Morgunblaðið - 02.11.1980, Blaðsíða 17
17
Sjötugur á morgun:
Hörður Bjarnason
húsameistari
Á morgun fyllir fagurkerinn,
Hörður Bjarnason, húsameistari,
sjöunda tug ævi sinnar. Þar sem
Hörður dvelur nú erlendis og við,
vinir hans og samstarfsmenn,
náum ekki að ávarpa hann per-
sónulega á þessum tímamótum, vil
ég freista þess að senda honum
kveðju með þessum hætti.
Hörður Bjarnason er fæddur 3.
nóvember 1910 í Reykjavík, sonur
hjónanna Bjarna Jónssonar,
framkvæmdastjóra frá Galtafelli
og konu hans Sesselju Ingibjargar
Guðmundsdóttur.
Hörður, sem kominn er af list-
rænum meiði, haslaði sér réttilega
völl á sviði húsagerðarlistar.
Hann lauk námi í grein sinni frá
háskólanum í Dresden 1937, og hóf
störf í félagi við Sigurð Guð-
mundsson og Eirík Einarsson að
námi loknu. Árið 1938 hóf hann
störf sem fulltrúi skipulagsnefnd-
ar ríkisins og varð síðar skrif-
stofustjóri skipulagsnefndar.
Skipulagsstjóri ríkisins var hann
frá árinu 1944, er það embætti var
stofnað, til ársins 1954. Árið 1954
var hann skipaður Húsameistari
ríkisins og gegndi því starfi til
ársloka 1978.
Á farsælum starfsferli húsa-
meistarans hefur Hörður, með
sinni næmu smekkvísi, víða lagt
hug við hönd. Svo sem alþjóð er
kunnugt, er Hörður höfundur
margra sérstæðra og vandaðra
mannvirkja, sem hérlendis hafa
risið á undanförnum árum. Kirkj-
ur skipa þar heiðurssess, svo sem
Skálholtskirkja, Kópavogskirkja
og Langholtskirkja, enda hafa
kirkjubyggingar löngum verið
honum hugleiknar. Einnig má
minnast kapellunnar að Hrafns-
eyri, sem vígð var nú á sl. sumri.
Af veraldiegum byggingum má
t.d. benda á Nýja Bíó og Austur-
bæjarbíó í Reykjavík, Árnagarð á
lóð Háskóla Islands og aðalbygg-
ingu Kennaraháskóla Islands. Af
mörgu er að taka, þótt ekki verði
það rakið frekar að þessu sinni.
Að því er mig best minnir lágu
leiðir okkar Harðar fyrst saman
fyrir um 20 árum. Fór ég á hans
fund í erindum nemenda Mennta-
skólans í Reykjavík, en Hörður
beitti á þeim tíma áhrifum sínum
til góðs fyrir endurnýjun á húsa-
kosti félagsheimilisins íþöku.
Kynntist ég þá strax á okkar
fyrsta fundi þeim áberandi eigin-
Alexander
Kielland
snúið
Frá Jan Erik Lauré.
fréttaritara Mbl. í Osló 31. okt.
IIAFNAR eru tilraunir til að
koma íbúðarpallinum Aiexander
Kiclland á réttan kjöl á ný. Eins
og kunnugt er af fréttum hvolfdi
pallinum í mars sl. með þeim
afleiðingum að 123 létu lífið.
Búið er að draga pallinn inn á
fjörð scm er rétt utan fyrir
Stavanger. Talið er að það muni
taka eina viku að rétta hann af.
Pallinum verður snúið með loft-
og vatnsdælingu. Með því að dæla
lofti og vatni inn og út úr stoðum
pallsins og blása upp mjög stórar
blöðrur undir honum á að vera
hægt að snúa honum. Er því
verður lokið verður pallurinn
rannsakaður til að komast nánar
að því hvers vegna honum hvolfdi.
Enn er 30 manna saknað eftir
slysið og er búist við að hluti
þeirra finnist inni í pallinum.
Reiknað er með því að gert verði
við pallinn eftir að honum hefur
verið snúið. Eigendur hans hafa
hug á því að breyta honum í
borpall. Mörg olíufyrirtæki hafa
lýst áhuga á því að taka pallinn á
leigu.
leika hans, að vilja allra vanda
leysa. — Hvort sem jákvætt erindi
er smátt eða stórt, þá er Hörður
ávallt tilbúinn til að veita liðsinni
sitt.
Um átta árum síðar lágu leiðir
okkar saman á ný, þá er ég,
nýútskrifaður arkitekt, hóf störf
hjá Herði, og höfum við verið
nánir samstarfsmenn síðan. Þessi
samstarfsár hafa orðið mér jafnt
ánægjulegur sem gagnlegur
reynslutími. Hörður er smekk-
maður, listrænn, nákvæmur og
samviskusamur, svo sem verk
hans bera glöggt vitni um. Sem
yfirmaður hefur hann verið ein-
staklega mikils metinn af starfs-
mönnum, ekki síst vegna léttrar
lundar og vinsemdar. Ohætt er að
fullyrða, að alla tíð hefur góður
samstarfsandi fylgt Herði.
