Morgunblaðið - 25.08.1981, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 25.08.1981, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1981 25 LjÓNm.: Kristján Einarsson. iirnar á einum leikmanni Nigeríu og vítaspyrna var dæmd. erfiðar aðstæður Tvö mörk og misnotuð vítaspyrna Það virtist ekki blása byrlega fyrir íslenzka landsliðinu í leik- hléi, að hafa aðeins náð eins marks forskoti undan rokinu og bjuggust menn því við miklum barningi síðari hálfleikinn. En svo var ekki, vindinn hafði heldur lægt og það virtist sem íslending- um gengi betur að byggja upp sóknarleikinn gegn vindinum. Þegar á 46. mínútu skallaði Pétur rétt framhjá eftir góða sendingu Lárusar. Pétur var svo aftur á ferðinni augnabliki síðar er hann fékk stungu frá Magnúsi, lék inn í vítateiginn þar sem Nígeríubúi náði af honum knettinum, að því er virtist á löglegan hátt, en Pétur féll og Eysteinn dæmdi víta- spyrnu. Marteinn Geirsson, fyrir- liði, tók spyrnuna, en markvörður Nígeríu varði glæsilega, en virtist hafa hreyft sig of snemma, án þess að dómarinn gerði athuga- semd við það. Á 63. mínútu átti Árni hörkuskot í stöng og þaðan hrökk knötturinn til Lárusar, sem var óvaldaður á markteig, en honum mistókst illa í þessu upp- lagða færi og sendi knöttinn framhjá. Lárus bætti síðan fyrir mistökin 2 mínútum síðar er hann skoraði fallegt mark með skalla eftir fyrirgjöf Péturs og átti markvörðurinn enga möguleika á að verja. Á 70. mínútu skapaðist eina hætta leiksins við íslenzka markið, er Nígería náði hraðaupp- hlaupi og tveir leikmenn voru á móti Marteini einum, en það nægði þeim ekki því skot þeirra var máttlaust og auk þess fram- hjá. Á 72. mínútu kom svo þriðja og síðasta mark leiksins er Mart- einn bætti fyrir mistök sín og skoraði úr annarri vítaspyrnu íslenzka liðsins, sendi knöttinn í mitt markið, en markvörðurinn hafði kastað sér í sama horn og áður. Þetta víti var dæmt á varnarmann fyrir að verja skot Lárusar af stuttu færi með hönd- um á marklínu. Þrátt fyrir nær linnulausa sókn islenzka liðsins urðu mörkin ekki fleiri og Nígeríumenn héldu áfram að verj- ast svo úrslit urðu eins og áður sagði, 3:0 íslendingum í vil. 5 leikmenn léku sinn fyrsta opinbera landsleik. Eins og áður sagði er erfitt að dæma frammistöðu islenzka liðs- ins af þessum leik til þess voru aðstæður of erfiðar og mótspyrna Nígeríumanna allt of lítil. Liðið virðist þó vera á réttri leið og oft brá fyrir laglegum samleiksköfl- um og vörnin var örugg. Þá er það ánægjulegt að að þessu sinni léku 5 leikmenn sinn fyrsta opinbera landsleik, þeir Guðmundur Bald- ursson, Ólafur Björnsson, Sigurð- ur Lárusson, Ragnar Margeirsson og Ómar Torfason og komust þeir allir vel frá leiknum. Beztan leik að þessu sinni áttur Pétur Ormslev, Lárus Guðmundsson og Marteinn Geirsson. Geta Nígeríumanna verður heldur ekki dæmd af þessum leik, til þess voru aðstæður þeim allt of erfiðar og að þeirra sögn hafa þeir aldrei leikið knattspyrnu í veðri sem þessu. Þeir voru þó tiltölulega ánægðir, enda var þessi ferð farin til að kynnast hinum ýmsu að- stæðum og knattspyrnu sem flestra þjóða. Það er varla hægt að taka nokkum leikmanna þeirra út úr hópnum sakir getu, en þó bar mest á leikmönnum númer 6, 4 og markmanninum, sem hafði nóg að gera. Eysteinn Guðmundsson dæmdi leikinn og gerði