Morgunblaðið - 15.02.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.02.1980, Blaðsíða 1
32 SIÐUR 38. tbl. 67. árg. FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. íslenzka ólympíuliðið geng- ur framhjá Ólympíueldinum í Lake Placid við upphaf leikanna i fyrradag. (AP-simamynd) iCEUW PiiHl Afganistan: Sovétherinn varp- ar napalmi á þorp Kabúl, 14. febrúar — AP. ERLENDIR diplómatar i Aíg- anistan segjast hafa orðið vitni að því á mánudaginn var er sovézk sprengjuþota af gerð- inni Mig-23 varpaði mörgum smásprengjuklösum til jarðar við þorpið Cargha, sem er 20 kilómetra norður af Kabúl. Hafi svart reykjarský lagzt yfir staðinn eftir að sprengjun- um var varpað og bendi yfir- gnæfandi líkur til þess að um napalm hafi verið að ræða. Haft er eftir þessum heimildar- mönnum, að öflugt fótgöngulið með skriðdreka hafi þarna átt í höggi við uppreisnarmenn innan stjórnarhersins, og hafi mikið mannfall orðið í bardaganum, sem aðeins stóð í eina klukkustund og lauk með fullum sigri Sovét- manna. í Badakshan í norðausturhluta Afganistans fóru Sovétmenn hall- oka í byrjun vikunnar þegar þeir reyndu að ná bænum Fayzabad úr höndum uppreisnarmanna úr stjórnarhernum. Tókst uppreisn- armönnum að verja bæinn, en Sovétmenn sitja um hann og halda honum í einangrun. Bandaríkjastjórn telur sig hafa sannanir fyrir því að Sovétmenn hafi flutt fjölda afganskra fanga til Sovétríkjanna að undanförnu, og hefur skýringa verið krafizt af fulltrúa Sovétríkjanna í mann- réttindanefnd Sameinuðu þjóð- anna. Mikið mminfall í N-Líbanon Bcirút — 14. lebrúar — AP TALIÐ er að mikið mannfall hafi orðið í hörkubardaga milli fylk- inga kristinna varaliðsmanna norður af Beirút í dag, en síðan sýrlenzku friðargæzlusveitirnar boðuðu brottför sina frá Líbanon i byrjun mánaðarins hefur mikil ólga verið á þessum slóðum og hvað eftir annað hefur slegið í brýnu. 26 manns hafa fallið í þessum átökum, fyrir utan þá, Gíslunum sleppt áður en rannsókn hefst? Washington, Teheran, 14. febr. AP. SEAN Macbride, Nóbelsverðlauna- hafi og fyrrum utanríkisráðherra írlands. segir samkomulag hafa tekizt milli írana og Bandaríkja- stjórnar um að gíslunum i banda- riska sendiráðinu i Teheran verði sleppt um leið — eða jafnvel áður — en rannsókn hefjist á stjórnar- ferli keisarans fyrrverandi fyrir tilstilli Sameinuðu þjóðanna. Af hálfu Bandaríkjastjórnar hefur þessu ekki verið mótmælt, en hins vegar er varað við of mikilli bjartsýni, þar sem margt sé enn á huldu um hverjar kröfur írans- Tító dauðvona en með fullri rænu Belsrad — 14. febrúar. AP. LÆKNAR Títós Júgóslaviuforseta segja að ástand sjúklingsins sé mjög alvarlegt, en svo djúpt í árinni hafa þeir ekki tekið áður. Greinilega er búizt við þvi að hinn aldni þjóðarleiðtogi gefi upp önd- ina þá og þegar, en i dag hraðaði forsætisráðherra landsins sér heim frá Austur-Þýzkalandi, degi fyrr en ætlað var, og utanrikisráðherrann hefur frestað för sinni til Indlands. Haft er eftir mönnum, sem fylgj- ast náið með framvindu mála, að þótt búast megi við andláti forsetans hvenær sem er, þá sé hann enn með fullri rænu, og raunar megi búast við því að hann kunni að lifa í nokkra daga til viðbótar. í dag minntust fjölmiðlar í fyrsta skipti á varnarmátt Júgóslavíu frá því að Tító veiktist, og var haft eftir háttsettum mönnum innan hersins, að varnarviðbúnaður landsins væri svo öflugur að herinn væri fullkom- lega fær um að reka af höndum sér hvaða árásaraðila sem væri. stjórnar raunverulega séu, og megi fastlega búast við því að enginn gislanna 50 verði látinn laus fyrr en að loknum löngum og ströngum samningaviðræðum. Bani-Sadr, forseti írans, sagði í dag að unnt væri að sleppa gíslunum innan tveggja sólarhringa ef Banda- ríkjastjórn gengi að öllum skilyrðum stjórnar hans. Oljóst er hvaða kröf- ur Bani-Sadr hafði í huga, en áður hefur hann m.a. sagt, að ein krafan væri sú að Bandaríkjastjórn viður- kenndi að hafa framið glæpi í Iran. Margt bendir til þess að samstaða um frelsun gíslanna sé