Morgunblaðið - 19.12.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.12.1982, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR 285. tbl. 69. árg. SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins Hondúras: Forsetinn bað dóttur sinni griða Guatemala-borg, 18. desember. AP. RÍKISSTJORNIN í Guatemala lýsti yfir i gærkvöldi, að ekki kæmi til mála að semja við „hryðjuverka- menn“ um örlög dóttur forseta ná- grannaríkisins, Hondúras, sem vinstrisinnaðir skæruliðar rændu fyrr í vikunni. Segja þeir lif hennar velta á því, að pólitísk stefnuskrá þeirra verði birt í flestum fjölmiðl- um í Mið-Ameríku. Skæruliðar gáfu ríkisstjórninni frest til kl. fjögur í morgun en sá tími leið án þess orðið yrði við kröfum þeirra. Stjórnvöld kváðust aldrei mundu semja við hryðju- verkamenn en af mannúðarástæð- um yrði forseta Hondúras, Rob- erto Suazo Cordova, og föður kon- unnar, Judith Xiomara Suazo Estrada, 33ja ára gamais læknis, leyft að koma fram í sjónvarpi í Guatemala og biðja dóttur sinni griða. Suazo kom fram í sjónvarpinu tveimur stundum áður en frestur- inn rann út og sagði þar, að ránið á saklausri dóttur sinni hefði styrkt hann í þeirri trú, að lýð- ræðið væri „eina leiðin til að upp- ræta ójöfnuð meðal manna, kúgun og óréttlæti". Hann bað mann- ræningjana að þyrma lífi dóttur sinnar en tók ekki fram hvort kröfum þeirra yrði fullnægt. Dr. Suazo Estrada er dóttir Hondúrasforseta af fyrra hjóna- bandi og hefur búið með móður sinni í Guatemala sl. 20 ár. Henni var rænt fyrr í vikunni þegar hún var að fara frá sjúkrahúsinu þar sem hún vinnur. OPEC: Vilja óbreytt verð á olíu Vín, 18. desember. AP. Verðákvörðunarnefnd OPEC, samtaka oliuútflutningsríkja, ákvað í dag að leggja til við fund samtak- anna, sem nú er haldinn í Vín, að olíuverð yrði haft óbreytt á næsta ári. Góð eining var með fulltrúum ríkjanna þar til oliumálaráðherra ír- ana krafðist þess skyndilega, að Saudi-Arabar minnkuðu olíufram- leiðsluna til að íranir gætu aukið sína. Þessi samþykkt verðákvörðun- arnefndarinnar verður lögð fyrir fundinn á morgun, sunnudag, og er það álit sérfræðinga, að á hon- um verði úr því skorið hvort OPEC eiga framtíð fyrir sér sem sterk samtök eða hvort þau verða innbyrðis sundrungu og verðstríði að bráð. Lagt er til, að olíuverð á árinu 1983 verði áfram 34 dalir fyrir tunnuna. Otaiba, olíumálaráð- herra Sameinuðu arabísku fursta- dæmanna, sagði, að sama offram- boðið ríkti enn á heimsmarkaði fyrir olíu en hins vegar kæmi ekki til mála að lækka verðið frá því sem nú væri. Fulltrúi írana hélt því fram í gær, að Saudi-Arabar ættu meginsök á offramboðinu og heimtaði, að þeir drægju úr fram- leiðslunni til að íranir gætu aukið sína. Iranir framleiða nú þrjár milljónir tunna á dag þótt kvóti þeirra sé ekki nema 1,2 milljónir tunna. — \ olrarsólhviirl'oru á navsta loili <»j; snlin því hvorki lt*nj;i yl'ir sjóndoiklarhrino nó háll um þossar mundir hór á noróurslóóum. Mvndin var lckin í vikunni yl'ir l‘inj;v(>llum ojf sór til suóvoslurs yl'ir l'int'vallavaln. í l'orjrrunni er l'inovallaha rinn og Löjfborj;. Miðar í átt til samkomulags í Líbanon: Morgunbladid/ Ájfúsi Ásgeirsson Hluti erlends úr landi innan Beirút, 18. desember. AP. Trúarbragðaerjur blossuðu upp á ný í mið- og norðurhluta Líbanon í nótt á sama tíma og Morris Draper, sendi- manni Bandaríkjaforseta, miðaði vel i átt að samkomulagi um brottflutn- ing hluta erlends herliðs i landinu. Viðræður hafa staðið yfir undanfarna daga og virðist nú, sem tekið sé að rofa til. Draper átti í gær fund með æðstu ráðamönnum landsins, Am- in Gemayel forseta, Shafik Wazzan forsætisráðherra og Elie Salem utanríkisráðherra, sem var nýkom- inn frá viðræðum við Bandaríkja- forseta. Wazzan