Morgunblaðið - 06.08.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1982
13
Byggingarsjóður verkamanna:
Hafnarfjarðarbær fær
ekki verðbætur á inneign
margs og mikils þar hefur orð-
ið að gæta. Ef einhverjum dytti
i hug að fara að bæta um það,
þá fyrirbýð ég það, því að það
er bezt komið, eins og ég hef
skipað því niður með mikilli
vinnu og erfiði, og má ekki
breyta því.
Ég held að það ætti engum að
blandast hugur um það, að þessi
útskýring er afdráttarlaust bann
við flestum þeim tilfæringum, sem
áður er lýst.
Listaverk Einars Jónssonar eru
verk mikilla tákna og leyndar-
dómsfullra áhrifa, fyrir sumum
hverjum a.m.k. Hver veit nema að
í stöðu þeirra í húsinu og innbyrð-
is afstöðu sé fólgin viss hugmynd,
sem þeir sjá ekki, sem helst hugsa
um „bjartari og rúmbetri sýningar-
sali“ og smekklegri sýningu. Þess
vegna er listamanninum sjálfum
bezt treystandi og réttast að
verkin standi þannig, og á þeim
stöðum, sem hann bjó þeim sjálf-
ur.
Ég hef alltaf litið svo á að safnið
sjálft sem heild væri „æfistarfið"
sem Einar Jónsson ánafnaði þjóð-
inni og því alls ekki í verkahring
umsjónarmanna þess að breyta
því verki.
Ný tízka
Það má auðvitað deila um það
hvort umræddar breytingar séu
„smekklegri" út frá allt annarri
forsendu. Nýtízkulegri frá okkur
séð.
Við megum bara ekki gleyma
því að tízkuviðhorf koma og fara
og spor okkar geta verið illafmá-
anleg.
Muna menn t.d. eftir því að
fyrir nokkrum árum voru ræðu-
stóll og sjálft forsæti Alþingis rif-
ið út úr þingsalnum og „skarsúð-
aðir“ kassar úr ljósum borðvið
settir upp í þess stað. Þau mistök
voru þó leiðrétt, meira fyrir til-
viljun en hitt.
Innviðir Bessastaðakirkju voru
rifnir úr henni og „nýtízkulegri"
innréttingar settar í þeirra stað.
Fyrir það slys verður ekki bætt.
Þótt ég taki nú ekki svo djúpt í
árinni að líkja umrótinu á Lista-
safninu við þessar breytingar,
nefni ég þær hér, til þess að benda
á það, hversu jafnvel þekktustu
arkitektar geta misstigið sig með
söguleg verðmæti í nafni „betr-
umbótanna".
Af áðurnefndum tilvitnunum í
skilyrði Einars Jónssonar þykist
ég sjá að hann vilji forðast slíkt í
sínu safni og æfistarfi.
Búast má við að eftir ótiltekinn
tíma komi ný viðhorf í þeim efn-
um og nýir menn taki til við „betr-
umbætur" á síðustu „betrumbót-
um“ o.s.frv. Fordæmið er a.m.k.
fyrir hendi.
Ég leyfi mér a.m.k. að vona —
og trúi heldur ekki öðru að
óreyndu — að þeir sem að þessu
standa, hafi skráð nákvæmlega á
einhvern hátt og/eða ljósmyndað,
hvernig umhorfs var í safninu áð-
ur, til þess að þeir, sem áhuga
hefðu, geti seinna séð hvernig
listamaðurinn sjálfur gerði það úr
garði.
Ég lýk þessum skrifum með
þeirri frómu ósk, að aðstandendur
safnsins láti svo lítið að útskýra
það fyrir okkur, sem helst vildum
hafa safnið sem líkast því sem
Einar sjálfur bjó það út, og hvaða
nauðsyn bar til þess, — þótt nauð-
synlegt viðhald sé framkvæmt —
að breyta því þvert ofaní bann
listamannsins sjálfs, eins og áð-
urnefnt 5. skilyrði ber með sér.
