Morgunblaðið - 06.08.1982, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.08.1982, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1982 Þjóðhátíðin í Eyjum byrjar í dag ÞJÓÐHÁTÍÐIN í Vestmanna- eyjum hefst í dag klukkan 14.00, með því að formaður Þórs, Frið- rik Karlsson, setur hana, en íþróttafélagið Þór í Vestmanna- eyjum stendur fyrir hátíðinni að þessu sinni. Síðan verður um samfellda dagskrá að ræða fram á nótt og áfram á laugardegin- um, en á sunnudeginum fer heldur að draga úr, enda hátíð- inni slitið þá um kvöldið. Alls munu það vera um 60 skemmti- atriði, sem fengin hafa verið á hátíðina, og þrjár hljómsveitir munu leika fyrir dansi, Stuð- menn, Radíus og hljómsveit Stefáns P. Veitingar verða seld- ar á svæðinu, og er aukin áhersla lögð á hefðbundnar ís- lenskar veitingar, tertur, kökur, kleinur og annað slíkt. Inn á há- tíðina kostar 500 krónur, og er ekki nema um 100 króna hækk- un að ræða frá því í fyrra. Herj- ólfur verður með tvær ferðir milli lands og Eyja á dag og Flugleiðir standa fyrir loftbrú til Eyja, meðan á hátíðinni stendur. Sumartónleikar í Skálholti: Sýning í Ný- listasafninu SÓLVEIG Aðalsteinsdóttir opnar myndlistarsýningu í Nýlistasafn- inu við Vatnsstíg 3b, í dag. Á sýn- ingunni eru skúlptúrar og teikn- ingar. Sýningartími er frá klukk- an 16—22 til 16. ágúst. Arnarflug bætir þjón- ustu í innan- landsfluginu ÞJÓNUSTA við farþega Arnarflugs í innanlands- flugi hefur verið stórbætt frá því sem áður var. Fé- lagið hefur endurbætt húsakynni þau á Reykja- víkurflugvelli, sem áður voru í eigu Vængja. Er nú allt undir einu þaki, far- þegaafgreiðsla og vöru- móttaka. Ný verk eftir Gunn- ar Reyni Sveinsson Gunnar Reynir er afkastamikið tónskáld. Hann hefur samið hin margvíslegustu verk fyrir kóra, einsöngvara og hin ýmsu hljóð- færi. Auk þess hefur hann samið tónlist fyrir mörg leikrit og kvikmyndir. Á efnisskrá tónleikanna í Skálholti um næstu helgi verða eftirtalin verk flutt: 1) Fantasía fyrir orgel yfir gamalt ísl. þjóðlagastef „Nú vil ég enn í nafni þínu“. 2) Tvær postlúdíur fyrir bari- ton og orgel. a). Þú Guð míns lífs ... Texti: Matthías Jochumson, b) Eg á þig eftir Jesús minn ... Texti: Hjálmar Jónsson frá Bólu. 3) Orgelpartíta yfir sálmalagið „Jesús mín morgunstjarna". 4) Tvær postlúdíur fyrir bari- ton og Orgel a) Yfir hverri eykt á jörðu. Texti: Stefán frá Hvítadal, b) Minn friður er á flótta. Texti: Matthías Joch. 5) Kantata fyrir bariton og Orgel. Texti: Davíðssálmar nr. 137 og 117. Flytjendur verða baritonsöngv- arinn Halldór Vilhelmsson og Gústaf Jóhannesson, organleikari Laugarneskirkjunnar í Reykjavík. Þess má geta að þeir munu flytja hluta þessarar efnisskrár á nor- rænu kirkjutónlistarmóti sem haldið verður í Álaborg dagana 19.