Morgunblaðið - 02.11.1980, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.11.1980, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1980 PlOíCjp Útgefandi nUtafrft hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 5.500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 280 kr. eintakiö. Flugleiðamálið á lokastigi Flest bendir nú til þess, að Landsbankinn muni næstu daga taka ákvörðun um bráðabirgðaúrlausn til Flugleiða í kjölfar formlegra tilmæla frá ríkisstjórninni um það efni. Þar með yrði leyst úr brýnustu rekstrarfjárþörf fyrirtækisins næstu vikur. Jafnframt hafa umræður á Alþingi leitt í ljós, að vilji meirihluta Alþingis er sá, að veita fyrirtækinu ríkisábyrgð til þess að tryggja óhindraðan rekstur þess yfir vetrarmánuðina. Ætla verður því, að Flugleiðamálið sé að komast á lokastig og að niðurstaðan verði sú, að fyrirtækið fái þá aðstoð, sem á að duga til þess að koma rekstri þess á réttan kjöl og traustari grundvöll en verið hefur um skeið. Að vísu er rétt að hafa þann fyrirvara á, að Alþýðubandalagsmenn munu áreiðanlega reyna að flækjast fyrir eins og þeir framast geta og beita til þess öllum ráðum. Standi lýðræðisflokkarnir hins vegar saman um afgreiðslu málsins munu áform Alþýðubanda- lagsmanna um að koma fyrirtækinu á kné ekki takast. Síðustu daga hefur orðið fjaðrafok í þingsölum vegna umræðna í fjárhags- og viðskiptanefnd efri deildar. Ljóst er, að það hefur fyrst og fremst orðið vegna þess, að formaður nefndarinnar, Olafur Grímsson, hefur reynt að koma illu til leiðar. En menn, sem stunda slík vinnubrögð eru yfirleitt afhjúpaðir og svo er um Ólaf Grímsson í þessu tilviki. Ekki fer á milli mála að fyrr á þessu ári óskuðu Flugleiðir eftir því að lendingargjöld yrðu felld niður. Að öðru leyti hefur félagið ekki óskað eftir aðstoð til þess að halda Atlantshafsfluginu áfram. Þvert á móti tók fyrirtækið ákvörðun um að fella það niður og segja upp starfsfólki. Þetta er staðfest í forystugrein Tímans, málgagns Steingríms Hermannssonar, samgönguráðherra, í fyrradag, en þar segir: „Það þarf ef til vill ekki að endurtaka það, að Flugleiðir hf. hafa ekki farið fram á það, að ríkið tæki á sig kostnaðinn af Norður-Atlantshafsfluginu heldur að fyrirtækið fengi aðstoð til að halda uppi nauðsynlegustu flugsamgöngum innanlands sem utan. Það væri í samræmi við sumt annað í þessu landi ef nú færi svo, að þvaðrið um aðra hluti yrði til þess að þessi umleitan félagsins gleymdist þangað til reksturinn stöðvaðist." Þetta eru orð að sönnu hjá Tímanum. Flugleiðir óskuðu ekki eftir aðstoð til þess að halda Atlantshafsfluginu áfram. Ríkisstjórnir Islands og Luxemborgar tóku hins vegar ákvörðun um að bjóða fram aðstoð til þess að tryggja atvinnu þess fólks, sem við þetta flug hefur starfað. Um þetta atriði málsins er óþarft að deila. Ef ríkisstjórnum íslands og Luxemborgar er nú að snúast hugur í sambandi við Atlantshafsflugið er það að sjálfsögðu þeirra mái. Það þýðir auðvitað, að ekki verður um endurráðningar að ræða hjá Flugleiðum og flugið til Luxemborgar fellur niður. Nú skiptir mestu, að Alþingi komist að endanlegri niðurstöðu og afgreiði frumvarpið um málefni Flugleiða á þann hátt, að