Morgunblaðið - 05.12.1982, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 05.12.1982, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1982 45 Kevin Keegan skorar hér eitt dýrmætasta mark sitt fyrir félagið. Var það sigurmarkið (3:2) í fyrri úrslitaleik UEFA-keppninnar 1975—76. Hinn danski markvörður Jensen átti ekki möguleika á að verja vitaspyrnu Keegans. Þetta er einhver mest spennandi leikur sem fram hefur farið á Anfield. Liverpool var undir í hálfleik (0:2) en náði að knýja fram sigur. slitaleikinn í Evrópukeppni meist- araliða vorið 1977. Að slíkur fjöldi skyldi fylgja liðinu alla þessa leið var með ólíkindum og minnti Ólympíuleikvangurinn helst á Anfield meðan á leiknum stóð. Áhangendur Liverpool eru löngu heimsþekktir fyrir góða hegðun — nokkuð sem ekki er algengt hjá öðrum enskum félagsliðum. „The Kop“ eru þeir kallaðir, eldheitustu Liverpool-aðdáendurnir, sem ætíð eru fyrir aftan annað markið á Anfield. Þar er gaman að standa og kynnast andrúmsloftinu, taka þátt í gleði fólksins er vel gengur (það er ekki svo sjaldan) og sleppa sér við söng, hróp og köll eins og hinir. Sá er þetta ritar var svo heppinn að verða þessarar lífs- reynslu aðnjótandi, og ekki spillti fyrir að leikið var gegn Manchest- er United í einum af úrslita- leikjum viðkomandi keppnistíma- bils. Stemmningin var ólýsanleg enda rúmlega 46.000 áhorfendur á vellinum. Líf fólksins — stórs hluta hinna almennu borgara — snýst um knattspyrnu og aftur knattspyrnu. Fólk þettar stritar til að eiga fyrir salti í grautinn og aðgöngumiðum á knattspyrnuleiki. Áhugi fyrir íþróttinni er óvíða meiri en ein- mitt í Liverpool, og rígur milli stórliðanna tveggja — Everton og Liverpool — geysilega mikill. Fræg nöfn Keegan, Dalglish, Clemence. Allir þeir sem nú fylgjast með ensku knattspyrnunni kveikja strax á perunni þegar þessi nöfn eru nefnd. Einhverjir frægustu og bestu leikmenn sem Bretar hafa eignast og allir hafa þeir leikið með Liverpool, og Dalglish gerir það auðvitað enn. En þegar nefnd eru nöfn eins og Liddell, Stubbins og Scott er hætt við að standi í mönnum. Billy Liddell, Albert Stubbins og Elisha Scott héldu merki félagsins á loft hér á árum áður og voru ekki minni stjörnur þá en hinir þrír fyrrnefndu eru í dag. Liddell og Stubbins voru helstu stjörnur liðsins á þeim tíma sem Paisley lék með því en Scott, sem var stórgóður mark- vörður, „sá besti sem ég hef nokk- urn tíma séð,“ sagði John W. Smith, núverandi forseti félagsins einhvern tíma, var upp á sitt besta er liðið varð meistari fyrstu árin eftir heimsstyrjöldina fyrri. Margir nafntogaðir leikmenn hafa leikið með félaginu í gegnum tíðina og of langt mál yrði að skrifa um hvern þeirra. En hjá því verður ekki komist að nefna nokkra þeirra. Frægast- ur allra er líklega Kevin litli Keegan sem kom til félagsins skömmu fyrir úrslitaleik bikar- keppninnar 1971. Liðið tapaði þá fyrir Arsenal 2:1, og fylgdist Keegan með leiknum. í upphafi næsta keppnistímabils var hann kominn í aðallið félagsins og í fyrsta leiknum — gegn Notting- ham Forest á Anfield — skoraði hann sitt fyrsta mark. Næstu ár á eftir var Keegan jafnan aðalmað- urinn í liðinu og unnust ófáir titl- ar á þessum tíma. Keegan fór síð- an til Hamburger SV í Þýskalandi sumarið 1977 — eftir að Liverpool hafði tryggt sér sigur í Evrópu- keppni meistaraliða í fyrsta skipti. Hann átti mikinn þátt í að bikarinn náðist til Anfield og segja má að hann hafi yfirgefið félagið er það var á hátindi frægð- arinnar. Eða hvað? Síðan þá hefur þessi bikar tvívegis unnist og er Liverpool komið í hóp örfárra liða sem þeim áfanga hafa náð. En hvað um það, Keegan átti Liver- f)Ool mikið að þakka fyrir að gefa honum það tækifæri sem hann fékk á knattspyrnuvellinum, og Liverpool átti honum mikið að þakka fyrir hans framlag — og þátt hans í velgengni félagsins. „Hvað er það, sem...