Morgunblaðið - 05.12.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 05.12.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1982 5 Stjórnendur Stundarinnar okkar: Ása Helga Ragnarsdóttir og Þorsteinn Marebson. Stundin okkar kl. 18.00: Galdrakarlar, gaman- þáttur og snúðabakstur Á dagskrá sjónvarps kl. 18.00 er Stundin okkar. Nýir umsjónarmenn þáttarins eru Ása Helga Ragnarsdóttir og Þorsteinn Marelsson, en upptöku stjórnaði Valdimar Leifsson. t 't Hólmadrangur ST 70 í Hafnarfjarðarhöfn. Hólmadrangur ST 70 virðist óskemmdur í þessari Stund kemur margt nýtt til sögunnar með nýjum um- sjónarmönnum. Skal þar fyrst nefna málgefnu brúðuna Hollu og Kalla, bróður hennar, og galdra- karlana Gussa og Adda, sem geng- ur illa að blekkja árvaka áhorf- endur sína. Sigurður Sigurjónsson leikari birtist í gervi Eiísar og leikur öll hlutverkin í gamanþætt- inum Hurðinni eftir Auði Har- aldsdóttur og Valdísi Óskarsdótt- ur. Heimsótt er bakarí í Breiðholt- inu og fylgst með snúðabakstri og Ása segir sögu sem áhorfendur eiga að botna og myndskreyta. TOGARINN Hólmadrangur náðist á flot á föstudagsmorgun, en hann strandaði við sjósetn- ingu við Skipasmíðastöðina Stálvík í Garðabæ á fimmtudag. Skipið var dregið til Hafnar- fjarðar, eins og áætlað hafði verið að gera þann dag, og virð- ist skipið óskemmt eftir strand- ið. Þar verður lokið við frágang á skipinu og áður en það verður afhent eigendum á Hólmavík verður það tekið í slipp til skoð- unar. Helgarferóir-vikuferöir aO AMSTERDAM eina sama „Evrópuhjartaó Amsterdam er óumdeilanlega í sviðsljósinu um þessar mundir - jafnt hér- lendis sem erlendis. Þessi fallega stórborg hefur í æ ríkara mæli tekið við hlutverki hins eina sanna „hjarta Evrópu" og í borginni finnur þú tækifæri til nær allra þeirra hluta sem hugurinn girnist. Einstaklingsferðir Brottför alla föstudaga í 5 daga ferðir. Brottför alla þriðjudaga og föstu- daga í vikuferðir. Innifalið í verði: Flug, gisting með morgunverði. Gisting á lúxushótelunum Marriott og Hilton eða á hinu stórskemmtilega og vingjarnlega Parkhotel. Allt einstaklega vel staðsett hótel. 5 daga hópferð aðildarfélaga 10. desember (hægt að framlengja) Nú er tilvalið að gleyma jólastressinu í nokkra daga, njóta leiðsagnar íslensks fararstjóra um ævintýraheim Amsterdam og slaka á í skemmti- siglingu um síki borgarinnar. Allt er þetta innifalið í verði ferðarinnar að ógleymdu flugi, gistingu á lúxus- hóteli m/morgunverði og ferðum til og frá Schiphol flugvelli. Verð miðast við flug og gengi 1.12.1982 Næturlífið er fjölskrúðugt og eldfjörugt, verslanirnar í sérflokki, veitingastað- irnir hver öðrum skemmtilegri og listheimurinn óviðjafnanlegur. Síðast en ekki síst mætir þér hvarvetna glaðvært og hlýlegt viðmót sem Hollendingar hafa löngum verið annálaðir fyrir. Hvað er gert í Amsterdam? Myndlistin 50 listasöfn, t.d. Rembrandt- og Van Gogh söfnin, Rijksmuseum, Stede- lijks Museum, vaxmyndasafnið Madame Tussaud's, hús önnu Frank o.fl. Tónlistin Klasslk, popp, jazz, kirkjuorgel og margt fleira. Snjöllustu listamenn heims troða upp í hverri viku. Gleymum heldur ekki ballettinum og 50 kvikmyndahúsum með allar nýjustu myndirnar með ensku tali. Knattspyrnan Deildarkeppnin, Evrópuleikir, lands- leikir. Verð frá kr. 6.215 Nánari upplýsingar á skrifstofunni. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 Verslun Glæsilegar verslanir af öllum tegundum. Verðlagið er engu líkt. Veitingahús Veitingahúsin eru frá öllum heims- hornum enda gjarnan sagt að f Amsterdam sé hægt að „borða á öllum tungumálum". Líflegir barir og notaleg kaffihús að auki. Næturlífið Diskótek, næturklúbbar og skemmtistaðir skipta hundruðum. 1 rb

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.