Morgunblaðið - 13.05.1982, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 13.05.1982, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAÍ1982 27 Félagsvistin er mjög vinsæl hjá eldri borgurum í Reykjavík. Félagsstarf eldri borgara í Reykjavík: Vetrarstarfinu lýkur með sýningu á Kjarvalsstöðum um helgina FÉLAGSSTARF eldri borgara í Reykjavík hefur verið með mikl- um blóma í vetur eins og undanfarna vetur. I»ar hefur verið boðið upp á félagsstarf ýmis konar, námskeið, handavinnu og margvís- lega þjónustu. Ekki liggja fyrir tölur um þátttökuna í vetur en alls tóku um 40 þúsund manns þátt í félagsstarfinu veturinn 1980, samkvæmt upplýsingum Geirþrúðar Hildar Bernhöft elli- málafulltrúa og Helenu Halldórsdóttur forstöðukonu. 100 sjálfboðaliðar Starfinu verður framhaldið í sumar þó með mánaðarhléi á hverjum stað, þannig verður lok- að vegna sumarleyfa í ágúst í Norðurbrún 1, í júlí í Lönguhlíð 3 og : ágúst í Furugerði 1. Engin tök eru á því að gera grein fyrir öilu því sem Félagsstarf eldri borgara býður upp á í þessari fréttagrein en þeir, sem áhuga hafa á því að kynna sér hvað boðið er uppá, geta hringt í skrifstofu Félagsstarfsins í Norðurbrún 1, sími 86960. Frá upphafi hafa sjálfboðalið- ar frá kirkjufélögum kvenna i Reykjavík, kvennadeild Rauða krossins og eldri skátum unnið við Félagsstarf eldri borgara. Hafa þannig yfir 100 manns unnið þarna sjálfboðaliðstarf á ári hverju og enn starfar 21, sem unnið hefur frá upphafi þessa starfs árið 1969. Sýning á Kjarvalsstöðum Segja má að nú séu vertíðarlok í vetrarstarfinu og verður sýning á ýmsum munum sem hafa verið unnir í vetur opnuð á Kjarvals- stöðum föstudaginn 14. maí 1982, kl. 16.00. Lúðrasveit Laug- arnesskóla leikur fyrir utan við opnunina. Sýningin verður opin frá kl. 16.00 til 22.00 föstudaginn 14. og frá kl. 14.00 til 22.00 laugardag- inn 15. og sunnudaginn 16. maí. Sala á munum unnum í Fé- lagsstarfinu verður að Norður- brún 1, laugardaginn 15. og sunnudaginn 16. maí nk. frá kl. 13.00 til 18.00 báða dagana. Starfíð eykst stöðugt Þær Geirþrúður Hildur Bernhöft og Helena Halldórs- dóttir veittu Morgunblaðinu eft- irfarandi upplýsingar: Félags- og tómstundastarf eldri borgara á vegum Félags- málastofnunar Reykjavíkur- borgar hófst í apríl 1969. Send voru út rúmlega 5.000 bréf til þeirra, sem þá voru 70 ára og eldri til kynningar á væntanlegu starfi. Síðan hófst félagsstarfið tvo eftirmiðdaga í viku frá kl. 13.00-18.00 í Tónabæ. Vorið 1972 fluttist félagsstarf- ið í Félagsheimili Fóstbræðra. Vorið 1974 hófst félagsstarfið einnig að Hallveigarstöðum við Túngötu tvo eftirmiðdaga í viku. Vorið 1974 hófst félagsstarfið á jarðhæð hússins Norðurbrún 1, en það er fyrsta leiguhúsnæðið, sem sérstaklega var hannað í þágu aldraðra. Gafst þá tæki- færi að auka félags- og tóm- stundastarfið verulega í eigin húsnæði og varð nú þar fimm daga vikunnar. I árslok 1979 var hafið skipu- legt félags- og tómstundastarf að Furugerði 1 og Lönguhlíð 3 til viðbótar starfseminni að Norð- urbrún og Hallveigarstöðum. Þar er nú unnið fjóra daga vik- unnar á hvorum stað. Vorið 1981 fluttist félagsstarf- ið frá Hallveigarstöðum í Oddfellowhúsið. Ævinlega er haldinn jólafagnaður að Hótel Sögu, Súlnasal, farið er í leik- húsferðir, haldnar kvöldvökur, haldin sundnámskeið í Sundhöll Reykjavíkur o.fl. Sumarið 1969 hófst einnig sumarstarf. Farið var í nokkrar ferðir um Reykjavík og ná- grenni. Sú starfsemi hefur auk- ist sem annað. Sumarið 1973 var efnt til orlofsdvalar að