Morgunblaðið - 03.11.1981, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.11.1981, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1981 10 Ólafur Árnason, sýningarstjóri, sem hefur staðið á bak við sýningavél- arnar í fimmtíu ár samfleytt. (Mynd: Ólafur K. Magnússonj. / ár voru í gær liðin frá því að Gamla bíó tók til starfa. Á næstu • ^Fdögum munu þeir Hafliði Halldórsson og Hilmar Garðars láta af rekstri hússins og afhenda það nýjum eiganda, íslenzku óperunni, en Gamla bíó verður nú óperuhús og verður fyrsta óperan, Sígaunabaróninn, frumsýnd þar á nýjársdag. Saga Gamla bíós er um margt merkileg, en þegar það tók til starfa í Fjalakettinum árið 1906 hófst nýr þáttur í menningarlífi bæjarbúa og lands- manna yfirleitt, daglegar kvikmyndasýningar. Árin á undan hafði nokkrum sinnum verið efnt til kvikmyndasýninga í Bárunni og Iðnó. í Fjalakettinum var bíóið til húsa þar til flutt var í stórhýsið við Ingólfsstræti, þar sem reksturinn hefur farið fram síðan 2. ágúst 1927. Ilúsið við Ingólfsstræti var í áratugi stærsta og glæsilegasta samkomuhús bæjarins. Þar voru, auk kvikmyndasýninganna, haldnir fjöldafundir og tón- leikar. Hljómburður í húsinu er talinn frábærlega góður og í Gamla bíói hafa fjölmargir beztu tónlistarmenn okkar „debúterað". Fetersen, sem keypti Gamla bíó af erfingjum Wartburgs, kaupmanns í Kaupmannahöfn og stofn- anda kvikmyndahússins, árið 1913, Fetersen, sem bæjarbúar kölluðu ævin- lega Bíópetersen, var stórhuga og sparaði ekkert til þess að húsið yrði sem glæsilegast. Arkitekt hússins var Einar Erlendsson, síðar húsameistari, og til marks um það hversu vandað var til húsbyggingarinnar má nefna að Bíópet- erscn sendi arkitektinn í Evrópureisu til að skoða kvikmyndahús og fá hugmyndir um hvernig byggingunni skyldi háttað. Hilmar Garðars og Hafliði Halldórsson í anddyri Gamla bíós. Þar er allt í sinni upprunalegu mynd nema söluborð sem sett var upp fyrir nokkrum árum. (Mynd: Ólaíur K. Magnússon.) Fáir munu þeir Reykvíkingar vera sem ekki þekkja þennan stað og eflaust eiga margir bernskuminningar um biðina eftir því að hleypt væri inn á þrjúbíó, en til að tryggja sér sæti var betra að vera tímanlega á ferð því að iðulega kom fyrir að uppselt væri á barnasýningarnar. (Mynd: óiafur K. Msgnúsmm.) Ljúft að skila Gamla bíói í hendur íslenzku óperunnar — segja Hafliði Halldórsson og Hilmar Garðars á 75 ára afmæli fyrirtækisins í samtali við Morgunblaðið á af- mælisdaginn sögðust þeir Hafliði Halldórsson og Hilmar Garðars ekki bera neinn söknuð í brjósti á þessum tímamótum, heldur væri þeim Ijúft að skila húsinu í hendur Islenzku óperunnar. Þar með væri tryggt að húsið mundi áfram gegna menningarhlutverki og þar að auki lægi fyrir að engin áform væru um að hrófla við hinum sérstæða stíl þess. - Okkur var ákaflega umhugað um að húsið yrði áfram í sinni upp- runalegu mynd, sagði Hilmar. - Auðvitað þarf að gera á því nokkr- ar breytingar svo það henti til óperureksturs en íslenzka óperan leggur mikla áherzlu á að varðveita allar skreytingar og útlit hússins yf- irleitt, innan stokks og utan. - Við hefðum ekki getað hugsað okkur neinn aðila sem væri betur til þess fallinn en Islenzka óperan að taka við þessu húsi. - En af hverju hættið þið rekstr- inum? - Það er orðið svo erfitt að reka P. Petersen, stjórnandi Gamla híós frá upphafi og eigandi þess 1913—1939. Eftir að hann seldi Gamla bió Hafliða Halldórssyni og Garðari Þorsteinssyni árið 1939 fluttist hann til Kaupmannahafnar og rak þar „Atlantic Bio“. Petersen, sonur hans, hefur um langt skeið verið starfandi sýningarmaður / Gamla bíói. kvikmyndahús á íslandi. Aðsóknin hefur minnkað mjög mikið á síðustu árum, sagði Hafliði. - Hvort hafið þig hagnazt meira á aðgöngumiðasölu eða sælgætissöl- unni? - Það er sælgætið sem skilar meiri hagnaði, svaraði Hafliði. í gærkvöldi var sérstök hátíðar- sýning á Fjalla-Eyvindi Victor Sjöströms. Carl Billich lék á slag- hörpu meðan á sýningu myndarinn- ar stóð og var þannig horfið aftur til gamla tímans, þegar hljóðfæraslátt- ur var látinn bæta upp þögn „lifandi mynda“ eins og þær voru í fyrstu kallaðar hér á landi. Fyrstu mynd- irnar sem Gamla bíó sýndi í Fjala- kettinum voru smámyndir Bíópet- ersens, en fyrsta myndin sem sýnd var í nýja húsinu við Ingólfsstræti árið 1927 var Ben Húr. Fjalla-Ey- vindur er síðasta myndin sem kvikmyndahúsið Gamla bíó sýnir, en sem slík stofnun verður bíóið ekki úr sögunni þrátt fyrir eigenda- skipti og breyttan rekstur, því að íslenzka óperan hyggst efna til kvikmyndasýninga í húsinu eftir því sem efni og ástæður leyfa. Hafliði við ,,skiptimaskínuna ‘‘, sem hetur verið í húsinu frá upphafi. Eftir myntbreytinguna kemur hún að góðu gagni, en sem dæmi má nefna að fimmkrónumyntin passar í hólfíð sem gömlu fimmeyringarnir voru hafðir í.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.