Morgunblaðið - 19.01.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.01.1982, Blaðsíða 1
44 SÍÐUR MEÐ 4 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 13. tbl. 69. árg. ÞRIÐJUDAGUR 19. JANUAR 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Koivisto næsti forseti Finna efitir stórsigur llulsinki. 18. janúar. Al*. MAUNO KOIVISTO forsætisráðherra var öruggur um að verða fyrsti forseti jafnaðarmanna í Finnlandi í kvöld með stórsigri, sem jafnvel hann hafði ekki búizt við. Þegar talningu var að mestu lokið höfðu jafnaðarmenn hlotið 146 kjörmenn af 301 og skorti aðeins fimm til að fá hreinan meirihluta. Kjörmenn Koivisto höfðu hlotið 1,4 milljónir atkvæða, eða 43,3%, 800.000 fleiri atkvæði og 19,3% meira fylgi en flokkurinn hlaut í þingkosningunum 1979 og miklu meira fylgi en honum hafði verið spáð í hagstæðustu skoðanakönnuninni, sem gerði ráð fyrir að hann fengi 37 af hundraði. Metkjörsókn varð í kosningunum: atkvæði greiddu 88,5%. Kommúnistar fengu 32 kjörmenn og 11% atkvæða, 7% minna en 1979. Sósíalísku flokkarnir hlutu 54,3% atkvæða, 12,3% meira en borgaraflokkarnir. Miðflokkur Jó- hannesar Virolainens fær 16,9%, sem er 0,4% fylgistap, en Einingar- flokkur hægri manna undir forystu Harri Holkeri tapar 3% og fær 18,7%. Sænski þjóðarflokkurinn og Jan Magnus Jansson fá 3,8%. Aðrir frambjóðendur virðast ekki fá kjörmenn kosna. Koivisto lýsti yfir sigri þar sem hann sagði að kommúnistar hefðu heitið honum þeim fimm atkvæð- um sem hann skortir á kjörmanna- samkundunni og hinir forseta- frambjóðendurnir sjö viðurkenndu ósigur. Kosningabaráttan hefur verið mjög hógvær og það var mjög ein- kennandi að Koivisto sagði um yf- irburðasigur sinn að hann gæti „mjög vel við unað“. „Fyrsta verk- efni mitt verður að takast á við framtíðina og mynda starfhæfa ríkisstjórn í Finnlandi," sagði hann. Koivisto hefur verið starf- andi forseti síðan Urho Kekkonen sagði af sér í október. Koivisto hefur heitið því að fylgja sömu stefnu í utanríkis- málum og Kekkonen. Hann vinnur embættiseið sinn á miðvikudag í næstu viku, einum degi eftir að kjörmannasamkundan kýs hann formlega forseta. Stjórnmálasér- fræðingar búast við að hann feli starfandi forsætisráðherra, Eino Wsitolo úr Miðflokknum, að halda áfram störfum. Forseti og forsætisráðherra Finnlands eru venjulega ekki úr sama flokki. Sá möguleiki er hins vegar fyrir hendi vegna yfirburða- sigurs Koivisto að hann skipi jafn- aðarmann forsætisráðherra sterkr- ar samsteypustjórnar, sennilega með þátttöku kommúnista, sem hafa verið í ríkisstjórn síðan 1976. Koivisto lýsti yfir sigri aðeins 1—2 tímum eftir að kjörstöðum var lokað kl. 8 á seinni degi kosn- inganna. Loforðið um stuðning kommúnista kom frá forsetaefni þeirra, Kalevi Kivisto mennta- málaráðherra úr hinum hófsamari armi flokksins. Koivisto sagði að hann hefði veitt þetta loforð snemma í kosningabaráttunni, lík- lega er hann gerði sér grein fyrir að kommúnistar, sem skoðana- kannanir spáðu litlu fylgi, hefðu enga vori um fylgisaukningu. Þótt víst þætti að Koivisto