Morgunblaðið - 29.11.1981, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 29.11.1981, Blaðsíða 48
d 25dagar til jóla (fmll X: J§>ílftir Laugavegi 35 Sími á ritstjórn i H1 <30 og skrifstofu: IU IUU SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1981 • • Ollum sagt upp í Blaðaprenti ÖLLIJ slarfsfólki BlaAaprcnts hf. hefur vcrió sagt upp störfum, og mun fólkið fá uppsaynarhréf sín á morgun, mánudag. IJm 40 manns vinna í Blaðaprenti, og koma uppsagnir í kjölfar þess að Vísir er nú ckki lengur unninn hjá fyrirtækinu, eftir að blaðið sameinaðist Dagblaðinu. Magnús E. Sigurðsson formaður Kélags bókagerðarmanna sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hér væri hrikalegur hlutur að gerast, og erfiðir tímar vafalaust framundan hjá því fólki cr nú fyrirvaralaust missti vinnu sína. Magnús sagði, að nú fyrir há- degi myndi hann ræða við lög- fræðing félagsins, þar sem farið yrði yfir lagaleg atriði þessa máls. Akvæði væru um það í lögum að tilkynna þyrfti hópuppsagnir sem þessar til félagsmálaráðuneytis- ins, „en ég á þó ekki von á því að það hafi verið gert,“ sagði Magn- 'ús, „það hefur vafalaust verið sami flýtirinn á þessu eins og þeg- ar Vísir lagðist undir Dagblaðið. Atvinnuleysi er ekki nú hjá bóka- gerðarmönnum, en ljóst er þó að erfitt verður að finna öllu þessu fólki nýja vinnu. Hafa verður þó í huga að ég á ekki von á að allar uppsagnirnar verði endanlegar, heldur sé Blaðaprent að vinna tvennt með þessu: Að endurskipu- leggja fyrirtækið í ljósi breyttra aðstæðna, og fá tækifæri til að Bögglapóstur frá Islandi brann í Hamborg TILKVNNING hefur borizt frá llamborg í Vesturl'ýzkalandi um að bögglapóstur með m.s. Eyrarfossi, sem fór frá Keykjavík 4. nóvemher sl., hafi eyðilagzt í eldsvoða á hafnarsvæðinu. segir m.a. í frétt frá l’óst- og síma- málastofnuninni. Þarna var um að ræða sam- tals 133 böggla til ýmissa landa á meginlandi Evrópu, þ.e. Þýzkalands, Spánar, Sviss, Holiands, Austurríkis, Frakk- lands og ennfremur böggla til Ástralíu og tveggja staða í Asíu, Bútan og Hong Kong. hafa áfram það fólk í vinnu er því þóknast. Alþýðublaðið, Tíminn og Þjóðviljinn hætta varla að koma út, þetta eru allt blöð sem eru bakhjarlar pólitískra flokka. Flest starfsfólk Blaðaprents sagði Magnús hafa þriggja mán- aða uppsagnarfrest, suma þó að- eins mánuð, og allt niður í viku hjá nokkrum. Stjórnarformaður Blaðaprents hf. nú er fulltrúi Þjóðviljans, Ragnar Árnason hag- fræðingur. Ntarfsmenn Sjálfstæðisflokksins í Valhöll höfðu í nógu að snúast við undirbúning prófkjörsins í gær. Ljósm. Mbl. RAX. Prófkjör Sjálfstæðismanna í Reykjavík í dag og á morgun: Atta þúsund manns á kjörskrá Félagsbundnum fjölgaði um 1.000 til 1.100, fólk getur gengið í flokkinn á kjörstad l’RÓFKJÖK um skipan framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík við borgarstjórnarkosningarnar á komandi vori fer fram í dag, sunnudag, og á morgun, mánudag. Mikil fjölgun hefur orðið í sjálfstæðisfélögunum í Reykjavík frá því prófkjörið var ákveðið. Höfðu