Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.11.1980, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK 261. tbl. 68. árg. LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Owen úr skugga- ráðuneyti Lundúnum, 21. nóvember. AP. DAVID Owen, íyrrum utanrik- isráðherra í stjórn James Call- aghans, lýsti þvi yfir í dag. að hann myndi ekki fara fram á endurkosninjfu í skuggaráðu- neyti Verkamannaflokksins. Hann sagði í bréfi til kjósenda sinna i Devonport, að ályktanir á flokksþingi Verkamanna- flokksins um einhliða kjarn- orkuafvopnun ok úrsögn úr EBE væri óaðgengilegt fyrir sig. „Ég tel, að ég þjóni best málstað mínum mcð því að vera ekki í skuggaráðuneyti flokksins," sagði hann i bréfi sínu. David Owen er einn helsti leiðtogi hins hægfara arms Verkamannaflokksins. Hann er talsmaður flokksins í orkumál- um og það er einmitt sú staða, sem hann mun ekki sækjast eftir þegar þingmenn kjósa skuggaráðuneytið þann 4. des- ember næstkomandi. Akvörðun Owens lýsir gjörla hinum djúp- stæða ágreiningi sem nú ríkir í Verkamannaflokknum. Orðrómur hefur verið uppi um, að Owen muni segja sig úr flokknum og framtíðin ein sker úr um það. Hins vegar lýsti William Rogers, einn helsti stuðningsmaður David Owens því yfir í dag, að hann myndi sækjast eftir útnefningu flokks- ins í skuggaráðuneytið, þrátt fyrir djúpstæðan ágreining við stefnuskrá Verkamannaflokks- ins. Þá hefur Tony Benn, einn helsti leiðtogi vinstri arms flokksins, lýst því yfir, að hann muni sækjast eftir útnefningu í skuggaráðuneyti Michael Foots, Glæsihótel í Las Vegas breyttist í logandi víti Símamynd AP Á aðeins io minútum (yiitist hóteiið af reyk. Gestir leita undan reyknum. Sumir stukku til bana. 75 manns að minnsta kosti biðu bana og 300 slösuðust Las Vegas, 21. nóvember. AP. AÐ MINNSTA KOSTI 75 manns biðu bana þegar eldur kviknaði í einu stærsta og glæsilcgasta hóteli veraldar — MGM-hótelinu i Las Vegas. Eldurinn kom upp í kjallara hótelsins og innan 10 mínútna hafði kæfandi reykurinn borist um allar ha'ðir hótelsins — 26 að tölu. Að minnsta kosti 300 manns slösuðust. Engin viðvörun var send út til gesta og eldvarnatæki voru ekki til staðar. Flestir þeirra, sem biðu bana, köfnuðu á cfri hæðum hússins — þar sem slökkviliðsmenn náðu ekki til, en stigar þeirra náðu aðeins upp á 9. hæð hússins. Um 8000 gestir dvöidu í hótelinu þegar eldurinn kom upp. „Þetta var skelfilegt — eins og logandi víti,“ sagði einn hótelgesta. Mikil skelfing greip um sig meðal gesta. Nokkrir stukku út um glugga og biðu bana en flestir hinna látnu köfnuðu. „Þetta er versti hótelbruni í sögu Las Vegas,“ sagði Roy Parrish, slökkviliðsstjóri borgarinnar, við fréttamenn. Skelfingu lostnir gest- ir fóru upp á þak hússins og þar björguðu þyrlur þeim. Fjölmargir héngu utan á húsinu, stóðu í gluggum hótelsins og stóðu á svöl- um. „Stökkvið ekki — stökkvið ekki,“ var kallað úr hátölurum úr þyrlum, til fólksins þar sem það hallaði sér út um glugga, lá utan á svölum og eins gluggum til að forðast kæfandi reykinn. Hundruð gesta streymdu út um aðaldyr hótelsins, ráfuðu út, ber- fættir og illa til reika. „Ég sá fólk hlaupa út — skelfingu lostið,“ sagði einn sjónarvotta. „Þet,ta var skelfi- legt — fólk ráfaði um ganga og vissi ekki til hvaða ráða bæri að grípa. Engar viðvaranir bárust — símar voru óvirkir. Fólk vissi ekki sitt rjúkandi ráð — né hvað í raun var að gerast," sagði einn gesta sem bjargaðist. Irakar láta undan síga við Susangerd Ba^dad. Teheran. 