Morgunblaðið - 30.12.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.12.1982, Blaðsíða 1
44 SÍÐUR 292. tbl. 69. árg. FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1982 Prentsmiöja Morgunblaðsins Afganistan: Skyndiárás á stóra flugstöð Islamahad. 29. desember. AI\ AFGANSKIR skæruliöar eyðilögðu tíu sovéskar herþyrlur og stór- skemmdu flugbraut og byggingar í skyndiárás á mikilvæga flugstöð í Nangarhar-héraði í Austur-Afganist- an að því haft var eftir áreiðanlegum heimildum í dag. Að sögn skæruliða féllu eða særðust 130 sovéskir og afganskir stjórnarhermenn í árásinni, sem var gerð fyrir um viku. I gagnárás Sovétmanna féllu 24 skæruliðar og 12 óbreyttir borgarar en sjálfir misstu Sovétmenn 24 til viðbótar. Skæruliðarnir, sem árásina gerðu, voru 50 talsins og tilheyra flokki Yunis Khalis, 76 ára gamals manns, sem oft stjórnar mönnum sínum sjálfur í bardögum gegn innrásarliðinu. Flugstöðin, sem ráðist var á, er Lundúnir: Jólin rauð og veðstofan vann London, 29. desember. AP. VEÐMANGARASTOFAN hans Willi- am Hill vann veðmálið um hvít jól í Lundúnum, sem skýrt var frá fyrir há- tíðar, og hafði „nokkrar þúsundir punda upp úr krafsinu" að því er tals- maður stofunnar skýrði frá í dag. „Eins og venjulega rann allt veð- féð til okkar,“ sagði Graham Sharpe, talsmaður veðmangaranna, en þeir höfðu heitið þeim miklu fé, sem vildu veðja á hvít jól að þessu sinni. Jólin í London voru rauð og þannig hefur það verið síðastliðin 12 ár. William Hill og félagar hans eru nú þegar búnir að endurnýja veð- málið fyrir næstu jól og bjóða upp á sömu býti, 20 gegn 1. skammt fyrir vestan borgina Jal- alabad og er önnur mikilvægasta herstöð Rússa fyrir utan bæki- stöðvarnar við Kabúl. Eftir árás- ina sást mikil lest rússneskra bryndreka, um 300 talsins, halda frá Jalalabad en Rússar reka hernaðinn gegn landsfólkinu þannig, að þeir gera stórárásir á þorp og bæi og eira engu, hvorki fólki né fénaði. Svíum ekki fjölgað jafn lítið í 110 ár Stokkhólmi. 29. desember. AP. FÓLKSFJÖLGUN í Svíþjóð var minni á þessu ári en hún hefur verið síðastliðin 110 ár, að því er sagði í fréttum frá sænsku hag- stofunni i dag. Svíum fjölgaði aðeins um 3.100 manns á þessu ári og er þá jafnt tekið tillit til fæðinga og þeirra, sem flust hafa til landsins. Hefur fjölgunin ekki verið minni síðan á sjöunda tug síðustu aldar þegar alvar- legur uppskerubrestur hrjáði landsmenn og fólk flúði unn- vörpum til Vesturheims. A þessu ári hafa fæðingar verið 92.600 en 91.400 manns hafa látist. Munar þar aðeins 1.200 og eru fæðingar nú 1.500 færri en í fyrra. 30.300 manns fluttust til Svíþjóðar í ár en 28.400 frá landinu. Er hvor- tveggja talan lægri en í fyrra. í Svíþjóð hinni köldu búa nú 8.326.000 manna. Myndin er frá viðræðum Líbana og ísraela um brottflutning ísraelsks herliðs frá I.ibanon, en þær hófust sl. þriðjudag. Líbönsku fulltrúarnir eru til hægri á myndinni en þeir ísraelsku til vinstri. Fremst á myndinni snúa samningamenn Bandaríkjastjórnar baki að Ijósmyndaranum. AP Líbanon: Trevst á míllígöngu Bandaríkjastjórnar IL.lptifl 90 JiiL.nmkn. t Beirút, 29. desembcr. AP. LÍBANIR reiða sig nú á aö Bandaríkjamenn taki virkari þátt í viðræðum þeirra við Israela um brottflutning ísraelsks her- liös og að þeim takist aö miðla málum í deilunum um dagskrá fundanna. Að sögn líbanska ríkisútvarpsins vilja Israelar fyrst ræða um eðlileg samskipti milli ríkjanna en Líbanir vilja byrja á brottflutningnum. Ríkisútvarpið skýrði frá þessu í dag eftir að Elie Salem utanríkis- ráðherra hafði átt fund með sendi- manni Bandaríkjastjórnar, Morris Stjórnarkreppa í Finnlandi: Kalevi Sorsa ætlar að segja af sér í dag Draper, en þar mun hann hafa farið fram á virkari þátt Banda- ríkjamanna í viðræðunum. Líb- anskur embættismaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði fréttamanni AP, að líbanska stjórnin vildi „ekki ræða pólitísk málefni meðan fjórir fimmtu hlut- ar landsins væru hersetnir". „ísraelar hafa tvo fimmtu hluta Líbanons á valdi sínu,“ sagði emb- ættismaðurinn, „og Sýrlendingar og Palestínumenn aðra tvo. Við þær kringumstæður getum við ekki um annað rætt en brottflutn- ing erlends herliðs.