fengi mest fylgi kemur á óvart hve auð- veldan sigur hann vann. Þó benti ýmislegt til þess fyrr í dag að hann mundi standa sig betur en búizt væri við. Sérfræðingar sögðu að metkjörsókn mundi hjálpa Koiv- isto og talið var að óráðnir kjós- endur mundu kjósa Koivisto þar sem slíkir kjósendur kysu gjarnan kunnasta og vinsælasta frambjóð- andann. Teppi breitt yfir lík ('harles Robert Rays undirofursta, aðstoðarhermála- fulltrúa í bandaríska sendiráðinu í París. Öryggi hert við sendiráð 1‘arís, IX. janúar. Al‘. HRYÐJUVERKAMAÐUR réð ( harles K. Kay undirofursta, hermálafulltrúa í bandaríska sendiráðinu, af dögum á götu í miðborg Parísar í dag. Kvan (1. (íalhraith sendiherra kallaði tilræðið „ógeðslega" árás hugleysingja. Morð- inginn komst undan, fáir sjónarvottar voru að atburðinum og lögregian hefur við fátt að styðjast í rannsókninni. Hryðjuverkamaðurinn, sem skaut Ray í höfuðið næstum því af dauða- færi, gekk í áttina til hans þegar hann var á leið í bíl sinn frá íbúð sinni í 16. hverfi. Ray lézt samstund- is. Annar maður reyndi að myrða sendifulltrúa sendiráðsins, Christian Chapman, á svipaðan hátt 12. nóv- ember. Samtök sem kalla sig „Vopnuðu líbönsku byltingarsveitina" játuðu verknaðinn í yfirlýsingu í Beirút. Samtök með svipað nafn sögðust hafa staðið að árásinni á Chapman. Galbraith sagði að hryðjuverka- maðurinn væri sennilega atvinnu- morðingi og vafalaust reyndur á sínu sviði. Öryggi sendiráðsmanna hefur ver- ið aukið eftir morðið. Galbraith benti á að Ray hefði ekki verið talinn í hættu. Harka boðuð í pólska kommúnistaflokknum N arsjá, 18. janúar. Al*. KAIKILSKA kirkjan í Póllandi tók undir opinbera gagnrýni á refsiaðgerð- ir erlendra ríkja og sagði í yfirlýsingu, sem hún birti ásamt ríkisstjórninni, að þær gætu hægt á efnahagslegum og þjóðfélagslegum bata. Jafnframt sagði Kakowski, aðstoðarforsætisráðherra, að refsiaðgerðir mundu ekki hafa áhrif á pólsk yfirvöld. „Kn við munum muna hverjir hjálpuðu okkur og hverjir vildu að þetta ástand þróaðist í stríð í miðri Kvrópu," sagði Kakowski og barði í borðið á blaðamannafundi. Rakowski sagði einnig að „óraun- hæft“ væri að gera ráð fyrir að föng- um yrði fljótlega sleppt úr haldi þar sem það mundi hafa í för með sér víðtæka ókyrrð í landinu. Líkur á því að herlögum verði aflétt hafa því minnkað. Nýjar áskoranir urn hreinsanir í kommúnistaflokknum komu fram í dag og málgagn hersins sagði að flokkurinn yrði að verða „sterkur, sameinaður og hugsjónafræðilega harðari“ þegar herlögum lyki. Jafnframt talaði háttsettur flokksstarfsmaður, Tadeusz Now- icki, um hreinsanir manna sem gáf- ust upp fyrir „óvinum sosíalisma“ og reyndu að kljúfa flokkinn. Hann sagði að 1.100 hefðu verið reknir úr flokknum fyrstu þrjár vikur herlaga, en nöfn 1.300 annarra hefðu verið strikuð út af félagaskrá. Kundzicz sagði að ekki yrði aftur horfið til ástandsins fyrir ágúst 1980. Hann sagði að 272 hefðu verið sviptir emb- ættum í flokknum. Bandaríski öldungadeildarmaður- inn Larry Pressler sagði, eftir Pól- Ræðuhöld Foots í flugvél rannsökuð