tjáði frétta- mönnum eftir fundinn, að ástæða væri til bjartsýni. Ef af pessu samkomulagi, sem byggt er á tillögu Bandaríkja- manna, yrði draga ísraelar herlið sitt frá vesturhluta þjóðvegarins á milli Beirút og Damaskus og fjöll- unum að baki hafnarbænum Dam- our, 16 km suður af Beirút. Þá drægju Sýrlendingar og PLO sig til baka frá þeirra svæðum við sama þjóðveg og láta af hendi hæðir í Bekaa-dalnum í austurhluta lands- ins. Fjölmiðlar í Líbanon höfðu í gær eftir ónafngreindum heimildum, að samtaka brottflutningur hluta alls herliðs verði fjögurra vikna erlends herliðs frá landinu myndi eiga sér stað innan mánaðar. Þá hefur blaðið An-Nahar ummæli eftir Gemayel þar sem hann þakk- ar Philip Habib fyrir það frum- kvæði er Bandaríkjamenn sýndu í samningaviðræðunum. Það fylgir sögunni, að Sýrlend- ingar séu samþykkir því samkomu- lagi, sem nú virðist nánast forms- atriði að undirrita. Þá er haft eftir Yasser Arafat í vikuriti An-Nahar, að hann kunni einnig að skipa her- mönnum PLO að hörfa. Að sögn lögreglu blossuðu bar- dagar upp á ný á milli trúarflokka, sem berjast um yfirráð í hafnar- borginni Trípóli. Vopnahléi var komið þar á fyrir tveimur dögum. Þetta er ekki fyrsta vopnahléð í borginni, sem rofið er. Þeim hefur verið komið á áður, en rofin jafn- harðan af leyniskyttum, sem ekki hafa látið sér segjast. Tæplega 90 manns hafa fallið í Trípóli á tveim- ur vikum. Þá voru einnig skærur á miðhá- lendinu á milli hermanna kristinna hægrimanna og Drúsa. Einn lét líf- ið og þrír særðust. Meira en 130 manns hafa nú fallið í átökum á þessu svæði, sem staðið hafa í 9 vikur. New York Times í leiðara um hjartaaðgerðina á Barney Clark: Engum greiði gerður með að hindra eðli náttúrunnar Salt Lake-borg, 18. deaember. AP. BANDARÍSKA STÓRBLAÐIÐ New York Times birti á þriðjudag leiðara undir yfirskriftinni „Framlenging dauðans er enginn sigur“. Leiðari þessi var skrifaður í tilefni gervihjartaaðgerðarinnar á Barney Clark fyrir tveimur vikum og hefur vakið mikið umtal. Miklar umræður hafa spunn- ist í kjölfar aðgerðarinnar og greinir fólk mjög á í skoðunum sínum. Til eru þeir sem segja Clark vera lukkunnar pamfíl, en aðrir segja hann aðeins tilrauna- dýr í þágu læknavísindanna. New York Times sagði enn- fremur í leiðara sínum: „Hinir raunverulegu áfangar læknavís- indanna felast í því að bæta lífsskilyrði fólks, ekki í hetju- dáðum við framlengingu dauða- stríðs, sem aðeins kunna að skipta örfáa máli. Engum er neinn greiði gerður með því að hindra eðli náttúrunnar." Þessum ummælum blaðsins var svarað af Dr. Chase Peter- son, yfirlækninum við aðgerðina á Clark. Hann sagði það ekki takmark læknavísindanna að framlengja dauðastríð fólks heldur að lengja líf þess. „Barney Clark hefði getað dáið sársaukalausum dauðdaga þann 2. desember. sl.,“ sagði Peterson, „en hann kaus að gangast undir aðgerð og gerast gervihjarta- þegi. Hugur hans var óbreyttur fyrir tveimur dögum er hanri samþykkti að gangast undir aðra aðgerð til að fjarlægja hluta hjartans, sem ekki starfar eðlilega." „Barney Clark vissi hvað kynni að fara úrskeiðis er hann gekkst undir aðgerðiná og margt hefur farið úrskeiðis," segir New York Times. Læknarnir, sem að aðgerðinni stóðu, þvertaka hins vegar fyrir að Clark hafi átt í meiri erfiðleikum eftir aðgerð- ina en gengur og gerist með sjúklinga eftir hjartaaðgerðir. Blaðið dregur gildi þessarar aðgerðar mjög í efa og varpar fram þeirri spurningu hvort ekki hefði verið rétt að halda tilraun- um á dýrum áfram áður en farið var að framkvæma slíka aðgerð á mannverum. Þá segir blaðið einnig, að vafasamt sé hvort slíkar aðgerðir eigi yfirleitt að gera á fólki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.