það þokkalega, þó að hann stöðvaði hann stundum full oft. Honum til aðstoðar voru Grétar Norðfjörð og Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson. tslenzka liðið var þannig skipað: Guðmundur Baldursson (Þor- steinn Bjarnason), Viðar Hall- dórsson (ólafur Björnsson), örn Óskarsson, Sævar Jónsson, Mart- einn Geirsson, Pétur Ormslev, Magnús H. Bergs, Lárus Guð- mundsson, ómar Torfason (Sig- urður Lárusson), Sigurlás Þor- leifsson (Ragnar Margeirsson) og Árni Sveinsson. Áhorfendur voru 1130. HG Hörð keppni um að komast í liðið: Spjallað við fyrirliða Breiðpbliks og markakóng Islandsmótsins LÍTIÐ HEFUR verið fjallað um kvennaknattspyrnuna í fjölmiðlum í sumar, og til að gera bót hér á, rabhaði Mbl. við fyrirliða Breiðabliks og markakónginn i ár. sem einnig er úr Breiðablik. Þær voru eldhressar stöllurnar, Rósa Áslaug Valdimarsdóttir fyrirliði og Ásta B. Gunnlaugsdóttir markaskorari. þótt fimm minútur væru til leiks, en það vill oft brenna við að iþróttamenn séu ekki við mælandi rétt áður en átökin hef jast, ýmist vegna taugaspennu eða einbeitni. „Við urðum fyrst öruggar með íslandsmeistaratitilinn eftir leiki í síðustu viku,“ sagði fyrirliðinn, er við spurðum hvort Breiðablik væri með það yfirburðalið sem af væri látið. Stúlkurnar höfðu um- talsverða yfirburði í kvennabolt- anum, töpuðu aðeins einu stigi í 14 leikjum, hlutu 27 stig en næsta félag hlaut 22 stig. „Þetta var anzi erfitt," bætti markaskorarinn mikli við. Ásta skoraði 33 mörk í leikjum sínum, þar af eitt í siðasta leiknum. Háði skorun væri. En því má bæta við, að Ásta er sprettharðari en and- stæðingarnir og kemur það henni mjög til góða. Skoraði Ásta sér- staklega skemmtilegt mark í síð- asta leiknum. Þær stöllurnar, Rósa og Ásta, sögðu að mikil stemmning og góður andi ríkti í Breiðabliks- hópnum. Hópurinn sem kepptist um að komast í keppnisliðið hefði lagt mikið á sig i vetur, strangar æfingar hefðu byrjað skömmu eftir áramót, og væri árangurinn í Ásta B. Gunnlaugsdóttir Rósa Áslaug Valdimars- markakóngur dóttir hún lengi keppni um markaskor- aratitilinn við Laufeyju Sigurðar- dóttur af Akranesi, sem skoraði 30 mörk. „Ég fæ svo rosalega góða stungubolta," sagði Ásta og brosti sínu breiðasta þegar hún var spurð að því hver leyndardómur- inn á bak við hina miklu marka- sumar uppskera erfiðisins. Jafnan kepptu 24 stúlkur um að komast í liðið, og segði það sig sjálft að keppnin um að komast í lið væri mikil. Sögðu þær að jafnan hefði verið æft þrisvar til fjórum sinn- um í viku, og mikill tími farið í æfingar og keppni. Hefði aðeins verið ein helgi í allt sumar, sem frí Kvennaknattspyrnan: Breiðabliksstúlkur íslandsmeistarar hefði gefist frá keppnisleikjum, en þegar bikarkeppnin var í gangi var jafnan leikið tvisvar í viku. Rósa og Ásta sögðu, að stúlk- urnar sem mynduðu kjarnann í liðinu, hefðu flestar byrjað að leika knattspyrnu 1977. Rósa hefði reyndar byrjað áður, og þá leikið og æft með strákunum. „Þetta er rétt að fara af stað hér á landi, íþróttin er ung og því koma ennþá fáir áhorfendur á leiki," sögðu stúlkurnar er þær voru spurðar um aðsókn að leikj- um í kvennaflokki. „Það koma alltof fáir,“ vildu þær meina, yfirleitt kæmu þó fleiri áhorfend- ur á þeirra leiki en hjá öðrum, og áhorfendum færi fjölgandi. „Þeim fjölgar stöðugt