Löngumýri í Skagafirði í samstarfi við Þjóð- kirkjuna. Þá dvöldu tveir 24 manna hópar í 12 daga. Nú verða 5 hópar í 12 daga hver, en þátt- takendur eru 35 í hverri ferð. Haustið 1977 hófust utan- landsferðir til sólarlanda fyrir aldraða. Nánar verður sagt frá félags- starfi eldri borgara í sumar i Mbl. síðar. Nýtt kerfi heilsugæslu Reykjavík skipt niður í heilsugæslusvæði ÁÆTLAÐ er að byggja á næstu ár- um 12 heilsugæslustöðvar i Reykja- vík, sem staðsettar verða á jafn- mörgum svæðum víðs vegar um borgina. Með tilkomu heilsugæslu- stöðvanna verður eldra kerfi heim- ilislækninga og heilsuverndar lagt niður og tekið upp hið nýja kerfi heilsugæslu. Ileilsuverndarstöðin við Barónsstíg verður að heil.su gæslustöð við Barónsstíg og verður þar aðsetur stjórnar heilsugæslu- stöðva, heilbrigðisráðs o.fl. Gert er ráð fyrir að á tímabilinu 1983 til 1987 verði samtals veitt til heilsugæslustöðva í Reykjavík 94 milljónum króna og er gert ráð fyrir að það fé nægi til að byggja upp eina stöð á ári á þessu árabili. Ekki er búið að fastsetja í hvaða röð þessar stöðvar verða byggðar en þegar hefur verið byggð heilsu- gæslustöð í Árbæjarhverfi, í Breiðholti og í Fossvogi. Hefur á undanförnum árum uppbygging heilsugæslunnar út um landið haft forgang. Nefnd, sem undirbúið hefur að nokkru leyti hið nýja heilsugæslu- kerfi hefur lagt fram nýjan sam- komulagsgrundvöll í stað samn- ings um heimilislæknishjálp, sem áður gilti og hafa læknasamtök fallist á hann. í samningnum er þess m.a. getið að starfandi heim- ilislæknar skuli hafa forgangsrétt að stöðum í heilsugæslustöðvun- um. Þeir heimilislæknar, sem hætta störfum vegna aldurs með tilkomu þessarar breytingar, hljóta lífeyrissjóðsréttindi, sem sambærileg eru við réttindi opin- berra starfsmanna með sama starfsaldur. Á síðasta borgarstjórnarfundi fyrir kosningar var ákveðið að fresta atkvæðagreiðslu um heilsu- gæslustöðvakerfið vegna óvissu um fjármálahliðina og verður því málið ekki tekið aftur upp fyrr en í haust. Borgarstjórnarmenn óttast að kostnaður við byggingu heilsugæslustöðva verði of mikill en Svavar Gestsson hefur bent á að ríkið muni koma til móts við borgina hvað varðar kostnaðinn með frumvarpi til laga um mál- efni aldraðra þar sem væri gengið til móts við kostnað Reykvíkinga af heimilisþjónustu aldraðra. Skipting borgarinnar í heilsu- gæslusvæði er á þessa leið: 1. Ár- bær/ Selássvæði að Hraunbæ 102. 2. Breiðholtssvæði I, „Mjóddin" samkv. staðfestu deiliskipulagi. 3. Breiðholtssvæði II, samkv. stað- festu deiliskipulagi. 4. Breið- holtssvæði III, samkvæmt stað- festu deiliskipulagi. 5. Gerða- svæði, óákveðið. 6. Fossvogssvæði, Borgarspítalinn. 7. Heima-/ Voga- svæði, óákvæðin staðsetning. 8. Laugames-/ Kleppsholtssvæði, óákveðið. 9. Háaleitis-/ Túna- svæði, staðsetning óákveðin. 10. Miðbæjarsvæði og Norðurmýrar- og Hlíðasvæði, Heilsug.st. v/ Bar- ónsstíg. 11. Melasvæði og Vestur- bæjarsvæði, staðsetning óákveðin. 12. Seltjarnarnessvæði, Mela- braut, Seltjarnarnesi. FISHER toppurinn í dag ----NÝR — WILLIE NELSON WILLIE NELSON AIWAVSON MV MINI ) tncluding Oo Righl Woman Do Right Man A Whiter Shade Ot Pale Let It Be Me Bridge Over Troubled Water The Party s Over Nýja platan meö Willie Nelson heitir „Always on My Mind“. Gamli góöi Willie Nelson flytur ný lög og endurnýjar gamlar dægurflugur á þessari plötu. Haföu Willie í huga næst þegar þú kaupir hljómplötu. Heildsöludreifing rtoÍAarhf Símar 85742 og 85055.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.