í fullri vinsemd,
Kjartan Jónsson
Hafnarfjarðarkaupstaður á nú í
deilum við stjórn Húsnæðis-
stofnunnar ríkisins vegna kröfu um
að gömul inneign kaupstaðarins hjá
Byggingasjóði verkamanna verði
verðbætt. Stjórn Húsnæðismála-
stofnunar hefur algjörlega neitað
kaupstaðnum um verðbætur, en hef-
ur sagt að til greina komi að borga
upphaflegan höfuðstól, sem var 820
þúsund krónur, en framreiknuð er
upphæðin orðin 1740 þúsund krónur.
Einar Ingi Halldórsson bæjar-
stjóri í Hafnarfirði sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að mál
þetta mætti rekja til ársins 1980,
þegar lögum um Byggingarsjóð
verkamanna var breytt: „Fyrir
Villti tryllti
Villi opnar
um helgina
m
Unglingaskemmtistaðurinn Villti
tryllti Villi verður opnaður um helgina,
en staðurinn er til húsa við Skúlagötu
í Reykjavík. Eigandi staðarins er Tóm-
as Tómasson, sem eins og kunnugt er
rekur fjölmarga hamborgarastaði I
Reykjavík og víðar. Villti tryllti Villi er
skemmtistaður einkum ætlaður uagl-
ingum.
1980 greiddu sveitarfélögin ákveð-
inn krónufjölda fyrir hvern íbúa í
byggingasjóðinn, en eftir að lögun-
um var breytt greiða þau 10% af
framkvæmdakostnaði."
„Á meðan unnið var eftir gamla
kerfinu greiddi Hafnarfjarðar-
kaupstaður höfðatölugjaldið, en
hér gengu framkvæmdir ekki eins
hratt og áætlað var, þannig að
kaupstaðurinn hafði eignast
nokkra inneig hjá sjóðnum, þegar
lögunum var breytt, en inneign
þessi er tilkomin á árunum 1978 til
1980,“ sagði Einar.
„Nú viljum við gjarnan fá þetta
fé til að greiða verkamannabú-
staði, sem hér eru í byggingu, en
þar ber kaupstaðnum að leggja
fram 10%. Eðlilega vill kaupstað-
urinn fá þetta fé verðbætt, en höf-
uðstóllinn, sem var 820 þúsund
krónur, var framreiknaður orðinn
að 1740 þúsund krónum í mars sl.
Stjórn Húsnæðismálastofnunar
hefur að vísu jánkað því að við get-
um fengið höfuðstólinn greiddan
en án verðbóta."
Þá sagði Einar, að stjórnendur
Hafnarfjarðarkaupstaðar hefðu
ekki enn tekið ákvörðun um frek-
ara málavafstur, en kaupstaðurinn
gæti leitað til viðkomandi ráðu-
neytis eða dómstóla.
Bútasala
Verksmiðjugallaöar buxur á mjög vægu verði
Mittisjakkar unglinga kr.299.00 kr. 199.00
peysur kU99.O0 kr. 129.00
barna náttföt kr_9995 kr. 69.95
unglingaskyrtur kr^.6995 kr. 49.95
sjóliðapeysur kr_7995 kr. 49.95
dömublússur kr.299.00 kr. 199.00
dömuanorakkar m/hettu kr.,499^0 kr. 359.00
pils kU99Æ0 kr. 99.95
kjólar kr, 329.00 kr. 199.00
herrajakkar kr499r0O kr. 399.00
herranáttföt krjL2990 kr. 79.95
pilotskyrtur krjL1990 kr. 89.95
Verslanir í Reykjavík eru í Skeifunni 15, Lækjargötu og
Kjörgarði og á Akureyri að Norðurgötu 62.
Sími póstverslunar er 30980.
HAGKAUP
Opið í kvöld til kl. 22 Hagkaup Skeifunni