London, IX. janúar. Al’. MK'HAEL Foot, formaður breska Yerkamannaflokksins, kom sam- ferðamönnum sínum um borð í breskri þotu frá Osló heldur betur á óvart sl. föstudagskvöld, þegar hann tók sér skyndilega hljóðnem- ann í hönd, fór að úthrópa Marg- aret Thatcher, forsætisráðherra, og hét því að útvega farþegunum meiri drykk. Frá þessari uppá- komu sagði í blaðinu The Sunday Telegraph í gær og í dag fór einn þingmanna Ihaldsflokksins fram á rannsókn á þessu framferði Foots. Foot var að koma af fundi jafnaðar- manna í Osló en í stað þess að halda beint til London var vélinni beint til Kaup- mannahafnar vegna smá- vægilegrar bilunar. Eftir farþeg- unum er haft, að á síðasta áfanga ferðarinnar, eftir þriggja og hálfs tíma töf í Kaupmannahöfn, hafi Foot skyndilega staðið upp, þrifið Foot til sín hljóðnemann og farið að halda skammarræðu um Marg- aret Thatcher. M.a. lagði hann til, að Thatcher yrði fengin til að gera við vélarbilunina, sagði að sósíal- isminn myndi tryggja, að flugvél- ar héldu áætlun, og lofaði loksins að útvega farþegunum meira vín. Undirtektir áheyrenda voru með ýmsu móti. „Ég sat við hlið tveggja Norðmanna og bað þá af- sökunar, sagði, að Englendingar höguðu sér ekki allir þannig," sagði einn þeirra, verkfræðingur- inn Desmond Nears-Crouch. Ann- ar úr hópi farþeganna, sölumað- urinn Edward Butcher, sagði hins vegar, að þetta hefði verið „stór- skemmtilegt“ og Foot tekist vel upp. Þessi frumraun Foots sem skemmtikraftur hefur ekki bein- línis mælst vel fyrir meðal kollega hans í breska þinginu og hrista flestir höfuðið í forundran þegar á hana er minnst. Einn þing- manna íhaldsflokksins, Vivian Bendall, fór þá fram á það í dag, að gerð yrði „tafarlaus og ná- kvæm“ rannsókn á skripalátum Foots um borð í flugvélinni. landsferð í dag, að Lech Walesa sætti góðri meðferð, en neitaði al- gerlega að semja við ríkisstjórnina. Pressler sagði að mikil kúgun ríkti í Póllandi og ástandið væri enn mjög alvarlegt og hann spáði því að sprenging yrði af völdum matvæla- skorts fyrir mars eða apríl. Pólski sendiherrann í London, Stefán Staniszewski spáði því í gær að Walesa yrði fljótlega látinn laus og herlögum aflétt, en sagði í dag að orð sín hefðu verið rangtúlkuð. Pressler sagði að yfirvöld þyrðu ekki að sleppa Walesa og öðrum föngum þar sem þeir mundu hefja baráttu sína að nýju. Walesa er „þjóðhetja“, sem gæti skipulagt andspyrnu gegn herlögun- um, sagði Pressler. Yfirvöld reyndu að fá eða neyða hann til samninga fyrir 25. janúar þegar Jaruzelski hershöfðingi flytur sjónvarpsávarp. Glemp sagði Pressler að „nema því aðeins að viðræður hæfust gæti orð- ið borgarastríð." Pressler sagði, að Glemp og Jó- hannes Páll páfi II hvettu til mála- miðlunarsamkomulags, sem Pressler taldi ólíklegt að mundi nást. Glemp gagnrýndi bæði Jaruzelski og Wal- esa, sagði Pressler. Glemp sagði að Walesa væri „svo stoltur maður — honum fyndist að ríkisstjórnin yrði að krjúpa á kné og biðjast afsökunar áður en hann hæfi viðræður."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.