Morgunblaðið - 12.09.1982, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.09.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982 71 Travolta kemur ekki en aórar stjörnur seinna — „Reksturinn hefur gengið vel, “ sagði Árni Samúelsson eigandi Bíóhallarinnar „Þetta hefur gengið vel, enda hefur aðsóknin verið góð og í sam- ræmi við þær vonir sem við gerð- um okkur þegar við fórum af stað með bíóið,“ sagði Árni Samúels- son, eigandi Bíóhallarinnar í Breiðholti, en nú eru liðnir rúm- lega sex mánuðir frá því bíóið var formlega tekið í notkun, 2. mars sl. Að sögn Árna verða nú á næst- unni teknir í notkun tveir nýir sýningarsalir, sem taka 18 manns í sæti hvor, og verða því sýn- ingarsalirnir alls sex og taka 1.040 manns í sæti alls. Þá verður og í samræmi við fyrri ráðagerðir sett upp myndbandaleiga í anddyri Bíóhallarinnar fljótlega. Mörgum er eflaust enn í fersku minni, að til stóð að leikarinn heimskunni, John Travolta, myndi koma til landsins og verða við- staddur frumsýningu myndarinn- ar „Hvellurinn" (Blow Out) og í því sambandi átti Árni m.a. við- ræður við „stórstirnið" sjálft. Ekkert hefur bólað á Travolta og sýningar á „Hvellinum" eru þegar hafnar. Þótti því ekki úr vegi að inna Árna eftir því hverju liði. „Jú, það stóð til að hann kæmi. Ég fékk frá honum skeyti þar sem hann kvaðst önnum kafinn við sviðs- og kvikmyndaleik og sæi sér því ekki fært að koma á þeim tíma sem ég ráðgerði að frumsýna myndina, en hann kvaðst geta komið í haust. Ég átti ekki kost á að bíða með sýningu myndarinnar til haustsins, svo ég frestaði þessu að sinni. Það er þó öruggt, að hingað koma frægir kvikmynda- leikarar á vegum bíósins til þess að verða við frumsýningu mynda, en hverjir það verða get ég ekkert sagt um að svo stöddu." Þá var Árni beðinn að segja álit sitt á myndbandaþróuninni hér á landi og þá í því sambandi inntur eftir því hvort hún hefði ekki haft áhrif á rekstur Bíóhallarinnar. „Myndbandaþróunin hefur jú komið niður á öllum kvikmynda- húsunum. Leiðinlegast við þessa þróun er sú staðreynd, að flest þeirra fyrirtækja sem með myndböndin sýsla, reka starfsemi sína kolólöglega. Ég held að um 80 prósent af því efni sem mynd- bandaleigurnar eru með, sé ólög- legt. Við erum trekk í trekk að stöðva sýningu mynda í kapalkerf- um, sem bíóið hefur rétt á, en á eftir að sýna. Það virðist sem að- standendur þessara kapalkerfa fari á myndbandaleigur, leigi þar myndir og sýni þær síðan ólöglega opinberlega, þrátt fyrir yfirlýs- ingar þess efnis að starfsemi þeirra sé rekin löglega. Það er raunar furðulegt að þetta skuli látið viðgangast hér á landi og ætti fyrir löngu að vera búið að grípa í taumana. Víða erlendis er farið að taka mjög strangt á lögbrotum á þessu sviði og í Sví- þjóð til dæmis geta þau varðað fangelsisvist og háum sektum." Guðmundur á vinnustaðafundi Alþýóubandalagsins NokkuA hefur veriA rætt um það manna á medal og í fjölmiðlum, hvað Htið hefur heyrst til Guðmundar J. Guðmundssonar eftir margumtalaðar efnahagsráðsUfanir ríkisstjórnarinnar í síðasta mánuði og hafa sumir getum að því leitt, að hann hafi verið mönnum týndur. Annað hefur komið á daginn enda ku Guðmundur hafa staðið fyrir vinnusUðafundum að undanfórnu og viljað