Tíminn - 27.07.1965, Blaðsíða 16

Tíminn - 27.07.1965, Blaðsíða 16
I EJ-Reykjavík, mánudag. 166. fbl. — Þriðjudagur 27. júlí 1965 — 49. árg. Verða / Kerling- arfjöllum í kvöld MB-Reykjavík, mánudag. Ferðalag fimmmenninganna á hestum um Öræfin hefur tafizt nokkuð vegna óvæntra atvika og munu þeir hafa lagt af stað frá Tungnafellsjökli í morgun, en þangaS komu þeir s. 1. fimmtudags kvöld. Þeir töpuðu þrem hestum frá sér aðfaranótt föstudagsins og leituðu þeirra mikið, en hestarnir komu fram á Brú á Jökuldal á sunnudagsmorgni. Þeir félagar fóru úr Hvannalind- um að Tungnafellsjökli á fimmtu- dag og var það lengsti áfangi leið- arinnar. Á_föstudag söknuðu þeir svo þriggja hesta og leituðu þeirra mikið, en í gærmorgun komu þeir að Brú á Jökuldal. í morgun fóru þeir svo áleiðis í Nauthaga og áætla að koma þangað í kvöld, og annað kvöld, þriðjudag, áætía þeir svo að verða í Kerlingarfjöll- um. Eins og fyrr hefur verið sagt frá ætla þeir svo að fara norður Kjöl og vestur fyrir norðan Lang- jökul og koma niður að Kalmanns- tungu, þaðan suður Kaldadal og niður í Hvalfjörð. Selfoss kom hingað um helg ina og flutti m. a. 75 Moskvits- bifreiðar. Blaðið hafði í dag samband við Jón Guðjónsson hjá Bifreiðum og landbúnaðar vélum og sagði hann, að þetta væri síðasta sendingin af þess um árgangi, sem kæmi hingað til lands, og væri enn sama verð á þeim. Þá sagði hann, að nýja árgerðin, sem að útliti til er frekar ólík eldri árgerðum, kæmi hingað um miðjan ágúst mánuð, en áður, eða 2. ágúst kæmu sýningarbílar. Myndin ’hér að ofan er tekin af Selfossi og sjást bílarnir á dekkinu. — Tímamynd-GE BAUÐ TELPUM VIN OG ATLOT - VARÐ 6000 KR. FÁTÆKARI Skúli Skúlason, rit- stjóri, 75 ára í dag. Skúli Skúlason, ritstjóri, er 75 ára í dag. Skúli er fæddur í Odda á Rangárvöllum 27. júlí 1890. Hann varð stúdent 1910 og cand. phil. í Kaupmannahöfn 1911. Stundaði nám í náttúrufræði og landafræði. Hann var blaðamaður við Morgunblaðið og ísafold Framhald á 3. síðu. JHM-Reykjavík, mánudag. Fyrir nokkrum dögum síðan kom eldri maður að máli við lög- regluna hér í borg og kvartaði undan því að frá sér hefði verið stolið 2.000 krónum. Fimm dög- um seinna hurfu 4.000 til viðbót- ar, meðan hann hafði brugðið sér út. Gamla manninn grunaði tvær ungar stúlkur um verknaðinn, sem síðan voru teknar til yfirheyrslu, þar sem þær játuðu á sig þjófnað- inn, en bættu við að sá gamli hefði boðið þeim áfengi og síðan viljað vera þeim góður. Stúlkumar, sem eru 14 og 16 ára, höfðu frétt af þessum manni frá vinkonum sínum, og gengu á hans fund til að fá lánaða hjá hon- um peninga til að komast á ball. Þær heímsóttu manninn, sem er á sjötugs aldri, og tók hann þeim vel og bauð þeim upp á vín, sem þær þáðu með beztu lyst. Nú vildi karl vera blíður við þær, en þær sneru sér undan öllu slíku. Þeim tókst hins vegar að næla sér í tvö þúsund krónur frá honum, án.þess að hann tæki eftir því. Þegar þær fóru, gaf hann þeim 200 krónur, að þeirra eigin sögn. Karlinn lét þær skrifa nöfn sín niður, sem síðan reyndust vera fölsk, en hann mundi hvernig þær litu út. , Fimm dögum seinna vildu litlu stúlkurnar komast á ball og ákváðu að heimsækja manninn aft ur. Þegar þær komu til hans, þá var hann ekki heima, :svo að þær skriðu inn um glugga og fundu 4000 krónur, sem þær tóku. Þeg- ar maðurinn varð var við að pen- ingarnir voru horfnir, lét hann lög regluna vita, sem þegar kannað- ist við lýsinguna á vinkonunum, enda voru þær kunnugar hjá lög- reglunni fyrir önnur