Morgunblaðið - 10.02.1980, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.02.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1980 25 Efemía Gísladóttir frá Húsey — Minning Fædd 4. marz 1902. Dáin 27. janúar 1980. Viö erum mörg sem kveðjum Efemíu Gísladóttur með söknuði. Útför hennar var gerð frá Glaumbæjarkirkju 2. febrúar sl. að viðstöddu miklu fjölmenni. Þegar við fréttum að Effa (en það var hún ætíð kölluð) væri dáin fóru minningarnar að hrannast upp í hugum okkar. Hún sem alltaf var svo kát, svo lífsglöð, en allt í einu horfin svo skjótt. Hún var fædd á Stóru-Seylu 4. mars 1902. Foreldrar hennar voru Gísli Benediktsson bóndi á Hall- dórsstöðum og kona hans, Ingi- björg Björnsdóttir. Ólst hún upp hjá foreldrum sínum á Halldérs- stöðum ásamt tveimur bræðrum sínum sem báðir eru á lífi. Árið 1929 giftist hún Felix Jósafatssyni kennara og skóla- stjóra og eignuðust þau fimm mannvænleg börn sem öll eru á lífi. Þau bjuggu sín fyrstu búskapar- ár á Halldórsstöðum eða frá 1929—1932 er þau fluttust að Húsey og áttu þar sitt heimili fram til ársins 1955. Þau stunduðu þar búskap, jafnframt því sem hann kenndi og var skólinn þá inni á þeirra heimili, sem hefur verið mikil viðbót við önnur heimilis- störf. Sveitastörfin voru Effu afar kær. Hún hafði yndi af skepnum, enda var hún sannkallað náttúr- unnar barn. Effa var einstaklega starfsöm kona, hjálpfús með af- brigðum og ekki síst við þá sem minna máttu sín og lýsir það mannkostum Effu vel. Frá Húsey flytja þau í Varma- hlíðarhverfið, reistu þar myndar- legt hús er þau nefndu Sunnuhlíð. Þar áttu þau heima þar til síðustu árin að þau keyptu sér íbúð á Sauðárkróki og bjuggu þar til dauðadags. Mann sinn missti Effa 1974. Hér er farið hratt yfir enda ekki ætlun okkar að skrifa sögu Effu. Það gera aðrir okkur fróðari. Okkur er nú efst í huga á skilnaðarstundu þakklæti til hennar frá okkur fyrir sérstaklega góða viðkynningu og fórnfýsi hennar á liðnum árum og ekki síst frá börnunum okkar sem þótti svo vænt um Effu, enda var hún þeim alltaf svo góð. Börnum hennar, tengdabörnum og öllum hennar ástvinum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Efemíu Gísladóttur. _ Anna og Konni. 1973 — Kissinger kemur til Hanoi í fyrstu heimsóknina eftir vopnahlé. 1971 — Lon Nol, þjóðhöfðingi Kambódíu, fær heilablóðfall. 1962 — Rússar sleppa Francis Gary Powers í skiptum fyrir Rudolf Abel. 1953 — Neguib hershöfðingi fær alræðisvald í Egyptalandi. 1947 — Rússar gera friðarsamn- ing við Finna. 1943 — Áttundi her Breta sækir að landamærum Túnis. 1939 — Japanir taka eyna Hain- an af Kínverjum. 1878 — Tíu ára stríði á Kúbu lýkur með E1 Zanjou-sáttmála. 1846 — Her Goughs sigrar Síkha við Sobrahan á Indlandi. 1840 — Viktoría drottning gift- ist Albert prins — Kanada sameinast. 1828 — Símon Bólivar fær völdin í Kólombíu. 1811 — Rússar taka Belgrad og tyrkneska herinn til fanga. 1763 — Bretar fá Kanada sam- kvæmt Parísar-friðnum og ófriði Breta og Frakka lýkur. Aímæli — William Congreve, enskur leikritahöfundur (1670— 1729) — Charles Lamb, brezkur rithöfundur (1775—1834) — Harold Macmillan, brezkur stjórnmálaleiðtogi (1894—) — Leontyne Price, bandarísk sópransöngkona (1927—) — Bor- is Pasternak, rússneskur rithöf- undur (1890—1960). Andlát — 1837 Alexander Pushkin, rithöfundur — 1912 Joseph Lister, skurðlæknir — 1939 Píus páfi XI. Innlengt — 1782 Póstferðir hefjast — 1850 Dómkirkju- hneykslið: síra Ásgrímur afhrópaður — 1870 Stöðufrum- varpið til fyrstu umræðu í danska þinginu — 1888 Söfnun- arsjóður íslands stofnaður — 1924 d. Jón Þorkelsson þjóð- skjalavörður — 1962 Togarinn „Elliði" sekkur vestur af Önd- verðanesi (26 bjargað, tveir fór- ust) — 1968 Danska skipið „Hans Sif“ ferst við Rifstanga. Orð dagsins — Ég vildi að hann gæti útskýrt útskýringu sína — Byron lávarður, enskt skáld (1788-1824). Stjórnmálaskóli Sjálfstæðisflokksins STJÓRNMÁLASKÓLI Sjálfstæðisflokksins mun starfa dagana 3.