Morgunblaðið - 29.02.1980, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. FEBRÚAR 1980
47
Margir skipta um félög
Tveir markverðir ganga úr Þrótti
MIKIÐ hefur verið um það að
undanförnu að leikmenn knatt-
spyrnufélaganna fari úr einu
félaginu í annað. Hér áður fyrr
var slikt afar fátítt. Þrír mark-
verðir hafa skipt um félög, allir
úr 1. deild. Guðmundur Asgeirs-
son, hinn ungi og efnilegi mark-
vörður Vals, hefur gengið til liðs
við Breiðablik, nýliðana í 1. deild.
Ólafur ólafs, sem varði mark
Þróttar með prýði mikinn hluta
siðasta keppnistimabils, hefur
VÍST er, að bresk ferðaskrifstofa
hefur gert KSÍ tilboð um að greiða
fyrir heimsókn einhvers liðs úr
ensku 1. deildinni eða 2. deild. KSÍ
er að athuga þetta tilboð, en svona
fyrirtæki eru fjárhagslegt hættu-
spil hérlendis. Lið, sem nefnd voru
hins vegar gengið í Val. Egill
Steindórsson, Þrótti, hefur geng-
ið til liðs við sína gömlu félaga i
Ármanni.
Kristinn Björnsson, framherj-
inn marksækni hjá ÍA, er hættur
hjá félaginu, en ekki kominn
annað í bili. Óttar Sveinsson hefur
gengið í Fram úr FH, þriðja félag
Ottars á jafn mörgum sumrum.
Fram hefur einnig endurheimt
Gústaf Björnsson, sem þjálfaði og
lék með Tindastól í 3. deild síðasta
í þessu sambandi, voru m.a. Aston
Villa, WBA, Ipswich, Norwich,
Sunderland, Newcastle og Luton.
Ef af þessu verður, léki viðkom-
andi lið þrjá leiki, annaðhvort á
tímabilinu 10.—20. maí eða 19.—
29. júlí.
sumar. Þá má einnig geta þess, að
Þórður Marelsson, einn sterkasti
leikmaður Reynis í Sandgerði um
árin, hefur gengið í Víking. En alls
hafa 59 leikmenn úr deildunum
þremur tílkynnt félagaskipti á
tímabilinu frá 6. desember síðast-
liðnum til 21. febrúar.
Selfoss ekki
með í 2. deild?
2. deildar lið Selfoss í knatt-
spyrnu hefur nýlega sent KSÍ bréf
þess efnis, að sökum áhugaleysis
og manneklu í plássinu sjái félagið
sér ekki annað fært en að draga
sig út úr íslandsmótinu. Eftir er
að sjá framvindu þessa máls, en
KSÍ hefur fullan hug á því að
reyna að telja Selfyssingum hug-
hvarf, enda gæti þetta torveldað
mjög störf mótanefndar. Þá yrði
að skera úr um hvaða lið skyldi
taka stöðu Selfoss og þannig
mætti lengi telja.
Aston Villaeóa
Ipswich til íslands?
• íslenska badmintonfólkið sem keppir fyrir ísland i NM-unglinga i Danmörku um helgina.
9 manna hópur fer á
NM-unglinga í badminton
VALINN hefur verið níu manna
hópur til þess að keppa fyrir
ísiands hönd á Norðurlanda-
meistaramóti unglinga í bad-
minton sem fer fram í Álaborg í
Danmörku um helgina. Á móti
þessu verða um 70 keppendur frá
öllum Norðurlöndunum, helm-
ingur þeirra frá Danmörku og
Sviþjóð, en þessar þjóðir eru
meðal sterkustu badmintonþjóða
heims, einkum Danir.
íslenska hópinn skipa eftirfar-
andi:
Kristín Magnúsdóttir TBR,
Sif Friðleifsdóttir KR,
Ragnheiður Jónsdóttir í A,
Laufey Sigurðardóttir IA,
Þórunn Óskarsdóttir KR,
Guðmundur Adolfsson TBR,
Þorgeir Jóhannsson TBR,
Skarphéðinn Garðarsson TBR,
Birgir Ólafsson TBV.
I þessari ferð verða einnig
leiknir tveir landsleikir. Verður sá
fyrri við B-lið Svía, en sá síðari
gegn A-liði Einna. Fara leikir
þessir fram í dag og í kvöld. Þess
má að lokum geta, að fararstjóri
hópsins verður Garðar Alfonsson.
Wallace
til sölu
SKOSKI landsliðsmaðurinn í
knattspyrnu, Ian Wallace hjá
Coventry, er kominn á sölulista
hjá félagi sínu. Er ljóst að hann
fer ekki fyrir neinn smápening,
en engar tölur hafa verið gefnar
upp um kaupverð hans, beðið er
eftir tilboðum.
KR: Ágúst Líndal 1. Árni Guðmundsson 2, Birgir Guðbjörnsson 2.
