Morgunblaðið - 10.02.1983, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.02.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1983 „Skiptir mig mestu að fá heilsuna bætta“ — segir Jóhann Pétursson Svarfdælingur, en hann varð sjötugur í gær Jóhann Pétursson Svarfdælingur í rúmi sinu á Landspítalanum. Jóhann rifbeinsbrotnaði fyrir skömmu og er rúmfastur af þeim sökum. Morgunhlaóió/ KÖK SJÖTUGUR varð í gær sá mæti mað- ur Jóhann Pétursson Svarfdælingur, stærsti maður sem ísland hefur alið, og þótt víðar væri leitað. Kins og flestir vita er Jóhann eini fslending- urinn sem starfað hefur við fjölleika- hús mestalla sína starfsævi. Ungur fór hann utan til Kaupmannahafnar og starfaði í sirkus þar, en fluttist fljótlega búferlum til Bandarikjanna og vann þar lengstum við stærsta fjölleikahúsið þar í landi. Jóhann hefur átt við vanhcil.su að stríða und- anfarið og síðan hann kom hingað tii lands í júlí í sumar hefur hann dval- ið á Landspítalanum. Blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins litu inn til Jó- hanns í gær um kaffileytið, en þá voru staddar hjá honum systur hans og fleira vinafólk til að gleðj- ast eftir föngum með honum á þessum merkisdegi. „Ég hef nú ekki frá miklu að segja," sagði Jóhann, og kom þar öllum á óvart. „Þegar ég er óupp- lagður eins og núna — og satt að segja er ég ansi lasinn — hef ég ekki kraft til að ljúga neinu skemmtilegu. Ég er alveg rúm- fastur og get varla hreyft mig að nokkru marki. Það stafar fyrst og fremst af því að ég var svo óhepp- in að rifbeinsbrotna fyrir viku dá- lítið illilega og er því alveg í lama- sessi. Og nógu var heilsan þó slöpp fyrir.“ Jóhann kom hingað til lands í sumar til að leita sér lækninga, en hann hafði fengið aðsvif og dottið illilega og skaðað á sér fæturna. Hann hafði verið í æfingum nokk- uð lengi og náð sér svolítið á strik og því er rifbeinsbrotið núna mik- ið áfall. En við biðjum Jóhann að líta til baka og segja okkur eitt- hvað frá störfum sínum í sam- bandi við fjölleikahús. „Það var enginn dans á rósum oft á tíðum. Mikið um ferðalög og þau geta verið þreytandi til lengd- ar. Ég held reyndar að ég sé búinn að ferðast um Bandaríkin öll meira og minna. En starfið hafði sínar góðu hliðar, því er ekki að neita og það var vel gert við mig.“ Er það sæmilega borgað að vinna við fjölleikahús? „Það er varla hægt að segja það. En það er misjafnt sem borgað er, það fer eftir þeim númerum sem menn bjóða upp á. Öll fjölleikahús hafa nokkur toppnúmer og fyrir þau er vel borgað. En svo eru margir sem vinna við þetta og lepja dauðann úr skel. Annars held ég að ástandið hafi verið betra hér áður fyrr. Nú er samkeppnin við sjónvarpið það mikil að fjölleikahúsin dafna ekki eins vel og áður, og geta því kannski ekki greitt eins há laun. En ég sé ekki ástæðu til að kvarta. Ég hef aldrei haft há laun en nóg til að lifa sómasamlegu lífi.“ Hvers vegna lagðirðu þessa vinnu fyrir þig á sínum tíma? „Eitthvað varð maður að starfa. Það var mikið atvinnuleysi á þess- um tíma þegar ég var að byrja í fjölleikahúsum og mér gekk illa að fá vinnu. Og raunar fór ég utan sérstaklega í atvinnuleit.“ Er erfitt að vera svona stór? „Þú getur rétt ímyndað þér. Heimurinn er ekki sniðinn fyrir fólk af þessari stærðargráðu. Það þarf ekki annað en minnast á vandræðin við að fá sér föt við hæfi, og skó. Og fjölmargt annað.“ Hvað er þér efst í huga núna á sjötugsafmælinu þegar þú lítur um öxl? „Ég veit það ekki, satt að segja. Ég geri lítið af þvi að líta til for- tíðarinnar. Það skiptir mig mestu máli núna að reyna að fá heilsuna bætta að einhverju marki, þannig að ég verði fær um að vinna áfram. Því miður hef ég verið svo heilsutæpur síðustu 10 árin að ég hef ekkert getað unnið, en vonin um betri heilsu lifir og sú von er mér efst i huga um þessar mund- ir.“ Eiturefnin fundin EFNI þau, sem stolið var frá Hraðbraut í Garðabæ á þriðju- dagsmorgun, fundust í gær, en um var að ræða efni, sem notuð hafa verið til malbiksframleiðslu og eru lífshættuleg. Drengir, sem voru að leik í gryfjum á athafnasvæði Hrað- brautar, fundu aðra krukkuna og glasið undir gömlu sílói og létu lögregluna í Hafnarfirði vita af fundinum. Síðdegis í gær fundu svo starfsmenn Hraðbrautar hina krukkuna, sem hafði verið falin í skúr á svæðinu. Annað, sem tekið var í innbrotinu, var ófundið í gærkvöldi. Sjálfstæðisflokkurinn: Tíu taka þátt í prófkjöri eystra ÞAU mistök urðu við vinnslu blaðs- ins í gær, að nöfn tveggja frambjóð- enda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Austurlandskjördæmi féllu niður. Því fer fréttin eins og hún átti að birtast hér á eftir. Kgilsstaðir, 7. febrúar. Á FÖSTUDAG rann út frestur til að tilkynna þátttöku í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Austur- landskjördæmi, sem fram fer 25. og 26. þessa mánaðar. í kvöld hélt undirbúningsnefnd prófkjörsins fund hér á Egilsstöðum til að fjalla um framboðin, sem reynd- ust vera 10 og öll studd tilskildum fjölda flokksbundinna sjál stæð- ismanna í kjördæminu. Að sögn Rúnars Pálssonar, formanns undirbúningsnefndar- innar, eru frambjóðendur þessir: Albert Kemp, Fáskrúðsfirði, Egill Jónsson, Nesjahreppi, Gunnþór- unn Gunnlaugsdóttir, Seyðisfirði, Hjörvar Ó. Jensson, Neskaup- sstað, Hrafnkell Jónsson, Eski- firði, Július Þórðarson, Skorra- stað, Sigríður Kristinsdóttir, Eskifirði, Sverrir Hermannsson, Reykjavík, Tryggvi Gunnarsson, Vopnafirði og Þráinn Jónsson, Fellabæ. Prófkjörið verður opið öllum kosningabærum stuðnings- mönnum Sjálfstæðisflokksins í Austurlandskjördæmi og enn- fremur flokksbundnum sjálfstæð- ismönnum frá 16 ára aldri. — Ólafur Nýjar og traustar þjónustuhafnir Með góðri samvinnu við DFDS bjóðum við ódýran og skjótan flutning til og frá írlandi um Kaup- mannahöfn. Nú eru þjónustuhafnir Eim- skips í Dublin og Belfast. Umboðsmaður Dublin: DFDS SCAN - LINE LTD 72/80 North Wall Quay Dublin 1 Símar: 742219/740670/726811 Telex: 31076 Umboðsmaður Belfast: DFDS SCAN - LINE LTD 9 Weelington Place Belfast BT1 6GA Sími: 22467 Telex: 747905 * Alla leið f rá (rlandi meö EIMSKIP sími 27100 á o it

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.