-8. mars n.k. Skólinn verður að þessu sinni dagskóli. Hefst hann kl. 09 daglega og stendur yfirleitt til kl. 18. Að venju verður lögð áhersla á það í skólastarf- inu að kenna almenn fé- lagsstörf, ræðumennsku, efnahagsmál, uppbyggingu launþega- og atvinnurek- endasamtaka, ásamt því að starf Sjálfstæðisflokksins verður kynnt. Þessir þættir eru aðeins brot úr þeirri fjölbreyttu dagskrá, sem kennd verður í skólanum, en dagskráin verður aug- lýst nánar í fjölmiðlum síðar. Stjórnmálaskólinn hefur sífellt öðlast auknar vin- sældir og er því þeim er áhuga hafa, bent á að tryggja sér pláss sem fyrst. (Fréttatilkynning frá skólanefnd) EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Nikódemus kom til Jesú til að spyrja hann um eilift líf. Frelsaðist hann? Við höfum ríka ástæðu til að ætla, að Nikódemus hafi orðið lærisveinn Krists. Eða hvernig getur nokkur látið svo áleitna ræðu sem þá, er Jesús flutti fyrir Nikódemusi, eins og vind um eyrun þjóta? Nikódemus kom til Jesú um nótt (af því að hann gat ekki beðið til morguns). Mér er nær að halda, að hann hafi verið reiðubúinn og fús til að fylgja Jesú. Hann var reyndar nærstaddur eftir krossfestingu Jesú og taldi sig til lærisveina hans. „En Nikódemus, hann, sem í fyrstunni hafði komið til Jesú um nótt. kom einnig og hafði með sér hér um bil hundrað purid af myrrublönduðu alóe. Þeir tóku nú líkama Jesú og sveipuðu hann í líndúk með ilmjurtum, eins og siður er hjá Gyðingum að búa lík til greftrunar" (Jóh. 19, 39-46). í þá daga tók sá á sig áhættu, sem gekk í flokk með vinum Jesú, en Nikódemus var meðal þeirra fáu, sem þorðu að standa við hlið frelsarans. Þó að við heyrum ekki mikið um hann eftir upprisuna, megum við gera ráð fyrir, að hann hafi orðið sannfærður, kristinn maður. Hugsanlegt er, að hann hafi gerzt kristniboði í fjarlægu landi eftir hvítasunnu. Hann hafði frá miklu að segja, og ég er viss um, að hann hefur vitnað dyggilega um Jesúm. Carter vill konur í herinn Washinuton. 8. (ohrúar. AP. CARTER Bandaríkjaforseti lagði í dag til að konur og karlar á aldrinum 19—20 ára létu skrá sig til herþjónustu, og að kvöðin næði á næsta ári einnig til þeirra sem þá verða 18 ára. Sagðist Carter leggja þetta til svo að bandaríska þjóðin yrði betur búin undir að sporna við „árásar- og útþensluhneigð Sovétríkj- anna“. Konum í Bandaríkjunum hefur ekki áður verið gert að gegna herþjónustu, en Carter sagði að sú ákvörðun væri viðurkenning á stöðu konunn- ar í bandarísku þjóðfélagi. Tillögur Carters voru hart gagnrýndar á þinginu í dag og fullyrtu þingmenn að þær næðu ekki fram að ganga. í tilefni af 30 ára afmæli Radíóbúöarinnar og 50 ára afmæli ASA verksmiðjanna, bjóöum viö takmarkaö magn 22“ og 27“ litstjónvarpa, meö sérstökum afmælisafslætti Staögreiösluafslátturinn er Nú er tækifæri að verzla á góðu verði viöskiptaafsláttur 1° /o 50/n Staögreiösluverö á 22“ er: 628.920.- Staðgreiösluverð á 26“ er: 694.791- Athugið að tilboö stendur aöeins í stuttan tíma og magnið er mjög takmarkað Við þökkum íslendingum viðskiptin í 30 ár. Verslióisérvenslun meó UTASJÓNVÖRP og HLJÓMTÆKI tdcJ. 29800 \ BÚÐIN Skipholti19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.