugs, en blaðið á að koma út að jafnaði mánaðarlega. Arnarflug hóf í haust útgáfu fréttabréfs er koma á út mánaðarlega og flytur fréttir af starfsemi félagsins og ýmsar upplýsingar fyrir fólk er kemur til Reykjavíkur í ýmsum erindum. ísjaðarinn ná- lægt meðallegu SAMKVÆMT ískónnun í eftir- litsflugi Landhelgisgæslunnar um sl. mánaðamót er hafísjaðar- inn milli Grænlands og íslands nálægt meðallegu hans á þessum árstíma. Þegar flogið var 30. janúar sl. var jaðarinn undan Vestfjörðum um 80 sjómílur norður af Kögri. 53 sjómtlur undan Straumnesi. 57 sjómílur undan Deild. 60 sjómilur undan Kópanesi og 85 sjómilur undan Bjargtöngum. Sá ís sem kannaður var, reynd- ist vera að mestum hluta ný- myndaður ís. Meðfram þeim hluta ísjaðarsins, sem kannaður var, reyndist vera um 6—10 sjómílna belti þar sem sjórinn var að frjósa. Þá leiddi ískönnun 4. febrúar sl. í ljós að mikil nýmyndun á sér stað þar um þessar mundir og liggur jaðarinn frá 68N.20V til 70N,12V. Mjög slæmt skyggni var þegar síðasta könnun fór fram, svo ekki sást hversu langt var í aðalísinn, en þéttleiki þess sem sást var 4—6 tíunduhlutar. Samningamál flugmanna hjá sáttasemjara SAMNINGAMÁLUM Flug- leiða við flugmannafélögin. Félag Loftleiðaflugmanna og Félag íslenzkra atvinnuflug- manna. hefur verið vísað til sáttasemjara, en samningar þessara starfsmanna Flug- leiða runnu út hinn 1. febrúar sl. Vinnuveitendasamband Islands vísaði máli þessu til sáttasemjara fyrir hönd Flugl- eiða, sem er aðili að VSÍ og kvað Þorsteinn Pálsson fram- kvæmdastjóri VSÍ það nú í höndum sáttasemjara hvenær fundur yrði boðaður, en það hefur ekki verið gert ennþá. Rússarnir koma í GÆR barst loksins svarskeyti frá sovézkum skákyfirvöldum, þar sem staðfest var þátttaka tveggja þar- lendra skákmeistara á Reykja- víkurskákmótinu, sem hefst 23. febrúar. Skákmennirnir tveir sem koma eru stórmeistarinn Vasjukov og alþjóðlegi meistarinn Kupreichik, sem er mjög sterkur skákmaður með 2535 stig. Stórmeistarinn Tseshkovsky gat hins vegar ekki komið af fjölskylduástæðum. Nú er ljóst að 14 skákmenn verða með í mótinu, 7 stórmeistarar og 7 alþjóðlegir meistarar. Styrkleiki mótsins er 10 stig og þurfa alþjóð- legu meistararnir að hljóta 8'/2 vinning af 13 til þess að ná stór- meistaraárangri. V » Bætum við nýjum vörum í dag Tíminn er að renna út Aðeins dagar eftir af utsölunni stendur yfir í 7 verzlunum samtímis ALLT NÝJAR OG NÝLEGAR VÖRUR Örfá dæmi! Föt ullar tweed m/vesti .án/vestis ... Stakir tweed jakkar Stakir blazer jakkar Dragtir pils og/eöa buxna Rifflaðar flauelsbuxur Dún watt úlpur m/hettu án hettu Dún watt barnaúlpur m/hettu29.400 19.900 o.fi. o.fl. o.fl. o.fl. o.fl. o.fl. o.fl. ö.fl. o.fl. o.fl. Aöur Nú 89.800 54.900 79.900 49.900 54.900 29.900 48.800 19.900 78.800 39.900 19.900 8.900 43.900 26.400 39.800 23.900 40-70% afsláttur Austurstræti 22 Sími frá skiptiboröi 85055. TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS WStKARNABÆR =)l Glæsibæ — Laugavegi 66. |—' Austurstræti 22. .HÆfflVZS Laugavegi 20. Sími frá skiptiborði 85055. i'.u'fi+A/i.'U'.vAvú.Vi.vtrií.v’.p.'.v.víVA.' ivi": tV.‘.v:r.".yi’.w*.; v. Greifahúsinu, Austurstræti 22, 2. hæð. Sími 85055 ............

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.