Morgunblaðið - 08.12.1982, Blaðsíða 1
56 SIÐUR
275. tbl. 69. árg.
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1982
Rrentsmidja Morgunblaðsins
WELL „Mesti glæpur í
sögu N-Irlands“
— sagði Thatcher um sprenginguna í Baliykelly
Ballykelly, Nordur-írlandi, 7. dcs. AF.
ÍRSKI þjóðfrelsisherinn, marxískur klofningshópur úr IRA, lýsti í dag
sök á hendur sér og kvaðst bera ábyrgð á sprengingunni, sem varð í
gærkvöldi á krá í bænum Ilallykelly á Norður-Irlandi. 16 manns fórust í
sprengingunni og 66 slösuðust.
Björgunarmenn eru hér að leita í rústum kráarinnar í Ballykelly á Norður-lrlandi, sem hrundi til grunna í mikilli
sprengingu í fyrrakvöld. A.m.k. 16 manns fórust, þar af fjórar konur. ap
„Þetta er einhver mesti glæpur-
inn í dapurlegri sögu Norður-
írlands," sagði Margaret Thatcher
forsætisráðherra í London í dag
og hét því, að stjórnin myndi ekki
unna sér hvíldar fyrr en glæpa-
mennirnir hefðu náðst. James
Prior, Norður-írlandsmálaráð-
herra sem kom til Ballykelly í dag,
sagði, að þar hefði verið framið
„miskunnarlaust fjöldamorð".
Meðal hinna látnu eru 11 breskir
hermenn og fimm óbreyttir borg-
arar, þar af fjórar konur. Af hin-
um særðu misstu margir hönd eða
fót og eru nú 40 þeirra til aðgerðar
á sjúkrahúsi.
Kráin þar sem sprengingin varð
er í einnar hæðar húsi og hafði
sprengjunni verið komið fyrir við
einn útvegginn. Þegar hún sprakk,
hrundi steinsteypt loftið yfir fólk-
ið, um 150 manns, og tók það
björgunarmenn marga klukku-
tíma að ná sumum undan brakinu.
írski þjóðfrelsisherinn, sem seg-
ist bera ábyrgð á hryðjuverkinu,
er marxískur klofningshópur úr
Rússar brenna yfír
100 Afgani til bana
IRA og hefur látið mikið að sér
kveða að undanförnu. Hann berst
fyrir brottflutningi Breta frá
Norður-írlandi, sameiningu írsku
ríkjanna og hefur hótað að auka
hermdarverk gegn breskum her-
mönnum hvort sem þeir eru við
skyldustörf eða ekki.
Gíbraltar:
Hliðið opnað
eftir 13 ár
Madrid, 7. desember. AF.
HIN NÝJA ríkisstjórn jafnaöar-
manna á Spáni ákvaö í dag, að hliðið
á veginum milli Gíbraltar og Spánar
skyldi opnað 15. des. nk. en það hef-
ur verið lokað síðan Franco heitinn
skellti því í lás árið 1969.
Franco bannaði á sínum tíma
öll samskipti við Gíbraltar til að
neyða Breta til samninga um ný-
lenduna en til hennar gera Spán-
verjar tilkall og njóta stuðnings
Sameinuðu þjóðanna í því efni.
Bretar neyddu Spánverja með
láta höfðann af
forsætisráðherra
engir samningar
hervaldi til að
hendi árið 1713.
Gonzalez
sagði í dag, að
við Breta stæðu fyrir dyrum nú en
hann kvaðst vona, að þessi ákvörð-
un kynni að greiða fyrir þeim síð-
Feshawar, Fakistan, 7. descmbcr. AF.
SOVÉSKIR hermenn brenndu
a.m.k. 105 Afgani lifandi þegar
þeir réðust að fólkinu í neðanjarð-
arskýli þar sem það gat sér enga
björg veitt. Frá þessu segir í frétt-
um, sem verið hafa að berast til
Pakistan að undanfórnu en at-
burðurinn átti sér stað í september
sl. Fréttir fara einnig af miklum
loftárásum Sovétmanna á þorp
fyrir norðan Kabúl og er sagt, að
um 120 manns hafi farist í þeim.
Hermt er, að fjöldamorðin,
einhver þau grimmilegustu, sem
Sovétmenn hafa staðið fyrir í
stríðinu gegn Afgönum, hafi átt
sér stað 13. september í þorpinu
Padkhwab-E-Shana, um 60 km
fyrir sunnan höfuðborgina Kab-
úl. Afganskir flóttamenn hafa
skýrt frá þessum grimmdarverk-
um og einnig hefur Bandaríkja-
maður að nafni Mike Barry farið
á staðinn f~fylgd skæruliða og
kynnt sér málavöxtu. Hann er fé-
lagi í alþjóðlegum dómstóli, sem
fylgist með stríðsglæpum og hef-
ur aðsetur í París.