“ Varla er hægt að minnast á Kevin Keegan án þess að minnast á John Toshack. „Keegan-Tosh- ack“-dúettinn var nær óstöðvandi, og oft og tíðum var sem einn heili væri að verki er þeir unnu saman. Keppnistímabilið 1975—76 var þeirra besta og þá varð svohljóð- andi gáta til: „Hvað er það sem hefur fjóra fætur og skorar mörk?“ Svarið liggur í augum uppi, auðvitað: „Keegan og Tosh- ack.“ Er Keegan ákvað að fara frá fé- laginu fór hrollur um marga stuðningsmenn þess, og þeir hugs- uðu með sér að enginn möguleiki yrði að finna mann í hans stað. En Bob Paisley lét ekki að sér hæða frekar en fyrri daginn. Allir vita nú hver útkoman varð, en er Kenny Dalglish kom til Anfield frá skoska liðinu Celtic efuðust margir um ágæti hans. Fljótlega fékk Dalglish þó þessa menn til að hætta að efast um ágæti sitt því byrjun hans hjá félaginu var væg- ast sagt stórkostleg. Á sínu fyrsta keppnistímabili skoraði hann 31 mark — þ.á m. sigurmarkið í úr- slitaleik Evrópukeppni meistara- liða, er liðið varði titilinn sem það Ray Clemence var ekki óvanur að „halda hreinu" á meðan hann lék með Liverpool. Hann hefur haldið hreinu í rúmlega 330 leikjum á ferli sínum. Tommy Smith hafði ærna ástæðu til að fagna eftir úrslitalcikinn í Róm 1977. Hann skoraði eitt markanna og var það hans eina mark á keppnistímabilinu — og leikurinn hans 600. fyrir Liverpool. Sigurvegarar í 1. deild: 1900-01, 1905-06, 1921-22, 1922-23, 1946-47, 1963-64, 1965-66, 1972-73, 1975-1976, 1976-77, 1978—79, 1979—80, 1981—81 (Liverpool hefur oftast allra liöa orðið Englandsmeistari — 13 sinnum). Liðið hefur sex sinnum lent í öðru sæti í deildinni: 1898-99, 1909-10, 1968-69, 1973—74, 1974—75 og 1977—78. 2. deild, sigurvegarar: 1893-94, 1895-96, 1904-05, 1961-62. FA-bikarinn, sigurvegarar: 1965 og 1974. í öðru sæti: 1914,1950, 1971 og 1977. Deildarbikarinn, sigurvegar- ar: 1981 og 1982. í öðru sæti: 1977—78. (Bikarinn er nú kall- aður Mjólkurbikarinn). Þátttaka í Evrópukeppni meistaraliða: 1964- 65, 1966-67, 1973— 74, 1976—77 (sigurveg- ari) 1981—82 (liðið er komið í 3. umferð). Evrópukeppni bikarhafa: 1965— 66 (2. sæti), 1971—72, 1974— 75. Fairs Cup (seinna nefndur UEFA Cup): 1967—68, 1968-69, 1969-70, 1970-71, UEFA Cup: 1972—73 (sigurvegari), 1975— 76 (sigurvegari). Super Cup: 1977 (sigurveg- ari), 1978. Heimsmeistarakeppni fé- lagsliða: 1981 (2. sæti). Stærsti sigur: 11—0 gegn norska liðinu Strömsgodset i Evrópukeppni bikarhafa, 17. september 1974, á heimavelli. Stærsta tap: 1—9 gegn Birmingham í 2. deild, 1895-96. Flest stig í deildarkeppninni: 68 stig i 1. deild 1978—79 (var met þar til farið var að gefa 3 stig fyrir sigur). Liöið á einnig metið eftir það: 87 stig. Flest mörk á einu tímabili: 106 í 2. deild 1961—62. Markahæsti leikmaöur á einu tímabili: Roger Hunt, í 2. deild 1961—62. Flest mörk í allt: Roger Hunt, 245, 1959-69 Flestir landsleikir: Emlyn Hughes, 59 landsleikir fyrir England (í allt lék hann 62 landsleiki). Flestir deildarleikir: lan Call- aghan, 640, 1960—78. Mesta upphæð fengin fyrir sölu leikmanns: 500.000 pund fyrir Kevin Keegan frá Ham- burger SV í júní 1977. Mesta upphæð greidd fyrir leikmann: 900.000 pund til Brighton fyrir Mark Lawrenson í ágúst 1981. Framkvæmdastjórar eftir seinna stríð: George Key, Don Welsh, Phil Taylor, Bill Shankly og Bob Paisley.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.