Geir Þorsteinsson 3, Gunnar Jóakimsson 1. Þröstur Guðmundsson 1.
Jón Sigurðsson 3, Garðar Jóhannsson.
FRAM: Björn Magnússon 2, Björn Jónsson 1. Guðmundur Hallsteins-
son 1. Hilmar Ilaraldsson 1, Símon Ólafsson 4, Þorvaldur Geirsson 2.
GÖMUL meiðsi rifu sig upp í
öxlinni á óskari Sigurpálssyni
lyftingakappa, er hann reif upp
lóðin fyrir sjónvarpsáhorfend-
ur i Englandi, en hann tók þátt
í óvenjulegu lyftingamóti,
nokkurs komnar millistigi milli
venjulegra lyftinga og kraft-
lyftinga. Boðið var ýmsum
tröllum. einkum frá Bandaríkj-
unum og Englandi. enn fremur
einum Svía. Norðurlandameist-
aranum Lars Iledlund og tveim-
ur íslendingum. óskari og
norðurhjaratröllinu svokallaða,
Artúri Bogasyni.
Oskar
meiddist
en stóð
þó vel að
vígi
Artúr gat ekki þekkst boðið,
en Óskar lét sig ekki vanta og
hafði náð næst besta saman-
lagða árangrinum þegar hann
varð fyrir fyrrnefndum meiðsl-
um. óskar jafnhattaði 185 kg og
lyfti síðan 325 kg í réttstöðulyft-
unni. Það var í jafnhöttuninni
sem hann meiddist, ýfði upp
gömul meiðsl.
Bill Kazimair frá Bandaríkj-
unum, heimsmeistari í kraftlyft-
ingum í yfirþungavigt, varð sig-
urvegari, jafnhattaði 170 kg, 380
kg í réttstöðuiyftu, en í þriðju
greininni, sem fólst í því að lyfta
55 kg lóði eins oft og kostur var
með annarri hendi, lyfti sá stóri
lóðinu 17 sinnum!
UMFN mætir Val í
undanúrslitunum!
DREGIÐ hefur verið til fjög-
urra liða úrslita i bikarkeppni
KKÍ. Að vísu er enn eftir einn
leikur í 8-liða úrslitum, leikur
Grindavíkur og KR, en sigur-
vegarinn úr þeim leik mætir ÍS
í Laugardalshöllinni á þriðju-
daginn klukkan 20.00.
Meiri stórleikur er þó viður-
eign Njarðvíkur og Vals í hinum
leiknum. Leikurinn fer fram í
Njarðvík á miðvikudaginn kl.
20.00. Lið þessi berjast sem
kunnugt er um íslandsmeistara-
titilinn og má því vænta hörku-
leiks.
Úrslitaleikurinn fer síðan
fram í Höllinni miðvikudaginn
19. mars. Þá var á dagskrá
úrvalsdeildarleikur Vals og KR,
en sá leikur hefur verið færður
fram til 17. mars. Er ljóst að
mikið mun mæða á KR-ingum
komist þeir í úrslitin, en þá
þurfa þeir að leika tvo erfiða
leiki á 3 dögum.
Auðveldur
sigur Frakka
FRAKKAR sigruðu Grikki í
vináttulandsleik í knattspyrnu
í París í fyrrakvöld, höfðu
Frakkar mikla yfirburði í
leiknum þrátt fyrir að margir
nýliðar væru í franska iiðinu.
Lokatölur leiksins urðu 5—1
fyrir Frakkland og skoruðu tveir
af nýliðunum mark í sínum
fyrsta iandsleik. Það voru þeir
Christopher og Stopyra. Fræg-
asti knattspyrnumaður Frakka,
Michel Platini var hins vegar
fremstur í flokki, skoraði tvíveg-
is og var maðurinn á bak við hin
mörkin þrjú. Dominique Bathen-
ay skoraði fimmta markið. Eina
mark Grikkja skoraði Thomas
Mavros.
Agúst skorar
og skorar
Ágúst Svavarsson er nú næst
markhæsti handknattleiks-
maðurinn í 2. deild i Vestur-
Þýskalandi.
- En Spenge er samt
í bullandi fallhættu
lR-ingurinn sterki, Ágúst Svav-
arsson, sem leikur með 2. deild-
ar liði Spenge í vestur-þýska
handknattleiknum. gerir það
gott, þó ekki sé hægt að segja
það sama um félagið. Spenge er
i bullandi fallhættu og tapaði
t.d. siðasta leik sinum fyrir
Dortmund 18—23.
Ágúst lætur slíkt hins vegar
lítið á sig fá og er yfirburða-
maður í liðinu. Hann skoraði 10
mörk af umræddum 18, aðeins 3
úr vítaköstum. Ágúst er nú
annar markhæsti leikmaður 2.
deildar, hefur skorað 117 mörk.