á milli 1000 til 1100 manns gengið í flokkinn í gærkvöldi og reiknað með að fjölmargir gerist félags- menn á kjörstað, en kosningarétt hafa eingöngu félagsbundnir sjálfstæðis- menn. 6.853 einstaklingar voru skráðir í félögunum áður, þannig að þegar kjörstaðir voru opnaðir í morgun voru tæplega 8.000 manns á kjörskrá. Kosið verður á fjórum kjörstöð- um í dag, sunnudag, og eru kjör- staðir opnir frá kl. 10—20. Á morgun, mánudag, fer kosning að- eins fram í Valhöll og er kjörstað- ur þá opinn frá kl. 15—20. At- kvæðisrétt hafa allir félagsbundn- ir sjálfstæðismenn í Reykjavík. Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks- ins, sem fekki eru nú þegar félags- bundnir, geta gengið í flokkinn, þ.e.a.s. ef viðkomandi verður orð- inn 20 ára 23. maí 1982. Hafi kjós- andi flutt til Reykjavíkur eftir 1. desember 1980 þarf hann að fram- vísa flutningsvottorði frá Hag- stofunni. Til að atkvæðaseðill verði gildur, skal kjósa fæst 8 frambjóðendur og flest 12. Skal það gert með því að setja krossa fyrir framan nöfn frambjóðenda. Borginni er skipt í 5 kjörhverfi: 1. kjörhverfi: Nes- og Mela-, Vestur- og Miðbæjar- og Austur- og Norðurmýrarhverfi. Oll byggð vestan Snorrabrautar og einnig byggð vestan Rauðarárstígs að Miklubraut. Kjörstaður: Hótel Saga, Átthagasalur. 2. kjörhverfi: Hlíða- og Holta-, Laugarnes- og Langholtshverfi. Öli byggð er afmarkast af 1. kjör- hverfi í vestur og suður. Öll byggð vestan Kringlumýrarbrautar og norðan Suðurlandsbrautar. Kjör- staður: Valhöll, Háaleitisbraut 1, vestursalur 1. hæð. 3. kjörhverfi: Háaleitis- og Smáíbúða-, Bústaða- og Foss- vogshverfi. Hverfið afmarkast af Kringlumýrarbraut í vestur og Suðurlandsbraut í norður. Kjör- staður: Valhöll, Háaleitisbraut 1, austursalur 1. hæð. 4. kjörhverfi: Árbæjar- og Sel- áshverfi og byggð Reykjavíkur norðan Elliðaár. Kjörstaður: Hraunbær 102 b, suðurhlið. 5. kjörhverfi: Breiðholtshverf- in. Öll byggð í Breiðholti. Kjör- staður: Seljabraut 54, 2. hæð, hús Kjöts og fisks. Kjósa skal í því hverfi sem bú- seta var í 1. desember 1980. Sjá prófkjörslistann á bls. 18. Fulltrúar Alþýðubandalagsins semja greinargerð um sjávarútveg: Friðrik Olafsson forseti FIDE um fjölskyldumál Korchnoj: „Heiður FIDE og samstarf i veði“ „Það má segja að yfirburðir Karp- ovs hafi verið það miklir að einvígið varð aldrei tilþrifamikið og ekki gætti þeirrar spennu sem hefði verið æskileg og á að vera í þeim darraða- dansi sem maður skyldi ætla að yrði á milli tveggja sterkustu skákmanna heimsins,'* sagði Kriðrik Olafsson forseti KII)E í samtali við Mbl. í gær þegar við ræddum við hann að loknu heimsmeistaraeinvíginu í Meranó á Italíu, en Kriðrik er nýkominn heim til Islands. „Það er ljóst,“ sagði Friðrik „að Korchnoj voru mjög misiagðar hendur i upphafi einvígisins og hann tefldi ekki eins og hann gerir þegar hann sýnir sterku hliðarnar á sér. Þetta leiddi til erfiðrar stöðu strax í upphafi einvígisins þar sem hann sat uppi með 3 töp og það dró strax úr spennunni, enda átti hann í rauninni