Morgunblaðið - 05.12.1982, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 05.12.1982, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1982 Við bökum Ijúffenga rétti í gamla ofninum hennar Mömmu Rósu. Bragð er frásögn ríkara. Líttu endilega inn á ööruvisi veitingastaÖ við Hlemm. Sænsku „sjó- ræningjarn- ir“ sektaðir Frá Jan Krik l.auré, frétta- ritara Mbl. í Ósló: TVEIR sænskir skipstjórar voru dæmdir til að greiða 70.000 króna sekt eða sitja i fangelsi i 30 daga, en norska landhelgisgæslan gómaði fiskibáta þeirra að ólöglegum veið- um innan norsku landhelginnar í Skagerak. Atburðurinn átti sér stað síð- astliðið sumar og vakti mikla at- hygli, því norska varðskipið náði ekki veiðiþjófunum fyrr en eftir mikinn eltingarleik og mikla skothríð. Alls hleypti varðbátur- inn af 21 fallbyssuskoti meðan á hasarnum stóð og sprungu skeytin í sjónum allt í kringum fiskibát- ana þar sem þeir ösluðu áfram og freistuðu þess að stinga varðskipið af. Fyrir réttinum sögðu sænsku skipstjórarnir, að þeim hefði ekki verið gert að stöðva um talstöð, áður en varðskipið hóf skothríð- ina. Þeir vildu ekki ganga svo langt að segja norska varðskip- stjórann skrökva, en sögðu tal- stöðvarsambandið hafa verið það lélegt að þeir hefðu ekki heyrt í varðskipinu, þó svo að það hefði verið að kalla þá upp. Þá neituðu þeir að greiða sektarupphæðina og er málið í biðstöðu meðan á áfrýj- un stendur. báLZ Freyjugötu 27, s. 18188 GEFIÐ BÖRNUNUM GÓÐAR ÍSLENSKAR BÆKUR _ ÁFRAM FJÖRULALLI eftir Jón Viðar Guðlaugsson Ný sprenghlægileg bók um Fjörulalla. I þessari bók heldur hann áfram hvers kyns ærsl- um og uppátækjum með dyggri aðstoð bróður síns og félaga þeirra. ÁFRAM FJÖRULALLI ersaga um saklaust grín og gaman sem öll fjölskyldan skemmtir sér yfir. Teikn: Búi Kristjánsson Kr. 197,60 TRÖLLIN í TILVERUNNI eftir Hreiðar Stefánsson Jennu og Hreiðar Stefánsson þarf ekki að kynna. TRÖLLIN í TILVERUNNI er ný bók eftir Hreiðar. Hér segir hann börn- unum sögur sem honum ein- um er lagið. Frásögnin er svo lifandi og skemmtileg að börn- in verða sjálf þátttakendur í atburðunum. Bók fyrir unga sem aldna. Teikn: Ragnar Lár Kr. 197,60 VIÐ GEFUM ÚT GÓÐAR ÍSLENSKAR BARNABÆKUR Bretland: Ekkert farar- snið á Foot (ilasgow, 2. desember. AF. MICHAEL Foot, leiðtogi Verka- mannaflokksins breska, kvað í gær niður allar vangaveltur um að hann ætlaði að hætta sem formaður flokksins. Á fundi, sem flokkurinn efndi til í fyrrakvöld, lýsti hann því yfir, að hann ætlaði sér að leiða flokkinn í næstu þingkosningum. Foot er nú 69 ára að aldri. í skoðanakönnun, sem birt var í Daily Express, kemur fram, að heldur hefur dregið saman með flokkunum, íhaldsflokknum og Verkamannaflokknum, og hefur Thatcher nú 8% fram yfir Foot, en hafði 11% fyrir nokkru. Að sögn The London Times er gífurleg óánægja innan Verka- mannaflokksins með frammistöðu Foots og honum kennt um að ekki skuli hafa tekist að skapa einingu í flokknum. Foot lýsti því hins vegar yfir á fundi í Glasgow, að hann væri ekkert á förum og hygðist vera í fylkingarbrjósti fyrir flokknum í næstu kosning- um. Sprenging í Bangkok Bangkok, Thailandi, 2. desember. Al*. SPRENGJA sprakk við ræð- ismannsskrifstofu íraks í Bangkok, höfuðborg Thailands í gær. Sprengj- an var öflug og sprakk er sprengju- sérfræðingur úr röðum thailensku lögreglunnar freistaði þess að gera hana óvirka. Lést sérfræðingurinn auk þess sem sjö lögreglumenn aðrir slösuðust meira og minna. Eldur kviknaði í kjölfarið og brann skrif- stofuhúsið til grunna auk 15 annarra húsa i nágrenninu. Engin samtök eða þvíumlíkt hafði lýst ábyrgðinni á hendur sér síðast er fréttist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.