21. nóvember. AP. EFTIR sjö daga harða bardaga um hina hernaðarlega mikilva'gu borg. Nýr aðstoðarforsætisráðherra í Póllandi: Kaþólikki skipaður og 3 ráðherrar settir af Varsjá, 21. nóvember — AP. PÓLSKA þingið samþykkti í dag útnefningu Jerzy Ozdowski, kunns kaþólikka, í stöðu aðstoðarforsætisráðherra í Póllandi. Ozdowski fer með félags- og fjölskyldumál. bá voru þrír ráðherrar settir af og afsögn hins fjórða staðfest af þinginu. Ozdowski er fyrsti leiðtogi kaþólikka sem fær jafn ábyrgðarmikið starf í Póllandi og raunar allri austurblokkinni. Kaþólikkar hafa að vísu gegnt ráðherraembættum en aðeins meðlimir í kommúnistaflokknum hafa náð slíkum áhrifastöðum. Ozdowski mun ekki vera meðlimur í pólska kommúnistaflokknum. Hann er hagfræðing- ur að mennt. 55 ára gamall. Ozdowski hlaut áheyrn hjá Jó- hannesi Páli II páfa í síðustu viku. Breytingar á stjórninni eru hinar fjórðu sem gerðar hafa verið á þessu ári. Marion Sliwinski, heil- brigðismálaráðherra mun hafa sagt af sér embætti, en hins vegar voru þeir Marian Milczarak, verkalýðs- málaráðherra, Edward Barszcz, byggingarmálaráðherra og Macjeij Wirowski, ráðherra án ráðuneytis, settir af að tillögu Jozef Pinkowski, forsætisráðherra. í febrúar síðast- liðnum var Pi#tr Jaroszewicz settur af sem forsætisráðherra og við tók Edward Babiuch. Hann var rekinn í ágúst síðastliðnum. í byrjun sept- ember var Edward Gierek settur af sem leiðtogi flokksins og við tók Stanislaw Kania, og Jozef Pink- owski tók við embætti forsætisráð- herra. Fjörugar umræður voru á pólska þinginu. Harðri gagnrýni var beint gegn Edward Gierek, fyrrum leið- toga kommúnistaflokksins, og efna- hagsmálastefnu flokksins. I miðj- um umræðum um stöðugt versn- andi efnahagsástand í landinu spurðust fregnir út, að járnbrautar- starfsmenn hótuðu verkfalli á mánudag ef ekki verði gengið að kröfum þeirra. Það hefur vakið athygli að nokkr- ir þingmenn hafa lagst gegn tillög- um stjórnarinnar um úrbætur í efnahagsmálum — slíkt hefði verið óhugsandi fyrir ári. Þá mættu tillögur Pinkowski um brottrekstur Milczarsk andstöðu — 9 greiddu gegn því og 15 sátu hjá. Þá greiddu 15 þingmenn atkvæði gegn skipan nýs ráðherra án ráðuneytis og 33 sátu hjá. Hins vegar skýrði PAP- fréttastofan pólska ekki frá hve margir þingmenn hefðu stutt tillög- Susangerd. virðist sem sókn Íraka i átt að borginni haíi fjarað út. Bardagar um borgina hafa verið mjög harðir og mannfall verið mikið á báða bóga. Um síðustu helgi voru bardagar sérlega harðir — sennilega harðvitugustu átök striðsins og mannfall mikið á báða bóga. Susangerd er um 30 kílómetra frá landamærum ríkjanna. Hún er helsta hindrun íraka í sókn í átt að Ahwaz, höfuðborg Khuzestanhéraðs. Bandariska sjónvarpsstöðin ABC skýrði frá því í dag, að Saudi-Arabar leyfðu nú hergagnaflutninga um land sitt til írak. Mikið magn vopna og skotfæra hefði verið flutt um saudi-arabískt land síðustu daga. ABC bar fyrir sig leyniþjónustu- heimildir og ef rétt reynist, þá er þetta í fyrsta sinn, að Saudi-Arabía tekur beinan þátt í að aðstoða íraka í stríðinu við írani. Fréttastofan sagði, að nú væru um 12 skip, sem væru að lesta hergögn við Rauðahaf- ið. Hergögnum þessum er ekið um Saudi-Arabíu og Jórdaníu til íraks. íranir héldu því fram í dag, að þeim hefði tekist að hrekja herlið írana frá mikilvægri borg á norður- vígstöðvunum. Pars-fréttastofan ír- anska sagði, að herlið írana hefði hrakið innrásarheri íraka frá borg- inni Gilan Gharb en hún er tæplega 70 kílómetra frá Qar-el-shirin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.