Morgunblaðið - 26.08.1981, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.08.1981, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1981 Ahugi á siglingaíþróttinni er að aukast verulega hér á landi .mgiSMiim 'úl ÁHUGI á sijílinjfum er að aukast verulega hér á landi. Smátt ok smátt fjöljíar iðkendum iþróttarinnar, og siglinKaklúbbar starfa nú i Reykjavik. Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Akureyri. íslandsmót fer fram i sÍKlingum ok um siðustu heÍKÍ fór fram kappsÍKlinK á Faxaflóa, eins ok skýrt hefur verið frá. Hér á eftir fer Krein um hvernÍK sÍKÍinKamennirnir útbúa sík og hvaða teKundir báta eru helst notaðir i sÍKlinKakeppnum hér á landi. Allir eru klæddir í björKunar- vesti ok ef einhver brýtur þá reglu er hann sama sem búinn að missa f mannorðið. Einnig eru flestir í V blautbúningum sem halda mjög vel að manni hita ef maður blotnar. Þeir sem ekki eiga slíka búninga klæðast ullarfötum frá toppi til táar. Það er mikill misskilningur um það hvernig bátar það eru sem siglt er á. Flestir halda að þetta séu gamlir súðbyrðingar sem vega tonn eða meira og með segli allt frá vík- ingatímanum sem hefur verið bætt með gömlu laki sem fékkst gefins frá mömmu vegna þess að það var orðið ónothæft á rúmin. Þetta er mesti misskilningur. Þróunin er svo ör að þessir bátar urðu úreltir fyrir síðustu heims- styrjöld. Flestar kænur sem nú eru í notkun eru byggðar úr trefjagleri og krossvið og vega flestar 50—100 kílógr. Seglin eru saumuð úr seglaefni sem húðað er með efnum til að gera þau vel vindþétt. Byggingarlagið er einnig allt öðruvísi en á blessuðum súð- byrðingunum. Helstu tegundir báta sem not- aðir eru hér á landi eru eftirtald- Þess má geta að allir þessir bátar eru þannig útbúnir að ekki á að vera möguleiki að sökkva þeim þó þeir fyllist af sjó. Keppnir á kænum fara aðallega fram þannig að sigldur er þrí- hyrningur, pulsa þríhyrningur svokallaður. Er þá notuð sama braut eins og keppt er á á Olympíuleikunum. Þrem baujum er raðað þannig að tvær þeirra mynda stefnu beint upp í vindinn sé dregin lína á milli þeirra. Þeirri þriðju er stillt þannig að hún sé ca. 45° frá þeim báðum. Fyrst er siglt út fyrir allar þrjár, síðan út fyrir þær tvær fyrrtöldu og að lokum aftur út fyrir allar þrjár og komið í mark við þá bauju sem næst er vindinum. Þeir sem áhuga hafa á að stunda siglingasportið geta sett sig í samband við formenn sigl- ingaklúbbanna sem eru í bæjarfé- lögum í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og á Akur- eyri einnig er nýbúið að stofna klúbb á Seltjarnarnesi. U ; • Atli Eðvaldsson, Borussia Dortmund, leikur með islenska liðinu í kvöid gegn Dönum. Aðrir atvinnumenn i liðinu verða þeir örn óskarsson og Magnús Bergs. Atli fékk leyfi á siðustu stundu. Topper bátur fyrir yngri kyn- slóðina, vegur aðeins um 50 kg. Hann er eins manns og hefur eitt segl. Laser er svipaður bátur nema hann er byggður úr trefjagleri en Topper er úr plasti. Hann einnig eins manns og með eitt segl en meiri hæfni þarf til að sigla þeim bát. Fireball er tveggja manna byggður úr krossvið og vegur hann um 80 kg. Hann er útbúinn tveimur aðalseglum þ.e. fokku og stórsegli og síðan einu belgsegli sem notað er þegar siglt er undan vindi. Flipper er einnig tveggja Borðtennis fatlaðra VEGNA Reykjavíkurviku héldu /Eskulýðsráð Reykavfkur og fþ- róttafélag fatlaðra í Reykjavik horðtennismót fatlaðra. miðviku- daginn 19. ágúst i nýju Félags- miðstöðinni í Árbæ. Úrslit urðu þcssi: Standandi flokkur karla. 1. Einar Malmberg. 2. Óskar Benediktsson. 3. Haraldur Karlsson. Standandi flokkur kvenna. 1. Guðbjörg Kr. Eiríksdóttir. 2. Kristín Halldórsdóttir. 3. Helga Bergmann. Sitjandi flokkur karla. 1. Siggeir Gunnarsson, 2. Gestur Guðjónsson. Sitjandi flokkur kvenna. 