Morgunblaðið - 19.09.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.09.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982 51 nokkuð af og vann töluvert í, gerði þar á meðal seríu um Auschwitz, — þessi mynd er úr þeirri mynd- röð,“ bætir hann við og bendir á litla og finlega mynd á einum veggnum í vinnustofunni. „Mér hefur alltaf þótt ætingin vera skyld innhverfri og viðkvæmri ljóðagerð. Hún er vandmeðfarin og knöpp. Ég keypti tæki til að vinna graf- :k úti í Svíþjóð og kom með þau heim og kenndi á þetta í MHI og ásamt nemendum mínum þar var endurreist félagið Islensk grafík, sem Jón Engilberts og fleiri höfðu stofnað á sínum tíma. Félagið varð fljótt öflugt og þessi tækni, sem hafði verið nær óþekkt hér, varð brátt útbreidd og myndir, gerðar hér, vöktu athygli á sýn- ingum erlendis. Þetta var upphaf- ið að ágætum ferli Bjargar Þor- steinsdóttur og Ragnheiðar Jóns- dóttur, svo dæmi séu nefnd. Sjálfur hef ég ekki mikið unnið í grafík hin síðari ár, því ég hef haft svo mikið að gera og þetta er tímafrek listsköpun og það er frekar hægt að ganga frá mál- verki, og koma að því aftur síðar, heldur en grafíkmynd. En núna, þegar ég fer væntanlega að hafa meiri tíma er ekki ólíklegt að ég taki til við þetta aftur, í nýju pressunni. Ég hef alltaf haft tilhneigingu til að segja sögur í mínum mynd- um og einnig hef ég fengist nokk- uð við bókaskreytingar. Núna er ég að fara að vinna myndskreyt- ingarverkefni um Skaftárelda og mig langar mikið til að vinna það í grafík." Eitthvert óttalegt tóm Og nú er dagurinn næstum kominn upp á rönd og mannfljótið farið að streyma með járnslegnum og ljósumprýddum boðaföllum upp í móti eftir Breiðholtsbraut- inni, áleiðis i lygnur sjónvarps, svefns og nætur. Við risum upp og skoðum nokkrar myndir Einars í geymslu inn af vinnustofunni. Það er ljóst. Þær eru tilfinningaríkar. Fjalla um marklausar skemmtan- ir og yfirborðskennd samskipti fólks, t.d. ein, er ber nafnið „partí“. „Sjáðu þessi hús, hér í borg- inni,“ segir Einar og bendir út um gluggann. „Það er gaman að ímynda sér allt þetta fólk inni í þeim. Þetta er mitt líf, og þitt. Yfirleitt hefur fólk allt til alls í þessum húsum, en samt er eitt- hvað að. Það er eitthvert óttalegt tóm. Ég málaði eina gríðarstóra mynd um þetta. Hún heitir „Dokt- or Stefán yfirgefur samkvæmið". Fólk virðist ekki hafa neitt til að trúa á og berjast fyrir þegar húsið er loks komið upp. Þá er bara þetta tóm. Fólk finnur enga ánægju. Er alltaf að leita hennar í einhverju eilífðar skemmtana- brjálæði. Skemmtunin verður lokatakmarkið. Það væri ánægju- legt ef fólk á íslandi hyrfi frá þessum óhemju áhuga á efna- legum gæðum, sem ekkert eru og fyndi sér meiri tilgang í bókum og listum, andlegum efnum og sjálfu sér. Þó er reyndar einstakur menningaráhugi hér á landi, mið- að við aðrar þjóðir, en hann vill oft verða fyrst og fremst spurning um magn, en ekki gæði. Mæli- kvarðinn á myndlistarmann verð- ur hvað mikið hann selur. Það er bissnes-hugarfar. Þá er verið að tala um framleiðslu en ekki list. En það er gott fólk í þessum húsum. Það er bara eitthvert tóm, sem sem þarf að fyllast." Það er óþarfi að þreyta sig á helgarinnkaupunum... Kannast þú ekki við föstudags- tilfinninguna? Allir bílar bæjarins að þvælast fvrir þér í umferð- inni, bilastæðin stöþpuð og matvöruverslanirnar troðfullar af fólki, sem keppist við að kaupa sér í helgarmatinn. Það væri nú þægilegt að geta losnað við þetta allt saman! Þar kemur frystikistan til skjal- anna. Pað er ekki nóg með að þú getir gert innkaup í stórum stíl með lengra millibili og fækkað þannig búðarferðunum. Þú getur líka keyþt ýmsa mat- vöru á lægra verði í stórum einingum, nýtt þér allskonar tilboðsverð og útsölur, s.s. á kíöti, smjöri og grænmeti,-og bakað til jólanna í júlí! Við eigum mikið úrval af Philips og Carawell frystikistum og frystiskápum, sem henta öllum heimilum. Frystikista er fjárfesting, sem borgar sig strax! ...Það er engin föstudagsörtröð við frystikistuna! Hafðu samband, við erum sveigjanlegir í samningum. heimilistæki hf. HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 - SÆTÚNI 8 - 15655 T-1 ■ ■ 1 Colourty4rt cPhoto Vandaöar ; i Þaö er góöur siöur aö láta taka mynd af börnunum meö jöfnu milllbill. Þau vaxa, dafna og breyt- ast. Þessvegna er þaö svo gaman aö eiga góöa Ijósmynd. Gjafa- myndatökur aldraðra j tilefni árs aldraöra er mér sérstök ánægja aö bjóöa öllum 70 ára og eldri ókeypis myndatöku A hamingjustund ríkir há- tíöarstemmning á stofunni hjá mér. Ekta strigamyndir, Barr- okk-rammar, Innrömmun. Mikiö úrval. Verið velkomin í myndatöku LJUbMTNUAPJUNUS I AIS Laugavegi 178 — s. 85811

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.