raeða efnahagsúrræði kollega sinna. Ja, allténd rakst Ijósmyndari Morgunblaðsins á hann á einum slíkum nú fyrir skömmu. , Flugleidir: Silli með nafnió á bókanakerfið, — en nú vantar nöfn á farskjótana Hjónin Samúel GúsUfsson og María Mariusdóttir að leggja upp í helgarferð til London, en það var einmitt vinningurinn sem Silli fékk fyrir að eiga bestu tillöguna um nafn á bókanakerfi Flugleiða í nafnasamkeppni sem haldin var ekki alls fyrir löngu. Flugleiðamenn hafa nú farið af sUð með samkeppni meðal sUrfsmanna sinna og almennings í landinu til þess að finna upp á nafni á farskjóU félags- ins, en þeir hafa verið nafnlausir frá því Flugfélag íslands og Loftleiðir lögðust í eina sæng saman og Flugleið- ir voru stofnaðar. Sérstök dómnefnd ' mun velja úr tillögum um besU nafnið eða nafnaröð, en sá er á bestu tillög- una hlýtur að launum ferð fyrir tvo til Puerto Rico, gullpenna félagsins og sérsUkt heiðursskjal. Eitthvað virðast Flugleiðamenn hafa verið andlausir í nafngiftum frá því er félagið var stofnað, en þetta er önnur nafnasamkeppnin sem þeir efna til á árinu. Ekki alls fyrir löngu efndi félagið til sam- keppni, meðal starfsmanna sinna, þar sem þeir voru beðnir um tillögur um nafn á tölvubókanakerfi, sem nú er verið að taka að fullu í notkun. Um 100 tillögur bárust frá starfs- mönnum hér heima og heiman og mátti líta ýmis nöfn eins og t.d. Sim- on, Smart, Icepacks, Gabriel 11 og fleira. Sérstök dómnefnd komst að þeirri niðurstöðu að Samúel Gústafsson (Silli), afgreiðslumaður á ísafjarðar- flugvelli hafi átt bestu tillöguna, sem var nafnið Alex. Það sem dóm- nefndin lagði m.a. til grundvallar í vali sínu var, að nafnið minnir á einn af frumkvöðlum flugsins, Alex- ander Jóhannesson, en hann var fyrsti framkvæmdastjóri Flugfélags íslands. Þá hljómar Alex ekki ólíkt og nöfnin á afsláttarfargjöldum fé- lagsins, Apex og Tex. Tölvukerfið Alex er nú víða komið í notkun hér innanlands og stefnt er að því aö það leysi gamla kerfið, Gabriel, alveg af hólmi á næstunni. Karólína við eitt verka sinna á ráðstefnunni. Verkalýðsleiótogar skoða verk Karólínu Lárusdóttur — Veröur meö sýningu á í baenum Bishop’s Stortford í Bret- landi var haldin ráðstefna ekki alls fyrir löngu, þar sem nokkrir meðlimir Verkamannaflokksins og verkalýðs- leiðtogar komu saman til skrafs og ráðagerða. Þetta þykir kannski ekki I frásögur færandi, en það sem meira var um vert, var, að verkalýðsleiðtog- inn Clive Jenkins fékk íslensku mynd- listarkonuna Karólínu Lárusdóttur til þess að skreyta ráðstefnusalina með vatnslitamyndum sínum, en hann á nokkur olíumálverk eftir hana. Þá kom Karólína nú fyrir skömmu fram í ein- um vinsælasta umræðuþætti BBC-sjón- Kjarvalsstööum í október varpsstöðvarinnar, „Friday Night, Sat- urday Morning", og ræddi þar m.a. um verk sín. í október ætlar Karólína að halda sína fyrstu einkasýningu hér á landi á Kjarvalsstöðum og má búast við að þar verði um 80 verk, aöallega vatnslita- og olíumálverk. Eftir að Karólína lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum í Reykja- vík, fór hún til náms í Ruskin- listaakademíunni í Oxford. Karólína hefur vorið búsett í Stortford undan- farin ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.