litla von upp frá því. Svona byrjun hefur slæm áhrif á skákmann og má segja að þetta hafi hleypt loftinu úr einvíginu. Karpov tefldi vel og skynsamlega og tók enga áhættu, þurfti þess ekki. Hann sýndi sínar beztu hlið- ar, að hann er ekki aðeins sterkur skákmaður, heldur mat hann sál- fræðilegu hliðina einnig rétt. Það eru margir sem segja að Korchnoj hafi ekki verið vel undir einvígið búinn, hvorki líkamlega né fræði- lega, og hafi verið þreyttur þegar hann hóf einvígið. Honum tókst þó að taka sig saman og veitti harða keppni lengi vel þrátt yfir þennan mismun og honum tókst að minnka bilið í 4—2, en eftir fimmta tapið fór þetta heldur að versna og þá var endirinn í rauninni aðeins tímaspursmál. Hann á lof skilið f.vrir að hafa sýnt þá hörku og harðfylgi að hafa veitt þá keppni sem hann veitti eftir svo óheppi- lega hyrjun.“ Telur þú að fjölskyldumál hans hafi átt þátt í dugleysi hans? „Fjölskyldumálið var alltaf ofarlega á baugi hjá fylgdarliði hans, en málið sem slíkt spillti ekkert fyrir skáklegu hliðinni. Það var þó mjög slæmt að ekki skyldi takast að leysa það mál til lykta fyrir einvígið." Munt þú í nafni FIDE fylgjast áfram með því máli? „Ég mun fylgjast mjög náið með framvindunni í fjölskyldumálinu og ég veit ekki annað en lausn fáist í því máli innan tíðar, ekki síðar en næsta vor þegar fangelsisvist son- ar skákmeistarans lýkur. Ég mun fylgjast sérstaklega með því vegna þess að það er ýmislegt í veði. Heiður FIDE og samstarf innan þess eru undir því komin hvort þetta mál leysist eða ekki en ég reikna ekki með öðru en að geta treyst þeim fyrirheitum sem gefin hafa verið í málinu." Fiskveiðistefna Steingríms beinist jafnvel að dýravernd Leggja til að „rannsóknarsveitir“ rannsaki rekstur fiskvinnslufyrirtækja „UMRÆÐIJR um stjórnun fisk- veiða á íslandi hafa því miður eink- um snúizt um líffræðileg vandamál og jafnvel beinzt að dýravernd eins og fiskveiðistefna Steingríms Her- mannssonar virðist snúast um á meðan efnahagsleg hlið málsins hefur verið vanrækt," segir m.a. í greinargerð um íslenzkan sjávar- útveg, sem leggja átti fram á nýaf- stöðnum flokksráðsfundi Alþýðu- bandalagsins, en var dregin til baka. Höfundar þessarar greinar- gerðar eru Ragnar Árnason, hag- fræðingur og helzti sérfræðingur Alþýðubandalagsins í efna- hagsmálum, Þórður Vigfússon, hagverkfræðingur og Þröstur Ólafsson, aðstoðarmaður fjár- málaráðherra. í þessari greinargerð kemur m.a. fram í kafla um fiskvinnslu að þeir þremenningar telja, að það opinbera eigi að gera bætta stjórnarhætti fyrirtækja og opinbert rekstrareftirlit að skil- yrði fyrir sérstakri fjárhagsað- stoð. „Hugsanlegt væri að hið opinbera hefði á sínum snærum Steingrímur Hermannsson — Full- trúar Alþýðubandalagsins telja físk- veiðistefnu hans bcinast að dýra- vernd. eins konar opinberar rann- sóknarsveitir sem sendar væru til þess að rannsaka og aðstoða við rekstur hjá fiskvinnslufyrir- tækjum," segir m.a. í þessum kafla greinargerðarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.