—23. ágúst 1982. Sem fyrr segir, hefjast tónleik- arnir kl. 15 síðdegis og er öllum heimill ókeypis aðgangur. Sjómannafélag Reykjavíkur: Vítavert skilningsleysi stjórnvalda á gildi öfl- ugrar landhelgisgæzlu varðskipum okkar en fiskiskip- unum sjálfum. Aðalfundur Sjómannafélags Reykjavíkur gerir þá kröfu til ríkisstjórnar og Alþingis að eft- irlit og aðstoð landhelgisgæsl- unnar við fiskveiðiflotann verði stóraukin. Sjómenn og landsmenn allir munu þá njóta þess öryggis, sem vel búin og virk landhelg- isgæsla veitir.“ Námskeið fyrir 13—15 ára unglinga að Úlfljótsvatni SUMARBÚÐIRNAR við Úlf- ljótsvatn hafa verið starfræktar frá því á fjórða áratugnum. í sumar eins og endranær hafa að öllum jafnaði dvalið þar um 50 börn á aldrinum 7—14 ára í eina eða tvær vikur. Þann 20. ágúst hefst svokallað útilífsnámskeið á Úlfljótsvatni og er það ætlað 13—15 ára unglingum. í leik og starfi verður æfð notkun landa- korts og áttavita, matseld við frumstæðar aðstæður, skyndi- hjálp og fleira. Á sama tíma verður haldið flokksforingja- námskeið fyrir skáta á Úlfljóts- vatni. Á örtrum sumartónkíkum í Skál- holti scm verða á morgun, laugar- daginn 7. ágúst, og sunnudaginn 8. ágúst kl. 15 síðdegis verða eingöngu flutt vcrk eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Af þeim eru tvö ný, sam- in á þessu ári. Gunnar Reynir Sveinsson er Gunnar Reynir Sveinsson fæddur í Reykjavík 1933. Hann stundaði nám við Tónlistarskól- ann í Reykjavík og framhaldsnám í tónsmíðum í Hollandi. Hann starfaði lengi sem slagverksmaður í Sinfóníuhljómsveit íslands og var einnig þekktur sem jassvibra- fónleikari. fæst ekki keypt til skipanna en meirihluti þeirra hefur legið í höfn nær alfarið frá 1978. Þetta er látið viðgangast þótt ærin verkefni sé að vinna fyrir a.m.k. fjögur varðskip, búin al- hliða búnaði til björgunar, eft- irlits og aðstoðar. Islenska þjóðin hefur nú brýna þörf fyrir og skyldum að gegna vegna veiða úr fiskistofn- unum okkar utan 200 mílna fiskveiðimarkanna. Má benda á karfaveiðar Rússa á Reykjaneshrygg, loðnu- og kolmunnastofna og .nú ís- lenska laxastofninn auk ann- arra hagsmuna nær og fjær. Athuga ber hvort eftirlits- menn Hafrannsóknastofnunar séu ekki betur komnir um borð í „Skæramorðinginn“ í Laugarásbíói LAUGARÁSBÍÓ hefur tekið til sýningar kvikmyndina „Skæra- morðinginn" (Schizoid). Leikstjóri og höfundur handrits er David Paulsen, en framleiðendur Mena- hem Golan og Yoram Globus. í að- alhlutverkum eru Marianna Hill, Klaus Kinski, Graig Wasson og Richard Herd. MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi ályktun frá Sjó- mannafélagi Reykjavíkur: „Aðalfundur Sjómannafélags Reykjavíkur, haldinn 20. júlí 1982, fagnar því að mörg bar- áttumál félagsins á sviði örygg- is- og tryggingarmála hafa náð fram að ganga eða eru að kom- ast í höfn. Fundurinn minnir samt á að margt er enn óunnið og í raun á baráttunni fyrir öryggi aldrei að linna. Aðalfundurinn lýsir undrun sinni yfir því vítaverða skiln- ingsleysi sem núverandi stjórn- völd hafa á gildi öflugrar land- helgisgæslu fyrir ey- og fisk- veiðiþjóð sem ísland er. Niðurlæging íslensku land- helgisgæslunnar er slík að olía

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.