Morgunblaðið - 18.05.1980, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.05.1980, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1980 III. grein Þegar kom fram á árið 1940 var staða Breta ákaflega slæm, að ekki sé sterkara til orða tekíð — og hún átti eftir að versna. Winston Churchili var orðinn flotamálaráðherra en frið- þægingarstefna Chamberlains, forsætisráðherra og Halifax lá- varðar, utanríkisráðherra réð enn, þrátt fyrir stríðsyfirlýsingu. Raunar má segja að stríðsrekstur Bandamanna á þessum tíma, hafi verið að forðast bein átök við Þjóðverja. En þá ber líka að hafa í huga, að herir Bretlands og Frakklands voru mjög vanbúnir. Pólland féll, þegar kom fram á vorið féllu Noregur og Danmörk — ekkert virtist geta stöðvað hina þýzku stríðsvél. I maí 1940 réðust Þjóðverjar inn í Holland og Belgíu og þaðan inn í Frakkland. Ekkert stóðst fyrir þýzku leifturárásinni. Frakkar horfðu sljóum augum yfir Rín frá Maginot-línunni, sem endanlega átti að stöðva þýzka innrásarheri. Þjóðverjar hins vegar lögðu aldrei til atlögu við Maginot-línuna — þeir t óku sveig framhjá henni í gegn um Belgíu og Holland. Belg- ar höfðu byggt Eben Emael — virki 1932. Það átti að vera mikilvæg víglína gegn árás og var hugsað sem framhald Maginot- línunnar. Bygging virkjanna var gerð með hliðsjón af reynslunni frá í fyrri heimsstyrjöldinni. En árið 1940 voru aðrir tímar — þýzkir fallhlífarhermenn einfald- lega lentu á þökum þessara neðan- jarðarvirkja og köstuðu reyk- sprengjum inn um loftræstirör hinna rammgerðu virkja — belgískir hermenn streymdu í þús- undavís upp úr virkjunum með hendur fyrir ofan höfuð. Snilli Þjóðverja virtist eiga sér fá tak- mörk, en var von að Þjóðverjar vissu hvernig bezt var að vinna á Eben Emael-virkinu, sem hafði kostað Belga offjár — þýzkir verktakar höfðu unnið við bygg- ingu þeirra átta árum áður! Þjóðin snýr sér til Churchill Belgía féll — Holland féll — Frakkland féll og á fjórða hundr- uð þúsund brezkir hermenn voru strandaglópar í Dunkirk. Þjóðin snéri sér til Winstons Churchill til að leiða hana út úr þessum ógöngum. Fyrsta verkefnið var að bjarga hermönnunum frá Dunkirk eftir fall Frakklands. Hvert skip, hver bátur, hver einasta smákæna var notuð til að flytja brezka hermenn yfir Ermasundið. Það tókst að bjarga hermönnunum. 33.226 her- menn voru fluttir yfir Ermasund- ið. I brezkum blöðum var flóttinn kallaður „kraftaverkið við Dun- kirk“ en Churchill var ómyrkur í máli og sagði að Bretar hefðu beðið alvarlegan hnekki í baráttu sinni gegn nazismanum. Enn voru til menn í Bretlandi, sem vildu semja frið við Þjóðverja Heinz Guerdian, hershöfð- ingi — stjórnandi leift- urstríðs Þjóðverja inn í Frakkland, Holland og Belgíu. í forgrunni eru her- menn við dulmálsvél — taugamiðstöð leifturstríðs- ins. Guerdian vissi ekki að Bretar höfðu yfir slíkri dulmálsvél aö ráöa, og unnu sleitulaust, nótt og dag við aö lesa dulmál Þjóðverja, þó hægt gengi. Eben-Emael virkin. Þjóð- verjar lentu í fallhlífum á þaki þeirra og köstuöu reiksprengjum inn og hundruð Belga komu út meö uppréttar hendur. 'á tík-W W á Á ftm æ. if WILLIAM STEPHENSON Sir William Stephenson var yfirmaður leyniþjón- ustu Breta vestanhafs í sídari heimsstyrjöldinni. Leyniþjónusta hans teygði anga sína víðs vegar um heim. Hann var heiðraður af bæði Bretum og Bandaríkjamönnum fyrir störf sín í síðari heims- styrjöldinni. Sir William Stephenson er af íslenzku bergi brotinn, móðir hans var íslenzk. vegna þess að baráttan væri vonlaus. Þeirra á meðal var Hali- fax lávarður, sem enn var utan- ríkisráðherra. Hann lagði til að samið yrði nú, því betri samningar fengjust þá, en eftir 3 mánuði. Hægt yrði að semja um sjálfstæði Bretlands, sagði Halifax og Mússolíni var reiðubúinn að ger- ast milligöngumaður. Bretland átti að fá að halda sjálfstæði sínu. ítalir fengju Möltu í Miðjarðarhafinu og frjálst spil þar. Ef Bretar fettu ekki fingur út í hernaðarbrölt Þjóð- verja og ítala og gæfu þeim Mið-Austurlönd og Afríku eftir, þá væri hægt að tryggja frið. Þetta var tillaga Mússólínis. Hali- fax beitti sér fyrir þessu samkomulagi. „Hefði verið samið við Þjóðverja og ítali þá, hefði ekki liðið á löngu þar til barátta okkar gegn nazismanum hefði orðið and-brezk sagði Stephenson síðar. Stephenson til Bandaríkjanna „Þú veist hvað þú verður að gera. Við höfum rætt þetta frá öllum hliðum. Þú verður sérlegur fulltrúi minn í Bandaríkjunum. Og þú munt njóta þess valds og þeirra áhrifa, sem ég hef þar,“ sagði Churchill þegar hann bað Stephenson að fara til Bandaríkj- anna til að .afla stuðnings við málstað Breta þar og setja leyni- þjónustu á laggirnar. Stephenson vissi, að honum höfðu verið falin óvenjumikil völd og sjálfstæði. Hann átti að stjórna brezku leyni- þjónustunni í Bandaríkjunum og í rauninni miklu meira: Hann átti að ráðast gegn óvininum, hvenær, og hvar sem hann sá ástæðu til án þess að þurfa að ráðfæra sig við herráðið. Sárafáir áttu að fá vitneskju um hvers eðlis starf hans vestanhafs yrði. Churchill hafði raunar áður rætt um að senda Stephenson til Bandaríkjanna, þegar hann var flotamálaráðherra. „Við þörfn- umst gulls. Við eigum ekkert, vitið þið það,“ hafði hann sagt nánustu samstarfsmönnum sínum — bæði mönnum úr hernum, leyniþjónust- unni og eins þeim borgarlegu mönnum, sem voru reiðubúnir að starfa fyrir Bretland og sáu hætt- urnar sem að steðjuðu. Og Churchill hélt áfram: „Við þörfn- umst fylgis mesta iðnaðarveldis heims. Segið þeim, að við séum reiðubúnir að berjast. Við erum ekki gungur. Með guðs hjálp kann svo að fara að Bandaríkin komist hjá því, að stríðið komi að þrösk-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.