Morgunblaðið - 10.02.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.02.1983, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI 33. tbl. 70. árg. FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins „Einhugur meðal leiðtoga í NATO « — sagði George Bush við lok ferðar sinnar um sjö Evrópulönd Francis Pym, utanríkisráðherra Bretlands, býður hér George Bush, varaforseta Bandaríkjanna, velkominn, en Bush kom í gær til London. Er það síðasti áfangi hans í 12 daga ferð um sjö Evrópulönd. London, 9. fobrúar. AP. GEORGE Bush, varaforseti Banda- ríkjanna. sagöi í dag í London, sem er síöasti áfangi hans í ferð um sjö Evr- ópulönd, aö hann heföi komist aö raun um aö leiötogar NATO-ríkjanna væru einhuga um aö standa viö ákvarðanir bandalagsins í kjarnorku- vopnamálunum. Sagöi Bush þetta vera „bestu fréttirnar fyrir þá, sem í raun og veru vilja vinna að friöi". í ræðu, sem Bush flutti í Guild- hall í London, tók hann sér í munn orð Mark Twains og lýsti því yfir, að „fréttirnar um lát bandalagsins okkar eru stórlega ýktar". Hann sagði, að NATO-þjóðirnar styddu núll-lausnina, sem miðaði að því að engar meðaldrægar eldflaugar væru í Evrópu, en hins vegar væri hún enginn úrslitakostur, Bandaríkja- menn væru reiðubúnir til að ræða allar skynsamlegar tillögur, sem frá Sovétmönnum kæmu. Sagði Bush, að það, sem fyrir samningamönnum Bandaríkjanna vekti, væri að núll- lausninni frágenginni að semja um eins mikla fækkun meðaldrægra eldflauga og unnt væri og að raun- verulegt jafnræði yrði með stórveld- unum í þessu efni. Breska stjórnin með Margaret Thatcher í broddi fylkingar er mjög einörð i stuðningi sínum við tillögur Bandaríkjastjórnar en í Bretlandi fer nú fram áköf umræða um kjarn- orkuvopnamálin. Líklegt er, að þau verði eitt af aðalmálunum í næstu þingkosningum, sem flestir telja að fari fram síðar á árinu, og á morg- un, fimmtudag, mun prestastefna ensku kirkjunnar taka til umræðu tillögu þar sem gert er ráð fyrir ein- hliða afvopnun Breta. I skoðana- könnun, sem blaðið The Daily Tele- graph birti í dag, kemur fram, að tveir þriðju spurðra voru andvigir því, að Bretar eyðilegðu kjarnorku- vopn sín nema Rússar gerðu slíkt hið sama. Hins vegar voru 54% á móti því að koma fyrir í Bretlandi bandarískum dtýriflaugum. Þremur írönskum herskipum sökkt Irakar segjast hafa hrundið sókn írana Nikósíu, 9. febrúar. AP. ÍRASKAR herflugvélar og herskip réöust í dag á og sökktu þremur ír- önskum herskipum að því er útvarpiö ísraelsstjóm frestar ákvörðun: Flestir ráðherranna vilja afeögn Sharons Jerúsalem, 9. febrúar. AP. ÍSRAELSKA stjórnin hélt í dag annan skyndifund um niöurstööur nefndar- innar, sem rannsakaði fjöldamoröin í Beirút. Engar ákvarðanir voru teknar að sinni en búist við, aö það verði gert á fundi stjórnarinnar á morgun. Haft er eftir nokkuð áreiðanlegum heimild- um, að meirihluti stjórnarinnar sé samþykkur því áliti rannsóknarnefnd- arinnar, að Ariel Sharon, varnarmála- ráðherra, segi af sér embætti. Háttsettur en ónafngreindur embættismaður ísraelsku stjórnar- innar sagði í dag, að meirihluti væri innan stjórnarinnar um að Sharon bæri að segja af sér og að nú væri það Sharons sjálfs að taka ákvörðun. ísraelska sjónvarpið hafði það hins vegar eftir Sharon í dag, að hann ætlaði ekki að segja af sér sjálfur en Begin, forsætisráð- herra, gæti rekið hann ef honum sýndist svo. Eftir Begin var svo aft- ur haft, að hann myndi ekki reka Sharon. ísraelska útvarpið hafði það eftir samstarfsmönnum Begins, að hann væri þegar búinn að ákveða hvernig hann ætlar að bregðast við í þessu máli og eru einkum uppi getgátur um þrjár leiðir. f fyrsta lagi, að Sharon segi af sér og firri stjórnina þannig frekari vandræðum en sá möguleiki er talinn fremur ólíkleg- ur. f öðru lagi, að