óhindraðar flugsamgöngur innan lands og milli landa verði tryggðar. Skapa þarf frið um starfsemi fyrirtækisins og stjórnendur þess þurfa að fá tækifæri til að einbeita sér að sjálfum rekstrinum og uppbyggingu félagsins á nýjan leik. Stjórnendur Flugleiða verða að gera sér grein fyrir því, að miklar kröfur verða gerðar til þeirra á næstu mánuðum og misserum. Þeir þurfa að takast á við það verkefni af einbeitni, festu og framsýni að tryggja rekstrargrundvöll fyrirtækisins. Þeir þurfa að draga úr öllum kostnaði við rekstur fyrirtækisins eins og framast er unnt. Þeir þurfa að leita nýrra leiða til þess að auka umsvifin í flugrekstri okkar íslendinga til þess að bæta upp þann samdratt, sem orðið hefur á Norður-Atlantshafi. Til þess að sinna þessum verkefnum þurfa stjórnendur Flugleiða að fá frið fyrir pólitískum deilum um stöðu fyrirtækisins og framtíð. Flugleiðamálið hefur snúizt um framtíð þessa fyrirtækis afkomu starfsfólks þess og flugsamgöngur innan lands og milli landa. En það hefur líka snúizt um einkaframtakið í atvinnu- rekstrinum. Flugið var í upphafi byggt upp af nokkrum dugmiklum, djörfum og framsýnum einstaklingum. Segja má, að það sé lýsandi dæmi um það hvers einstaklingsframtakið er megnugt. Ef sósíalistum tækist að koma fyrirtækinu á kné yrði það mikið áfall fyrir einkaframtakið í atvinnulífi okkar. Ýmislegt hefur mátt finna að rekstri Flugleiða og þjónustu við viðskipta- menn á undanförnum árum. En þau sjónarmið, sem hér hefur verið lýst hljóta að yfirgnæfa öll önnur. Þess vegna eiga menn að taka höndum saman um að verja fyrirtækið gegn tilraunum sósíalista til að koma því á kné — en jafnframt að gera miklar kröfur til stjórnenda þess í framtíðinni. Rey kj aví kurbréf Laugardagur 1. nóvember Alþýdu- sambandsþing Um þessar mundir eru 4 ár liðin síðan þing Alþýðusambands Is- lands var síðast haldið, enda kemur það að nýju saman síðar í þessum mánuði. A því fjögurra ára tímabili, sem liðið er milli þinganna, hafa tveir allsherjar- kjarasamningar verið gerðir í júní 1977 og nú fyrir tæpri viku. Rúmlega hálft ár leið frá gerð samninganna 1977, þar til rík- isstjórn Geirs Hallgrímssonar, sem vildi ekki gefast upp í viður- eigninni við verðbólguna, greip til efnahagsaðgerða, sem miðuðu að því að skerða verðbætur á laun. Þá reis verkalýðshreyfingin öndverð gegn öllum þeim aðgerðum. Nú gerist það í sömu andrá og kjara- samningar eru gerðir, að ráðherr- ar í ríkisstjórn, sem ekkert hefur aðhafst í baráttunni við verðbólg- una, láta í það skína, að þeir telji nauðsynlegt að skerða verðbætur á laun. Ætli ríkisstjórnin að standa við þau verðbólgumarkmið, sem hún setur sér í fjárlagafrum- varpi og þjóðhagsáætlun fyrir næsta ár, verður hún að skerða verðbætur á laun. Þessi ríkisstjórn hefur i orði sagst hlynt sem mestum áhrifum verkalýðshreyfingarinnar á stjórn landsins og í sáttmála hennar eru hátíðleg ákvæði um samráð. Hún segist einnig að þessu leyti starfa í anda svonefndra Ólafslaga, þar sem sérstakur kafli er um samráð- ið og á grundvelli hans var á sínum tíma gefin út reglugerð af forsætisráðherra um framkvæmd þess. Margt bendir til þess, að ýmsir verkalýðsforingjar huggi sig við slíkar yfirlýsingar