hvergi nærri útkljáð mál í Teheran og að bylt- ingarráðið sé í því efni erfiður ljár í þúfu. Macbride og talsmenn hjá Sam- einuðu þjóðunum hafa sagt að hinni alþjóðlegu rannsóknarnefnd verði komið á svo fljótt sem auðið er, en þeir hafa ekki viljað tiltaka ákveð- inn tíma í því sambandi. Macbride segir, að í nefndina komi sterklega til greina fulltrúar frá Alsír, Mexíkó, Bangladesh og fleiri ríkjum þriðja heimsins, auk þess sem hann búist sjálfur við að starfa í nefndinni ásamt formanni sambands franskra lögfræðinga. Macbride, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels fyrir að stilla til friðar í Namibíu-deilunni, segir það skilning sinn að Ayatollah Khomeini hafi fyrir sitt leyti fallizt á þá lausn málsins, sem nú sé í sjónmáli. Carter forseti hefur lýst ánægju sinni með rannsóknarnefnd- ina, en af hálfu Bani-Sadr var það eitt af þeim skilyrðum, sem Banda- ríkjastjórn á að uppfylla. sem létu lífið í bardaganum í dag, en enn er ekki vitað hversu margir þeir eru. I Norður-Líbanon takast á stuðningsmenn Franjiehs, fyrrum forseta Líbanons, og varaliðsmenn úr flokki falangista, en hinir síðarnefndu segja, að menn Fran- jiehs stefni að því að ná á sitt vald svæðum þeim í fjallahéruðum í norðurhlutanum, sem falangistar hafa ráðið. Klofningur í liði kristinna manna, sem í borgarastyrjöldinni í landinu áttu einkum í höggi við vinstri sinnaða Palestínumenn, kom upp á yfirborðið í júní 1978 þegar falangistar ruddust inn í þorp Franjiehs og skutu til bana 33 íbúa, þar á meðal son Fran- jiehs, tengdadóttur og þriggja ára barn þeirra. Sagt er að Franjieh hafi á valdi sínu 26 gísla úr liði falangista. í Suður-Líbanon er ástand mjög ótryggt, og er ljóst að á báðum vígstöðvum færist aukin heift í leikinn, en á laugardaginn kemur ríkisstjórn landsins saman til sérstaks fundar til að reyna að koma á heildaráætlun um hvernig helzt megi fá þá átján trúflokka og stjórnmálahópa, sem í erjum eiga í landinu, til að sitja á sátts höfði. Tyrkland: Herlið gerði áhlaup á spunaverksmiðju Ankara, 14. febrúar. AP. HUNDRUÐ hcrmanna gerðu i dag áhlaup á spunaverksmiðju i Smyrnu, með skriðdreka i broddi fylkingar, og náðu þeir verksmiðj- unni úr höndum vinstri sinnaðra verkalýðsleiðtoga. Vinstri sinnar höfðu náð henni á sitt vald og lokað henni i mótmælaskyni við uppsagn- ir hinnar nýju minnihlutastjórnar Demirels, en uppsagnirnar tóku til hundruða verkamanna. Verksmiðj- an er rikisrekin, og segja yfirvöld i Smyrnu að átökin i dag hafi ekki verið mannskæð að öðru leyti en þvi, að einn árásarmannanna hafl særzt Víða í Tyrklandi er mikil ógla. í hinum afskekktu austurhéruðum hefur komið til átaka milli lögreglu og fólks, sem var að mótmæla verðhækkunum stjórnarinnar að undanförnu, og í Istanbul má heita að atvinnulífið hafi verið lamað í gær, en þá voru flestar verzlanir og fyrirtæki lokuð vegna sprengjuhót- ana öfgasinnaðra andstæðinga stjórnarinnar. Franski herinn tók Rainbow Warrior Cherbourg, 14. febrúar. AP. FRANSKI herinn tók Rainbow Warrior í hafnarmynni Cher- bourg i morgun. Var áhöfnin tekin höndum, en siðdegis var skipverjum sleppt að einum und- anskildum og fékk togarinn að láta úr höfn við svo búið. Höfðu Rainbow Warrior-menn gert til- raun til að hindra skip, sem var að flytja kjarnorkuúrgang til eyðingar i Frakklandi, i þvi að leggjast að bryggju. Frá því á mánudag hafði togar- inn haldið sig utan landhelgi, en í skjóli næturþoku veitti hann flutn- ingaskipinu eftirför. Tvö frönsk varðskip fylgdu flutningaskipinu inn í höfnina, en sex menn úr áhöfn Rainbow Warrior komu þá upp að skipinu í tveimur gúmíbát- um, og reyndu þeir að komast um borð. Eftir nokkurt þóf voru menn- irnir handteknir og Rainbow Warrior og áhöfnin höfð í vörslu hersins á meðan skipstjórinn, John Castle, var yfirheyrður. Sá skip- verja, sem nú er í vörzlu frönsku lögreglunnar, heitir Bruce Cram- ont, og er ekki vitað hvers vegna honum var ekki sleppt með áhöfn- inni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.