stúlkun- um, sem stunda knattspyrnuna," sagði Rósa. Hún sagði að fleiri félög tefldu fram kvennaliðum með ári hverju. Margar stúlkn- anna stunduðu aðrar íþróttir jafn- framt, t.d. handknattleik á vet- urna. Meðalaldurinn í liði Breiða- bliks væri líklega 18 til 19 ár, stúlkurnar væru á aldrinum 14 til 24 ára. Er þær stöllurnar voru að því spurðar, hvort knattspyrnan væri ekki hálfgerð „karlaíþrótt, höfðu þær svörin á reiðum höndum: „Við erum nú búnar að spila t.d. bæði handbolta og fótbolta, og ég mundi ráðleggja þeim sem sækj- ast eftir hasar og slagsmálum að fara í handbolta. Menn fá ekkert að gera inn á knattspyrnuvellin- um, það er ekkert leyft. Ef menn sýna einhver tilþrif í þá veru þá geta þeir fengið gult spjald af minnsta tilefni, því reglurnar eru miklu harðari í knattspyrnu en handbolta. Menn eru jafnan í návígi og slá frá sér í handbolta, en það á miklu síður við knatt- sjjyrnuna," sögðu þær Rósa og Ásta. Að Iokum hættum við okkur inn á þá hálu braut, að spyrja þær stöllumar hvernig þeim fyndist fjölmiðlarnir hafa fjallað um kvennaboltann, og var þá eins og flóðgáttir væru opnaðar, blaða- maður vissi vart hvaðan á sig stóð veðrið, en sjálfsagt hafa þær haft mikið til síns máls, er þær sögðu: „Það er aldrei neitt um kvenna- boltann í Mogganum, ekki neitt, og það er alveg skammarlegt. Hann er alveg glataður, að ein- hver skuli kaupa þetta blað.“ Breiðabliksstúlkur urðuís- landsmeistarar i kvennaknatt- spyrnu 1981 cr þær sigruðu Víking 4—0 í Kópavoginum á föstudagskvöld. Illaut Breiðablik samtals 27 stig i 14 leikjum, skoraði 72 mörk en fékk á sig 100 þúsund króna tap VERULEGT fjárhagslegt tap varð af heimsókn Nigeriumanna hingað til lands þar sem aðeins 1.130 áhorfendur greiddu að- gangseyri að landsleik þeirra við Islendinga. Að sögn gjaldkera KSÍ, Frið- jóns B. Friðjónssonar. mun tapið nema um 100 þúsund krónum og er þar með farinn allur hagnaður af komu enska 1. deildariiðsins Manchester City. átta. í öðru sæti varð IA með 22 stig, Valur í þriðja með 19 stig, en Valsstúlkurnar eiga einn leik eftir, gegn KR, sem er í fjórða sæti með 14 stig. Átta kvennalið léku í deildinni í sumar. Markakóngur mótsins varð Ásta B. Gunnlaugsdóttir sem leik- ur í framlínu Breiðabliks, skoraði alls 33 mörk, eða tæpan helming marka Breiðabliks. Skoraði Ásta gullfallegt mark í síðasta leiknum. Breiðabliksstúlkurnar höfðu mikla yfirburði í leiknum gegn Víkingi, leikurinn fór nánast allur fram á vallarhelmingi Víkings. í hálfleik var staöan 3—0, Breiða- blik í vil. Léku Breiðabliksstúlk- urnar oft skemmtilega knatt- spyrnu. Þær hafa flestar góða knattmeðferð, gott auga fyrir samspili og eru útsjónarsamar. Meiri byrjendabragur var á Vík- ingsliðinu. Markvörður Víkings bjargaði liði sínu frá stærra tapi, varði oft skemmtilega. Lokastaðan í 1. deild kvenna í knattspyrnu Lokastaðan í 1. deild kvenna varð þessi: Breiðablik 14 13 1 0 72-8 27 ÍA 14 11 0 3 63-18 22 Valur 13 9 1 3 54-11 19 KR 13 6 2 5 31-20 14 FH 13 4 2 7 20-39 9 Víkingur 14 3 3 8 8-39 9 Leiknir 13 1 2 10 3-64 4 Víðir 14 1 1 12 9-59 3 Leikur Vals og KR er ekki í töflunni og ekki leikur FH og Leiknis. Markahæstar í mótinu voru Ásta B. Gunnlaugsdóttir UBK með 33 mörk og Laufey Sigurðar- dóttir í A með 30 mörk. f

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.