en láti ekki á þær reyna, þegar skórinn kreppir. Það hlýtur að vera ský- laus krafa fulltrúa á Alþýðusam- bandsþingi, að ríkisstjórnin skýri þeim frá efnahagsaðgerðum þeim, sem hún hefur í hyggju, hvort sem til þeirra á að grípa fyrir 1. desember eða um áramótin eða í febrúar á næsta ári. Fyrir þingið ætti að sjálfsögðu að leggja hinar leyndardómsfullu hugmyndir efnahagsmálanefndar ríkisstjórn- arinnar. „Sólstödu- samningarnir" Fróðlegt er að rifja upp á þessum tímamótum helstu þætt- ina í kjarabaráttu ASÍ síðan 1976, þegar þing þess var síðast haldið. I því yfirliti, sem hér fer á eftir, er stuðst að verulegu leyti við yfirlit um þróun kjaramála, sem Hag- stofa Islands birtir reglulega í Hagtíðindum. 1. maí 1977 rann út aðalkjara- samningur milli Alþýðusambands Islands og samtaka vinnuveitenda frá febrúar 1976. Samningviðræð- ur hófust milli aðila í marsbyrjun 1977 og þeim lauk með undirskrift nýs kjarasamnings 22. júní 1977. Félög og samtök innan ASÍ fóru nýjar leiðir til að fylgja eftir kröfum sínum. Almennt yfir- vinnubann kom til framkvæmda 2. maí 1977 og stóð fram undir samningsgerð. Upp úr miðjum maí hófust stutt skyndiverkföll, sem tóku við hvert af öðru: verkföll einstakra félaga, verkföll heilla starfsgreina og verkföll bundin við einstaka landshluta. Hins vegar kom ekki til almennra ótímabundinna verkfalla. Nýr aðalkjarasamningur var undirritaður 22. júní 1977 (sól- stöðusamningarnir) og gilti hann til 1. desember 1978. Meðalhækk- un kauptaxta ásamt hækkun vegna sérkrafna er talin hafa numið 26—27%. Grunnkaups- hækkanir voru ákveðnar í krónu- tölu 1. desember 1977, 1. júní og 1. september 1978. Flókin ákvæði voru í samningnum um hækkun launa í samræmi við verðbótavísi- tölu. Strax við samningsgerðina kom það skýrt fram, að hér væru á ferðinni verðbólgusamningar. Samhliða kauphækkuninni hét ríkisstjórnin að beita sér fyrir ýmsum félagslegum aðgerðum. Febrúar- lögin 1978 Ríkisstjórn Geirs Hallgríms- sonar hafði náð verðbólgunni niður í 26% fyrir „sólstöðusamn- ingana". Spá manna um verð- bólguhvetjandi áhrif þeirra rætt- ust og ekki dró úr hraða verðbólg- unnar eftir samninga ríkisins og BSRB haustið 1977. Á vegum ríkisstjórnarinnar var starfandi svonefnd verðbólgunefnd, þar sem sátu fulltrúar allra stjórnmál- aflokka og helstu hagsmunasam- taka. Þessi nefnd sendi frá sér ítarlegt álit í febrúar 1978 og þar gerðu stjórnarsinnar í henni, sjálfstæðismenn og framsóknar- menn, ásamt helstu efnahagsráð- gjöfum ríkisstjórnarinnar tillögu um efnahagsaðgerðir, jafnframt komu fram fleiri sjónarmið. I febrúar lagði ríkisstjórnin fyrir Alþingi frumvarp um ráð- stafanir í efnahagsmálum. í upp- hafi athugasemda með frumvarp- inu sagði, að nýafstaðin 13% lækkun á gengi krónunnar hefði verið ákveðin í þeim tilgangi að afstýra rekstrarstöðvun fyrir- tækja í helstu útflutningsatvinnu- vegum og þar með atvinnuleysi. Um ráðstafanir þær, sem fælust í frumvarpinu, sagði, að þeim væri ætlað að hamla gegn verðbólgu og stuðla að betra jafnvægi í efna- hagsmálum. Væri sýnt, að ef stefna ætti að því að ná tökum á verðbólguvextinum þegar á árinu 1978, væri ekki um annað að ræða en draga úr víxlgangi verðlags og