Begin segi af sér og myndi nýja stjórn án Sharons og í þriðja lagi, að Begin segi af sér og boði til nýrra kosninga. Er Begin sagður hallast ekki síst að þriðja kostinum vegna góðrar útkomu í skoðanakönnunum að undanförnu. Viðbrögð manna á Vesturlöndum við skýrslu rannsóknarnefndarinn- ar hafa yfirleitt verið þau að segja hana sigur fyrir ísraelskt lýðræði og að nú sé það stjórnvalda að bregðast við henni á réttan hátt. Undir það tekur líka Maariv, eitt stærsta dagblaðið í fsrael, sem jafnan hefur þótt nokkuð hallt und- ir Begin og stjórn hans. Segir það, að ef stjórnin ætli að hunsa niður- stöður rannsóknarnefndarinnar, muni það verða vatn á myllu and- stæðinga fsraela og færa þeim þau vopn í hendur, sem þeir hafi lengi beðið eftir. f Arabaríkjunum er skýrslunni fagnað og sum blöð líkja Sharon við Klaus Barbie, nasista- foringjann, sem á dögunum var framseldur til Frakklands. í Bagdaö skýröi frá. frakar segjast einnig hafa hrundið „lokasókn" Irana og síðustu tilraun þeirra til að bera sigur úr býtum í Persaflóastríöinu. Útvarpið í Bagdað sagði, að nokk- ur írönsk herskip hefðu ætlað að reyna að komast til Khomeini- borgar fyrir botni Persaflóa þegar íraskar flugvélar og herskip hefðu komið þeim að óvörum og sökkt að minnsta kost þremur skipum og skil- ið við önnur í logum. íranir hafa ekkert sagt um þessa árás, sem er sú sjötta síðan 9. desember, en írakar hafa að undanförnu styrkt mjög flugflota sinn. Engar fréttir voru í dag af stór- sókn frana gegn frökum en í gær sagði íraska herstjórnin, að henni hefði verið hrundið á allri víglín- unni, 30 km langri. frakar segjast hafa talið lík 7— 8000 iranskra her- manna á vígvellinum en það sé þó aðeins brot af raunverulegu mann- falli frana. Pólland: Vilja framsal flugmannanna Varsjá, 9. febrúar. AP. PÓLSKA stjórnin hefur krafist þess, aö tveir flugmenn, sem í gær flýðu á hcrþyrlu til sænsku eyjarinnar Tarno, verði framseldir en sænsk yfirvöld hafa enn ekki svaraö þeirri beiðni. í opinberri yfirlýsingu pólsku stjórnarinnar, sem PAP-fréttastof- an pólska skýrði frá, voru mennirn- ir nefndir á nafn og sagt, að þeir hefðu rænt þyrlu af gerðinni MI-2. Var þess krafist að þeir yrðu fram- seldir sem hverjir aðrir flugræn- ingjar. Pólverjarnir lentu á eyjunni Tarno sem fyrr segir og hefur það vakið nokkra furðu, að svo virðist sem sænski herinn hafi ekkert orðið þyrlunnar var fyrr en eftir að hún var lent. Á Tarno býr aðeins einn maður og hafði hann samband við sænska herinn að beiðni Pólverj- anna, sem ætla að sækja um póli- tískt hæli í Svíþjóð. Veðhlaupahesturinn Shergar, tvöfaldur sigurvegari í Derby-kappreiðunum, ásamt knapanum Walter Swinhurn. Pessu fræga hrossi, sem er í eigu Aga Khans, var stolið í fyrrinótt og hafa ramingjarnir, sem voru tveir, nú krafist um 60 milljóna ísl. kr. í lausnargjald. Sjá „Kappreióahesti rænt.." á bls. 22. Kúba: 140.000 í fangelsum ('aracas, Venezuela. 9. febrúar. AP. KÚBANSKA skáldió Armando Valladares, sem í 22 ár sat í fang- eslum Kastrós, sagói í dag, að 140.000 manns væru hafðir í haldi í kúbönskum fangabúóum. Valladares, sem kom til Cara- cas í gær, sagði, að hann ætti frelsi sitt að þakka Mitterrand, Frakklandsforseta. sem. hefði beitt áhrifum sinum við Kastró. Hann neitaði því, að kólombiska skáldið og nóbelsverðlaunahaf- inn Gabriel Garcia Marquez hefði átt nokkurn þátt i að hjálpa honum. „Garcia Marquez hefur alltaf sagt, að ég væri glæpamaður og ég er viss um, að hann hefur ekki farið að tala máli glæpa- manns,“ sagði Valladares. Valladares sagðist ekki hafa i h.vggju að tengjast einhverjum andkúbönskum samtökum. „Ég mun verja þeim tíma, sem ég á eftir ólifað, til að tala máli ann- arra pólitískra fanga á Kúbu,“ sagði hann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.