úiál. Við yfirheyrslu játuðu þær á sig verknaðinn, en sögðu um leið frá því að karlinn hefði boðið þeim vín og síðan viljað stíga í væng við þær. Nú var hann kall- aður fyrir og játaði að hafa bæði gefið þeim vín og peninga, sem þýðir það, að nú eru öll þrjú orð- in brotleg við lögin. Mál stúlkn- anna verður sent áfram til barna- verndarnefndar, en gamli maður- inn verður að svara fyrir dómi, þar sem það er ekki leyfilegt að gefa unglingum áfengi. Fall er fararheill" EJ-Reykjavík, mánudag. Fyrsta flugferðin á vegum hins nýstofnaða félags Húnaflugs var ekki með öllu áfallalaus, þar sem fiugvélinni hnekktist á í lendingu Ari til USA Ari Bryniolfsson BÞG-Reykjavík, mánudag. Hinn þekkti íslenzki vísinda- maður Ari Brynjólfsson, mag. scient., sem um árabil hefur starfað við kjarnorkustöðina í Hrísey (Risö) í Danmörku er nú farinn þaðan og tekur við hærri stöðu í Bandaríkjunum. Verður hann yfirmaður Army Natick Laboratories nálægt Boston, en það er stofnun Bandaríkjahers, sem sér um geislun matvæla, segir í skeyti frá Aðiis, fréttaritara Tímans í Kaupmannahöfn. Áður hefur ítarlega verið skýrt frá starfi Ara hér i Tím- anum, en þess má sérstaklega geta, að í fyrra var hann um tíma í Bandaríkjunum og sá þá m. a. um smíði stærstu Ko- Framhald á 3. síðu á Reykjavíkurfiugvelli, en þó ekki alvarlega. Sagði Jón fsberg, for- maður félagsins og aðalhvatamað- ur að stofnun þess, að félagsmenn teldu þetta sönnun þess, að „fall er fararheill“. Húnaflug hefur enn ekki tekið upp fast áætlunarflug, að því er Jón tjáði blaðinu, en mun það lík lega tekið upp um leið og öll nauð synleg leyfi hafa fengizt. Á meðan verður flogið þegar farþegar eru fyrir hendi. Jón sagði, að Iíúnaflug hefði þegar farið tvær ferðir. Fyrri ferðin var á föstudaginn í síðustu viku, en þá hnekktist vélinni á í lendingu á Reykjavíkurflugvelli, en hún skemmdist lítið. Síðara flugið var sjúkraflug, sem farið var á laugardaginn. Er flogið frá flugveliinum að Akri, sem er í um 12 km fjarlægð frá Blöndu- ósi. Flugsýn í Reykjavík sér Húna- flugi fyrir flugvélakosti, a. m. k. fyrst um sinn. Svipuð selveiði í Strandasýslu EJ-Reykjavík, fimmtudag. Guðbrandur Benediktsson, bóndi á Broddanesi, var hér fyrir sunn an á dögunum og spjölluðum við við hann um selveiðina þar um slóðir. Sagði hann, að selveiðin hafi verið svipuð og í fyrra, eða um 100 selir veiðst, þótt veiði hafi nú byrjað nokkuð seinna en í fyrra Framhald á 3. síðo SATTAFUNDUR EJ-Reykjavík, mánudag. Klukkan 14 í dag hófst sátta- fundur í deilu farmanna og vinnu veitenda og stóð hann enn, þegar blaðið fór í prentun. Sáttafundur hefur verið boðað- ur í vinnudeilunni í Vestmanna- eyjum klukkan 15 á morgun. Engir sáttafundir hafa verið boðaðir i vinnudeilum annarra félaga. HÉRAÐSMÓT Snæfellsnes Héraðsmót Framsóknarmanna á Snæfellsnesi verður haldið að Breíðabliki, Miklaholtshreppi laugardaginn 7. ágúst og hefst kl. 21. Ræðumenn verða: Pró fessor Ólafur Jóhannesson, varaformaður Framsóknar- flokksins, og Ásgeir Bjarnason, Ólafur alÞingismaður. Jón Gunnlaugs son, skemmtir, óperusöngvarinn Erlingur Vigfússon syngur ein- söng. Júnó og Eyþór leika fyr ir dansi. V-Skaftafellssýsla Framsóknarmenn í V-Kkafta- fells. halda héraðsmót sitt að Kirkjuhæjarklaustri laugard. 7. ág. M. 21. Ræðu maður verður Björn Fr. Björns son, aiþm. Ást- hildur Emils- dóttir og Björg Ingad. skemmta með aðstoð Jóns Sigurðss. Tóna bræður leika fyr Björn ir dansi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.