“ Ríkisstjórn Gemayels, sem nýtur stuðnings bandarískra, franskra og ítalskra hermanna, ræður aðeins yfir Beirút-borg og landsvæði krist- inna manna í miðhálendinu eða einum fimmta landsins, sem er alls 10.452 km2. Viðræðurnar um brottflutning- inn fara fram í þorpinu Kiryat Shmona, skammt fyrir sunnan Beirút, en þar réðu Palestínumenn ríkjum í 13 ár eða þar til ísraelar ráku þá þaðan i sumar leið. íbú- arnir eru mjög fegnir friðsemd- inni sem þar ríkir nú og hafa í von um framtíðarfrið skreytt bæinn mjög fagurlega með marglitum ljósum. „Hér áður þorði fólk ekki að líta af börnum sinum eina stund og félli hurð harkalega að stöfum tókum við á rás í loftvarnabyrgið,“ var haft eftir einum íbúanna. Ilelsinki, 29. des. Frá lUrry (íranberg, fróltaritara Mbl. FINNSKA stjórnin er fallin og hefur Kalevi Sorsa forsæt- isráðherra úr flokki jafnað- armanna, ákveðið að biðjast lausnar fyrir sig og stjórn sína á morgun, fimmtudag. Það voru kommúnistar, sem felldu stjórnina með því að neita að fallast á útgjöldin til varnarmála. Líklegast er tal- ið, að Koivisto forseti skipi embættismannastjórn, sem verði við völd fram að næstu þingkosningum, sem fram eiga að fara í mars nk. Tveir armar eru innan finnska kommúnistaflokksins, meirihluta- mennirnir, sem stutt hafa stjórn- ina, og stalínistarnir svokölluðu, sem verið hafa andvígir samstarfi Kalevi Sorsa flokksins við jafnaðarmenn og borgaraflokka. Við fjárlagaum- ræðuna í haust og eftir gengisfell- ingu finnska marksins hafa kommúnistar orðið æ órólegri og þótt ráðherrar flokksins hefðu verið búnir að leggja blessun sína yfir 19% hækkun á útgjöldum til varnarmála, sagði þingflokkurinn nei. Það hefur hann raunar gert fyrr en þá hafa málin verið leyst með því að minnihlutinn hefur greitt atkvæði á móti en meiri- hlutinn verið fenginn til að sitja hjá. Nú þykir samstarfsflokkum kommúnista hins vegar mælirinn vera fullur. Ekki er talið líklegt, að stjórnin reyni að fá aðra flokka til liðs við sig og er því búist við, að Mauno Koivisto forseti skipi stjórn emb- ættismanna fram að kosningum í mars. Slíkri stjórn yrði mikill vandi á höndum. Afgreiðsla fjár- laga er ekki nema hálfnuð og samningar um kaup og kjör renna út eftir tvo mánuði. Við slíkar að- stæður þykir oft vænlegra að vera utan stjórnar en innan en komm- únistar segja ástæðuna þó aðeins vera þá, að þeir séu andvígir aukn- um útgjöldum til varnarmálanna. Pólverjar vilja nýjar viðræður um skuldir N arsjá 29. desember. AP. Á/ETLUNARMÁLARÁÐHERRA pólsku stjórnarinnar sagói i dag í umræó- um um fjárlög næsta árs, að Pólverjar vildu efna til nýrra viðræðna við lánardrottna sína um langtíma endurskipulagni>.gu á afborgunum af skuldabyrðinni. Skuldir þjóðarinnar eru nú taldar vera um 25 milljarðar dollara og er gert ráð fyrir að þær aukist um þrjá milljarða á næsta ári. Pólska þingið samþykkti nýju ingu að engu hafandi. fjárlögin í dag en í ræðu sinni sagði áætlunarmálaráðherrann, Janusz Obodowski, að helsta hindrunin fyrir nýrri framtíðar- skipulagningu á skuldagreiðslum Pólverja væri sú, að Bandaríkja- menn og önnur vestræn ríki neit- uðu að lána Pólverjum eða Sovét- mönnum meira fé. Til þeirra að- gerða var gripið eftir að herlög voru sett í Póllandi fyrir rúmu ári og þótt herstjórnin segist ætla að afnema þau með nýja árinu, kveð- ur Bandaríkjastjórn þá yfirlýs- Vestrænar ríkisstjórnir, sem eiga 10 milljarða dollara inni hjá Pólverjum, hafa ekki tekið þátt í viðræðum um nýja tilhögun af- borgana en hafa þó ekki viljað lýsa Pólverja gjaldþrota. Af þess- um skuldum hafa Pólverjar lítið sem ekkert borgað. Jóhannes Páll páfi II hélt í dag ræðu á pólsku og skoraði á pólskar fjölskyldur að sækja „styrk til trú- arinnar á almáttugan guð“ og sagði, að styrkleiki fjölskyldunnar væri mælikvarði á styrk þjóðanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.