launa með því að takmarka nokk- uð þær kauphækkanir, sem leiddu af gildandi kjarasamningum, enda væru önnur úrræði of seinvirk og hefðu í för með sér hættu á atvinnubresti. Með frumvarpinu var ákveðið, að 1. mars, 1. júní, 1. september og 1. desember 1978 skyldu verðbætur á laun hverju sinni hækka sem svarar helmingi þeirrar hækkunar á verðbótavísi- tölu og verðbótaauka, sem Kaup- lagsnefnd reiknaði samkvæmt ákvæðum kjarasamninga, að hefði átt sér stað síðustu þrjá mánuði. Samhliða þessari helmingslækkun á verðbótum var ákveðið að milda niðurskurðinn á lægstu launum. Harkaleg vidbrögd Launþegasamtökin snerust gegn efnahagsráðstöfunum febrú- arlaganna af mikilli hörku. Kjör- tímabilið var að renna út og þetta vor fóru bæði fram sveitarstjórn- arkosningar og alþingiskosningar. Stjórnarandstöðuflokkarnir, Al- þýðubandalag og Alþýðuflokkur, beittu sér mjög innan verkalýðs- hreyfingarinnar og vildu sem harðastar aðgerðir gegn ríkis- stjórninni. Launþegasamtökin stofnuðu til vinnustöðvunar dag- ana 1. og 2. mars 1978. Giskað er á, að 60—70% félagsmanna í ASÍ í Reykjavík og nágrenni hafi tekið þátt í þessum aðgerðum. Var þátttakan mjög mismikil eftir stéttarfélögum, mest hjá Dags- brúnarmönnum, en tiltölulega lítil hjá Iðjufólki, svo að dæmi séu nefnd. Næsti þáttur í aðgerðum þess- um, sem efnt var til undir kjörorð- inu „Samningana í gildi", var verkfall við útskipun útflutnings- afurða, sem hófst um miðjan apríl 1978 og tók til Reykjavíkurhafnar og fleiri hafna annars staðar í landinu. Á tímabilinu 11. maí til 15. júní 1978 var í gildi bann á affermingu olíu- og bensínskipa, sem komu til landsins, en vegna undanþága var lítil sem engin truflun á olíu- og bensíninnflutn- ingi. í seinni hluta maí 1978 ákváðu mörg verkamannafélög al- mennt yfirvinnubann að tilstuðlan Verkamannasambands íslands, en það var afturkallað áður en það skyldi koma til framkvæmda. Eins og áður sagði höfðu febrú- arlögin að geyma ákvæði, sem milduðu skerðingu verðbóta á lægstu laun. Hinn 24. maí 1978 voru sett bráðabirgðalög um breytingu á febrúarlögunum. í inngangsorðum laganna sagði, að „brýna nauðsyn beri til að breyta nú þegar lögum nr. 3/17. febrúar 1978 um ráðstafanir í efnahags- málum til þess að tryggja hag þeirra, sem lægst laun hafa, og greiða þannig fyrir lausn á vinnu- deilu þeirri, er nú stendur milli samtaka launþega og vinnuveit- enda og vaida mun alvarlegri röskun á framleiðslustarfsemi í landinu, ef ekki leysist." Vísan til vinnudeilna í þessu samhengi byggðist á því, að samhliða mót- mælaaðgerðum launþegasamtaka gegn ríkisstjórn og Álþingi, fóru fram viðræður milli aðila vinnu- markaðarins, þar sem stéttasam- tök kröfðust þess, að vinnuveit- endur greiddu fullar verðbætur samkvæmt kjarasamningum. Þær viðræður leiddu ekki til samkomu- lags. Með bráðabirgðalögunum í maí var sett „þak“ á verðbætur á laun, þannig að launþegar undir ákveðnu launamarki fengu fullar verðbætur, en hinir sem fyrir ofan voru fengu krónutöluhækkun en ekki hlutfallslega launahækkun. Kosningar Þannig stóðu þessi mál, þegar nýr meirihluti vinstri manna tók við völdum í borgarstjórn Reykja-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.