Auk starfa að skipulags- og
hönnunarmálum hafa hlaðist á
Hörð fjölmörg trúnaðarstörf, sem
beint eða óbeint hafa samtvinnast
hans aðalstarfi. Má þar m.a. geta
stjórnarstarfa í Skipulagsstjórn
ríkisins, framkvæmdastjórastarfa
fyrir Þingvallanefnd og störf við
undirbúning að ráðstefnum og
móttöku erlendra gesta. Hann
hefur um árabil haft með höndum
umsjón með byggingarfram-
kvæmdum á Keflavíkurflugvelli í
umboði utanrikisráðuneytisins og
sat um skeið í Varnarmálanefnd.
Hann gegndi formennsku í bygg-
ingarnefnd Þjóðleikhúss og átti
síðar sæti í Þjóðleikhúsráði. Hann
var formaður íslandsdeildar Nor-
ræns byggingadags (NDB) þar til
á þessu ári og svo mætti lengi
telja. Hann hefur verið sæmdur
stórriddarakrossi fálkaorðunnar
auk erlendra heiðursmerkja.
En það er fleira en starfið eitt,
sem gefur lífinu gildi. Já, það er
miklu fremur öll framganga
manna, meðal sinna nánustu og
annara samferðamanna, sem ber
vitni um mannkosti og lífsviðhorf.
Á hinum þersónulega vettvangi
hefur Hörður einnig verið gæfu-
maður. Þar hefur Katla verið
honum stoð og stytta, glæsileg
eiginkona, sem á farsælan hátt
hefur staðið honum við hlið.
Glöggt bera þess vitni börn þeirra
og heimili, vitni um einstaka alúð
foreldra og húsráðenda, svo og
virðuleika samfara eðlislægu lát-
leysi.
Ekki verður við þessar línur
skilið, án þess að getið sé þeirrar
sérstöku ánægju, sem í því felst að
sækja Kötlu og Hörð heim. Á
þeirra heimili er gestrisni og létt
lund í fyrirrúmi, og m.a. með
skoplegum frásögnum af liðnum
atburðum, hefur Hörður einstakt
lag á að örva hláturtaugarnar,
þannig að seint gleymist. Eg veit,
að margir verða til þess að taka
undir þau orð mín, Já, við missum
af góðu gamni þennan afmælis-
daginn". — Þótt kona mín og ég
höfum aðeins hin síðari árin haft
persónuleg kynni af Kötlu og
Herði, þá minnumst við nú þegar
margra ógleymanlegra stunda og
lítum fram á við til þeirra, sem
ókomnar eru.
Um leið og við Birna sendum
Herði okkar bestu afmæliskveðj-
ur, þá óskum við honum þess, að
hin létta lund víki ekki frá honum
um ókomin ár. Einnig óskum við
þess, að Katla og Hörður fái sem
best notið ávaxta þeirrar upp-
skeru, sem þau hafa á umliðnum
árum sáð til af natni og lipurð.
Fyrir hönd fyrrverandi starfs-
manna Harðar flyt ég honum
hugheilar afmæliskveðjur og þeim
hjónum árnum við ánægjulegrar
ferðar og farsællar heimkomu.
Garðar Halldórsson.
Hörður Bjarnason dvelst er-
lendis um þessar mundir. Hann
verður staddur á Omni Hotel,
Norfolk, Virginíu, Bandaríkjun-
um, á afmælisdaginn.
FASTEIGNIR
TIL SÖLU
Ákveðið hefur verið að selja eftirtaldar fasteignir úr
dánarbúi Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar
kaupmanns.
1. Álfheimar 74, Reykjavík 97,1%
af eigninni allri. í húsinu er
verslunar- og þjónustumiöstöö-
in Glæsibær. Stærð 30.760
rúmm. Eignin verður seld í einu
lagi eöa einingum.
2. Hringbraut 49, Reykjavík versl-
unarhúsnæði, stærö 176 rúmm.
3. Háteigsvegur 2, Reykjavík,
verslunarhúsnæði á 1. hæð,
20,7% af eigninni allri. Stærö
296 rúmm.
4. Ásgarður 22—24, Reykjavík
verslunarhúsnæði á 1. hæð,
22,6% af eigninni allri. Stærð
625 rúmm.
5. Álfheimar 72, Reykjavík,
geymsluhúsnæöi í kjallara,
24,5% af eigninni allri. Stærð
740 rúmm.
6. Laugavegur 82, Reykjavík. Á 1.
hæð er verslunarhúsnæði, en á
2. og 3. hæð eu fjórar íbúðir, auk
einnar óinnréttaðrar íbúðar á 4.
hæð. Stærð alls 2,175 rúmm.
Eignin veröur seld í einu lagi
eða einingum.
Óskað er eftir tilboðum í allar framangreindar eignir. í
tilboðunum skal greina kaupverð, útborgun á einu ári og
greiðslutíma eftirstöðva. Stefnt skal að því, að eftirstöðv-
ar kaupverðs verði bundnar lánskjaravísitölu.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Allar nánari upplýsingar veita undirritaðir.
Guðmundur Ingvi Sigurðsson, hrl.,
Laufásvegi 12, Rvík, sími 22505.
Jóhann H. Níelsson, hrl.,
Lágmúla 5, Rvík, sími 82566.
Sveinn Snorrason, hrl.,
Laufásvegi 12, Rvík, sími 22681.