1. Elsa Stefánsdóttir. 2. Elísabet Vilhjálmsson. Opinn flokkur. 1. Einar Malmberg. 2. Elsa Stefánsdóttir. 3. Guðbjörg Kr. Eiríksdóttir. Dómari var Tómas Sölvason. • Siglingaiþróttin er vinsæl meðal unga fólksins. manna þrísegla en hann er byggð- ur úr trefjagleri. Hann vegur um 70 kg. Wayfarer er einna stærsta kænan sem hér er til. Hann er byggður úr trefjagleri og er allt að 5—6 manna. Hann er þrísegla og mjög hentugur sem fjölskyldubát- Mirror er tveggja manna kross- viðarbátur með möguleikum á að festa litla utanborðsvél á og nota er sem árabát. Hann ber eins og flestir tveggja manna bátar þrjú segl. Optimist er svo bátur fyrir þau yngstu þ.e. 7—13 eða 15 ára. Hann hefur eitt segl og svo til ómögulegt að velta honum nema viljinn sé þess meiri. Leikið gegn Dönum í kvöld: „Við munum leika grimman varnarleik og reyna að hanga á jafntefli í leiknum" — sagði Guðni landsliðsþjálfari í gærdag Frá bladamanni MbL I>órólfi Árnasyni 4 Kaupmannahöfn. LANDSLEIKUR íslands og Dan- merkur sem fram fer hér i dag er 14. landsleikur þjóðanna á knattspyrnuvellinum. Danmörk hefur unnið 10 sinnum en þríveg- is hefur orðið jafntefli. Sepp Piontek, landsliðsþjálfari Dana, hefur valið lið Dana og verður það þannig skipað: Markvörður: Ole Kvist, varnarmenn verða Ole Madsen, Per Lontved, Henrik Egenbrod og Frank Olsen. Á miðjunni leika Jens Jorn Bertel- sen, Allan Simonsen og John Lauritsen. Framherjar verða All- an Hansen, Lars Lundkvist og Mikhael Mannike. Flestir af bestu atvinnumönnum Dana verða þvi ekki með i leiknum. Þeir Frank Arnesen, Sören Ler- by, Sören Busk, Preben Elkjær Larsen og Lars Bastrup mæta ekki til leiks. Það ætti að auka vonir um að islenska liðið standi sig vei í leiknum. Guðni Kjartansson var ekki búinn að velja liðið í gærkvöldi en sagði að það yrði skipað að mestu sömu leikmönnum og léku gegn Nígeriu á dögunum. Sú breyting verður þó á að Atli Eðvaldsson kemur inn í hópinn. Við munum leika grimman varnarleik og reyna allt til þess að hanga á jafntefli í leiknum, sagði Guðni. Mikið er skrifað um leikinn í dönsku blöðunum, og flest eru þau á því að danska liðið vinni 4 til 5 marka sigur í leiknum. Dönsku landsliðsmennirnir vara þó við of mikilli bjartsýni og segja íslenska liðið vera hættulegt, sér í lagi þar sem mikils er til ætlast af danska liðinu. Leikurinn hefst hér klukk- an 17.30 að íslenskum tíma. Knattspyrna kemur að seglbátunum hvolfi. rólegur og koma þeim á réttan kjöl aftur. vera Golf hjá Keili UM N/ESTIJ helgi fer fram hjá Keili síðasta opna golfmótið hjá klúbhnum í sumar. Er það Iton Riro-keppnin. Keppni þessi er flokkakeppni. Þátttöku ber að tilkynna í golfskála Keilis íyrir kl. 19.00 á föstudag. Bjarki hlaut tvenn gullverðlaun á Andrésar-leikunum Það gefur oft á bátinn. Og þá er nauðsynlegt að vera vel útbúinn. UNGUR piltur, Bjarki Ilaralds- son frá Hvammstanga, stóð sig mjög vel á Andrésar andar-leik- unum í 12 ára aldursflokki í frjálsum íþróttum um síðustu helgi. Bjarki vann til tveggja gullverðlauna í sinum flokki. Hann sigraði í 800 metra hlaupi hljóp vegalengdina á 2.16,2 min. Er það nýtt islenskt met i stráka- flokki. Þá varpaði Bjarki kúl- unni 11,17 metra. Leikarnir fóru fram í Hróarskeldu og alls tóku 250 ungmenni frá Norðurlöndun- um þátt í leikunum. Þrir aðrir íslendingar kepptu. Gyða Steí- ánsdóttir frá Stykkishólmi varð önnur i 800 m hlaupi á 2.33.4 mín. Gyða keppti i flokki 11 ára. LiIIy Viðarsdóttir frá Stöðvar- firði varð önnur i langstökki i flokki 12 ára. Lilly stökk 4,49 metra. Þá varð hún sjöunda í 800 m, fékk tímann 2.41,1 min. Akur- eyringurinn Arnar Kristinsson. sem keppti í flokki 12 ára, varð þriðji í 800 m á 2.24,6 mín og fjórði í 100 m hlaupi á 13,8 sek.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.