Að því er Barry segir leituðu
margir þorpsbúar hælis í áveitu-
göngum undir þorpstorginu þeg-
ar sovéskir hermenn umkringdu
þorpið með skriðdrekum en Sov-
étmenn stífluðu þá göngin þann-
ig að vatnið náði fólkinu í brjóst.
Þá dældu þeir eldfimum efnum
inn í göngin og báru eld að.
Fnykurinn af brunnu holdi og
eitraðar gufur komu í veg fyrir
að aðrir þorpsbúar gátu sótt líkin
fyrr en eftir sólarhring. Að sögn
vitna voru sovésku hermennirnir
í sérstökum samfestingum, með
gasgrímur og hanska á höndum
þegar þeir köstuðu tveimur gul-
um hylkjum á stærð við olíu-
tunnur inn í áveitugöngin.
Haft er eftir vestrænum sendi-
mönnum, að Sovétmenn hafi gert
harðar loftárásir á mörg þorp
fyrir norðan Kabúl í síðasta
mánuði og drepið a.m.k. 120
Hambleton fær tíu ára
fangelsi fyrir njósnir
l>ondon, 7. desember. AF.
KANADAMAÐURINN Hugh Hambleton, fyrrum starfsmaður
Atlantshafsbandalagsins, var í dag dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir
að hafa njósnað fyrir Sovétríkin. Hambleton játaði að hafa látið
sovésku leyniþjónustuna, KGB, fá leynilegar NATO-skýrslur þeg-
ar hann starfaði fyrir bandalagið í París á árunum 1956—61.
Hambleton, sem er sextug-
ur að aldri, prófessor í hag-
fræði við Laval-háskólann í
Quebec, hélt því lengi fram, að
hann hefði verið gagnnjósnari
fyrir Frakka og Kanadamenn
en féll frá þeim framburði á
sjöunda degi réttarhaldanna
og játaði sakargiftir. „Það er
nokkuð um liðið síðan þú
framdir þennan glæp,“ sagði
dómarinn, sem kvað upp dóm-
inn, „en nú verður þú að
gjalda fyrir hann. Það er
ákvörðun réttarins að þú
verðir í fangelsi í tíu ár.“
Hann sagði ennfremur, að
beiðni Hambletons um „mis-
kunn“ væri ekki sannfærandi
þar sem hann hefði játað að
hafa haft samband við út-
sendara Sovétmanna allt til
ársins 1979 þegar kanadíska
lögreglan spurði hann fyrst
spjörunum úr.
Hambleton, sem hefur einn-
ig breskan rikisborgararétt,
var handtekinn þegar hann
kom til Bretlands í júní sl.
Breska leyniþjónustan vissi
að hann var væntanlegur og
lét Kanadamenn vita, að hann
yrði lögsóttur. Við réttarhöld-
in var lesin upp yfirlýsing frá
kanadísku og frönsku leyni-
þjónustunum um að Hamble-
ton hefði aldrei verið á þeirra
snærum og að þeim lestri
loknum játaði Hambleton.
Norðmenn fá
jólaglöggið
Ósló, 7. desember. AF.
VERKFALLI starfsmanna hjá norsku
áfengiseinkasölunni var aflýst í morg-
un eftir að deiluaðilar höfðu setið á
fundi í hálfan annan sólarhring. Verk-
fallið hefur staðið í nterri fjóra mán-
uði og er það lengsta, sem um getur í
Noregi eftir stríð.
Talsmaður verkfallsmanna,
Haakon Höst, 26 ára gamall marx-
lenínisti, sagðist í dag telja það
sjálfgefið, að samband starfsmanna
í áfengisverslunum, sem hefur 560
félagsmenn, myndi fallast á samn-
ingana. Hann sagði þá vel viðun-
andi og „sigur fyrir samstöðuna og
verkfallsréttinn". Talið er, að
samningarnir feli í sér u.þ.b. 10%
kauphækkun á næsta ári. Rolf Han-
sen, talsmaður áfengiseinkasölunn-
ar, sagði hins vegar, að verkfalls-
menn hefðu nokkurn veginn fallist
á það, sem þeim var boðið strax í
byrjun.
Nágrannaþjóðir Norðmanna hafa
hagnast mjög á þessu verkfalli.
Þorstlátir Norðmenn hafa farið í
stórum hópum yfir til Svíþjóðar,
Danmerkur og jafnvel til Finnlands
og ekki látið sig muna um að vera
allt að viku í túrnum. Þegar þeir
koma heim mega þeir hafa með sér
tollfrjálsan áfengisskammt, sem
nemur einni líkjörsflösku og þrem-
ur af léttu víni eða einni af líkjör og
einni af sterku. Talið er, að norska
ríkið hafi tapað um 13'-1400 millj-
ónum ísl. kr. á verkfallinu.